Dagur - 09.08.1962, Blaðsíða 8
8
Haukur Ámason á nýju brúnni á Jökulsá. (Ljósmyndari Jón Sigurgeirsson.)
Brúargerð á Jökulsá á Fjöllum
FÖSTUDAGSKVÖLD 20. júlí
lagði leiðangur upp frá Reykja-
hlíð suður í Ódáðahraun til brú-
argerðar á Jökulsá á Fjöllum
austan Upptyppinga.
Klukkan var um 6 á laugar-
dagsmorgun 21. júlí, þegar leið-
arenda var náð. Var þá slegið
tjöldum, matazt og lagzt til
svefns. Um kl. 11 var risið úr
svefnpokum, hádegisverður
sngeddur og því næst tekið til
óspilltra málanna við brúar-
gerðina. Mannafli var nægur og
höfðu þó flestir nóg að iðja við
flutning efnis og áhalda að brú-
arstæðinu, lagfæringu þess og
brúarsmíðina sjálfa. 4 menn
fóru með gúmmíbát ofar að
ánni, ferjuðu sig yfir og héldu
svo að brúarstæðinu.
Var kastað línu yfir ána til
þeirra, síðan drógu þeir til sín
kaðal og vírkaðal. Vírkaðall sá
var festur rammlega og strengd-
ur. Því næst var stálbitunum
rennt yfir með trissu á vírkaðlin
um. Gegg verk það ágætlega, en
gljúfurbarmurinn að austan var
mun lægri en að vestan. Þurfti
því að byggja undir bitaendana
að austanverðu. Það starf, svo
og lagfaering vegar við þann
enda brúarinnar, tók drjúgan
tíma. Brúin sjálf var fullbúin,
en ekki aðstaða til að aka yfir
hana, þegar vinnu var hætt um
kl. 21 á laugardagskvöld.
Sunnudagsmorgun voru menn
árla á fótum og tóku til, þar
sem frá var horfið kvöldið áð-
ur. Um kl. 9 ók svo Jón Sigur-
geirsson frá Helluvaði fyrstur
manna yfir brúna. Þá var snúið
heim í tjöld og búizt til ferðar í
Ný léðurvöruverzlun
í JULÍ opnaði Leðurvörur h.f.
nýja verzlun í Strandgötu 5 (áð-
ur Búnaðarbankinn. Henni er
skipt í tvær deildir. Eru í ann-
arri skófatnaður, en í hinni
töskur, hanzkar og margs konar
leðurvörur. Töskurnar eru nær
allar búnar til á Akui'eyri. Hafa
þær áður náð vinsældum og þá
seldar annars staðar.
Verzlunarstjóri er Gunnar
Hjartarson. □
Hvannalindir. Fóru 4 léttustu
bílarnir í þann leiðangur, en eft-
ir voru vörubíllinn og Dodge
Weapon bíll. Leiðin í Hvanna-
lindir reyndist greiðfær, nema
eitt hraunhaft, sem þó var
mjótt. Þar var svo dvalizt um
hríð í góðu veðri, gengið á
Lindakeili og skoðaðar rústir
útilegumannakofa, sem þar eru.
Var nú verk fyrir höndum að
taka brúna af, því að ekki er
tryggt að láta hana vera að
staðaldri sökum þess, hve lágt
hún er yfir vatnsborði árinnar.
Brúin var að sjálfsögðu tekin
yfir til vesturlandsins, en 2
menn störfuðu að því að losa
hana að austan. Voru þeir
dregnir á vírkaðli yfir ána að
verki loknu. Tókst það giftu-
samlega, en varla þyrfti að ætla
þeim líf, er félli þarna í Jökulsá,
svo hamrömm sem hún er í
þrengslunum við brúarstæðið.
Mánudagsmorgun 23. júlí
voru tjöld tekin upp og búizt til
ferðar í Öskju. Fýsti marga að
sjá verksummerki gossins í vet-
ur. Höfðu sumir ferðalanganna
ekki haft tækifæri til þess áður,
en aðrir höfðu nýlega farið á
þessar slóðir. Kunnu þeir að
vísa hinum ókunnugri á þá
staði, sem sjónarverðir eru.
Að lokinni viðdvöl í Öskju
var haldið til byggða'. Þegar
kom í Herðubreiðarlindir ,hittu
leiðangursmenn fólk, er komið
hafði á stöðvar þeirra daginn
áður. Hafði það farið á bíl sín-
um í slóð þeirra yfir brúna
nokkru á eftir þeim, hitti ekki
rétta leið og sneri við.
Leiðangursmenn höfðu því
(Framhald á bls. 7)
Brezkur tundurspillir
NK. FÖSTUDAG, þann 10. ág„
kemur brezki tundurspillirinn
H. M. S. Makom til Akureyrar.
Skipstjóri er mr. Maurice Tikky.
Áætlað er að skipið hafi við-
komu hér í fjóra daga og gefst
fólki tækifæri til að skoða skip-
ið. Á laugardag verður að opið
fyrir skólabörn, en fyrir almenn-
ing frá kl. 14.00—16.00 á sunnu-
dag. □
Tvær í sólinni. (Ljósm.stofa Péturs, Húsavík.)
Utsvörin á Akureyri árið 1962
ÚTSVARSGREIÐENDUR á Akureyri 1962 eru samtals 2798, þar
af eru 2754 einstaklingar og 44 félög. — Heildarupphæð álagðra út-
svara er kr. 24.925.000.00.
Hæstu útsvör á félögum eru:
• Samband íslenzkra samvinnufélaga........... kr. 589.100.00
Slippstöðin hf.............................. — 282.500.00
Kaupfélag Eyfirðinga ........................ — 202.300.00
Amaro hf. ................................. — 168.200.00
Útgerðarfélag K. E. A....................... — 146.100.00
Súkkulaðiverksmiðjan Linda hf................ — 109.200.00
Hæstu útsvör einstaklinga eru:
Kristján Kristjánsson, Brekkugötu 4..........kr. 87.200.00
Valtýr Þorsteinsson, Fjólugötu 18 ............ — 60.200.00
Brynjólfur Kristinsson, Harðangri............. — 56.200.00
Vilhelm Þorsteinsson, Ránargötu 23 ........... — 53.100.00
Helgi Skúlason, Möðruvallastræti 2 ........... — 47.700.00
Baldur Ingimarsson, Hafnarstræti 107 B...... — 46.900.00
Jónas H. Traustason, Ásveg 29 — 46.200.00
Óskar Hermannsson, Gránufélagsgötu 53 ... . — 42.900.00
Friðþjófur Gunnlaugsson, Hamarstíg 33 ........ — 39.200.00
Baldvin Þorsteinsson, Löngumýri 10'........... — 38.500.00
Sverrir Valdemarsson, Ásveg 16 .............. — 37.700.00
Oddur C. Thorarensen, Bjarmastíg 9 ........... — 37.300.00
Oddur C. Thorarensen, Hafnarstrséti 104 .... — 35.800.00
Brynjólfur Brynjólfsson, Þingvallastræti 33 . . — 34.500.00
Tryggvi Valsteinsson, Lyngholti 10 ........... — 34.400.00
Friðjón Skarphéðinsson, Helgamagrastræti 32 — 32.500.00
Halldór Ólafsson, Eyrarlandsveg 24 ........... — 32.300.00
Guðmundur Karl Pétursson, Eyrarlandsveg 22 — 31.900.00
Pétur Jónsson, Hamai-stíg 12 ................. — 31.500.00
Sverrir Ragnars, Þingvallastræti 27 .......... — 31.300.00
Einar Guðmundsson, Klettaborg 2 .............. — 31.100.00
Jóhann Þorkelsson, Ránargötu 19 .............. — 30.800.00
Ólafur Jónsson, Munkaþverárstræti 21 ..... . — 30.600.00
Sigurður Ólason, Munkaþverárstræti 31 .... — 30.200.00
HÆSTU AÐSTÖÐUGJÖLD:
Félög:
Kaupfélag Eyfirðinga . ....................kr. 1.440.200.00
Samband ísl. samvinnufélaga, verksm. . . . ; — 952.200.00
Útgerðarfélag Akuveyringa hf................ — 475.500.00
Slippstöðin hf.............................. — 108.900.00
Kaffibrennsla Akureyrar hf.................. — 104.000.00
Amaró hf.................................. — 103.300.00
Súkkulaðiverksmiðjan Linda hf............... — 97.100.00
Bifreiðaverkstæðið Þórshamar hf,- .......... — 80.800.00
Oddi hf„ vélsmiðja.......................... — 62.900.00
Byggingavöruverzlun Tómasar Björnssonar — 62.300.00
Útgerðarfélag K. E. A....................... — 59.100.00
Prentverk Odds Björnssonar hf............... — 55.000.00
Valbjörk hf................................. — 51.700.00
Einstaklingar:
Valgarður Stefánsson, Oddeyrargötu 28 .... kr. 78.000.00
Valtýr Þorsteinsson, Fjólugötu 18 — 50.000.00
Kristján N. Jónssón, Þingvallastræti 18 .... — 46.000.00
Brynjólfur Brynjólfsson, Þingvalíástræti 33 — 41.000.00
Tómas Steingrímsson, Byggðavegi 116 .......... — 32.200.00
O. C. Thorarensen, Bjarmastíg 9 .............. — 30.600.00
Snorri Kristjánsson, Strandgötu 37 ........... — 26.200.00
Steindór Kr. Jónsson, Eyrarveg 31 ............ — 23.300.00
Bjarni Sveinsson, Brekkugötu 3 ............... — 21.000.00
UM síðustu helgi héldu umdæm-
isstúkur Suður- og Norðurlands
mót að Reykjaskóla í Hrúta-
firði. Það sóttu 600—700 manns,
þegar flest var. Mótsstjóri var
Jón Kristinsson, Akureyri.
Meðal þess, sem fram fór var:
Stefán Ág. Kristjánsson flutti
frumort kvæði, kvöldvökur
voru fluttar á laugardags- og
sunnudagskvöld, sem félagarnir
iáu sjálfir um, farin var
skemmtiferð umhverfis Vatns-
nes á sunnudaginn.
Guðsþjónustu flutti séra Gísli
Kolbeinsson.
Á laugardagskvöld var brenna
mikil og við hána sungin ætt-
jarðarljóð. (Framh. á bls. 2.)
STÓR VINNINGUR
STÆRSTI vinningurinn í Vöru-
happdrætti SÍBS, síðasta drætti,
lenti hingað til Akureyrar, kr.
500.000.00 — eða hálf milljón
kr. — umb. Kr. Aðalsteinsson.
Sá hamingjusami mun hafa
næga þörf fyrir fjársjóðinn og
er hinn ánægðasti. Hann heitir
Magni Friðjónsson, Brekkugötu
1, vörubílstjóri á Stefni.