Dagur - 18.10.1961, Síða 2
2
Tónlistarfélag Akureyrar kall
aði á fréttamenn í fyrrakvöld
og tjáði þeim fyrirætlanir sínar
í hljómleikahaldi í vetur. Stefán
Ág. Kristjánsson hafði orð fyrir
félagsstjórninni.
Fyrir áramót verða tvennir
hljómleikar. Sigurður Björns-
son syngur með aðstoð Guðrún
ar Kristinsdóttur hinn 26. okt.
Um miðjan nóv. koma svo þeir
Bj örn Ólafsson og Árni Krist-
jánsson og halda hljómleika. En
það eru 18 ár síðan þeir héldu
sjálfstæða liljómleika á Akur-
eyri á vegum T. A. Tvennir
hljómleikar verða eftir áramót
in.
Á þessu ári hefur Tónlistar-
Á LAUGARDAGINN kemur,
eca 21. okt. mun hefjast í
kristniboðshúsinu Zion, kristni
boðs- og æskulýðssamkomur.
Verða þær á hverju kvöldi kl.
8.30 til sunnd. 29. okt., á vegum
kristniboðsfél. kvenna og
K.F.U.M. og K.
Málefni kx-istniboðsins hefur
vakið æ meiri athygli hér á
landi og hefur skilningur á
starfi þess í mörgu farið vax-
andi. Og einmitt á þossum
kvoldum gefst mönnum tæki-
færi til að kynnast kristniboðs-
starfinu og er ekki að eía, að
marga fýsi að leggja leið sina
í Zion þessi kvöld.
Þá má og geta þess, að 2 ræðu
félagið aðeins haldið eina hljóm
leika og þeir tilheyrðu fyrra ári.
Nú verður tónlistarstarfsár fé-
lagsins frá hausti til hausts og
hefst það tímabil með hljómleik
um Sigurðar.
Styrktarfélagar, sem eru um
120 talsins, með tvo miða hver,
greiða 50 krónur i hvert sinn.
Miðarnir verða sendir heim og
greiðat um leið.
En það er mikil vöntun í
hljómleikahaldi í þessum bæ.
Þar fyrirfinns ekkort nægilega
gott hljóðfæri, sem bjóðandi
þykir píanósnillingum til ein-
leiks. Flygillinn í Nýja bíó, sem
löngum er notaður, er ekki tal-
inn uppfylla kröfur, sem lista-
llllllltlMIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIII'MIIIIIIIIIIIIIIIIIII II*
þessari viku, þeir Ólafur Ólafs-
son kristniboði, sem mörgum
Akureyringum er að góðu kunn
ur og Þórir Guðbergsson.
Á kvöldum þessum verða frá
sögur frá kristniboði, einnig
verða sýndar skuggamyndir og
kvikmyndir. í lok vikunnar
verður svo tekið á móti gjöfum
til íslenzka kristniboðsins. —
Allir eru hjartanlega velkomn-
ir á samkomur þessar, bæði ung
lingar, og ekki sízt þeir, og
eldri og allir þar á milli. Og
það má gjarna enda með þess-
um orðum sem svo oft eru not-
uð: Komið, sjáið, reynið.
Verið velkomin í Zion.
menn gera til hljóðfæra.
Nýr flýgill kostar urri eða yf-
ir 300 þúsund krónur. Tónlistar
félagið á enga peninga, en von
andi ráð undir rifi hverju, sem
komið gætu að notum með að-
stoð almennings. Vandað hljóð-
færi þarf hér að bæta úr brýnni
þörf og ekki ættu bæjarbúurn
að vaxa slík hljóðfærakaup í
augum. □
■MIMMMMMMMMMMMMMMMMMMMIMMMMMMMMMMMII
FYRSTI VETRARDAGUR hef
ur undanfarinn áratug verið að
nokkru helgaður barnaverndar
hreyfingunni. Alls eru nú 10
barnaverndarfélög starfandi í
landinu, og hafa myndað með
sér samband, og er Matthías
Jónasson, prófessor, formaður
þess. Nýlega hélt sambandið
aðalfund sinn og voru þar flutt
nokkur athyglisverð erindi um
þessi mál. Kom þar fram meðal
annars að við erum að eignast
talsverðan hóp af ungu, efni-
legu, sérmenntuðu fólki til að
VANTRAUSTIÐ
BÚIZT ER VIÐ að útvarpsum-
ræður um vantrauststiílögu
Framsóknarmanna á ríkisstjórn
ina, fari fram í næstu viku og
standi tvö kvöld. Umræðum
verður útvarpað og geta menn
sér þess til, að þá fái aumingja
stjórnin orð í eyra, enda hefur
hún til þess unnið. □
Keflavík — Akureyri 2:1
AKUREYRINGAR léku sinn
fyrsta og síðasta leik í bikar-
keppninni 1. okt. Mættu þeir
Keflvíkingum hér á íþróttavell
inum og töpuðu með 2:1. Flestir
bjuggust við sigri heimaliðsins
þar sem frammistaða þeirra
hafði verið nokkuð góð í 1. deild
arkeppninni, en Keflvíkingar
orðið að láta sér nægja 2. sæt-
ið í 2. deild. En Keílvíkingar
voru mun ákveðnari og dug-
legri í leik sínum og unnu á
því. Yfir Akureyrarliðinu var
nokkur deyfð og kæruleysi og
þó segja megi -að óheppni hafi
h'ka verið með þeim, t. d. að
skora ekki mark úr vítaspyrnu,
þá eru úrslitin nokkuð sann-
gjörn. Þannig fór um fyrstu
keppni Akureyringa í Bikar-
keppni íslands. Nú er aðeins eft
ir úrslitaleikurinn í keppninni
mill KR og Akraness, en það
síðarnefnda vann Keflavík
naumlega s.l. sunnudag. □
Auglýsingar þurfa að
berast fyrir hádegi dag-
inn fyrir útkomudag.
spyrnu
Keflavík — Akureyri 4:2
EFTIR ófarirnar við Keflvík-
inga í bikarkeppninni, hugðust
Akureyringar jafna hlut sinn
við þá í hinni árlegu bæja-
keppni þessara aðila. Fór leik-
urinn fram í Keflavík 7. þ. m.
við mjög slæmar aðstæður, völl
urinn var vatn og for, og því
mjög erfiður að leika þar knatt
spyrnu á venjulegan hátt. Ekki
skal fjölyrt um leikinn, en Kefl
víkingar unnu enn og nú með
4:2 og fögnuðu sigri vel, en Ak
ureyringar með fjóra landsliðs-
menn í liðinu héldu daprir
heim. Með frammistöðu sinni,
seinnipartinn í sumar, hafa
Keflvíkingar sýnt fram á að
bilið milli 1. og 2. deilda-lið-
anna virðist ekki stórt. □
Ákureyrarmótið í
knattspyrnu
Þór — KA 5:2
SÍÐASTI „stórleikur" sumars-
ins hér á Akureyri fór fram
milli Þórs og KA, en þessi félög
hafn háð nokkra leiki sín á
milli nú í sumar og skipzt á
KA-liðið heilsteyptara lið og
hefði átt að fá meira út úr leikj
um sínum í sumar en verið hef
ur. Þórs-liðið, sem hefur marga
unga leikmenn, hefur sýnt
meiri dugnað og leikgleði nú í
sumar ög sigi'aði nú KA méð
yfirburðum, 5:2 og er það Ak-
ureyrarmeistari í knattspyrnu
1961.
Nú er keppnistímabilinu lok
ið. Hjá Akureyringum hafa
• skipzt á töp og sigrar, töpin
full mörg, en áreiðanlegt er, að
liðið á að geta náð mun betri
árangri ef kapp verður lagt á
æfingar nú í vetur, því vitað
er, að hér eru margir mjög efni
legir leikmenn. □
MORG BANASLYS
UM SÍÐUSTU mánaðamót voru
orðin 56 banaslys hér á landi
frá síðustu áramótum, og er það
11 banaslysum fleira en allt ár-
ið í fyrra.
Drukknanir eru 33 og eru
flest dauðaslysin í þeim flokki.
Næst eru umferðarslys. í jjeim
hafa 14 manns látið lífið, þar af
eru 2 dráttarvélaslys. □
I Frétíabréf af Svalbarðsströnd I
Leifshúsum, 17. okt. Tíðin hefur
verið mild í haust, varla er
hægt að segja að frosið hafi. í
gær gerði þó norðan hvassviðri
með hríðarfjúki og frostkala.
Víðast hvar er lokið við að
taka upp kartöflur og er upp-
skeran vel í meðallagi, en mjög
misjöfn, en svo er reyndar í
flestum árum.
IIMIMMIIIMMIMMMIMIIIMMMMMIMMMIIIIIIIIMIIIIIMIMMIMi.í
starfa með afbrigðilegum börn-
um og hjálpa þeim.
Barnaverndarfélögin eru frjáls
samtök og hafa þau valið sér
ýmis viðfangsefni í þágu barn-
anna. Hér á Akureyri rekur
Barnaverndarfélagið leikskól-
ann „Iðavöllur“ á Oddeyri. Fé-
lagið hefur byggt þar nýtt,
smekklegt hús fyrir þessa starf-
semi með styrk ríkis og bæjar. f
sumar hefur leikskólinn verið
málaður utan og lóðin lagfærð.
Þar eru nú um sextíu börn og
eru fjórar fóstrur til að gæta
þeirra. Félagið skuldar allmikið
eftir húsbygginguna.
Á laugardaginn — fyrsta
vetrardag — mun félagið eins
og fyrr leita til bæjarbúa um
styrk til þessarar starfsemi
sinnar. Barnabókin „Sólhvörf11
verður seld í bænum og svo
merki félagsins. Þá munu kvik-
myndahús bæjarins gefa sýn-
ingar fyrir þetta málefni. Dýr-
ari merkin verða jafnframt
merki félagsins. Kvikmynda-
sýningar verða.
Samtökunum er mikil þörf á
fjárhagsaðstoð til þess að geta
unnið sem mest og bezt að
barnavernd hér á Akureyri. □
Vegna þrálátra rigninga í
haust gekk kartöfluuppskeran
erfiðlega. Sérstaklega reyndist
örðugt að flytja kartöflurnar úr
görðunum, því dráttarvelum
varð sums staðar ekki komð við
til þess fyrir bleytu, tóku því
sumir til þess ráðs að bera
nokkra kartöflupoka saman í
hrúgu og moka mold yfir, en
þannig geta kartöflurnar varizt
þó nokkuð frjósi.
Sauðfjárslátrun á að ljúka á
Svalbarðseyri á morgun. Slátr-
að verður alls á milli 14 og 15
þúsund kindum þar.
Dilkar eru yfirleitt í góðu
meðallagi hér í sveit, en mjög
misvænir eftir bæjum. Hrúta-
sýning var hér í hreppi fyrir
viku síðan, sýndir voru 28 hrút
ar af þeim hlutu aðeins 9 fyrstu
verðlaun, svo enn liefur ýmsum
bændum ekki tekizt að eignast
góða hrúta, og má vera að í því
liggi að einhverju leyti mismun
urinn á vænleika dilkanna.
Bráðapest hefur gert með meira
móti vart við sig í haust, en þó
ekki nema á nokkrum bæjum,
en á þeim bæjum munu þó vera
dauð um 20 lömb samtals.
Með alflesta móti af ungling-
um fer í skólana á þessu hausti,
eða a. m. k. 16 manns. Fólk
þetta hefur vei’jð að tínast
burtu undanfarna daga.
Flokkur vegavinnumanna
undir stjórn Leónarðs Alberts-
sonar hefur unnið hér í þjóð-
veginum neðan við Sveinbjarn-
argerði. Vegurinn er hækkaöur
þar um 60 cm. Þarna hefur ver
ið einn versti snjóakafli í sveit
inni og jafnvel stundum á allri
leiðinni til Húsavíkur. Brýn
nauðsyn var því á hækkun veg
arins þarna. S. V.
Tvímenningskeppni í bridge lokið
LOKIÐ er tvímenningskeppni í
Bridgefélagi Akureyrar, þar
sem 28 pör kepptu í þrem um-
ferðum. Úrslit urðu þessi (10
efstu):
Alfreð Pálsson og Gúðm. Þor
steinsson 831 stig, Ármann
Helgason og Halldór Helgason
787 stig, Jóh. Gauti og Mikael
Jónsson 765 stig, Ragnar Stein
bergsson og Friðf. Gíslason 750
stig, Baldur Árnason og Sigur-
björn Bjarnason 749 stig, Jóh.
Helgason og Karl Sigfússon 748
stig, Baldvin Olafsson og Vig-
fús Olafsson 746 stig, Arni Ingi
mundarson og Gí.sli Jónsson 732
stig, Magni Friðjónsson og Stef
án Stefánsson 721 stig, Óðinn
Árnason og Gunnar Sólnes 715
stig. (Iiukur Jakobsson spilaði
2 umf. fyrir Gunnar.)
Sveitakeppni I. flokks hefst
þriðjud. 24. okt., og eru væntan
legir sveitarforingjar beðnir að
hafa sem fyrst samband við
stjórnina.
Nýlega kom hingað bridge-
sveit frá Bridgesambandi ís-
lands í boði B. A. og tók hér
þátt í sveitakeppni, tvímennings
keppni og hraðkeppni. Vann að
komusveitin hverja keppni, er
hún tók þátt í, en hana skip-
uðu: Símon Símonarson, Þor-
geir Sigurðsson, Agnar Jörgens
son og Róbert Sigmundsson.
(Frá Bridgefélaginu.)
GENGÍSSKRÁNING
4. ágúst 1961
£ 120.20 120.50
U.S. $ 42.95 43.06
Kanadadollar 41.66 41.77
Dönsk kr. 621.80 623.40
Norsk kr. 600.96 602.50
Sænsk kr. 832.55 834.70
Finnskt mark 13.39 13.42
Nýr fr. franki 876.24 878.48
Belg. franki 86.28 86.50
Svissn. franki 994.15 996.70
Gyllini 1.194.94 1.198.00
Tékkn. kr. 614.23 615.86
V-þýzkt mark 1.077.54 1.080.30
Líra (1000) 69.20 69.38
Austurr. sch. 166.46 166.88
Peseti 71.60 71.80
Reikningskróna- Vöruskiptalönd 99.86 100.14
Reikningspund- Vöruskiptalönd 120.25 120.55
Seðlabanki íslands.