Dagur - 16.08.1961, Qupperneq 1
i MAlracn Framsóknarmanna
ÍRrrsTjóm: Erungur Davíbsson
SKRIKSTOKA Í H AFNARSTRAITI 90
StMj i 166.. Sktnincu oc rrentun
AN.NA.ST l’ul.N l'VIíRK Ol)DS
BjORNSSONAlí ht. Akuruvri
V-----------------------------
Dagur
XLIV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 16. ágúst 1981 — 37. tbl.
Augia sistiAM jóm: Jón Sam-
ÚEX.SSON . Arcangukinn KOSTAR
KR. 100.00 . ('; JAl.PDACI F.R 1. JÚtl
BuaöIÐ KJSMUR ;:r Á MlftVlKUDÖG- •
t'M oc; Á UAUCARDÖGUM
I>F.CAR ÁST.FftA ÞYKIR TiL
s,-------------------------------->
.............................
I HÖRMULE6 HEYSKAPARTÍÐ !
| Á NORDURLANUI I SUMAR |
Súgþurrkunin hefur verið ómetanleg
ÞETTA SUMAR hefur verið
óvenjulega óhagstætt til hey-
skapar á Norðurlandi og eru
horfur á vandræðum ef ekki
bregður til hins betra á næst-
unni. í Húnavatnssýslum voru
þó þurrkar allgóðir framan af
sumri en því minni, sem aust-
ar. dró.
Aldrei hefur það komið betur
í ljós en nú hve súgþurrkunin
er nauðsynleg. Hún er hreint
að af þeim verður aldrei nema
lélegt hey, þótt það fengi góða
verkun. Votheysverkunin er
ekki svo almenn að hún leysi
vanda óþurrkasumranna. — Á
öðrum stað í blaðinu í dag eru
fréttir af heyskap o. fl., sam-
kvæmt viðtali við nokkra frétta
menn blaðsins nú í dag.
Afli þriðjungi meiri
Myndin er tekin af sænsku skátunum, rétt fyrir brottförina frá Akureyri.
(Ljósmynd: E. D.)
bjargræði nú í sumar, og skiptir
algerlega í tvö horn hjá þeim
bændum, sem þessi hjálpartæki
hafa og hinum, sem ekki hafa
enn komið upp hjá sér súg-
þurrkuninni.
í Þingeyjarsýslunum báðum
eru hey stórlega hrakin og víða
lítið búið að hirða í hlöður enn
þá. Á sumum bæjum hefur
ekkei-t einasta heystrá náðst
inn og víða er nokkur hluti
túnanna jafnvel ósleginn enn
þá. Má af þessu sjá að búskap
bænda er háski búinn ef svona
heldur áfram. Grassprettan
varð á endanum mikil og ósleg-
in tún eru svo úr sér sprottin,
en í fyrra á Húsavík
Húsavik 16. ágúst. Aflabrögð
eru góð. Á land er kominn þriðj
ungi meiri afli en á sama tíma
í fyrra. Innleggjendur eru milli
40—50 talsins. Mest er aflað á
opna vélbáta. Eins og er, er á-
gætis afli bæði á handfæri og
línu. Af nefndri tölu bátanna
eru aðeins 4 dekkbátar.
Kaupfélagið er að byggja
fyrsta áfanga nýs sláturhúss og
kjötfrystihúss í jaðri kauptað-
arins. Sláturhús félagsins, sem
var byggt 1931, er orðið allt of
lítið og er á þeim stað, sem úti-
lokar nauðsynlega stækkun, Sá
hlutinn, sem nú er tekinn fyrir,
verður væntanlega fokheldur í
haust. □
Sænskir skátar á lerSalagi um landiS
HINGAÐ til bæjarins komu 25.
júlí s. 1. 30 sænskir I.O.G.T.
skátar ásamt fimm skátum frá
Reykjavík, sem verið hafa leið
sögumenn þeirra hér á landi.
Þessir sænsku skátar fóru víða
um Suðurland áður en norður
var haldið.
Á leiðinni hingað gisti hópur-
urinn á Blönduósi, síðan var
komið að Glaumbæ og Hólum í
Hjaltadal auk annara staða í
Skagafirði og svo haldið til Ak-
ureyrar. Hér fyrir norðan skoð-
aði hópurinn Akureyri og Mý-
vatnssveit undir leiðsögn kenn-
aranna Tryggva Þorsteinssonar,
ENN ER SÍLD FYRIR AUSTAN
Á MIÐNÆTTI sl. laugardag
var síldaraflinn orðinn 1.360.626
mál og tunnur. Skiptist hann
þannig:
í salt, uppsalt. tn. 353.080.
í bræðslu, mál 975.960.
í frystingu, uppm. tn. 21.474.
Bræðslusíld í erl. skip 10.112.
í fyrra var á sama tíma að-
eins 125.483 tunnur saltaðar og
632.288 mál í bræðslu og minna
fryst en nú. — Landlega var hjá
flotanum á sunnudag og mánu-
dag og nú er komin bræla á ný.
En á mánudag og þriðjudag var
nokkur veiði. Á mánudaginn
biðu 15 skip löndunar á Vopna-
firði og fóru mörg skip að aust-
i *:
Flutti Ijóð af skörungsskap
ÍSLENDINGAR gleyma ekki
ættjörð sinni, þó að þeir búi
hinum megin á hnettinum. Vest
ur á Kyrrahafsströnd í borg
þeirri, sem Seattle heitir, í
Washingtonríki, hélt „Lestrar-
félagið Vestri“ allfjölmennt mót
þann 17. júní sl. Þar birtist
þessi fagra kona, sem hér er
mynd af, í íslenzkum þjóðbún-
ingi og flutti íslenzkt ljóð af
miklum skörungsskap. Hún heit
ir: Guðný Elhel Vatnsdal, fædd
vestan hafs, en foreldrar henn-
ar voru Þórður (Thomas) Vatns
dal, ættaður frá Skáleyjum á
Breiðafirði, og Anna Jónsdóttir
frá Munkaþvcrá, nú bæði látin.
Foreldrar Onnu voru: Guðný
Eiríksdóttir föðursystir Stefáns
Jónassonar skipstjóra, sem var
á Knarrarbergi, nú á Akureyri,
og Jón Jónson, bróðir Stefáns á
Munkaþverá. Jón dvaldi hálfa
öld í Veturheimi, en kom heim
aftur í elli sinni og andaðist á
Munkaþverá 1945.
Miss Ethel Vatnsdal heim-
sótti ísland með móður sinni ár
ið 1954 og muna margir Eyfirð-
ingar þessa ágætu konu. □
an alla leið til Siglufjarðar og
jafnvel til Vestmannaeyja til að
landa. — í morgun fengu 6 skip
síld á norðursvæðinu: Heiðrún
frá Bolungarvík fékk 250 mál
14 sjóm. NNV af Siglufirði,
Víðir II. 300 mál á svipuðum
slóðum, Guðm. Þórðarson 70
mál 16 sjóm. AaS frá Grímsey
og 3 önnur skip fengu veiði hér
fyrir norðan. Síldin er mögur
og fremur smá, líkist Faxasíld.
Víðir II. er enn aflahæsta
skipið og hafði um helgina feng
ið samtals 19.490 mál og tunnur.
Næstur var Ólafur Magnússon,
Akureyri, með 17.925, og Guð-
rún Þorkelsdóttir með 17.672.
Jónasar Jónssonar og Sigríðar
Skaftadóttur. íslenzkir skátar
greiddu hvarvetna götu þessa
flokks um landið.
Fréttamaður blaðsins hitti
skátana að morgni föstudagsins
28. júlí er þeir voru á förum úr
bænum og fékk hjá þeim eftir-
farandi upplýsingar.
í Svíþjóð er skátareglan mjög
útbreidd. Auk B.P.-skátanna,
sem eru fjölmennastir, eru þar
öflug sambönd K.F.U.M-skáta,
I.O.G.T.-skáta og N.T.O.-skátar
og hjálpræðishersskátar eru þar
í sérstökum samböndum, en öll
þessi samb. eru í sænska skáta-
bandalaginu, Svenska Scouruni
onen. Samband I.O.G.T.-skát-
anna telur um 10.000 meðlimi
og voru þrír af stjórnendum
þess sambands með í þessari ís-
landsferð, þar á meðal farar-
stjórinn, Arne Lundberg frá
Stokkhólmi og Kjel Alverholt,
sem stjórnar Gillwelskóla
sænsku I.O.G.T.-skátanna. í
þessum hópi voru eingöngu
skátaforingjar og eldri skátar.
Þar af voru fimm hjón. Flestir
voru milli tvítugs og þrítugs,
en þeir yngstu 16 ára og þeir
elztu 46 ára. Fólkið var víðs-
vegar að úr Svíþjóð. Síðan 1952
hafa I.O.G.T.-skátarnir skipu-
lagt utanlandsferðir svipaðar
þessari, er farnar hafa verið
annað eða þriðja hvert ár, oft-
ast með 200—300 þátttakendum.
Fararstjórinn sæmdi Tryggva
Þorsteinsson heiðursmerki
sænska skátasambandsins, sem
veitt er fyrir frábær störf í
þágu skátareglunnar.
R"l"llllllll\illllllllll"llllll"lllllllllllllllll"llllltlllM*
| ÞRJÁR BÆKUR I
KVÖLDVÖKUÚTGÁF AN á
Akureyri mun á þessu ári gefa
út endurminningar Bernharðs
Stefánssonar, aðra um huglækn
ingar eftir Ólaf Tryggvason frá
Hamraborg og um skáldkonur
fyrri alda eftir Guðrúnu P.
Helgadóttur.
Allra þessara bóka mun beðið
með eftirvæntingu. □
Nýtt fiskiðjuver byggt á Þórshöfn
Gunnarsstöðum 16. ágúst. Hey-
skapur hefur gengið ákaflega
illa enda aðeins einn og einn
flæsudagur. Súgþurrkunar-
ÓKEYPIS MÁLVERKASÝNING
Miss Ethel Vatnsdal.
ANNAÐ KVÖLD lýkur mál-
verkasýningu í Landsbankasaln
um. Þetta er sýning á verkum
Sigurðar Kristjánssonar list-
málara í Reykjavík.
Á sýningunni eru landslags-
myndir o. fl. Listmálarinn er á
sjötugsaldri, talinn listamaður
„frá toppi til táar“, hefur mál-
að í hálfa öld og hélt sína fyrstu
sýningu í Bogasalnum í sumar
og hlaut mikla athygli. Allir
eru boðnir velkomnir á þessa
sýningu hér og ættu menn að
notfæra sér það nú þegar. Upp-
setningu annaðist Kristján Fr.
Guðmundsson kaupmaður og
telur sér heiður að því að
kynna þessi verk.
Sigurður Kristjánsson er
fæddur í Miðhúsum í Garði, en
hefur lengst af átt heima í
Reykjavík. Hann er víðförull
mjög, lærður húsgagnasmiður
og teiknari frá yngri árum sín-
um í Kaupmannahöfn, var
nokkur ár í siglingu, hefur ann-
azt viðgerðir og endurnýjun
listmuna og málað hinar marg-
víslegustu myndir, sem nú fyrst
í sumar koma fyrir almennings
sjónir í Reykjavík og á Akur-
eyri.
Hinn aldni og hlédrægi lista-
maður dvelur fyrir sunnan á
meðan verk hans gleðja Akur-
eyringa. Síðasta tækifærið er á
morgun, fimmtudag. □
bændur standa mun betur að
vígi. Margir eru mjög lítið bún
ir að hirða enn þá af fyrri slætti
og enn er nokkuð óslegið. Hey-
in eru mjög skemmd. Veður-
fregnir reynast okkur nú sér-
staklega óáreiðanlegar.
Á sunnudaginn voru mikil
fundahöld. Tilefni fundanna var
fyrirhuguð hlutafélagsstofnun,
er hefji framkvæmdir að bvgg-
ingu nýs fiskiðjuvers á Þórs-
höfn. Kaupfélagið rekur lítið
hraðfrystihús, beinamjölsverk-
smiðju og síldai'bræðslu. En
þetta nægir engan veginn fyrir
vaxandi útgei'ð. Kaupfélag Þórs
hafnai', Útvegsmannafélagið og
hi'eppsfélagið samþykktu öll á
fundum sínum að vinna að þess
ari félagsstofnun. Er líklegt tal-
ið, að þriðjungaskipti verði milli
þessara aðila og að þau taki á
leigu hraðfi'ystihús kaupfélags-
ins.
Á mánudaginn hóf vinnu-
flokkur Þorvaldar Guðjónsson-
(Framhald á bls. 7)