Dagur - 29.11.1961, Síða 1
; M.U.G/H;n Framsóknarma.vna
vR. i'STJÓki: Ekungur Davíös.son
Skriistofa i Hai-'narsth/Uti 90
SÍM! 11(56 . Skiningo oo i>ki:ni i;n
ANfjAST I’HKNI'VEKK OlllXS .
B.jiiR.vs.sovAR h.e. Aki:iu.vki
Dagur
XLIV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 29. nóvember 1961 — 57. tbl.
AoCzI.vsi.vgas'I jóki: Jón Sam-
ÓETSSON . ArCANC/IíRINN' KOSTAR
KR. 100.00 . ! . lAl.HIVU.i EK i . i! ,.i
Bi.adib uiM' k : i Á MinviKunöc-
V M or.'A l Al'GARDÍk.l.'M
l'fcvAR ÁVJ'ÆBÁ T-YKIR T|t.
-J
Rafveitustjórinn skýrir frá ástandi og horfum
Blaðið átti tal við Knut Ott-
erstedt rafveitustjóra í gær um
ástand og horfur í rafmagns-
málum.
Hvar var stíflan?
Miklar krapastíflur 'höfðu
myndast hjá Kasthvammi í Lax
árdal og margar milljónir ten-
ingsmetra af vatni söfnuðust
iþar ofan við á þriggja kílómetra
svæði. Undanfarið hafa rennsl-
istruflanir jafnan orðið við
Tíu metra ölduhnútar
Hrísey, 28. nóv. — Sjórinn gekk
svo hátt, að uppistaða myndað-
ist ofan við frystihúsið og sjór
gekk í brunna, svo að það er
enn svolítið saltbragð að vatn-
inu. Sjórinn braut bæði lifrar-
bræðslu og beinaverksmiðju,
þannig að suðui'stafnar húsanna
létu undan. En þarna mættust
öldur að austan og norðan og
mynduðust 8—10 metra öldu-
hnútar. Mjölskemmdir urðu á
nokkur hundruð sekkjum og
um 100 pakkar af skreið blotn-
uðu. □
IDagui I
kemur út á laugardaginn.
þrjár kvíslar árinnar, þar sem
hún rennur úr Mývatni í stór-
hríðum og frosti. En þar var
fullt rennsli þegar snögglega
dró úr vatninu við Laxárvirkj-
anir síðari hluta fimmtudags.
Eru bæði orkuverin í gangi?
Nei, aðeins það neðra.
Ohemjukrap safnaðist í efra lón
ið og er að nokkru leyti lokað
fyrir innrennsli fyrir efra orku-
verið og einnig fyllt neðra lónið
og dregið úr rennslinu að orku-
verinu. Um leið hafði vatns-
borðið hækkað það mikið í
neðra lóninu, að útrennslið frá
efra orkuverinu lokaðist og
gerði það óstarfhæft.
Hver er orkan núna?
í dag er hún 7000 kw. og að
auki vararafstöðin á Akureyri,
sem framleiðir allt að 2000 kw.
og er fullhlaðin þegar álagið er
mest. Nú er verið að hreinsa
krapið úr efra orkuverinu og
var þar að opnast fyrir vatnið
þegar síðast fréttist. Að síðustu
lét rafveitustjórinn þess getið,
að Rafveitan hefði 4 síma til
afnota og væru allar upplýsing-
ar þar til reiðu fyrir fólk sem
leita vill sér upplýsinga. Blaðið
þakkar rafveitustjóranum fyrir
svörin.
Myndin tekin fram nýja sjóvarnargarðmn á Dalvík. En þar hefur brimið brotið ofan af honum, nema
allra fremst. — (Ljósmynd: P. J.).
Eftir voðaveðrið á Norðurlandi
Ólafsfirði. — Mesta stórbrim,
sem nokkru sinni hefur komið
hér síðan 1934. Trilla sökk á
legunni og rak á land lítið brot-
in. Sjómenn voru um borð í
mótorbátunum og andæfðu í
tvo sólarhringa, en fóru síðan til
Akureyrar kl. 3 á laugardag. —
Sjórinn gekk á land vestan
MÝVATN GRYNNIST ÖRT
ÞAÐ ER Á FÁRRA manna vit-
orði, að Mývatn er á góðum
vegi með að verða að engu. Sí-
aukin botnleðja hefur valdið
því, að vatnið hefur grynnkað
um rúma tvo metra á öld og er
það nú dýpst aðeins fjórir og
hálfur metri. Stendur nú til að
mæla allt vatnið nákvæmlega
til þess að ganga úr skugga um,
hve hratt þessi þróun gengur.
í bókinni Náttúra íslands
getur Sigurjón Rist vatnamæl-
ingamaður þess, að vatnið hafi
mælzt árið 1750 dýpst níu metr-
ar. Árið 1880 mældi Þorvaldur
Thoroddsen það 6,5 metra
djúpt, en fyrir stuttu mældi Sig
urjón Rist það dýpst 4,5 metra.
Gras og botngróður upp úr.
Tómas Tryggvason jarðfræð-
ingur hefur manna mest rann-
sakað Mývatn, einkum þó
vegna fyrirhugaðrar kísilgúr-
vinnslu úr því, og hafði blaðið
því samband við hann og spurði
að orsökum þessarar grynnkun-
ar. Tómas tjáði blaðinu, að Mý-
vatn væri nokkuð misdjúpt.
Suður-flóinn er að jafnaði 3,5
metrar á dýpt, en Norðurflóinn
1,5 metrar og á sumrin sézt
grasið og botngróðurinn upp úr
3—5 metra botnleðja.
Botnleðjan er yfirleitt um
þrír til fimm metrar á þykkt, en
fer allt upp í níu metra. Hún er
ekki mynduð við framburð úr
ám, því að í Mývatn renna að-
eins tveir lækir ofanjarðar.
Leðjan er að mestu mynduð af
lífrænum efnum, kísilþörung-
um, sem vaxa mjög ört og rotna
ekki, þegar þeir deyja, heldur
hlaðast upp á botninum.
Sandfok og aska hefur einnig
aukið við botnleðjuna.
Bjargar kísilgúrvinnslan
Mývatni?
Tómas sagði, að til stæði að
mæla vatnið nákvæmlega og
væri þá hægt að segja um, hve
hratt þessi grynnkunarþróun
gengi. Hafa nú þegar verið tekin
botnleðjusýnishorn úr Norður-
flóanum.
Tómas bætti því við að lok-
um, að þessi þróun mundi senni
lega snúast við,-ef farið yrði að
vinna kísilgúr úr botnleðjunni,
eins og allar horfur eru á. □
IHIIHIIIIIIIIIIIfllHIIHIIH
lllll...IIIIIHHIIHHI
1111111111111111111111111 .
| Ný og þörf verzlun
JENS SUMARLIÐASON, kenn
ari, opnar nýja verzlun, Tóm-
stundabúðina, í Strandgötu 17
á föstudaginn.
Þetta er fyrsta verzlun sinn-
ar tegundar á Akureyri og hin
þarfasta, því erfiðlega hefur oft
gengið að fá efni í hvers konar
föndurvinnu fyrir skóla og
heimili. Þeir erfiðleikar hafa
verulega dregið úr tómstunda-
störfunum.
í hinni nýju verzlun eru einn
ig margir handunnir munir,
eins konar sýnishorn af því er
gera má úr því efni, sem búðin
hefur til sölu.
Auk fáanlegra vara til tóm-
stundavinnu, eru „model“ af
skipum, flugvélum og bílum.
Fólk ætti að líta inn í Tóm-
stundabúðina og sjá hvað þar
er á boðstólum, áður en það
ákveður jólagjafirnar. — Margir
finna þar eitthvað við hæfi.
Heimagerð jólagjöf er gef-
anda og þiggjanda meiri gleði
en aðrar g'jafir. Vináttu manna
er hvort sem er aldrei hægt að
kaupa með dýrum gjöfum.
hafnargarðsins, inn um norður-
stafn lifrarbræðslunnar og út
um suðurstafn. Þar var mikil
eyðilegging. Hafnargarðurinn
skemmdist eitthvað, trébryggja
í höfninni brotnaði og önnur
skemmdist töluvert. Norðan við
nyi'ðri hafnargarðinn gekk sjór-
inn upp að þurrkhúsi Magnúsar
Gamalíelssonar, braut upp
beituskúr og kastaði til bíl, sem
þar stóð, og skemmdi hann. Ut-
an við Kleifar braut árabát í
spón og skemmdi annan bát,
sem þó var í húsi. Einnig eyði-
lagðist steinplan. Fyrir botni
fjarðarins var nýr vegur. Hann
er þveginn burtu að mestu. í
þrjá daga var ekki hægt að
flytja fólk til bæjarins. Síðast
brutust bændur með hestasleða
og höfðu 8 lausa hesta á undan
til að troða slóð. Þeir voru 9
klst. að fara 12 km. leið. Sæþór
stendur á þurru uppi í fjör-
unni og vonandi óskemmdur, en
erfiðleikar verða við að ná hon
um út aftur. Brimið var alveg
ótrúlega mikið. Það gekk yfir
hafnargarðinn og þeytti grjóti
yfir hann og inn í höfnina.
Tveggja tonna bjarg á garðin-
um ofan til, segir þar sína sögu.
Þegar Ólafur Bekkur fór héðan,
braut yfir þveran fjörðinn og
var það í senn ægilegt og tign-
arlegt að sjá þá Siglingu.
Nesi, Fnjóskadal. Féð á Þverá
náðist ekki fyrir hríðina, því að
daginn áður „strauk“ það út í
heiði. Erlingur bóndi fór að
smala, en náði því ekki heim á
miðvikudaginn, enda leið löng
og erfið einum manni. Skildi
hann við það inn undir Vestari-
Krókum. Aftur var farið og
fénu komið áleiðis, en það var
orðið mjög sýlað og þungt til
gangs. Farið var með hey handa
því. í gærmorgun var enn lagt
af stað með ýtu til að troða
slóð. Náðist það þá heim, 118
kindur, en sumt var illa farið og
enn vantaði 24 kindur, en þar
af hafa síðar fundist 12 kindur.
f dag er enn leitað og forystu-
kindur hafðar með í för. Margt
fé vantaði á Melum, en fannst
hjá Skuggabjörgum. Nokkrar
kindur vantar á mörgum bæj-
um. Margir bílar fóru yfir
Vaðlaheiði í gær. í Dalsmynni
er snjóflóðahætta, ef aftur fer
að snjóa.
Grenivík. Steyptur sjávar
garður í höfninni, 25—30 ára
gamall og 40 metra langur, fór
alveg. Hráolíutank Esso tók upp
og færðist hann nokkrum metr-
um ofar. Eitthvað mun hafa
verið af olíu í honum. Einn sjó-
skúr brotnaði. Uti voru kindur
á tveim bæjum í hríðinni, en nú
er allt heimt. Fært er trukkum
um sveitina.
•HHHHIHHIIIIIHIIIIHIIIIHIHIHIIIIII11111111111IIHIIIIII*
| Framsóknarvistin {
LOKIÐ ER ÞREM spilakvöld-
um Framsóknarfélaganna, sem
haldin voru að Hótel KEA, og
voru vel sótt og fóru mjög vel
fram.
Hið síðasta var á sunnudag-
inn. Aðalverðlaun kvenna, te-
borð, hlaut Valborg Svavars-
dóttir, en aðalverðlaun karla,
sófaborð, hlaut Haraldur Odds-
son, Sólvöllum 2.
Félag ungra Framsóknar-
manna hafði Bingó-kvöld um
fyrri helgi að Hótel KEA, við
geysilega mikla aðsókn, svo að
fjöldi manns varð frá að hverfa.