Dagur - 26.05.1962, Blaðsíða 1
K M ÍLCACM Fra.MSÓKNARMANNA
lR ísrjÓKi: Lki.incuk IUvíwsson
SKUirM Ui-A í I lAh .NARSni.l i I '1(1
StM! I lí)0 . Ni ! M M.l • oo i'UKN i CN
AN.SAM' l’ui'..STV)-.!(K OlHJS
15 |()K.N\sONAK 11.1 . Akí.'R) VKI
^——------------------------:____<
’
Au6LA SiNGASl ' ÚEI.SSOX . ÁRGA óitír )on Sam- NT.UKINN kOSIAK
Kt>.. 100.00 . CjA) •DDAGi KK 1 lúíii
15 i 'i>:o k, mi k : t’M OG A l.A r Á MæVUCtfDOO* JGARDOGt’M
i'KOAK ÁNJ'.H A I'VKtU 'ni.
w, ...
Unga fólkiá
„VIÐREISNIN“ hefur svipt ungt fólk möguleik-
um til heimilisstofnunar í eigin íbúð.
Meðalíbvið hefur hækkað í verði um tveggja
ára laun verkamanns. En þótt byggingakostnaður
sé mikill og flestum um megn, er sagan þó að-
eins hálfsögð.
Meiri hlutinn af árskaupi verkamanns fer í
vexti af einbýlishúsi. Svona er nú komið í okkar
þjóðfélagi og þekkist ekki annars staðar. Þessu
til viðbótar er erfiðara en áður, vegna lífskjara-
skerðingarinnar, að láta vikulaunin endast fyrir
nauðþurftum.
Á Akureyri var í fyrra byrjað á 9 íbúðarhúsum
með 12 íbúðum samtals, í stað 50—60 íbúða, sem
er lágmarkstala nvrra íbúða á Akureyri á ári, mið-
að við fólksfjölda bæjarins nú.
Húsnæðisvandræðin hafa þegar haklið innreið
sína í höfuðstað Norðurlands. Þar verða hinir fá-
tæku harðast úti, auk unga fólksins, sem „við-
reisnin“ liefur leikið svo grátt sem reynslan sýnir.
Það er lágmarkskrafa til þjóðfélagsins, að ungt
og reglusamt fólk, eigi þess kost, að eignast íbtið.
Þjóðfélagið hefur brugðizt þessari skyldu, en
komið af stað verðbólgu, okurvöxtum og lána-
samdrætti, ásamt skertum lífskjörum.
Trúlegt má telja, að á sunnudaginn fagni
rnargt ungt fólk því, að það hefur nú í fyrsta
sinn tækifæri til að þakka fyrir sig.
Þótt aðeins sé kosið í bæjarstjórn, er kosningin
liá pólitísk og gefur tækifæri — fyrsta tækifærið —
til að fella dóm yfir ríkisstjórninni.
Neytið kosningaréttarins. Takið óhikað afstöðu
til þjóðmálanna, eins og þið þekkið þau af eigin
raun. Gefið ríkisstjórninni aðvörun í kjörklefan-
um á morgun með því að kjósa Framsóknar-
flokkinn.
x B
| „ — Enn verður þó ekkert um það fullyrt, |
| hvort þjóðarbúið fái vandræðalaust staðið j
| undir slíkum hækkunum - (þ. e. kaup- !
| hækkununum).
Reykjavíkurbréf Mbl. 20. maí 1962, eignað for- I
| manni Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssyni. 1
Jakob Frímannsson.
Stefán Reykalín.
Sigurður Óli Brynjólfsson.
Ko sningar á morgun
Á KJÖRSKRÁ í Akureyrar-
kaupstað eru nú 5014 manns
og er það 211 manns fleira
en í bæjarstjórnarkosning-
unum 1958.
Kosningarnar fara fram í
Gagnfræðaskóla Akureyrar,
og hefjast þær kl. 10 árdegis
og lýkur kl. 11 síðdegis.
Kjördeildir eru 6, og er
skipt eftir götum, svo sem
auglýst hefur verið. Ættu
menn að ryfja það upp
hvernig skipt er í kjördeild-
ir, til að síður valdi töfum á
kjörstað.
Kjörseðillinn, sem hver
kjósandi l’ær í hendur við
kjörklefa, lítur iit eins og í
þessu blaði er sýnt á blað-
síðu 2, þegar kjósandi hef-
ur greitt B-listanum atkvæði
sitt.
„Framsóknarfélögin á Ak-
ureyii heita á kjósendur i
bænum að veita B-listanum
kjörlylgi í bæjarstjórnar-
•iiiriiimiiiiitiifitiiriiiiiiirtniiiiiiMitMiiiiiimiiiii'flii*
| B-LISTINN |
| SÍMAR:
| Bílasímar 2815 og |
| 1244. |
| Iíosningaskrifstofa |
2810 (3 línur!
j Upplýsingasimar j
| 1443 og 2798. |
kosningunum, sem í hönd
fara, með það fyrir augum
að stærsti stjórnmálaflokkur
Norðlendinga, Framsóknar-
flokkurinn,, verði jafnframt
forystuflokkur Akureyringa.
ARNÞÓR ÞORSTEINSSON
í baráttusæti B-listans.
Þau lýsa yfir vilja sínum til
að beita sér fyrir því, að bæj-
arbúar sameinist á komandi
tímum um þá skyldu sína og
heilbrigt metnaðaimál, að
Akureyri verði sem færust
um að gegna hlutverki sínu
sem höfuðstaður Norður-
lands, á komandi tímum,
miðstöð þeirrar baráttu, sem
heyja þarf til þess að fá fram-
gengt réttlátum og lífsnauð-
synlegum kröfum Norðlend-
inga til fjármagns og fram-
kvæmda á vegum þjóðfélags-
ins og til þess að efla norð-
lenzkar bvggðir, atvinnulíf
þeirra og menningu, en
sporna gegn þeirri óheilla-
þróun, sem felst í ofvexti
höfuðborgar landsins og
fólksfækkun í öðrum lands-
hlutum.
Framsóknarfélögin lvsa nú
sem fyrr yfir eindregnum
stuðningi við samvinnustefn
una og trausti á úrræðum
hennar og félagsmætti til
lausnar margs konar vanda-
málum og til giftudrjúgra
framkvæmda í almannaþágu
á ýmsum sviðum, svo sem
löng reynsla glögglega sann-
ar m. a. og ekki sízt hér á
Akureyri og í öllum byggð-
um norðanlands, þúsundum
einstaklinga til stuðnings í
sjálfstæðum rekstri eða við
öflun lífsnauðsynja og at-
vinnu.“
iiiiiiiiii11111111111••iiii111111111111llll•l••lll•••llll•lllll••ll■•
•II lllllll IIIIII •11111111IIIIMIIII11111111111II ••••ll■•l
Fyrir og eftir „viðreisn"
í AKUREYRARVERÐ á kaffi og sykri hefur verið sem
i hér segir 1959 og 1962:
| Fyrir,, viðreisn“ Maí 1962 Hækkun
kr. kr. %
Kaffi, kg. 34.50 48.00 38.7
Strásykur, kg. 4.85 6.45 48.3
rMMiiiilMlllllllllllllllllMIIIIIMMIIIimítlMIIMIIIIMIMIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIMIIIMIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIII
Helzta ráðið til aS hindra nýja gengislækkun í ágústmánuði er að
auka fylgi Framsóknarllokksins, sem ríkisstjórnin óttast nú mest