Dagur - 28.04.1962, Page 1
Í ÁiiÍtí.ACN Frams6knar.man.na
R fei jóRí: ] ri iM.i k D ivíossbN
SKRIKSUII A i HÁKNARSTKÍrn 90
Stsfl|í: I6& . Sl'.ININCtí OG PRENTUN
;'l\ N NA'S'I J’kKNTVERK Oi)US
H.l'. Aki.'RKVIU.
M«. »00 1HÍ . C : ; .M v.:l £U í . jfö
' Bl.AÐtO K) MIR ; i Á MtHVlRt-UOl,-
'm OC Á JAÍJCISOÍKW
M'.CAK Á.ST.EOA. r-VKlK ! í*.
*riI.'■ í11MÍI i'"i|:|i'i.g IV.Í I.V -VIi'Á: k:íá
Lög unr tekjuslofna sveitarfélaga
SETT hafa verið á Alþingi ný
lög um tekjustofna sveitarfé-
laga og eru þessi atriði helztu
nýmœlin:
í stað heimildar til að leggja
á fasteignaskatt, er fasteigna-
skattur lögboðinn. Skal hann
vera 2% af virðingarverði bygg-
ingarlóða, 1% af virðingarverði
húsa og %% af virðingarverði
túna, garða, erfðafestulanda og
annarra lóða og lendna.
Auk þess er veitt heimild til
að hækka hann um allt að 200
prósent.
Álagning veltuútsvara hefur
verið afnumin. í þess stað hefur
sveitarfélögum verið veitt heim-
SÁ UM HELGINA
ÞINGEYSKIR bændur munu
sá byggi í 60 ha lands um og
upp úr næstu helgi í tvö akur-
lönd, sem undirbúin voru síð-
asta haust. Annað er við Öxará
og er 36 ha, en hitt á bökkum
Reykjadalsár, 24 ha. Sáðkornið,
áburður og sáðvel bíður þess
eins að flögin þorni örlítið
rrieira.
• Illlllllllllllllllllllf 111111111111111111111111111111111^11111 |«
IDague I
Næsta blað kemur út fimmtu-
daginn 3. maí.
ild til þess að innheimta að-
stöðugjald af atvinnurekendum
og öðrum þeim, sem sjálfstæða
atvinnu stunda. Miðast aðstöðu-
gjaldið í ár við útgjöld efnis og
vörukaup, svo og fyrningaraf-
skriftir gjaldskyldra aðila á ár-
inu 1961. Sveitarstjórnir þurfa
því að ákveða nú þegar, hvort
þær nota heimildina til að inn-
heimta aðstöðugjald og setja
reglur um það, hve hátt gjaldið
skuli vera á hverri atvinnu-
grein, því að lögin kveða aðeins
á um hámarkið. Skattanefndir
reikna út aðstöðugjaldið.
Ríkisfyrirtækjum og olíufé-
lögum verður gert að greiða
landsútsvör, sem renna í Jöfn-
unarsjóð sveitarfélaga. Verður
úthlutun úr Jöfnunarsjóði til
sveitarfélaga bundin sömu regl-
um og úthlutun söluskattshlut-
ans, að undanskildum fjórðungi,
sem greiða ber því sveitarfélagi,
þar sem landsútsvarið er á lagt.
Á yfirstandandi ári renna þó ein
ungis veltuútsvör olíufélaganna
til Jöfnunarsjóðs.
í stað þriggja mismunandi út-
svarsstiga, sem áður giltu í land-
inu, samkvæmt lögum frá 1960,
verður einn útsvarsstigi um
land allt. Þó er heimilt að lækka
hann eftir þörfum og hækka,
allt að 30%.. □
ra5 ára almæli A
Viðtal við Magnús E. Guðjónsson, bæjarstjóra
AKUREYRARKAUPSTAÐUR
minnist 100 ára afmælis síns 29.
ágúst í sumar með miklum há-
tíðahöldum.
Þar sem bæjarbúar óska að
fylgjast sem bezt með því,
hversu undirbúningi miðar, og
blaðið vill fyrir sitt leyti verða
við þeim óskum, leitaði það til
Magnúsar E. Guðjónssonar,
bæjarstjóra, sem jafnframt er
form. hátíðanefndar og lagði
fyrir hann nokkrar spurningar,
sem liann svaraði góðfúslega.
Hvað cr nú helzt fréttnæmt í
sambandi við afmæli bæjarins?
Hátíðanefndin hefur haldið
marga fundi og ráðgerðir eru
margir. En aðeins nokkur atriði
hafa endanlega verið ákveðin
og mörg óskamál verður að
leggja á hilluna sakir óhóflegs
kostnaðar, en önnur mál eru ó-
framkvæmanleg, vegna of
skamms undirbúningstíma, svo
sem útgáfa vandaðs afmælisrits,
sem þó mun koma út síðar og í
tilefni afmælisins.
Hver verður aðalframkv.stjóri
við undirbúninginn?
Nefndin hefur ráðið Hermann
f Nemendur MA hcimsækja kennara sína á hestum og dráttarvélum við kennslulok. — Ljósm. E. D.
Yfirvegaverkstjórinn ráðleggur engum að ferðast
á lágum bílum og óskar að vegunum sé hlíft við
umferð eins og frekast er unnt á þessum tíma
BLAÐIÐ ræddi um stund við
yfirverkstjóra vegagerðarinnar,
Guðmund Benediktsson á Akur-
eyri. Umsögn hans um vegina er
efnislega á þessa leið:
Stefánsson til þess að hafa á
hendi umsjón framkvæmdanna.
En einstökum mönnum höfum
við falið sérstaklega að hafa á
hendi framkvæmd ýmissa 'þátta.
Þannig mun Sverrir Pálsson sjá
um sögulega sýningu, þar sem
brugðið er upp myndum úr
sögu bæjarins í rituðu máli og
ljósmyndum. Að líkindum verð-
ur sögusýningin í Gagnfræða-
skólanum. Fólk, sem ætti gaml-
ar myndir frá Akureyri, ætti að
gefa sig fram við Harald Sigur-
geirsson, sem hefur myndasöfn-
un með höndum fyrir þessa
deild.
En iðnsýningin?
Jú, sagði bæjarstjóri. í tilefni
afmælisins hefur verið ákveðið
að efna til fyrstu almennu iðn-
sýningarinnar á Akureyri, en
áður hafa samvinnumenn haldið
(Framhald á bls. 7.)
UNDANFARANDI sumur hafa
allmargir unglingar starfað við
frystihús Ú.A. og hafa með því
unnið bæði Ú.A. og sjálfum sér
gagn. í vetur hafa unglingar úr
skólum bæjarins, aðallega úr
G.A., bjargað verðmætum fyrir
Ú.A., er nemur hundruðum þús-
unda eða milljónum króna, með
því að fá leyfi úr skólunum til
að starfa við vinnslu á togara-
fiski, þegar annað vinnuafl var
ófáanlegt.
Það hvílir því siðferðileg
skylda á Ú. A. um, að það geri
allt, sem í þess valdi stendur til
að sjá einhverjum hluta þeirra
mörgu verkfæru unglinga, sem
von bráðar losna úr skólunum,
fyrir atvinnu.
Meðan „togaraverkfallið“
stendur yfir (ekki verður um
það rætt hér), hlýtur öll vinna
við frystihúsið að falla niður,
nema nýrra ráða verði leitað, til
þess að afla hráefnis til vinnslu
í frystihúsinu eða að finna ný
verkefni.
Með hliðsjón af ofanrituðu er
hér með skorað á stjórn Ú.A.,
að hefja nú þegar athuganir á
(Framhald á bls. 2)
Óvíða er fólksbifreiðafæri,
nema frammi T Eyjáfirði og þó
er ekki fært hringveginn.
Vaðlaheiði er að „detta nið-
ur“, var opnuð fyrir skömmu en
er nú á versta stigi vegna aur-
bleytu. Hins vegar er Dals-
mynnisvegur batnandi, enda
unnið þar að viðgerð.
Til Húsavíkur hefur verið
slarkfært en í Þingeyjarsýslu
tók snjó síðar af vegum en í
Eyjafirði og vegirnir þar eru
enn að versna. En hér í héraoinu
fara þeir batnandi, ef ekki rign-
ir. —
Vegir um Mývatnsheiði og
Tjörnes vestanvert eru erfiðast-
ir eins og nú er, af vegum í
Þingeyjarsýslu.
Á leiöinni Akureyri—Reykja-
vík eru verstir kaflar í Langa-
dal, Vallabökkum og Öxnadal
neðanverðum.
Dalvíkurvegurinn hefur verið
ófær, en þar er mikið unnið og
vonast er til að sá vegur verði
vel fær um næstu helgi.
Að þessu sinni er mikill klaki
í vegum yfirieitt, sérstaklega
þar sem snjó var rutt af í vetur
og frostið náði þá dýpra en ella.
En segja má, að ástand og horf-
ur í vegamálum sé þó ólíkt betri
en var í fyrra.
Vegagerðin hefur 7 vinnu-
flokka, sem gera við vegina eft-
ir föngum. En víða er erfitt að
ná í möl vegna snjóa og klaka
og ekki alls staðar hægt um vik
að komast að mölinni. Gengur
því viðgerð seinna en annars
væri.
Þungaflutningar eru bannaðir,
svo sem auglýst hefur verið.
Gæta verður þess að eyðileggja
ekki vegina, sem nú eru á við-
kvæmasta stigi og þola í raun
og veru ekki nema mjög tak-
markaða umferð, en hana er
ekki hægt að stöðva nema út úr
neyð. En nauðsynlegt er að all-
ir hafi skilning á að hlífa veg-
unum eins og hægt er á meðan
þeir eru að þorna.
I Eyjafjarðarsýslu ætti sam-
göngukerfið að fara batnandi ef
hagstæo tíð helzt. □
rður um
FYRSTA áfanganum í Skíða-
hótelinu í Hlíðarfjalli er náð.
Hann var miðaður við landsmót
skíðamanna og stóðust áætlanir.
Nú er byggingin svo langt kom-
in, að hægt er að hafa þar
nokkurn rekstur eftirleiðis,
bæði fyrir skíða- og fjallgöngu-
fólk, og fyrir bæjarbúa, sem
vilja skreppa út úr bænum í
sumar og drekka kaffi ofar
göturyki og skarkala bæjarlífs-
ins.
Akureyrarbær hefur alger-
lega tekið hótelið á sína arma.
Þetta mannvirki er þegar orðið
dýrt, og ófært að láta það ónot-
að, ef annað er hægt. Veginn
þarf að gera að nýju og er það
kostnaðarsamt, en óurr|flýjan-
legt. — í gær mun hafa átt að
vera fundur í framkvæmda-
nefnd Skiðahótelsins og vænt-
anlega hafa þar verið teknar á-
kvarðanir um rekstur hótelsins
og nauðsynlega framkvæmdir,
sem síðar verður sagt frá.