Dagur


Dagur - 21.06.1961, Qupperneq 6

Dagur - 21.06.1961, Qupperneq 6
•8 Frá þriðja ÞRIÐJA ÞING Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, var háð á Siglufirði dagana 8.—10. júní sl. Þingið var sett í samkomu- salnum að Gránugötu 14. Theó- dór Jónsson, forseti sámbands- ins, flutti setningarávarp. Mætt ir voru 23 fulltrúar frá Siglu- firði, ísafirði, Húsavík, Akur- eyri og Reykjavík. Fulltrúar frá deildunum í Bolungarvík, Vest- mannaeyjum og Árnessýslu gátu ekki sótt þingið. Deildirnar í Vestmannaeyjum og Húsavík höfðu sótt um inn- töku milli þinga, og var inntaka ■þeirra endanlega samþykkt í upphafi þingsins. Þingforseti var kjörinn Sigur sveinn D. Kristinsson, Siglu- firði og varaforseti Sveinn Þor- steinsson, Akureyri. F ulltrúar hinna einstöku deilda fluttu skýrslur um störf- in, en því næst flutti Theodór Jónsson skýrslu sambands- stjórnar og Eiríkur Einarson las og skýrði reikninga sam- bandsins. Skuldlaus eign þess við reikningsuppgjör 1. maí nam kr. 278 þúsundum. Föstudaginn 9. júní var fund- ur settur kl. 9 f. h. Voru þá kosnar fastanefndir þingsins og síðan tekin til umræðu fjármál sambandsins, atvinnumál ör- yrkja, félagmál ýmis, trygginga mál, farartækjamál og tillögur 99 um lagabreytingar. í hléi var farin ökuferð um kaupstaðinn og næsta nágrenni í boði Sjálfs- bjargar á Siglufirði. Laugardaginn 10. júní kl. 10 f. h. var fundur settur á ný og ýmsar samþykktir gerðar. Sama dag hafði bæjarstjórn Siglufjarðar boð inni fyrir þing fulltrúa að Hótel Hvanneyri. — Þar flutti Sigurjón Sæmunds- son bæjarstjóri ávarp. Þingfor- seti, Sigursveinn D. Kristins- son, þakkaði. Að boði bæjarstjórnarinnar loknu, var þingfundur settur á ný, lokið afgreiðslu ályktana og kosin sambandsstjórn. Forseti sambandsstjórnar var endurkjörinn Theódór Jónson, Reykjavík. Varaforseti einnig endurkjörinn Zophonías Bene- diktsson, og sömuleiðis ritari Ólöf Ríkarðsdóttir og gjaldkeri Eiríkur Einarsson. Meðstjórn- endur voru kosnir Ríkarð Þor- geirsson, Reykjavík, Adolf Ingimarsson, Akureyri, Ingi- björg Magnúsdóttir, ísafirði, Jón Þ. Buch, Húsavík og Hulda Steinsdóttir, Siglufirði. Samþykkt var, að Sjálfsbjörg gerðist aðili að Oryrkjabanda- lagi íslands, og kosnir í full- trúaráð þess Zophonías Bene- diktsson, Ólöf Ríkarðsdóttir og Haukur Kristjánsson. — Einnig var samþykkt, að Sjálfsbjörg 59 gerðist aðili að Öryrkjabanda- lagi Norðurlanda, — VNI. Þingið kaus nefnd til þess að fylgjast með fyrirhugaðri end- urskoðun almannatryggingalag- anna og gera í því sambandi til lögur fyrir hönd Sjálfsbjargar. Einnig benti þingið á nokkur atriði í löggjöfinni, sem mest nauðsyn væri að breyta, og lagði sérstaka áherzlu á, að all- ir þeir, sem metnir eru 50% ör- yrkjar eða meira njóti stighækk andi lífeyris og annarra hlunn- inda skv. tryggingalögunum, einnig, að þeir, sem sérstakrar umönnunar þurfa við, fái hærri bætur en aðrir frá Trygginga- stofnuninni. Þingið lýsti miklum vonbrigð um yfir því, að hæstvirt ríkis- stjórn skyldi ekki leggja fyrir síðasta Alþingi tillögur milli- þinganefndar í öryrkjamálum ásamt frumvarpi til laga um tekjustofn fyrir Sjálfsbjörg, og skoraði þingið á hæstv. ríkis- stjórn að leggja nefndar tillögur og frumvarp fyrir næsta Al- þingi og leggja áherzlu á að fá þær samþykktar. Einnig sam- þykkti þingið, að óska eftir því, að Öryrkjabandalagið beitti á- hrifum sínum til þess að fá því framgengt, að styrkur úr Erfða fjársjóði til vinnuheimila Sjálfs bjargar yrði aukinn í a. m. k. (Framhald á bls. 7) FYRIRSPURN. BÆJARBÚI, sem leit inn á skrifstofu blaðsins á mánudag- inn, bað blaðið fyrir svohljóð- andi fyrirspurn: Hverjum ber skylda til að fjarlægja dót það og drasl, sem er í áramótabrennustæðum frá í vetur? Á túni vestan Þórunn- arstrætis er eitt slíkt, og þar er að myndast sorphaugur, því fólk er nú farið að flytja þangað rusl til viðbótar. Að þessu er hin mesta óprýði og áþrifnaður, sem þarf að ráða bót á, sagði bæjarbúi. □ Lömbin eiga réttinn. AF EINHVERJUM ástæðum sækir sauðféð á vegina, velur þá jafnvel öðrum stöðum frem- ur til að hvílast og lát'a sér líða vel. Þetta veldur umferðatöfum og er það leitt. En „lömbin eiga alltaf réttinn“, var einu sinni sagt, og er sú regla enn í gildi. Því miður verða stundum slys, vegna þess að ógætilega er ekið og stöku Sinnum virðist alls ekki auðið að forðast þau. En ef ekið er á kind, lamb eða önnur húsdýr, færist sú skylda á herðar bifreiðarstjórans, að bregðast mannlega við. Stund- um þarf að aflífa dauðsærðar skepnur og ávallt að tilkynna slysið þeim aðilum, sem eiga rétt til bóta. Því miður virðast ekki allir stjórnendur ökutækja færir um að gegna þessum skyldum, og aka jafnvel sem hraðast burtu og dylja verkn- aðinn. Þetta eru þó undantekn- ingar. En því er þetta gert að umtalsefni, að of margir mis- skilja skyldur sínar eða vilja flýja undan þeim, en það er ó- hæfa, hversu sem á málin er litið. Bréfin. Útlendur MAÐUR var hér nýlega á ferð á fögrum stað. — Nesti var upp tekið og þess neytt með góðri lyst. íslenzkir fylgdarmenn hirtu ekki um bréf, dósir og ávaxtahýði og lá það eftir. En um leið og stigið var inn í bifreiðina á ný, leit sá erlendi á ruslið, sneri við og fullnægði skyldum gestgjafa sinna á þann hátt, að tína það saman og bera það nokkurn spöl á afvikinn og heppilegan stað. Þar með var málið úr sögunni, en roða sló á kinnar hins ís- lenzka fararstjóra og gestgjafa, en hann hafði hlotið þögula en eftirminnilega kennslu í manna siðum. AJlir þurfa að hafa í huga, að það er hin mesta ómenning og raunar hreinn dónaskapur að spilla fegurð og friðsæld lands- ins með illri umgengni. Það þurfa allir að hafa í huga í sum arferðalögum, sem nú eru hafin. Refsing, sem dugði. EITT SINN bar það við á Ak ureyri, að vanþroskaðir ungling ar og miðlungi vel innrættir helltu olíu á kött, bundu hann við staur og kveiktu í honum. Þáverandi yfirlögregluþjóni fannst hýðing hæfileg refsing og framkvæmdi hana að sögn sjálfur á áberandi stað í bæn- um. Þessi refsing er sú síðasta sinnar tegundar á Akureyri, sem framkvæmd hefur verið af hinu opinbera. Og þessi gamal- kunna, umdeilda og ódýra uppeldisaðferð hefur dugað lengi, því bæjarbúar hafa eigi síðan brennt ketti sína lifandi Ennþá mun þó eitthvað eftir af illu innræti, enda ekki von að Jón Benediktsson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn, hafi hýtt það úr borgurunum fyrir alla fram- tíð, því svo er sagt, að sagan um brennda köttinn hafi endurtek- ið sig fyrir nokkrum dögum. Ef frétt sú er sönn, þurfa foreldrar að athuga í hverju uppeldinu er áfátt og segja börnunum dýra- sögur, er veki ást á málleys- ingjum. Ef það dugar ekki, þarf álíka áhrifaríka aðferð og áður segir af hendi lögreglunnar í bænum. Laxveiði. NÚ ER laxveiðitíminn byrj- aður og veiðimenn líta vonglöð- um augum til veiðidaga sinna. Nokrir sumardagar við fagra laxveiðiá gefa mörgum innisetu mönnum bæjanna góða upp- bót á marga tilbreytingarlausa og dapra daga innan fjögurra veggja, og lífinu aukið gildi. En þeir eru of margir, sem hugsa veiðidaga í laxapundum og krónum, eru of kappsfullir við veiðarnar og njóta þeirra ekki nema að hálfu vegna beinn ar veiðigræðgi, og sjá naumast hið unaðsfagra í umhverfinu, aðeins vatnið, er fiskinn geym- ir. Þessir menn eru sorgbitnir ef ekkert veiðist, af því veiðin er þeim allt. Smám saman er þetta þó að breytast. Árniður- inn, fuglasöngurinn, ilmur af gróðri og skin og skuggar um- hverfisins þrengja sér inn í hug skot veiðimannsins og verður honum dýrmætur fjársjóður, löngu eftir að laxinn er etinn og jafnt þótt enginn hafi bitið ó öngulinn. Veiðimen eiga að hlusta á raddir nóttúrunnar, jafnframt því að vera athugulir og listfengir veiðimenn. Þá eru veiðileyfin aldrei of dýru verði keypt. JEPPI TIL SÖLU Mjög vel með farinn jeppi með stálhúsi til sölu. — Uppl. gefur Haukur P. Ólafsson. Símar 1103 og 1813. TIL SÖLU FORD STATION ’55 Upplýsingar gefur Sigftis Bjarnason, sími 2437, eftir kl. 5 e. h. TIL SÖLU DODGE WEAPON með 10 manna húsi. Skipti á jeppa hugsanleg. Hagkvæmt verð ef samið er strax. Uppl. í síma 2613 kl. 17—18 næstu kvöld. Stefán Ó. Stefánsson. WILLY’S JEPPI TIL SÖLU. Lítil útborgun. — Skipti koma til greina. Uppl. í síma 1452. Nýuppgerður WILLY’S JEPPI TIL SÖLU. Nánari upplýsingar og sölu annast Jón G. Pálsson, Stórholti 5; Akureyri. Sími 2258. Heirna 2583. TIL SÖLU Sex manna Plymouth bifreið árgerð 1955. Uppl. í síma 2599. LÍTIÐ SKÚRHÚS TIL SÖLU. Baldur, Gleráreyrum 15. 13-14 ÁRA STRÁKUR óskast til sveitastarfa. Upplýsingar í Vinnu- miðlunarskrifstoíunni. STÚLKA óskar eftir ráðskonustarfi á fámennu heimili. Uppl. á Vinnumiðíunarskrif- stol unni sími 1169 og 1214. FÉLAGSKONUR ÞINGEY! Farin verður tveggja daga ferð að Herðubreiðarlind um laugardaginn 8. júlí. Þátttaka tilkynnist fyrir 30. júní í síma 1990 og 1796. N e f n d i n . Höfum nú fyrirliggjandit 4” _ 6” _ 8” pípur með tilheyrandi tengingunr. BYGG!MGARVÖRUDE!LD Afgréiðslan Gleráreyrum. SÍMI 2207. Matihíasarsafn á Sigurhæðum verður opið almenningi til sýinis sunnudaginn 25. þ. m. kl. 2—6 e. h. Aðgangseyrir 10 krónur. Nánar auglýst síðar hvenær safnið verður opið fram- vegis. STJÓRNIN.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.