Dagur - 17.10.1962, Side 8
ÞÆTTIR UM ÞJOÐMAL
SAMA DAG og greinin um
„hlutfallslegan samdrátt ríkis-
framlaga til verklegra fram-
kvæmda og atvinnuveganna“
birtist í Degi, var Alþingi sett
og nýju fjárlagafrumvarpi frá
ríkisstjórninni útbýtt meðal
þingmanna, þ. e. frumvarpi til
fjárlaga fyrir árið 1963. Margir,
sem fengu þetta plagg í hendur,
ráku upp stór augu og eru þó
ýmsu vanir. Þarna er sem sé
gert ráð fyrir, að útborganir rík
issjóðs og þar með álögur á þjóð
ina verði 2 milljarðar og rúml.
100 milljónum betur á næsta
ári, og er þó auðsætt af gögn-
um, að þær verða meiri en það
er lýkur. Hækkun útborgana
frá því, sem talið var í fjárlög-
um fyrir árið 1958 er sem næst
1231 millj. kr. eða 138%. Hækk-
unin frá gildandi fjárlögum
þessa árs er HÁTT Á FJÓRÐA
HUNDRAÐ MILLJÓNA.
Þegar ég sá þessar stórhækk-
andi niðurstöðutölur, varð mér
fyrst fyrir að athuga, hvort
hækkunin stafaði ekki að ein-
hverju leyti af því, að gerðar
væru tillögur um hlutfallslega
hækkun framlaganna til verk-
legra framkvæmda og atvinnu-
mála, sbr. það, sem áður hefur
verið sagt um það mál — hvort
nú væri e. t. v. verið að hækka
þessi franilög um 138% eins og
fjárlögin í heild frá því sem
þau voru árið 1958.
Svörin við þessari spurningu
hefi ég reiknað út lauslega, og
mér virðast þau m. a. vera þessi:
Til samgöngumála í heild
samkv. 13. gr. er í fruiíivarpinu
ætlaðar ca. 190 millj. kr. Með
138% hækkun frá 1958 ætti upp
hæðin að vera ca. 273 millj. kr.
Til atvinnuniála samkv. 16.
gr. eru í frv. ætlaðar 169 millj.
kr. (talið á sania hátt og 1958).
Með 138% hækkun frá 1958
ætti sú upphæð að vera ca. 272
millj. kr.
Til vegamála í heild eru í frv.
ætlaðar ca. 114 millj. kr. Með
138% hækkun frá 1958 ætti sú
upphæð að vera ca. 169 millj.
kr.
| Nýtt skólaliúsnæði I
UM SÍÐUSTU HELGI var tek-
in í notkun neðsta hæðin í við-
bótarbyggingu Oddeyrarskól-
ans. Eru það fjórar stofur.
Veiða þar í vetur 5 bekkjar-
deildir, söngkennsla og handa-
vinnukennsla stúlkna. Hitakerfi
skólans er enn ekki komið í
lag og verður þessi hæð hituð
upp með rafmagni. Ekki er enn
komið samband milli skólahús-
anna, en gangur á að tengja
byggingarnar saman.
Áætlað er að ljúka viðbótar-
byggingu Oddeyrarskólans fyr-
ir næsta haust, og bætist þá tals-
vei t við af skólahúsnæði í bæn-
um. □
Kóreumaður leitar á Glerárdal
ÍSLAND hefur lengi þótt forvitnilegt rannsóknarefni jarðfræðinga,
og á allra síðustu árum hefur fjöldi þeirra manna lagt leið sína
um landið til að lesa „hin opnu bók jarðfræðinnar", sem hér þykir
vera. Um helgina var hér á Akureyri ungur maður frá Kóreu,
jarðfræðingur að menntun, og er að afla sér gagna í doktorsrit-
gerð, er hann vinnur að. Á laugardaginn lagði hann land undir
fót, hélt fram Glerárdal og leitaði steingerfinga, ennfremur hefur
hann farið til Mývatnssveitar og víðar. Hann heitir Do Jong Kim,
er fremur lágur maður vexti, snarlegur og býður af sér góðan
þokka. Fæddur er hann i Norður-Kóreu en flúði til Suður-Kóreu
með föður sínum og bróður, stundaði nám í höfuðborginni Seol,
en hefur stundað jarðfræðinám í Bonn í Þýskalandi síðan 1960.
Kórea var í hvers manns munni um árabil vegna stríðsins þar.
Getur því verið að sumum þyki forvitnilegt að sjá, hvað Kóreu-
maður hefur að segja um land og þjóð, þótt aðeins sé í stuttu
blaðaviðtali.
Asíumaðurinn með hinn austræna
svip, er klæddur kuldaúlpu og í skjól-
góðri ullarpeysu innanundir. Hann er
í bláum nankinsbuxum, hefur góða
fjallaskó á fótum og hlýja ullar-
sokka.
Og svo bregðum við okkur austur
til Kóreu, litla skagans, sem heimur-
inn stóð á öndinni út af, þegar hernað-
arátökin voru þar í algleymingi, skag-
ans milli Gula hafsins og Kínahafs og
gefum Do Jong Kim orðið:
Kórea er 200 þús. km 2 að flatarmúli og er skipt í Norður- og
Suður-Kóreu.Höfuðborg Suður-Kóreu er Seul með 2,5 milljónir
íbúa, en alls eru íbúar landsins 35 milljónir. Um 65% þjóðarinnar
stundar landbúnað en 35% býr í borgum. Á Kóreu eru engin
eldfjöll og engir jöklar, og þar þekkjast ekki jarðskjálftar. Á sumr-
in er heitt en frosthart á vetrum. Hitamismunur er ákaflega
mikill. Monsúvindarnir og hitabeltisloftslagið í júní, júlí og ágúst
með allt að 35 stiga hita, þroska lirísgrjónin, hveitið og alla ávext-
ina, sem eru þýðingarmesti afrakstur jarðarinnar.. Úrkomur geta
komizt upp í 1300 mm á ári og 300 mm á einum sólarhring, en
eftir slíkar rigningar eru dásamleg veður. Á vetrum getur frostið
komizt niður í 30 eða jafnvel 35 stig og er þá nístandi kalt.
Og svo leggjum við nolckrar spurningar fyrir Asíumanninn:
Til byggingar þjóðvega eru í
frv. ætlaðar ca. 2014 millj. kr.
Með 138% hækkun frá 1958 ætti
uppliæðin að vera ca. 38 millj.
kr.
Til brúagerða eru í frv. ætl-
aðar ca. 11.3 millj. kr. Með 138%
hækkun frá 1958 ætti upphæðin
að vera ca. 23.3 millj. kr.
Til endurbyggingar gamalla
brúa eru í frv. ætlaðar 1425 þús.
kr. Með 138% hækkun frá 1958
ætti upphæðin að vera 3570 þús.
kr.
Til sýsluvegasjóða eru í frv.
ætlaðar 2875 þús. kr. Með 138%
hækkun frá 1958 ætti upphæðin
að vera rúml. 614 millj. kr.
- Til hafnarmannvirkja og lend
ingabóta eru í frv. ætlaðar 17
millj. kr. Með 138% hækkun frá
1958 ætti upphæðin að vera
rúml. 25(4 millj. kr.
Til raforkumála samkv. 16.
gr. eru í frv. ætlaðar nál. 32
millj. kr. Með 138% hækkun frá
1958 ætti úpphæðin að vera ca.
71 millj. kr.
Fjárlaga frumvarp það, sem
hér er um að ræða, verður nú
tekið til meðferðar í fjárveit-
inganefnd Alþingis og síðan í
þin'ginu. Á því verða sjálfsagt
gerðar margar breytingar áður
en það verður að fjárlögum fyr-
ir árið 1963. Ef að vanda lætur,
verður samsetning þeirra í
lieild talsvert liærri en gert er
ráð fyrir í frumvarpinu, og það
þó að ekkert verði áætlað fyrir
þeirri útgjaldahækkun, sem
kjarasamningar við opinbera
starfsmenn munu hafa í för
með sér á næsta ári. Um þá
hækkun er enn ekkert með
vissu kunnugt, og ekkert ætlað
fyrir þeim í frumvarpi stjórnar-
innar, en kjararáð opinberra
starfsmanna hefur lagt þessar
tillögur fram eða kröfur og birt
þær opinberlega. En þegar á
allt er litið, ætti það ekki að
koma á óvart, þótt þingmenn
geri. á. þessu þingi tilraun til
þess að rétt hlut uppbyggingar-
innar í landinu. G. G.
Stundið þið ekki kvikfjár-
rækt?
Jú, einkum nautgriparækt og
borðum nokkuð mikið af nauta
kjöti. En eiginlegar mjólkurkýr
eru að heita má engar og lítið
um kindur. Ég hafði ekki drukk
ið nema örfáa lítra af mjólk, á
æfinni, þar til ég fór úr landi,
og aðeins nokkur pund af osti
og smjöri. Aðalfæðan er hrís-
grjón.
Og borðið þið með prjónum?
Já, í eldhúsinu er allt skorið
niður í hæfilega bita. Maturinn
er svo borinn fram ásamt prjón
um og skeiðum.
Og sitjið þið á gólfinu eða eru
stólarnir komnir í tízku?
Allir sitja á gólfinu, segir
gesturinn, stendur upp og sezt
flötum beinum á gólfið með
þeirri mýkt, sem vaninn einn
gefur, og krossleggur fæturna
og er þegar kominn í hvíldar-
stöðu, þótt óvönum þyki slíkt
fráleit hvíld. Undantekningar
frá reglunni eru sárafáar, þótt
til sé auðvitað fólk, sem laðast
hefur að siðum vesturlanda í
þessu efni.
Hvernig er upphitun liúsa?
Það er hvergi ofn og þaðan af
síður miðstöð. En frá eldhúsinu
ei' reykurinn leiddur undir gólf-
in í næstu herbergjum og reyk-
háfurinn er á gagnstæðri hlið.
Með þessu móti verða gólfin
hlý. Það er notalegt að taka af
sér skóna þegar komið er inn
úr kuldanum og ganga á hlýj-
um gólfunum. Það er sofið á
gólfinu en ekki í upphækkuð-
um rúmum, eins og á V'estur-
löndum. Þess vegna er kuldinn
þolanlegri á volgu gólfinu.
Eru ekki fiskveiðar stundað-
ar?
Jú, fiskur er mikið veiddur
og er þýðingarmikil fæða. Síld-
in er einna dýrasta fisktegund-
in.. Mikið er um lax. Annars
eru svipaðar fisktegundir hjá
okkur og eru við meginland
Evrópu. Sérstaklega mikið er
borðað af söltuðum og þurrk-
uðum fiski. Svo má nefna hvala
tegund eina, sem er skutluð og
gefur mikla fæðu, þegar hún
veiðist.
(Framhald á bls. 4)
±IHHHHHHHHHH|MHHHHHHHHMIHHHHHHHHHHHI
! Uppsögn sanminga
i DAGSBRÚN hefur sagt upp
1 gildandi samningum við at-
I vinnurekendur, einnig Hlíf í
| Hafnarfirði.
É Á Akureyri hafa Verka-
e mannafélag Akureyrarkaup-
I staðar, Verkakvennafélagið og
: Iðja, félag verksmiðjufólks,
; einnig sagt upp samningum.
Í Orsökin fyrir uppsögn sanin-
| inganna er hækkun verðlags í
; landinu. □
*I>IIUIIIIIIIIIIIIUIIIIIII II111111111IIUUUUMMUMUIUMMII
- Frá bæjarstjórn
(Framhald af bls. 1.)
á Húsavík afhenti á bæjarstjórn
arfundinum stóra og fagra
mynd af Húsavík með áletruð-
um silfurskildi, til minningar
um 100 ára afmæli Akureyrar-
kaupstaðar.
FRÁ LÖGREGLUNNI
LÖGREGLAN hefur oft þurft
að sinna kvörtunum fólks í Inn
bænum vegna margs konar
skrílsláta unglinga. Lögreglan
hefur nýlega komizt að því
hverjir eru valdir að gálaus-
legri meðferð heimatilbúinna
sprengja og munu piltar þeir
teknir fyrir rétt einhvern næsta
dag.
MIKIL HÆTTA.
Foreldrar ættu tafarlaust að
lúta lögregluna vita, ef grunur
leikur á slíku athæfi unglinga,
en mikil hætta getur af því staf
að.
ÖLVUN VIÐ AKSTUR OG
ÞJÓFNAÐUR.
Um helgina var bílstjóri tek-
inn fyrir meinta ölvun við akst-
ur, og stolið var nokkrum
hundruðum króna í Þvottahús-
inu Mjöll. □
IDagukI
kemur næst úr laugardaginn 20.
október.