Dagur - 19.05.1962, Síða 8
8
Nýjar skipasmíáastöovar á Akureyri
BlaSiS birtir Iiér svör kunnra borgara -vi5 Lspurningum um skipasmíoar
ai'kaupstaður verður að auka
iðnað sinn, jafnframt því er lífs-
nauðsyn að setja nýjar iðngrein-
ir á laggirnar. Bærinn okkar
hefur lakari aðstöðu en ýmsir
aðrir bæir þessa lands til sjó-
sóknar og miklu og fjölþættu
atvinnulífi á þeim vettvangi,
sérstaklega hvað bátaútveg
snertir. Og þótt togaraútgerðin
byggði 600—800 smálestir á ári
í fiskibátum úr tré, þyrfti um
100 manns að vinna þar. Hús og
vélar til þessa kosta auðvitað
mikið fjármagn. En því yrði vel
varið. Eins og nú er, tekur það
10 mánuði að byggja 100 tonna
bát, miðað við 10—12 manna
hóp smiða. Með því að hafa
fleiri báta í smíðum í einu,
koma nokkuð stór skipasmíða-
stöð, þar sem framleidd eru
fiskiskip úr tré með stuttum af-
greiðslufresti, og þar sem hægt
er að koma við betri tækjum til
að hagnýta vinnuaflið og koma
við keðjuvinnu. Eins og nú er,
er ekki hægt að byrja á nýjum
báti fyrr en sá næsti á undan er
fullbúinn.
[*-
Á SUÐVESTURLANDI eru að
rísa upp merkileg iðnaðarfyrir-
tæki, sem brjóta vilja nýjar
leiðir og hafa fengið ríkisábyrgð
fyrir rekstrinum. Þetta eru stál-
skiirasmíðastöðvar, en hvort
tveggja er, að íslendingar hafa
mikla þörf fyrir skip og hafa
keypt mikið af erlendum fiski-
bátum úr stáli.
Akureyri er svo lánsöm að
eiga beztu tréskipasmiði á þessu
landi. Þar eru fiskibátarnir,
stærri og smærri, bezta sönnun-
in. Og Snæfell vitnar enn í dag
um það, hve langt skipasmiðir
á Akureyri voru á undan sam-
tíð sinni í þessari grein, undir
forystu Gunnars heitins Jóns-
sonai-, skipasmíðameistara. Nú
veitir Tryggvi sonur hans
Skipasmíðastöð KEA forstöðu.
Skafti Áskelsson veitir Slipp-
stöðinni hf. forstöðu og annast,
ásamt sínum skipasmiðameist-
urum, viðgerðir á fjölda skipa
og smíðar auk þess fiskibáta á
þeim árstímum, sem gefa tóm
til nýsmíða.
Reynslan hefur sýnt, að Slipp-
stöðin getur ekki annað nálægt
því öllum verkefnum, sem ósk-
að er, enda sækja bátar hingað
til viðgerða af svæðinu milli
Hornafjarðar og ísafjarðar, eða
frá verstöðvum Norður- og
Austurlands, vegna þess, að
hvergi er betri aðstaða en ein-
mitt hér á Akureyri.
Skipasmíðastöð KEA getur
heldur ekki sinnt nema hluta af
þeim verkefnum í nýsmíði, sem
óskað er eftir.
Þetta tvennt ætti að benda
Akureyringum til vegar í smíði
og viðgerðum tréskipa.
Akureyri getur orðið mesti
skipasmíðabær landsins, ef vel
er á haldið. Smíði stálskipa ætti
að vera Akureyringum eins eft-
irsótt takmark og þeim, sem
þegar eru að byrja í þeirri
grein. En rétt er að gera sér
grein fyrir því, að aðstaða öll er
í mörgum atriðum betri hér á
Akureyri en þai'.
í þessum efnum mega Akur-
eyringar ekki missa af strætis-
vagninum. Þeim er það lífs-
nauðsyn að efla iðnað sinn og
koma upp nýjum iðngreinum, á
sama hátt og útgerðarstöðvar,
sem betur eru settai' hvað sjó-
sókn snertir, hljóta að keppa að
aukinni veiðitækni og.betri nýt-
ingu aflans.
í framhaldi af þessum leik-
manns hugleiðingum, hitti blað-
ið að máli þá Tryggva Gunsears-
son, Skafta Áskelsson, Gísla
Guðlaugsson og Alfreð Möller
og lagði fyrir þá nokkrar spurn-
ingar um þessi mál.
Tryggvi og Skafti svara
nokkrum spurningum.
Teljið þið æskilegt, að Akur-
eyri verði mikill skipasmiða-
bær?
Já, mjög æskilegt. Akureyr-
Þessi mynd er frá Skipasmíðastöð Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri.
hafi verið mikilsverð, og
verði það vonandi framvegis,
þarf annað einnig að koma til,
ef höfuðstaður Norðurlands á
að geta vaxið eðhlega og veitt
íbúum sínum góð lífskjör og
batnandi. Miklar skipasmíðar
geta eflaust átt mikinn þátt í
þeirri æskilegu þróun.
Ilvort álitið þið hagkvæmara
að leggja áherzlu á smíði tré-
skipa eða stálskipa?
Við teljum það mikilvægt og
nauðsynlegt að stórauka smíði
tréskipanna. En smíði stálskipa
er, að okkar áliti, einnig mjög
vel framkvæmanleg hér á Ak-
ureyri,«þótt aðrir kunni eflaust
betri svör við spurningunni um
smíði stálskipanna.
Hvað teljið þið helzt vanta til
að auka skipasmíðarnar?
Stórhug og framtak fyrst og
fremst, segja þeir báðir. í skipa-
smíðum þarf að hugsa stórt, ef
framtíðin á að njóta þeirra. Við
skulum setja upp ofurlitla mynd
af þessu. Ef skipasmíðastöð
myndi vinnan nýtast mun betur
og afgreiðslutími fiskibáta af
venjulegri stærð komast niður
í £ mánuði.
Vantar ekki fagmenn til að
koma þessu í framkvæmd?
Jú, til mikilla nýsmíða vantar
marga menn. Það vantar smiði
bæði á tré og járn, en það þarf
bara að ala þá upp. Það eru
töluvert margir nemendur í
skipasmíðaiðninni nú. Þeim
þyrfti auðvitað að fjölga mjög
mikið og það er sennilega ekki
vandkvæðum bundið, ef næg
eru framtíðarverkefnin.
En í þessu sambandi viljum
við sérstaklega taka það fram,
sem við látum sjaldnar í ljós en
vera ber: Að smiðirnir okkar
og starfsfólkið byggir bátana og
gerir við fiskiskipin. Nýju bát-
arnir eru þeirra handaverk, þótt
við, sem taldir eru stjórnendur
fyrirtækjanna, séum jafnan
nefndir og okkur þakkað þegar
vel tekst.
Að síðustu þetta: Hér þarf að
Slippstöðina þarf að stækka að
mun og bæta aðstöðuna frá því
sem nú er. Svo þarf að stofna
til stálskipasmíða. En þær smið-
ar byggjast að verulegu leyti
einnig á trésmíðavinnu og vinnu
hvers konar fagmanna, sem all-
ar skipasmíðar þurfa á að halda.
En til þess að byggja skip þarf
trésmiði, plötusmiði, vélvirkja,
Teljið þið möguleika á að
hefja stálskipasmíði áAkureyri?
Hér er hægt að byggja stál-
skip, engu síður en t. d. í Nor-
egi. Kaupgjald er hér lægra en
þar og plötusmiðir og aðrir fag-
menn á Akureyri standa frænd-
um okkar ekki aö baki. Reynsl-
una vantar okkur að vísu, en þó
hafa þegar verið byggð stálskip
hér á landi, og Stálsmiðjan hf.
er nú að byggja tvo fiskibáta.
Vert er að veita því athygli, að
stálskipasmíði er að hefjast víð-
ar.
Finnst ykkur rétt að koma
upp stálskipasmíði í sambandi
við öimur verkefni, svo sem
slippstöð?
Alls ekki, og á það leggjum
við áherzlu. Sjálfstætt fyrirtæki
á tvímælalaust að vinna að
smíði stálskipa eingöngu. Þar
verður- að vinna stöðugt, í stað
þess að þvæla mönnum úr einu
í annað. Skipasmíðai' í hjáverk-
um eru dauðadæmdar fyrir
fram. Smíði stálskipa þarf alls
ekki að vera í neinu sambandi
við slipp eða dráttarbrautir. Það
er hægt að byggja stálskip, svo
að segja hvar sem er við sjó eða
skipgenga á. Það þarf aðeins
rennu frá skipinu fram í sjóinn,
sem notuð er við sjósetningu.
Hvaða mannvirki önnur þarf
til stálskipasmiða?
Það þarf hús fyrir skipin, þar
(Framhald á bls. 2)
11
SAMANBURÐUR á verði ýmissa búsáhalda á Akureyri
snemma árs 1959, þ. e. fyrir „viðreisn“, og í maímánuði 1962:
Fyrir „viðr.“ Maí ’62 Hækk.
Uppþvottagrindur í eldhús
Pottasvampur (vír)
Rafmagnshitapúði
Teskeiðar, dúsín
Steikarfat úr leir, 36 cm.
Þvottavél
Grunnur diskur
kr. kr. %
58.50 85.00 45.4
1.00 2.25 125.0
93.50 176.00 88.3
21.00 41.00 95.2
55.50 89.00 60.4
5510.00 7650.00 38.0
23.50 48.00 104.0
rafvirkja, blikksmiði, bólstrara,
seglasaumara, málara og radio-
virkja. í öllum þessum greinum
á Akureyri góða fagmenn, en of
fáa þegar hugsað er um miklar
framfarir.
En hvers vegna eru skipa-
smíðarnar ekki þegar orðnar
miklar á Akureyri?
Óskiljanlegt, segja þeir Skafti
og Tryggvi, en við álítum að
bæjarbúar verði nú þegar að
hugleiða þessi mál í fyllstu al-
vöru og styðja framgang þeirra,
bæði sjálfra sín vegna og vegna
framtíðarinnar. Nú er tækifær-
ið, ef vilji er fyrir hendi. Við
verðum að gera okkur fulla
grein fyrir afleiðingunum, ef
við látum þetta tækifæri ganga
okkur úr greipum.
Gísli Guðlaugsson og Alfreð
Möller segja álit sitt.