Dagur - 28.04.1962, Side 1

Dagur - 28.04.1962, Side 1
Í ÁiiÍtí.ACN Frams6knar.man.na R fei jóRí: ] ri iM.i k D ivíossbN SKRIKSUII A i HÁKNARSTKÍrn 90 Stsfl|í: I6& . Sl'.ININCtí OG PRENTUN ;'l\ N NA'S'I J’kKNTVERK Oi)US H.l'. Aki.'RKVIU. M«. »00 1HÍ . C : ; .M v.:l £U í . jfö ' Bl.AÐtO K) MIR ; i Á MtHVlRt-UOl,- 'm OC Á JAÍJCISOÍKW M'.CAK Á.ST.EOA. r-VKlK ! í*. *riI.'■ í11MÍI i'"i|:|i'i.g IV.Í I.V -VIi'Á: k:íá Lög unr tekjuslofna sveitarfélaga SETT hafa verið á Alþingi ný lög um tekjustofna sveitarfé- laga og eru þessi atriði helztu nýmœlin: í stað heimildar til að leggja á fasteignaskatt, er fasteigna- skattur lögboðinn. Skal hann vera 2% af virðingarverði bygg- ingarlóða, 1% af virðingarverði húsa og %% af virðingarverði túna, garða, erfðafestulanda og annarra lóða og lendna. Auk þess er veitt heimild til að hækka hann um allt að 200 prósent. Álagning veltuútsvara hefur verið afnumin. í þess stað hefur sveitarfélögum verið veitt heim- SÁ UM HELGINA ÞINGEYSKIR bændur munu sá byggi í 60 ha lands um og upp úr næstu helgi í tvö akur- lönd, sem undirbúin voru síð- asta haust. Annað er við Öxará og er 36 ha, en hitt á bökkum Reykjadalsár, 24 ha. Sáðkornið, áburður og sáðvel bíður þess eins að flögin þorni örlítið rrieira. • Illlllllllllllllllllllf 111111111111111111111111111111111^11111 |« IDague I Næsta blað kemur út fimmtu- daginn 3. maí. ild til þess að innheimta að- stöðugjald af atvinnurekendum og öðrum þeim, sem sjálfstæða atvinnu stunda. Miðast aðstöðu- gjaldið í ár við útgjöld efnis og vörukaup, svo og fyrningaraf- skriftir gjaldskyldra aðila á ár- inu 1961. Sveitarstjórnir þurfa því að ákveða nú þegar, hvort þær nota heimildina til að inn- heimta aðstöðugjald og setja reglur um það, hve hátt gjaldið skuli vera á hverri atvinnu- grein, því að lögin kveða aðeins á um hámarkið. Skattanefndir reikna út aðstöðugjaldið. Ríkisfyrirtækjum og olíufé- lögum verður gert að greiða landsútsvör, sem renna í Jöfn- unarsjóð sveitarfélaga. Verður úthlutun úr Jöfnunarsjóði til sveitarfélaga bundin sömu regl- um og úthlutun söluskattshlut- ans, að undanskildum fjórðungi, sem greiða ber því sveitarfélagi, þar sem landsútsvarið er á lagt. Á yfirstandandi ári renna þó ein ungis veltuútsvör olíufélaganna til Jöfnunarsjóðs. í stað þriggja mismunandi út- svarsstiga, sem áður giltu í land- inu, samkvæmt lögum frá 1960, verður einn útsvarsstigi um land allt. Þó er heimilt að lækka hann eftir þörfum og hækka, allt að 30%.. □ ra5 ára almæli A Viðtal við Magnús E. Guðjónsson, bæjarstjóra AKUREYRARKAUPSTAÐUR minnist 100 ára afmælis síns 29. ágúst í sumar með miklum há- tíðahöldum. Þar sem bæjarbúar óska að fylgjast sem bezt með því, hversu undirbúningi miðar, og blaðið vill fyrir sitt leyti verða við þeim óskum, leitaði það til Magnúsar E. Guðjónssonar, bæjarstjóra, sem jafnframt er form. hátíðanefndar og lagði fyrir hann nokkrar spurningar, sem liann svaraði góðfúslega. Hvað cr nú helzt fréttnæmt í sambandi við afmæli bæjarins? Hátíðanefndin hefur haldið marga fundi og ráðgerðir eru margir. En aðeins nokkur atriði hafa endanlega verið ákveðin og mörg óskamál verður að leggja á hilluna sakir óhóflegs kostnaðar, en önnur mál eru ó- framkvæmanleg, vegna of skamms undirbúningstíma, svo sem útgáfa vandaðs afmælisrits, sem þó mun koma út síðar og í tilefni afmælisins. Hver verður aðalframkv.stjóri við undirbúninginn? Nefndin hefur ráðið Hermann f Nemendur MA hcimsækja kennara sína á hestum og dráttarvélum við kennslulok. — Ljósm. E. D. Yfirvegaverkstjórinn ráðleggur engum að ferðast á lágum bílum og óskar að vegunum sé hlíft við umferð eins og frekast er unnt á þessum tíma BLAÐIÐ ræddi um stund við yfirverkstjóra vegagerðarinnar, Guðmund Benediktsson á Akur- eyri. Umsögn hans um vegina er efnislega á þessa leið: Stefánsson til þess að hafa á hendi umsjón framkvæmdanna. En einstökum mönnum höfum við falið sérstaklega að hafa á hendi framkvæmd ýmissa 'þátta. Þannig mun Sverrir Pálsson sjá um sögulega sýningu, þar sem brugðið er upp myndum úr sögu bæjarins í rituðu máli og ljósmyndum. Að líkindum verð- ur sögusýningin í Gagnfræða- skólanum. Fólk, sem ætti gaml- ar myndir frá Akureyri, ætti að gefa sig fram við Harald Sigur- geirsson, sem hefur myndasöfn- un með höndum fyrir þessa deild. En iðnsýningin? Jú, sagði bæjarstjóri. í tilefni afmælisins hefur verið ákveðið að efna til fyrstu almennu iðn- sýningarinnar á Akureyri, en áður hafa samvinnumenn haldið (Framhald á bls. 7.) UNDANFARANDI sumur hafa allmargir unglingar starfað við frystihús Ú.A. og hafa með því unnið bæði Ú.A. og sjálfum sér gagn. í vetur hafa unglingar úr skólum bæjarins, aðallega úr G.A., bjargað verðmætum fyrir Ú.A., er nemur hundruðum þús- unda eða milljónum króna, með því að fá leyfi úr skólunum til að starfa við vinnslu á togara- fiski, þegar annað vinnuafl var ófáanlegt. Það hvílir því siðferðileg skylda á Ú. A. um, að það geri allt, sem í þess valdi stendur til að sjá einhverjum hluta þeirra mörgu verkfæru unglinga, sem von bráðar losna úr skólunum, fyrir atvinnu. Meðan „togaraverkfallið“ stendur yfir (ekki verður um það rætt hér), hlýtur öll vinna við frystihúsið að falla niður, nema nýrra ráða verði leitað, til þess að afla hráefnis til vinnslu í frystihúsinu eða að finna ný verkefni. Með hliðsjón af ofanrituðu er hér með skorað á stjórn Ú.A., að hefja nú þegar athuganir á (Framhald á bls. 2) Óvíða er fólksbifreiðafæri, nema frammi T Eyjáfirði og þó er ekki fært hringveginn. Vaðlaheiði er að „detta nið- ur“, var opnuð fyrir skömmu en er nú á versta stigi vegna aur- bleytu. Hins vegar er Dals- mynnisvegur batnandi, enda unnið þar að viðgerð. Til Húsavíkur hefur verið slarkfært en í Þingeyjarsýslu tók snjó síðar af vegum en í Eyjafirði og vegirnir þar eru enn að versna. En hér í héraoinu fara þeir batnandi, ef ekki rign- ir. — Vegir um Mývatnsheiði og Tjörnes vestanvert eru erfiðast- ir eins og nú er, af vegum í Þingeyjarsýslu. Á leiöinni Akureyri—Reykja- vík eru verstir kaflar í Langa- dal, Vallabökkum og Öxnadal neðanverðum. Dalvíkurvegurinn hefur verið ófær, en þar er mikið unnið og vonast er til að sá vegur verði vel fær um næstu helgi. Að þessu sinni er mikill klaki í vegum yfirieitt, sérstaklega þar sem snjó var rutt af í vetur og frostið náði þá dýpra en ella. En segja má, að ástand og horf- ur í vegamálum sé þó ólíkt betri en var í fyrra. Vegagerðin hefur 7 vinnu- flokka, sem gera við vegina eft- ir föngum. En víða er erfitt að ná í möl vegna snjóa og klaka og ekki alls staðar hægt um vik að komast að mölinni. Gengur því viðgerð seinna en annars væri. Þungaflutningar eru bannaðir, svo sem auglýst hefur verið. Gæta verður þess að eyðileggja ekki vegina, sem nú eru á við- kvæmasta stigi og þola í raun og veru ekki nema mjög tak- markaða umferð, en hana er ekki hægt að stöðva nema út úr neyð. En nauðsynlegt er að all- ir hafi skilning á að hlífa veg- unum eins og hægt er á meðan þeir eru að þorna. I Eyjafjarðarsýslu ætti sam- göngukerfið að fara batnandi ef hagstæo tíð helzt. □ rður um FYRSTA áfanganum í Skíða- hótelinu í Hlíðarfjalli er náð. Hann var miðaður við landsmót skíðamanna og stóðust áætlanir. Nú er byggingin svo langt kom- in, að hægt er að hafa þar nokkurn rekstur eftirleiðis, bæði fyrir skíða- og fjallgöngu- fólk, og fyrir bæjarbúa, sem vilja skreppa út úr bænum í sumar og drekka kaffi ofar göturyki og skarkala bæjarlífs- ins. Akureyrarbær hefur alger- lega tekið hótelið á sína arma. Þetta mannvirki er þegar orðið dýrt, og ófært að láta það ónot- að, ef annað er hægt. Veginn þarf að gera að nýju og er það kostnaðarsamt, en óurr|flýjan- legt. — í gær mun hafa átt að vera fundur í framkvæmda- nefnd Skiðahótelsins og vænt- anlega hafa þar verið teknar á- kvarðanir um rekstur hótelsins og nauðsynlega framkvæmdir, sem síðar verður sagt frá.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.