Dagur - 14.07.1962, Page 7
7
Orðsending til Akureyringa
iiiiiiiiiiiiiiiii
i ■ ■ i ■ • ■ 11 ■ 1111 ■ 11 ■ 111 ■ ■ i ■ ■ ■ ■ ■ i ■ >
EINS og bæjarbúum er kunn-
ugt, hefur Akureyrarbær ákveð-
ið að efna til sögusýningar í til-
efni 100 ára afmælis kaupstað-
arins á þessu sumri. Undirbún-
ingur sýningarinnar er nú kom-
inn vel á veg, en þó þykir enn
nokkuð á skorta, að nægilegs
úrvals mynda hafi tekizt að afla.
Sögusýningarnefnd vill því
beina þeim eindregnu tilmælum
til Akureyringa, bæði þeirra,
sem hér eru búsettir, og brott-
fluttra, að þeir athugi, hvort
þeir eigi ekki í fórum sínum
myndir — ekki sízt gamlar, —
sem fengur væri að á fyrirhug-
aðri sýningu og þeir væru fúsir
að lána í þessu skyni. Einkum
vill nefndin benda á þessa efnis-
flokka:
Nafnkunnir borgarar, ekki
sízt á 19. öld — Okumenn, vagn-
ar og sleðar — Starfshópar —
Gömul eða horfin hús — Gömul
skip — Gamlir bílar — Verzlun
fyrri tíma, kaupstaðarferðir —
Húsbrunar — Skrúðgarðar,
gamlar myndir og nýjar—Leik-
sýningar, ekki sízt, ef einhver
ætti myndir frá sýningu á
„Helga magra“ 1890.
Ekki þarf að taka fram, að
fúllum skilum er heitið á öllum
myndum, munum og öðru sýn-
ingarefni, er lánað verður til
sýningarinnar.
- „Olíumálið”
(Framhald af bls. 5.)
ig: Ákærður Haukur greiði 5/10
hluta kostnáðarins, ákærður
Jóhann Gunnar 2/10 hluta, á-
kærðir Helgi, Skúli, Ástþór,
Jakob og Karvel greiði in solid-
um 2/10 hluta og ákærður Vil-
hjálmur 1/10 hluta.
Dóminum ber að fullnægja
með aðför að lögum.
Guðm. Ingvi Sigurðsson.
Gunnar Helgason,
26/6 1962.
Þessir dómfelldir hafa þegar
óskað áfrýjunar: Jóhann Gunn-
ar Stefánsson, Helgi ÞorSteins-
son, Skúli Thorarensen, Ástþór
.Matthíasson, Jakob Frímanns-
!son, Karvel Ögmundsson og
Vilhjálmur Þór.
• □
Garðyrkjuritið 1962
ÁRSRIT Garðyrkjufélags ís-
lands er komið út. Ritstjórinn,
Ingólfur Davíðsson skrifar
greinarnar: Hollusta grænmet-
is, Sjúkdómar og jurtakynbæt-
ur, Blómasýningar og kennslu-
blóm, Víða er pottur brotinn,
þáttur um grös á Látraströnd
og Á Patreksfirði, og fleira.
Jón Rögnvaldsson skrifar um
plöntur í grasadeild Lystigarðs-
ins á Akureyri, Háfliði Jónsson
á þarna greinar um: Vísir að
grasgarði í Reykjavík, Staldrað
við í Stafangri og Frumvarp til
laga um kirkjugarða. Sveinn
Indriðason skrifar um blóma-
sölu og meðferð afskorinna
blóma. Óli Valur Hansson skrif-
ar fréttapistil, og margt fleira er
í þessu nýútkomna og myndar-
lega riti. □
Þeir, sem vilja sinna þessum
tilmælum sögusýningarnefndar,
eru vinsamlega beðnir að snúa
sér til Haralds Sigurgeirssonar,
bæj arstj óraskrifstofunni, símar
1139 og 1915, eða Sverris Páls-
sonar, Möðruvallastræti 10, sím-
ar 2870 og 1957.
Sögusýningamefnd.
Um Jökulsárvirkjim
MEÐ tilvísun til þess, sem rætt
var um raforkumál í útdrætti,
sem Dagur birti 23. júní sl., úr
ræðu, sem ég flutti á sambands-
þingi Framsóknarfélaganna á
Laugum, vil ég taka það skýrt
fram, að við þingmenn Norður-
landskjördæmis eystra og land-
kjörnir þingmenn úr kjördæm-
inu stóðum allir saman að flutn-
ingi tillögu þeirrar um að „und-
irbúa virkjun Jökulsár á Fjöll-
um til stóriðju“, er samþykkt
var á Alþingi 22. marz 1961, og
að við höfum síðan haft samráð
um að ýta á eftir framkvæmd
þingsályktunarinnar, svo og um
fleira, sem verða mátti til fram-
dráttar því málefni, sem hér er
um að ræða.
Gísli Guðmundsson.
BORGARBÍÓ |
AfgreiðsSan opin frá kl. 6.30. =
Sími 1500 í
í kvöld kl. 8.30:
LÆKNIRINN OG |
BLINDA STÚLKAN |
Amerísk stórmynd í litum. I
Aðalhlutverk:
Gary Cooper, Maria Schell, :
Karl Malden.
I ORFEU NEGRO j
Hátíð |
i blökkumannanna 1
Heimsfræg stórmynd
j í litum. =
É Blaðaummæli: \
\ „Að öðrum myndum ólöstuð- ;
= um er óhætt að fullyrða, að ;
| „Orfeu Negro“ sé ein sú ;
= bezta, sem hér hefur lengi |
= sézt.“ Ó. S. Vísir.
I „Þessi mynd er listaverk ;
= vegna þess að hún er ótrú- ;
i lega sönn. Hún er lofsöngur ;
= til lifsins og ástarinnar, sem ;
i menn ættu ekki að þurrka ;
= úr huga sér að sinni eftir að ;
i hafa séð hana.“ H. E. Alþ.bl.
i Sýnd aðeins einu sinni enn
= á sunnudagskvöldið kl. 8.30.
Rætf við tvo skagfirzka bændur
(Framhald af 8. síðu.)
Þar er dálítið byggt í sumar og
veitir hvort tveggja ágæta at-
vinnu þar á staðnum. Einnig er
þar undirbúin malbikun gatna.
Bændaförin austur um land
og allt til Jökulsár á Breiða-
merkursandi, sem alls stóð í 8
daga með á annað hundrað þátt-
takendum úr nær öllum hrepp-
um Skagafjarðar, heppnaðist
svo vel, að ógleymanleg mun
verða. Að því stuðlaði veður-
blíða, sem við vorum svo hepp-
in að njóta á allri ferðinni. í
öðru lagi voru viðtökur fólksins
svo ágætar, að segja má, að við
værum borin á höndum af stétt-
arbræðrum okkar. Skagfirðing-
* at voru þeh- fyrstu, sem í hóp-
ferð heimsóttu Austur-Skafta-
fellssýslu og dvöldum við þar
Bindindisraaniiamót
að Reykjaskóla
UM Verzlunarmannahelgina
hafa bindindissamtök landsins
árlegt mót sitt, nú í Reykja-
skóla. Þar eru húsakynni rúm,
tjaldstæði .nóg og aðstaða öll hin
bezta.
Mótið verður sett á laugar-
dagskvöldið og verður þá kvöld-
vaka og dansleikur, en á sunnu-
daginn guðsþjónusta og síðan
skemmtiferð umhverfis Vatns-
nes. Þennan dag, að kveldi,
vérður önnur kvöldvaka og
margt fleira til skemmtunar.
Undirbúningsnefndin hvetur
stúkur, bindindisfélög kennara,
bindindisfélög ökumanna og öll
önnur slík félög að fjölmenna
á mót þetta.
□
þi-já daga í góðum fagnaði. í
hópi hinna skagfirzku voru 38
hjón auk annarra karla og
kvenna, giftra og ógiftra.
Þá létu þeir þess báðir getið,
Gísli Magnússon og Jón Jóns-
son, að frk. Ingibjörg Jóhanns-
dóttir á Löngumýri, hefði gefið
Þjóðkirkjunni skóla sinn að
Löngumýri, jörð og húsakost.
En þetta tilkynnti biskup ís-
lands á prestastefnunni í vor.
Húsmæðraskóli verður áfram á
Löngumýri og Ingibjörg verður
þar forstöðukona eins og verið
hefur. Og fyrirhugað er að á-
fram verði þarna sumarbúðir
Þjóðkirkjunnar. En fyrstu sum-
arbúðir Þjóðkirkjunnar hér á
landi voru einmitt á þessum
stað og hafa . verið síðan Í954.
En Ingibjörg Jóhannsdóttir hef-
ur starfrækt skóla sinn um langt
árabil með mildum dugnaði og
með aðstoð samfélagsins að
nokkru.
Þá tjáðu hinir skagfirzku
bændur blaðinu einnig, að fyrir-
huguð væri heimavistar-baima-
skólabygging í Varmahlíð fyrir
þrjá eða fjóra barnaskóla sýsl-
unnar. Þar er töluvert af heit-
um uppsprettum, en ekkert
hafa þær verið rannsakaðar
með það í huga, að auka magn
hins heita rennslis.
Blaðið þakkar þessar upplýs-
ingar. □
MESSAÐ í Akureyrarkirkjunk.
sunnudag kl. 10.30 f.h. Sálm-
ar nr. 17, 327, 354, 318 og 680.
Sr. Stefán Snævarr annast
guðsþj ónustuna.
HJÁLPRÆÐISHERINN. Major
Óskar Jónsson og Ingibjörg
Jónsdóttir stjórna samkomu í
sal Hjálpræðishersins sunnu-
daginn 15. júlí klukkan 8.30
e.h. Allir hjartanlega velkomn-
ir. — Hjálpræðisherinn.
NOKKRAR SMÁTELPUR héldu
útiskemmtun í garði hér á
brekkunni fyrir nokkrum dög-
um, og fengu við það nokkurn
aðgangseyri. Þær hafa nú af-
hent elliheimilissjóði upphæð-
ina, 345.00, krónur, og þakkar
stjórnin fyrir.
DAGUR. Símar: 1166 ritstjórn,
1167 auglýsingar og afgreiðsla
(nýr sími). Færið nýja núm-
erið, 1167; inn í símaskrána.
VÍSAN HANS BALDURS. —
Prentvillupúkinn, sem aldrei
tekur sér sumarfrí, gerði vís-
una hans Baldurs á Ofeigs-
stöðum, er hann orti til Ragn-
ars Ásgeirssonar, að hrein-
ustu endaleysu, eins og sjá
mátti hér í blaðinu fyrir
skömmu. Svona er vísan rétt:
Ekur rjóðum fljóðafans,
fjörgast blóð í æðum manns.
Stækkar óðum hróður hans
hann er bróðir forsetans.
IIJÓNAEFNI. Nýlega opinber-
uðu trúlofun sína ungfrú
Hrafnhildur Frímannsdóttir,
afgreiðslumær, Þingvallastr.
14, Akureyri, og Sigurberg
Sigurðsson, iðnnemi, Setbergi
Akureyri.
ÓSKAR GÍSLASON, kunnur
maður í sambandi við kvik-
myndatökur, er hér á ferð og
sýnir Bakkabræður í Borgar-
bíói kl. 5 á laugardag og aftur
á sunnudag, og myndina Síð-
asti bærinn í dalnum kl. 5 á
sunnudaginn.
- VARAR VIÐ AÐILÐ
Eiginkona mín og móðir okkar
JÓRUNN SIGURJÓNSDÓTTIR
frá Litlu-Brekku í Hörgárdal,
andaðist í Sjúkrahúsinu á Akureyri 12. júlí. — Út-
förin verður ákveðin síðar.
Hennann Sigurðsson. Brynhildur Hermannsdóttir.
Finnur Hermannsson. Hólmfríður Jónsdóttir.
AÐ EBE
Frá Áfengisvarna-
nefnd kvenfélaganna
Áfengisvamanefnd kvenfélaga á
Akureyri hefur á fundi sínum
25. júní 1962 gert svo hljóðandi
ályktun:
„Áfengisvarnanefnd kvenfé-
laga á Akureyri skorar á lög-
reglustjóra Akuj'eyrarbæjar að
láta fara fram ýtarlega rann-
sókn á leynivínsölu í bænum,
svo að ljóst verði hvar og af
þverjum hún er stunduð.
Eins og vitað er, má ekki
selja ungmennum innantuttugu
og eins árs vín í Áfengisverzlun
ríkisins né annars staðar, þar
sem vín er selt lögum sam-
kvæm.t. En þar sem drykkju-
skapur unglinga er nú mjög á-
berandi, er augljóst, að til eru
þeir staðir, þar sem vínið er
auðfengið. Hér þarf að spyrna
við fótum, áður en dýpra sekk-
ur í svaðið. Leynivínsala er ó-
lögleg, og hana verður að upp-
ræta. Taka verður málið föstum
tökum og sýna enga linkind. —
Þess væntir Áfengisvarnanefnd
kvenfélaga á Akureyri fast-
lega.“
(Framhald af bls. 1.)
aði eins og járn- og málmfram-
leiðslu.
Bráðabirgðaundanþágur EBE
skipta ekki máli ,heldur þær
undanþágur, sem eru varanleg-
ar, varða grundvallaratriði og
eru tryggar.
Aðeins það að hefja samninga
um fulla aðild er hættulegt lít-
illi þjóð efnahagslega. Það veld-
ur strax margs konar ákvörðun-
um í atvinnulífi þjóðarinnar.
Það verða gerðar framkvæmdir
ogfjöldibreytinga í framleiðslu-
háttum til þess að aðhæfa efna-
hagslíf landsins ástandinu í
EBE. Þjóðin er því ekki frjáls
að taka lokaákvörðun, því fáir
mundu þora að fá þessar breyt-
ingar teknar aftur.
Eins og EBE er byggt upp
hlýtur það að hamla á móti vel-
ferðai'þróun, þrátt fyrir fögur
orð. Skattar á fyrirtækjum
verða lágir, ríki og sveitarfélög
fá minna fé til félagsmála, kaup-
in-u verður haldið niðri og reynt
að hafa taumhald á launþegum.
Auðhringarnir munu fá einstakt
tækifæri á kostnað hins óbreytta
borgara og einnig smáatvinnu-
rekenda.
EBE er árangur sérstakrar
gerðar efnishyggju, sem hefur
þróazt mjög áberandi í grónum
iðnaðarlöndum á Vesturlönd-
um. Af þessu hefur leitt þróun,
sem leiðir til óþreyju og spenn-
ings, samtímis því, að fólk til-
biður hávaðann, viðbjóðinn og
fjarstæðurnar í öllum listgrein-
um. EBE hlýtur að leiða Vest-
urlönd enn lengra á þessari ó-
gæfuferð, þar sem peningasjón-
armiði og samkeppnishugsun er
hreykt yfir alltannað.Takmark-
ið með öllum framförum er ekki
aðeins bætt lífskjör, heldur
menning, andi og siðgæði. Það
er sú lífslist að hjálpa öðrum.
EBE er þriðja tilraunin til
þess að koma á þýzku drottin-
valdi í Evrópu, en vinnubrögðin
eru eftir því, sem við á á hverj-
um tíma.
Lolcaorð prófessorsins.
„Einu raunsæju og ábyrgu
viðbrögðin, sem koma til greina
fyrir þjóðir Norðurlanda, er að
bíða og sjá hvað setur, ef þær
vilja hugsa um sína eigin fram-
tíð og framtíð heimsins, bíða
þar til staðreyndimar hafa
sannfært Norðurlandabúa um
innsta eðli UBE í efnahagsmál-
um og stjómmálum yfirleitt.
Það er ekkert í Rómarsamn-
ingnum, sem segir, að þau lönd,
sem dragi að gerast aðilar, nái
lakari kjörum.“