Dagur - 13.09.1961, Blaðsíða 1

Dagur - 13.09.1961, Blaðsíða 1
( ; ' M 'u.<;.\<;n I ramsóknarmanna R rsTjóiu: Kruncuk Davíhsson* SKRII-STOI’A í HAK.NARSTR.en 90 Sí.Mi H(K>, StrrNi.Nco <:x; rrkn i un an.nast I’rkni verk Odds B (<>rnssona« h.k, Akurrvri Dagur XLIV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 13. september 1961 — 43. tbl. r— - -— ---------------- AiT.i.v.slN<;ASTjóki: Jón Sam- ÚEI.SSON . ÁRCANOURINN KÓSTAR KH. 100.1)0 • CjAl.DDAOI ER I. JÚi.Í BUAWÐ Kf .Ml'K IM' Á MIDVIKUDÓO- ril ÓG A !.Ai:CAROÖCL*M l*F.CAR ÁST.EBA ÞVKIR TII. I__________________________________ FORSETAHJÓNIN TIL KANADA Við steypustöð Malar og sands h.f. hjá Glerá. Steypublöndunarbíll, sem lyft getur steypunni í veggi allt að fimmtán lvæða húsa, og einn hinna stóru, hentugu steypuflutningabíla. (Ljósmynd: E. D.) Steypustöð tekin til starta á Akureyri FORSETI ÍSLANDS, herra Ás- geir Ásgeirsson, fór í opinbera heimsókn til Kanada, ásamt konu sinni, frú Dóru Þórhalls- dóttur, hinn 11. sept. sl. Með í förinni voru m. a. Guð- mundur í. Guðmundnsson og frú, Haraldur Kröyer og frú, Hallgrímur Hallgrímsson ræð- ÞRÍR AKUREYRING- AR I LANDSLIÐINU ÞRÍR AKUREYRINGAR voru valdir í landsliðið til keppni í London á Taugardaginn kemur. Það voru þeir Jakob Jakobsson, Steingrimur Björnsson og Jón Stefánsson. Steingrímur veiktist og var í gær ákveðið af landsliðsnefnd að velja Kára Arnason í hans stað. Englandsferðin mun taka 10 daga, og verða leiknir 2 leikir, auk Tandsleiksins. Leikmenn í förinni eru alls 16, bæði aðal- menn og yaramerin. □ Á LAUGARDAGINN var frétta mönnum og mörgum öðrum gestum boðið að skoða nýtt, stórt og mjög vandað verk- smiðjuhús Súkkulaðiverksmiðj unnar Lindu h.f. á Akureyri. Stendur það við Hvannavalla- götu og er tilbúið undir flutn- ing á verksmiðjuvélum þangað og til þess síðan að hefja marg ismaður, dr. Finnbogi Guð- mundsson og frú. Thor Thors ambassador og kona hans koma til móts við forsetahjónin í Kanada. í dag dvelur forsetinn í Ottawa og á morgun er ákveðið að fara til Winnipeg, þar sem forsetahjónin verða gestir stjórnarinnar í Manitoba. Þar talar forsetinn bæði í útvarp og kemur fram í sjónvarpi. Þar mun hann einnig heimsækja stofnanir manna af íslenzkum ættum og hitta marga landa. Á sunnudaginn heimsækir hann Gimli á Nýja-íslandi, á mánudaginn þiggur forsetinn boð dr. Pauls H. T. Thorláks- sonar, formanns hins íslenzka kennarastóls við Manitobahá- skóla. Á þriðjudaginn verður haldið til Regina og Wynyard, síðan til Victoria og Vancouver í brezku Columbiu. Að þessu loknu verður flogið til austurstrand- arinnar og lýkur þar hinni op- inberu heimsókn. □ falt meiri framleiðslu en áður. Eyþór Tómasson, aðaleigandi og framkvæmdastjóri verksmiðj unnar, bauð gesti velkomna og drap á nokkur veigamestu at- riði í stuttri, en farsælli sögu fyrirtækisins og skýrði frá því, á hvern hátt hið nýja húsnæði yrði notað. Aðrir, sem til máls tóku við þetta tækifæri, voru: ALLRA síðustu vikur hefur mátt sjá í Akureyrarkaupstað ný tæki, sem tilheyra bygginga iðnaðinum. Það er steypubíll frá Möl og sandi h.f., sem ekur fulllagaðri steypu til húsbyggj- enda, og steypublöndunarbíll, Bjarni Benediktsson, forsætis- ráðherra, Sveinn Valfells, Jak- ob Frímannsson, Jónas Rafnar og Magnús E. Guðjónsson, og árnuðu þeir fyrirtækinu allra heilla. í harðri samkeppni við hlið- stæðar verksmiðjur hefur Linda á skömmu árabili náð ör- uggum og ört vaxandi viðskipt- um og vinsældum. Og þótt kaup mannshæfileikar Eyþórs Tóm- assonar séu ekki dregnir í efa, eru það þó vörugæðin, sem úr- slitum réðu í því efni. Á Akureyri, sem fyrst og fremst er iðnaðarbær, ber að fagna hverju því fyrirtæki, sem framleiðir góða vöru, veitir ör- ugga atvinnu og er bænum til eflingar. Linda er nú bezt búna súkku laðiverksmiðja landsins og því mun einnig haldið fram hér, þar lil annað reynist sannara, að hún framleiði beztu súkkulaði- vörurnar. Súkkulaðiverksmiðjan er 12 ára og starfslið hennar fyrst að- eins 3 stúlkur og karlmaður. Nú telur starfsliðið 40 manns, en nýja byggingin er þó miðuð við 80 manr.a starfslið. Framleiddar eru um 40 tegundir af súkku- laðivörum og fleira góðgæti. Stærð verksmiðjunnar er 10.300 rúmmetrar í 3ja hæða húsi. Þar munu starfsskilyrði mjög góð. (Fi'amhald á bls. 7) sem blandar steypuna og hægt er að staðsetja á byggingarstað og nota til að lyfta steypunni í allt að 15 hæða hús. Þetta hvort tveggja er nýtt á Akureyri og tilheyrir þeim áfanga í starfsemi Malar og sands h.f., að verða fyrsta steypi stöðin á Norðurlandi. Möl og sandur h.f. er 15 ára fyrirtæki, sem Akureyrarbær, Kaupfélag Eyfirðinga og ein- staklingar eiga, og Hólmsteinn Egilsson hefur veitt forstöðu siðustu 7 árin. Þetta fyrirtæki byrjaði að selja möl og sand í steinsteypu 1955. Efnið er með því bezta, sem þekkist hér á landi, samkv. umsögn Rannsóknarstofu Há- skólans. Það er tekið í landi Glerár og er allt þvegið og unn ið samkvæmt kröfum bygging- ariðnaðarins. Sjálft er fyrirtæk- ið staðsett sunnan Glerár, ná- lægt skilarétt Akureyringa og eru þar komin upp myndarleg mannvirki fyrir þessa starf- semi. Möl og sandur h.f. hefur 12— 14 menn í sinni þjónustu. Með í GÆRKVÖLDI kallaði stjórn Fegrunarfélags Akureyrar frétta menn og eigendur fegurstu garð anna í Akureyrarkaupstað á sinn fund. Jón Kristjánsson form. Fegr- unarfélagsins afhenti við það tækifæri verðlaun og viðurkenn ingar fyrir skrúðgarða þá, sem sérstök dómnefnd hafði orðið á- sátt um að mæla með. Verðlaunagarðurinn 1961 er í Grænugötu 2, eigendur frú Guð rún Hannesdóttir og Karl Frið- riksson. Viðurkenningu hlutu: Frú EU en og Sverrir Pálsson, Möðru- þeim tækjum, sem nú eru fyrir hendi, getur fyrirtækið annað verkefnum í helmingi stærri bæ en Akureyri er nú. Fyrirtækið hefur hafið fram- leiðslu á rörum og á i pöntun vélar til holsteina- og plötu- gerðar. Til gamans má geta þess, að ekki tekur lengri tíma en svo sem 2 klukkustundir að fram- leiða steypu og fylla í mót í hverja húshæð í venjulegu íbúðarhúsi. Steypublöndunarbíllinn getur hrært 25 rúmmetra af steypu á klukkustund og komið því magni frá sér í steypumót sam- tímis. Óhætt má segja, að mönnum hefur líkað vel að skipta við Möl og sand h.f. Kannski má vænta þess að fyrirtækið annist bráðlega fram leiðslu húshluta eða heilla húsa? Breytingar í byggingar- iðnaðinum eru mjög nauðsyn- legar og þyrfti sem fyrst að komast frá því ólánlega hnoði, sem nú ríkir og hefur lengi ríkt í þessari iðngrein. vallastræti 10, frú Kristbjörg Ingvarsdóttir og Herbert Tryggvason, Kringlumýri 33, frú Sigríður Ingimarsdóttir og Magnús Kristinsson, Viðimýri 9 og frú Lovísa Pálsdóttir og Krist inn Þorsteinsson, Hamarstíg 22. I álitsgerð dómnefndar, en hana skipa Arni Jónsson, Helgi Steinar og Jón Rögnvaldsson seg ir, að sumir af elztu og fegurstu görðum bæjarins hafi farið í van hirðu síðustu ár hjá nýjum eig- endum. Til fyrirmyndar telur dómnefndin fegrun raðhússins við Norðurbyggð 1, og áhuga nýrra húsbyggjenda. □ Eyþór Tóniasson segir frá súkkulaðiframleiðslu Lindu og hinum nýju franikvæmdum við vígslu nýja verksniiðjuliússins. (Lj.: E.D.) Súkkulaðiverksmiðjan Linda á Akureyri Híin er flutt í glæsileg húsakynni við Hvanna- vallagötu, margfaldar afköst sín og hefnr þegar samið um sölu á súkkulaði til Bandaríkjanna FEGURSTU GARÐAR BÆJARINS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.