Dagur - 18.10.1961, Blaðsíða 1
; AHk.m.n . I'rams6knarman.\a
R r.srjnKi: Kkuxí.i k Davíbsson
i Hai nak.stk.i n 90
SlMi f 16G . SnNIM.I' OG l‘ÍU£NTUN
ANNAST 1‘ltKNTVKRK OlJUS
BjOK.NSMlNAU ll.l’, \UTIt! VKI
Dagur
XLIV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 18. október 1961 — 49. tbl.
Al T.i V.IM. \sT |Ókl: ÓN N.\m
ei.r.’isG.. , Áiu.ai’nt.iíkí KR. 100.00 . <.JAI.DI.A',! BlM.i'in K1 1 ’K Á M ' N Ks.'MaR I j |ö».i i>V:!U:iA>(.-
tT'OAR Ási'.t’.ÓA 1>YK Itt 111,:; — .
Vantrauststillaga á ríkisstjórnina komin fram
MARGIR FÓRU TIL RJÚPNA
ÞANN 15. október var friðunar
tími rjúpna útrunninn og
brugðu þá rjúpnaskytturnar
við. Norðan lands og sunnan
gengu menn til fjalla og heiða
og sumir kornust í hann krapp-
ann, svo sem á Holtavörðuheiði
og Reykjaheiði. Villiam Pálsson
Halldórsstöðum og Höskuldur
Jónsson Húsavík fóru til rjúpna
á Reykjaheiði, en lentu í hríð og
illviðri á heimleið. Bíll þeirra
neitaði að erfiða. Þetta bar við
hjá Höskuldsvatni. Jeppa bar
þar að, en hann gat ekki tekið
farþega en gerði aðvart á Húsa
vík. Tveir lögregluþjónar fóru
þá á lögreglubíl til aðstoðar, en
hann komst ekki alla leið vegna
snjóa. Annar lögreglumaðurinn
hélt þá til Húsavíkur og fékk
Skarphéðin bílstjóra með trukk
til aðstoðar og gekk þá allt vel.
Margir Húsvíkingar fóru til
rjúpna á sunnudaginn. Þeir
segja töluvert af rjúpu, en þær
séu styggar. Þeir komu heim
með 40—50 stk. mest.
Bátar þeir, sem ég sagði frá
í gær, komu heim í dag, nema
Helga, sem komst í höfnina síð
ar um daginn.
Trillu fyllti, og á annarri
brotnaði kinnungur og má þ.að
heita vel sloppið í slíku veðri
og brimi. (Húsav. 17. okt. - Þ.)
Aiþingi kcm saman 10. okfóber
ALÞINGI ÍSLENDINGA, hið stjórnaði fundi og minntist lát-
82. í röðinni, var sett 10. okt. sl.
eftir guðsþjónustu í Dómkirkj-
unni.
Gísli Jónsson, aldursforseti,
f Harður árekstur
Á FJÓRÐA TÍMANUM á mánu
dagsmorgun mættust jeppi og
fólksbifreið í brekkunni neðan
við Háls í Fnjóskadal og skullu
saman. Annað framhjólið hrökk
undan jeppanum og báðir bíl-
arnir skemmdust mikið, en fólk
sakaði ekki.
Á sunnudagsnóttina var vöru
bíl stolið hér í bæ. Þar var ung
ur og ölvaður maður að verki.
Ók hann norður fyrir Glerár-
hverfi og liafnaði utan vegar.
Bíllinn skemmdist lítt eða ekki.
inna þingmanna, Jóhanns Þ. Jós
efssonar, Gunnars Ólafssonar,
Angantýs Guðjónssonar og Ás-
geirs Sigurðssonar.
Fjórir varaþingmenn tóku
'i sæti á þessu þingi: Jón Pálma-
r son í stað Guniiars Gíslasonar,
| Hjörtur Hjálmai-sson í stað
Birgis Finnssonar, Einar Sig-
urðsson í stað Jónasar Péturs-
sonar, og Sveinn S. Einarsson í
stað Ólafs Thors.
Fjárlagafrumvarpið fyrir árið
1962 var laagt fram. Fjárlög
hækkuðu að mun og eru komin
yfir 1700 milljónir króna. Eru
þetta hæstu fjárlög, sem fram
hafa komið. Verður vikið nánar
að þessu síðar.
Hermann Jónasson og Ey-
steinn Jónsson lögðu á fyrsta
(Framhald á bls. 7)
É Ilannes Hafstein bundinn við togarabryggjuna á meðan nótm er dregin inn. Síldarhreistur skartar
\ á Kristjáni skipstjóra. Baldvin Þorsteinsson heldur nótinni £ró bryggju á litla bátnum. (Ljm.: E.D.)
Alvarlegt ástand í Norður-Þing.
Gunnai'sstöðum 16. okt. Nú er
hvassviðri og snjókoma. Hér er
alvarlegt ástand, því að svo illa
hefur heyskapur gengið, að enn
eru hey úti, sem slegin voru í
júlí. Á nokkrum stöðum eru
tún óslegin. Og hey, sem hrak-
ist hafa lengst, eru orðin alveg
ónýt. Á raklendum túnum er
ekki hægt að fara um á drátt-
arvél, svo blaut eru þau orðin.
Tveir bændur hættu búskap
Á SUNNUDAGINN buðu Ak-
ureyrarstúkurnar fréttamönn-
um að skoða húseignina Aðal-
stræti 46, eða Friðbjarnar
Steinssonar hús, sem er meira
en 100 ára gamalt og’ að því
leyti sögufrægt, að þar var
stofnuð fyrsta stúka á íslandi,
ísafold no. 1. Sá atburður varð
10. janúar 1884.
Frkv.ráð templara á Ak.: F. v.: Stef. Ág. Kristjánsson, Bjarni Hall-
dórsson, Guðm. Magnússon, Jón Kristbisson og Eir. Stefánsson.
Friðbjörn Steinsson bóksali
og' bæjarstjórnarmaður er tal-
inn aðalhvatamaður að stofnun
þessari, sem siðar varð öflugur
félagsskapur víða um land.
í sömu stofu og 12 stofnendur
undir forystu Friðbjarnar,
bundust samtökum um varnir
gegn áfengisböli, sátu nú frétta
menn ásamt framkvæmdaráði
stúknanna í bænum. Jón Krist-
insson bauð gesti velkomna og
drap á nokkur veigamestu atr-
iði í starfinu og sagði auk þess
þær góðu fréttir, að stúkurnar
hefðu nú fest kaup á þessu
húsi og yrði það varðveitt sem
vagga Góðtemplarareglunnar
hér á landi.
Áður en stúkur vom stofnað
ar og barátta hafin gegn áfeng-
isböli, var brennivín selt í
(Framhald á bls. 7)
hér nú, á Gunnólfsvík á Langa-
nesstrtönd og Hvammi II.
Um 14200 fjár er slátrað, og
er það vænna til frálags en í
fyrra. Flestir bændur fækka á
fóðrum nú í haust.
Búið er að stofna nýtt félag,
og sagði Dagur frá því í sum-
ar, er það var í undirbúningi.
Það heitir Fiskiðjusamlag Þórs-
hafnar.
Formaður þess er Vilhjálm-
ur Sigtry^gsson, oddviti Þórs-
hjnfnar, og framkvæmdastjóri
Sigurður Tryggvason, áður að-
albókari kaupfélagsins.
Smíði nýrrar brúar, undir
stjórn Þorvaldar Guðjónssonar
frá Akureyri, yfir Sandá, er að
mestu lokið, en eftir að steypa
gólfið.
Hér var fyrir skömmu Krist-
ján Hannesson frá Víðigerði,
sendui- af Dráttaarvélum h.f. til
að yfirifara og gera við dráttar-
vélar bænda. Bændur eru mjög
þakklátir fyrir þessa þjónustu,
enda var hún með ágætum.
Nýlega var rætt um mikla
afkastamenn við fláningu á
sláturhúsum. Hermann Þor-
valdsson, Þórshöfn, er vel
kunnur fláningsmaður hér um
slóðir. Siðastliðna viku fló hann
ó 8 klst. vinnudögum sem hér
segir:
Á mánudaginn 214, þriðjud.
219, miðvikud. 209, fimmtud.
185 á föstudag var fáu slátrað,
og á laugardag 204 — eða 1031
kindur á 5 dögum.
Aðeins 4 vinna við fláningu í
sláturhúsinu. Auk Hermanns
þeir Sigfús A. Jóhannsson,
Gunnarsstöðum, Aðalsteinn Sig
fússon, Hvammi, og Marinó
Sigurðsson, Þórshöfn.
Lógað er allt að 600 fjár á dag
og er því auðséð að þama eru
dugandi menn að verki.
Farin eru nær 80 tonn af
kjöti, þar af 60 til Englands. □
«11111111111lllllllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIINtJk
| Fjáreigendur á Ak. j
1 greiða skaðabætur !
Á AKUREYRI eru fjölmargir
fjáreigendur og flestir hirða vel
um kindur sínar. Of margir
sleppa þeim þó á illa girta tún-
bletti á haustin féð sleppur út
og gæðir sér á hverjum þeim
gróðri borgaranna er hugurinn
girnist og verða af þessu leið-
indi og klögumál.
Nýlega urðu nokkrir fjáreig-
eindur að greiða ska'ðabætur,
flestir kr. 15.00, fyrir hverja
flækingskind, sem náðist, og
urðu það nokkur útgjöld fyrir
þá, sem áttu 10—20 slíka flæk-
inga, hér og þar. Iiitt er þó
verra, að trassafengnir fjáreig-
endur magna andúð ó sauðfjár
búskap í bænum og torvelda
þeim að fá sæmilega aðstöðu til
að halda honum áfram, en það
vilja mai'gir. □