Dagur - 04.07.1962, Blaðsíða 2
2
- Kirkjuvíg sla í Reykjahlíð við Mývatn
(Framhald af bls. 1)
en séra Örn Friðriksson sóknar-
prestur á Skútustöðum flutti
prédikun. Kirkjukórinn söng
við undirleik kirkjuorganistans,
Jóns Stefánssonar frá Vogum.
Reykjahlíðarkirkja rúmar
um 150 manns. Teikningu að
henni gerði Jóhannes Sigfúss-
son á Grímsstöðum og sá hann
síðan um byggingu kirkjuhúss-
ins, undir yfirumsjón Jóns Stef-
ánssonar á Öndólfsstöðum. Jó-
hannes málaði einnig kirkjuna
að utan og setti hvelfingu í loft.
Haraldur Björnsson, Húsavík,
málaði kirkjuna að öðru leyti,
ásamt Jóhanni Björnssyni.
Kirkjubekki smíðaði Jóhann
Hallgrímsson, Reykjavík, ljósa-
lögn teiknaði Petrína Kristín
Jakobsson, Reykjavík.
Altariskross gaf Geir Hall-
grímsson, borgax-stjóri, Reykja-
vík, og fleira ættfólk lxans. Alt-
arisklæði gáfu systkinin Lauf-
ey, Svava, Þui'íður, Guðrún,
Baldur og Jón Bjartmar í
Reykjahlíð. Einnig gáfu þau til
minningar um forelþra sína,
Sigurð Einarsson og Jónasínu
Jónsdóttur og Bryndísi systur
sína, 25 þúsund krónur til kirkj-
unnar. Altarisdúk gaf Valgei’ð-
ur Sigfúsdóttir, Húsavík. Tvo
þi'íai'ma ljósastjaka gáfu Pétui',
Hannes, Guðrún og Illugi til
minningar um foreldra sína,
Jón Einarsson og Hólmfi’íði Jó-
hannesdóttur í Reykjahlíð. Þá
gáfu Óskar og Valgeir Illuga-
synir í Reykjahlíð kirkjunni
biblíu tjl minningar um for-
eldi-a sína, Illuga Einai-sson og
Kristjönu Hallgrímsdóttur. Pré-
dikunai’stól gáfu böi’n Jóns Ár-
manns Jakobssonar fi’á Gríms-
stöðum, en þau eru: Sigi’íður,
Pétur Hálfdán, Jakob Hallgrím-
ur, Petrína Kristín og Áki Her-
mann. Afi þeirra, Jakob Hálf-
dánai’son, hinn alþekkti sam-
vinnufrömuður, . gaf á sínum
tíma stærstu einstaklingsgjöf-
ina til gömlu kirkjunnar, er hún
var byggð. Gólfdregil gaf burt-
flutt fólk úr Mývatnssveit,
ljósatæki eru öll gefin ^f kven-
félögum sveitarinnar og Menn-
ingarsjóði KÞ. Illugi Jónsson á
Bjargi gaf litað gler í efri hluta
kirkjuglugga. Kvenfél. Hringur-
inn gaf kirkjuklukkur. Geiteyj-
arstrandarbræður, Sigurður,
Jón og Jóhannes, gáfu 60 þús.
krónur í minningu um foreldra
sína, Jóhannes Sigurðsson og
Guðrúnu Jóhannesdóttur. Enn
eru margar peningagjafir ótald-
ar, svo og áheit.
Þegar kirkjuvígslu var lokið,
buðu kvenfélagskonur og sókn-
arnefnd öllum viðstöddum til
kaffidryldcju í Reynihlíð, þar
sem 200 manns sátu að borðum
í einu. Síðan var gengið í kirkju
á ný, fluttar margar ræður og
sungið þess á milli. Kirkjukór-
inn söng, Sólveig Illugadóttir
söng einsöngslag.
Formaður sóknarnefndar er
Sigfús Hallgrímsson í Vogum,
en með honum þeir Jón Bjart-
mar Sigurðsson og Jóhannes
Sigfinnsson og er framanskráð
byggt á greinargerð form. Ræðu
menn voru, auk sóknarnefndar-
formanns (Þráinn Þóriss. flutti
ræðu hans vegna veikinda for-
mannsins): Pétur Jónsson, sr.
Sigurður Guðmundsson, sr.
Friðrik A, Friðriksson, sr. Páll
Þorleifsson, Petrína Jakobs-
son, Jón Bjartmar, Jóhann Hall-
grímsson, sr. Örn Friðriksson
og að síðustu flutti Sigfús Hall-
grímsson skilnaðar- og kveðju-
orð. En þessum fundi í kirkj-
unni stjórnaði sóknarprestur-
inn, sr. Örn Friðriksson á
Skútustöðum.
Kirkjuvígslan var mikill við-
burður í Mývatnssveit, vígslu-
dagurinn eftirminnilegur hátíð-
isdagur.
YEIÐIMENN!
Nú stendur veiðitím-
inn sem hæst. Úrval
af alls konar
Veiðiáhöldum
nýkoinið.
Það ér of seint að
uppgötva að eitthvað
vantar í yeiðipokann
þegar komið er á ár-
bakkann.
Ia'tið í gluggann.
VERZLUNIN EYJAFJÖRÐUR H. F.
TIL SÖLU:
Ibúðarhús í smíðum,
á Suður-brekkunni.
Teiknað sem einbýlishús.
Tvær íbúðir koma til
greina. Gæti orðið full-
gert fyrir haustið.
Björn Halldórsson.
Sími 02 og 1109.
ÍBÚÐ ÓSKAST
til leigu í sumar eða
hau.vt. Fyrirframgreiðsla
ef óskað er. Sími 1369.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Þriggja til fjögurra her-
bergja íbúð óskast til
leigu nú þegar eða í
haust. Leggið vinsamleg-
ast nafn yðar og heimilis-
fang inn á afgreiðslu
blaðsins merkt ,,kennari“.
HERBERGI
TIL LEIGU
á góðum stað í Glerár-
hverfi. Reglusemi áskilin.
Uppl. í síma 2331.
Bíiasala Höskuldar
Taunus Station 1962
Opel Record 1962
Landrower 1951 og 1955
Willy’s jeppar
Eord 1942, 26 manna,
lágt verð
Ford 1953, 29 manna,
með Benz-dieselvél
Reo 1947, 26 manna,
með Benz-dieselvél
Úrval af FÓLKSBÍLU M
Alls konar skipti
möguleg.
Bílasala Höskuldar
Túngötu 2, sími 1909.
FORDSON-
SEN DIFERÐABÍLL
í góðu lagi til sölu; skipti
koma til greina. Einnio
o
,,Studebaket“-mótor,
V >
ásamt gíi'kassa, í fölksbif-
reið, árg. 1946.
Verð kr. 5.000.00.
Uppl. í síma 1767
eftir kl. 7 að kveldi.
TIL SÖLU:
Heyýta við Farmall Cub.
Tækifærisverð.
Upplýsingar g,efur
Völundur Kristjánsson,
Geislagötu 39, sími 2433.
HJÓLKOPPUK
af Ghevrolet tapaðist í
síðitstu viku. Vinsamleg-
ast' skilist í
KJÖTBÚÐ K. E. A.
gegn fundarlaunum.
AUGLÝSIÐ í ÐEGI
HERRAVÖRUR:
TERYLENE-BUXUR
gráar og brúnar
TERYLENE-BINDI
SPORTHÚFUR
• margar tegundir
SPORTSTAKKAR
ódýrir
SPORTSKYRTUR
mikið úrval
SPORTBUXUR
ljósar
TJÖLD
SVEFNPOKAR
vindsængur
BAKPOKAR
VÖÐLUR, kr. 214.00
MIELE SKELLINADRA
í góðu lagi til sölu.
Uppl. í síma 2182
eftir kl. 7 á kvöldin.
TIL SÖLU
nú þsgar, gott og vandað
Trixon trommusett.
Sigurður V. Jónsson,
Sólvöllum, sími 2634,
eftir kl. 6 e. h.
SILVER-CROSS
SKÝLISKERRA
TIL SÖLU.
Sími 2406.
TIL SÖLU:
Kápa á eldri konu o. fl.
í Krabbastíg 4.
Sími 1787.
Góð
N. S. U. SKELLIN AÐRA
TIL SÖLU.
Uppl. í síma 1567
eftir kl. 6 e. h.
GÓÐUR HEYVAGN
TIL SÖLU.
Selst ódýrt.
Uppl. í síma 2619.
GEYMSLUPLÁSS
ÓSKAST,
fyrir málningarvörur.
Aðalsteinn Vestmann,
málari, sími 2293.
DRENGJAHJÓL og
og ÞRÍHJÓL
óskast til kaups.
Til sölu:
Tækifæriskjóll og
dragtarkjóll.
Sími 1680.
S T E Y E N S
HAGLABYSSUR
EINHLEYPUR
kr. 2.250.00
MAGASINBYSSUR
kr. 5.550.00
RIFFLAR
SJÁLFVIRKIR
(automatiskir)
20 skota. - Kr. 2.550.00.
Amerískar byssur og
rifflar eru beztu skot-
vopnin og þó ódýrust.
VERZLUNIN
EYJAFJÖRÐUR H.F.
Japanskar
YEIÐÍBÚSSUR
léttar, ódýrar,
vel útbúnar.
VERZLUNIN
EYJAFJÖRÐUR H.F.
MJÓLKURBRÚSAR
30 lítra - STÁL
vestur-þýzkir.
VERZLUNIN
EYJAFJÖRÐUR H.F.
OSRAM
LJÓSAPERURNAR
FRÆGU
fást nú loks aftur.
VERZLUNIN
EYJAFJÖRÐUR H.F.
JÁRNIÐNAÐAR-
MAÐUR
óskast á verkstæðið.
Til greina kemur að
taka nema.
Vélsmiðja Steindórs h.f.
Akureyri. — Sími 1152.
ATVINNA!
Stúlka óskast til
afgreiðslustarfa á
LITLA-BARINN
Uppl. í síma 2525.
STÚLKA ÓSKAST
til hreingerninga.
Uppl. í síma 1421.
Góð auglýsing
gefur góðan arð