Dagur - 03.11.1962, Blaðsíða 1

Dagur - 03.11.1962, Blaðsíða 1
Dagur XLV. árg. — Akureyri, laugardaginn 3. nóvember 1962 — 56. tbl. Kennslubók í mannasiSum Samþykkt á kennarafundi á Sauðárkróki SJÚKRAHÚSLÆKNAR, 31 að tölu, lögðu niður vinnu liinn 1. þ. ni. í sjúkrahúsum Reykjavíkur, Landsspítalan- um, Bæjarspítalanum og Hvítabandinu. Hjá þessum stofnunum unnu 55 læknar. Má því búast við miklum vandræðum þar syðra í þessu efni. Brottför lækn- anna stafar af deilu um kaup og starfsskilyrði, sem þeir telja óviðunandi og ekki hef- ur um samizt. □ ' Mái.oagn Framsóknarmanna Ritstjóri : F.rungur Davíosson Skru-stofa í Hai narstr.t.ti 90 SÍMI 1160. Sf.TNINGU OG I’RF.NTUN ANNAST PrENTVERK OuDS BjÖRNSSONAR H.F., AkUREYRI V____________________________/ *..... " ■ ■ AUGI.ÝSINGÁSTJÓRI JÓN SAM- ÚF.LSSON . ARGANGURINN KOSTAR KR. 120.00. CijALDDAGI ER 1. JÚí.Í Bladio kemur út á midvikudog- U.M OC Á I.AUGARUÖGUM, ÞEGAR ÁST.EÐA ÞYKIR TIL - Sauðárkróki 1. nóv. Hér er komið 15 stiga frost, snjóföl á jörð og stillt veður, reglulegt vetrarveður. Kaupfélag Skagfirðinga tók á móti 35200 fjár til slátrunar í haust, þar af 2535 fullorðið. Með Verðlaunabikar til keppni í sundi. (Sjá grein á bls 2). alþungi dilka varð 13,66 kg, og er það fjórðungi úr kílói betra en í fyrra. Þyngstu dilkar komu frá Ey- hildarholti, 16,5 kg. til jafnaðar á 338 sláturlömbum. Þyngstan dilksskrokk átti Búi Agnarsson, Heiði í Gönguskörðum, 25 kg. Hjá Verzlunarfélaginu var lógað 9510 kindum. Meðalvigt dilka varð þar heldur minni, eða 13.5 kg. Kennarafundur, sem hér var haldinn 20. október, samþykkti að beina þéirri áskorun til Rík- isútgáfu námsbóka og yfirstjórn menntamála, að láta semja og gefa út kennslubók rrieð leið- (Framhald á 2. síðu.) «itiiiiiiiii(iitiiiiiiiiiiiiiiiiiii(iiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiia,,, | ,VITA ÞÓ ALLIR .. | að tollar af mörgum vörum voru lækkaðir en hvergi hækk- aðir“, segir íslendingur í gær. Hann gleymir því, að núverandi stjórn lagði 3% söluskatt á sölu allra vara og þjónustu og inn- flutningsskattur var hækkaður um meira en helming. Heildarupphæð tolla og skatta hefur hækkað hvorki meira né minna en um rúml. 1000 milljón ir króna, miðað við 1959 og nýja fjárlagafrumvarpið. □ Ein hinna nýju véla í Kambgamsdeild Gefjunar. Starfsstúlkan heitir Rósa Guðbrandsdóttir. GEFJUN STÓREYKUR •NÚ FRAMLEIDSLU SÍNA Á þriðja himdrað manns vinnur þar, m. a. að frainleiðslu teppa fyrir erlendan markað ÖÐRIJ HVERJU fara allstórar sendingar frá Ullarverksmiðjunni Gefjunni á Akureyri, álciðis til Sovétríkjanna. Það eru liin frægu ullarteppi, sem í vaxandi mæli, eru seld austur fyrir „járntjaldið“. Er talið að Rússar kunni vel við sig undir hinum íslenzku værð- arvoðum og séu viðmælandi um kaup á þeim, og Heklupeysum, fyrir 4—5 milljónatugi íslenzkra króna til viðbótar því, sem þegar er um saniið. Blaðamaður hitti að máli Arn þór Þorsteinsson verksmiðjustj- óra Gefjunnar um nýja véla- kostinn og framleiðsluna, gekk um nokkra verksmiðjusali fyr- irtækisins og fékk ýmsar upp- lýsingar, í framhaldi af því, sem áður var frá skýrt hér í blað- inu, og sagt var frá í umræðum fyrir kosningar s. 1. vor. En þá var einhver að minnast á kosn- ingavélarnar hans Arnþórs! Þessar vélar hafa nú verið sett- ar niður, flestar, og er gaman að sjá hvernig þær vinna, og að þær eru ekki nein pólitísk hrig- arsmíð, heldur raunverulegar og mjög fullkomnar vinnuvélar til að auka og bæta afköst verk- smiðjunnar til stórra muna. Verksmiðjustjórinn gaf eftir- farandi upplýsingar um nýju vélarnar og framleiðsluna: LOÐBANDSDEILD. Nýju vélarnar eru flestar Búið er að taka allt fé á hús Bændur eiga takmarkaðri fóðurbirgðir í vetrarbyr jun en í fyrra Á NORÐURLANDI er nú víðast hvar búið að taka fé á hús, þótt ekki sé það á fullri gjöf. Þykir bændum það að vonum snemmt, enda mánuði fyrr en í fyrrahaust. En ekki urðu fjárskaðar í fyrstu snjóum hér norðan- lands nú, eins og aft áður. Bændur eiga yfir- leitt minni byrgðir heyja að þessu sinni í vetrarbyrjun en oft áður. Jafnvel þeir, sem sæmilega heyjuðu í sumar, því fyrningar eru litlar sem engar, víðast hvar. Mjög vaxandi meirihluti íslenzkra sauð- fjárræktarmanna hefur aðhyllzt hámarksaf- urðastefnuna í sauðfjárræktinni og miða því fjárræktina við tryggan heyásetning og fóðurbæti að auki, í stað þess að setja á guð og gaddinn og horfa upp á hordauða öðru hverju eins og búnaðarsagan segir frá. Einstakar jarðir, og jafnvel heilar sveitir, sem hafa sérstöðu um góð beitarlönd á vetr- um og litla fóðureyðslu, munu hinsvegar ennþá fylgja fóðursparnaðarstefnunni, með nllmikil hey þó „í bakhöndinni“. En hvorri stefnunni, sem fylgt er, bera bændur ábyrgðina á ásetningnum og gera það af aukinni ábyrgðartilfinningu og meira raunsæi en áður var mjög algengt, enda bús- afurðir meiri og tryggari en áður var og af- koma bænda stórum betri síðan fellivetrum lauk hér á landi. □ komnar í notkun. I Loðbands- deild er búið að setja niður lopakembivél, spunavél og þrinningarvél. Allar þessar vél- ar eiga það sameiginlegt að stór auka loðbandsspuna verksmiðj- unnar. KAMBGARNSDEILD. í Kambgarnsdeild eru tvær nýjar vélar, sem leystu af hólmi 12 eldri vélar, sem seldar voru til Bretlands fyrir sæmilegt verð. Þessar tvær nýju vélar valda byltingu hjá okkur í framleiðslu kambgarns. Þær vinna alla undirbúningsvinnu að framleiðslu kambgarns mun betur en eldri vélarnar gerðu og eru auk þess afkastameiri. Allt kambgarnsband, sem frá (Framhald á bls. 2.) Ekki eiiurlyfja- neyzla á Ak. j SIGURÐUR M. Helgason sett É ur bæjarfógeti og Jóhann Þor j kelsson liéraðslæknir, svara É spurningunni: Fer neyzla eit- í urlyfja vaxandi á Akureyri? | SVAR BÆJARFÓGETA: 1 „Sem svar við þessu, vil ég É segja það að þess munu naum- É ast dænii, að á vegi lögregl- É unnar hér hafi orðið menn, er É reynst liafi undir annarlegum j áhrifum af öðru en áfengi og É ekki er okkur kunnugt eftir I öðrum leiðum, að hér fari É fram óleyfileg deyfilyfjasala É eða eiturlyfjaneyzla eða sala. i Að svo stöddu myndi ég telja É að ekki séu líkur til að hér í [ bæ séu veruleg brögð að of- É neyzlu deyfilyfja eða nautna- É lyfja, því þótt Akureyri teljist i stærsti bær landsins, þá er É bærinn samfélag yfirleitt É reglusamra og starfsamra i manna, en óreiðufólk, hvort É heldur að einkalífi eða at- I vinnuháttum, virðist illa þríf- É ast hér, og liygg ég að nautna- É lyfjaneyzla og önnur áþekk i vandaniál skapist trauðlega, | nema þar sem slíkt fólk safn- i ast fyrir. “ | SVAl HÉRAÐSLÆKNIS: i „Ritstjóri Dags hefir spurzt 1 fyrir um það hjá mér, í tilefni i if skrifum sunnanblaðanna É um deyfilyfjaneyzlu og neyzlu j örfandi og róandi lyfja, hvort É ég telji að læknar hér ávísi j nú meiru af slíkum lyfjum en i áður gerðist. j Þessari spurningu held ég j að sé óhætt að svara algerlega i neitandi. Að sjálfsögðu kom- I (Framhald á bls. 2)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.