Dagur - 03.11.1962, Qupperneq 2
2
RITSTJÓRI „íslendings" er svo
óheppinn að ræða um „viðreisn-
ina“, sem einhverja blessun fyr-
ir sparifjáreigendur landsins,
svo, sem börn og gamalmenni.
Segir að það hafi áður farið
fram „óbeinn þjófnaður af spari
fjáreign þessa fólks“, sem nú
sé spornað við undir „viðreisn'1.^
„íslendingi“ til hrellingar,
verður í þessu sambandi að
minna á tvær gengisíellingar,
síðan núverandi stjórn tók við.
Þegar „viðreisnarstjórnin" tók
við, var meðalgengi að meðtöld
um gjaldeyrissköttum 65 kr.
sterlingspundið, en er nú 120
kr. hvert sterlingspund. Þannig
hefur stjórnin minnkað hverja
krónu bams og gamalmennis
um nálega helming. Hver mað-
ur, sem þarf að kaupa nauð-
synjavörur hefur fengið að
kenna á þessari breytingu í
hækkuðu vöruverði. Það er
eins og núverandi stjórn hafi
viljað koma sparifjáreigendum,
sem „íslendingur“ telur vera
börn og gamalmenni, á kné.
Hafi stjórnarvöld áður þrengt
kost þ'essa fólks svo mikið, að
líkja hafi mátt við „óbeinan
þjófnað“ er ekki vándséð hvaða
nöfn má gefa verknaði þeim,
sem síðar varð og sparifjáreig-
endur súpa nú seiðið af.
Sannleikurinn er sá, að geng-
isfellingarnar tvær og núver-
andi óðaverðbólga hefur fáa eða
enga leikið jafn grátt í okkar
þjóðfélagi og einmitt sparifjár-
eigendurna. □
FALLEG GJÖF
NLÝEGA barst Oddeyrarskól-
anum að gjöf fallegur bikar til
að keppa um í sundi, frá Snorra
Sigfússyni, fyrrv. námsstjóra,
sem mörgum er hér að góðu
kunnur. Efst á bikarnum er
kringlóttur skjöldur með mynd
af sundmanni.
Skólinn flytur gefandanum
innilegar þakkir fyrir þessa
ágætu gjöf og þá vinsemd sem
í henni felst til æskunnar í
bænum. Sýnir hún umhyggju
þessa ágæta skólamanns fyrir
skólunum hér, en eins og kunn-
ugt er, var hann skólastjóri hér
í bænum um langt skeið og
sýndi í starfi sínu frábæran
dugnað og breytti mörgu til
betri vegar. Og enn er áhugi
Snorra sá sami fyrir uppeldis-
málum, þó að árin færist yfir.
Hann er enn síhugsandi um
þessi mál.
Snorri Sigfússon hafði miklar
mætur á sundíþróttinni og hef-
ur hann valið gjöfina með til-
liti til þess.
Ég flyt gefandanum innilegar
þakkir og beztu kveðjur frá
mér og skólanum.
Eiríkyr Sigurðsson.
• ’V * -■ 4' W'i VV^ ► i
I ' * :• V . * ■■■
Styðjio gott málefni!
UM næstu helgi munu skátam-
ir hér á Akureyri fara um bæ-
inn og bjóða til kaups happ-
drættismiða iyrir landssamtök-
in til styrktar vangefnu fólki.
Ástæða er til að vekja athygli
bæjarbúa á þessari fjársöfnun
og minna á, að hér er um mál
efni þeirra að ræða, sem mest
hafa verið vanræktir af öllum
landsins börnum. Um 600
manns, meira og minn3Þ van-
gefnir, þarfnast hælisvistar og
sérstakrar hjálpar, en aðeins
fjórði hluti þeirra rúmast á
þeim hælum, sem nú eru til.
Verkefnin á þessu sviði eru því
bæði mikil og aðkallandi. Góð-
ir Akureyringar! Takið vel á
móti fulltrúum þessa mannúðar
málefnis um næstu helgi. Minn-
ist þess að margt smátt gerir
eitt stórt.
- Gefjun síóreykur framleiðsluna
(Framhald af blaðsíðu 1).
verksmiðjunni kemur, verður
því mun betra en þekkst hefur
til þessa. Um þessar mundir er
„Merino Gi’ilon“-gí>m og „Gri-
lon“-garh_ að, far£( jtíl' viðskipta-
vinánna urri alít land.
VEFDEILD.
Þá hefur verið bætt við sex
nýjum vefstólum og nýrri upp-
hnýtingavél í Vefdeild verk-
smiðjunnar, og er vinna hafin
með öllum þessum vélum.
FÁGUN ARDEILD.
í Fágunardeild hefur verið
bætt við tveim litunarvélum
fyrir ull og garn, ennfremur
nokkrum smærri vélum til að
að auðvelda störf þessarar deild
ar. Þá hafa í sumar verið byggð
ir í sömu deild tveir nýir þurrk
arar og verið að búa til þurrk-
ara fyrir band, sem á að geta
þurrkað 900 kg af bandi á
hvorri vagt.
Þrátt fyrir þessar auknu vél-
ar hefur verksmiðjan ekki get-
að sinnt verkefnum fyrir fólkið
svo sem vera ber, en að því er
unnið .
AUKINN VÉLAKOSTUR —
MEIRI VINNA.
Þótt í verksmiðjunni vinni á
þriðja hundrað manns, vantar
fólk. Fólki hefur verið fjölgað
að undanförnu . við hin • ýmsu
störf, en ennþá vantar vinnuafl
í vissar deildir.Það er svo um
flestar nýju vélarnar, að þær
kalla á meira starfslið, við alls
konar vinnu, sem eykst með
auknum afköstum vélanna.
Eftirspurn eftir Gefjunarvör-
um hefur aldrei verið eins mik-
il og nú. Það var því vissulega
mál til komið að auka og bæta
vélakost verksmiðjunnar, en
hér er að sjálfsögðu ekkert loka
takmark stigið, því innan tíðar
má búast við því, að bæta þurfi
við nýjum vélum og þá senni-
lega auknum hitsakosti um leið.
Þannig mun Gefjun, eins og
aðrar verksmiðjur SÍS, sem
reknar eru hér á staðnum,
halda áfram á þeirri braut, að
efla starfsemi sína og stuðla að
því að Akureyri verði hér eftir,
sem hingað til, hlutfallslega
mesti iðnaðarbær þjóðarinnar,
sagði Arnþór Þorsteinsson að
lokum. □
Guðbjöm Pétursson við nýja sjálfvirka vél, sem jafnar ull
og styrktarþræði í Merino-Grilon prjónabandið alþekkta.
Hallur Sveinsson er hér að starfi við nýju kembivélasam-
stæðuna. (Ljósmyndir af Gefjunarvélunum tók Jón Ingólfss.)
lillögur um húsriæðismál
Samþykktir frá Húsnæðismálafimdi Framsókn-
arfélaganna, sem haldinn var í Lóni sl. siinnud.
FUNDUR Framsóknarfélag-
anna á Akureyri um húsbygg-
ingamál, haldinn 28. okt. 1962,
telur knýjándi nauðsyn bera til
þess, að stjórnarvöld landsins,
Alþingi, ríkisstjórn og sveitar-
félög, taki höndum saman um
lausn þess mikla vanda, sem við
er að stríða í húsnæðismálum.
Segja má, að öllum almenn-
ingi sé í raun ókleift að ráðast
í byggingu íbúðarhúsnæðis eins
og verðlagi og lánskjörum er nú
komið, enda hefur þegar leitt til
stórkostlegs samdráttar í íbúð-
arbyggingum miðað við það,
sem var fyrir fáum árum. Sem
dæmi skal það nefnt, að árið
1957 var hafin smíði á 1610 í-
búðum, en árið 1961 aðeins 789.
Er sérstaklega eftirtektarvert
að þetta gerist þrátt fyrir ó-
venjulega aflasæld og góðæri
undanfarin ár.
Aðalvandamál húsbyggjenda
hér á landi eru lánsfjárskortur-
inn og óhóflegur byggingakostn
aður.
Til þes að finna frambúðar-
lausn á vanda húsbyggjenda, er
nauðsynlegt að taka íbúðarmál-
in til heildar endurskoðunar og
nýskipunar og. viðurkennd sú
staðreýnd, að byggingarmálin
eru meðal brýnustu þjóðfélags-
mála, sem gera vérður ‘ráð fyr-
ir í efnahagskerfinu til jafns við
aðra þætti þjóðarbúskaparins.
Fundurinn vill sérstaklega
benda á, að framkvæmd hús-
næðismálanna hér á landi er
öll miklu ófullkomnari en tíðk-
ast í nálægum löndum, og má
þar sérstaklega nefna Norður-
lönd.
Fundurinn telur, að við end-
urskipulagningu húsnæðismál-
anna beri m. a. að hafa í huga
þessi atriði:
1. Leitazt við að fullnægja þörf-
um almennings fyrir gott
húsnæði af hóflegri stærð.
2. Unnið verði að lækkun bygg-
ingarkostnaðar og rannsókn
nýrra byggingaraðferða.
3. Lánskjör bætt þannig, að
húsbyggendur hafi mögu-
leika til veðlána allt að %
hlutum af heildarkostnaði,
énda séu settar ákveðnar
reglur um stærð og nýtingu
íbúðarhúsnæðis.
4. Greitt verði fyrir rekstrar-
lánum til byggingafyrirtækja
s. s. til véla- og verkfæra-
kaupa.
5. Lánað verði til endurbóta og
kaupa á eldra húsnæði.
Fundurinn leggur áherzlu á,
að nú þegar verði gerðar ráð-
stafanir til þess að útvega Bygg
ingarsjóði ríkisins (Húsnæðis-
málaskrifstofunni) viðunandi
starfsfé, og verði við það mið-
að, að allir umsækjendur fái
lögleyft hámark eftir því sem
byggingunni miðar áfram.
í því sambandi bendir fund-
urinn á eftirfarandi m. a.:
1. Byggingarsjóði sé séð fyrir
árlegum tekjum, sem svara
a. m. k. 150 milljónum króna.
2. Bönkum og tryggingarfélög-
um sé gert að skyldu að
kaupa skuldabréf Byggingar-
sjóðs fyrir ákveðinn hluta ar
sparifjáraukningu og aukn-
ingu eigin fjár, þar með
talinn árlegur rekstrarhagn-
aður.
Fundurinn fagnar þeirri
ákvörðun bæjarstjórnar Akur-
eyrar að leita sérstakra úrræða
í sambandi við húsnæðismáliii
í bænum og væntir góðs árang-
urs af starfi nefndar þeirrar, er
vinnur að þessum verkefnum á
vegum bæjarstjórnar.
Sérstaklega skal því beint til
nefndarinnar að atliuga, hvern-
ig bæjarfélagið geti á hagkvæm
astan hátt hagnýtt sér laga-
ákvæði um útrýmingu heilsu-
spillandi íbúða og lög um verka
mannabústaði.
Telur fundurinn, að það sé
eitt hið mikilvægasta atriði fyr-
ir fólksfjölgun og eðlilega þróun
bæjarins, að ávallt sé fyrir
hendi nægilegt íbúðarhúsnæði
í bænum, að örðum kosti er
hætta á, að fólk fýsi síður að
setjast hér að og flytjist jafnvel
Úr bænum. Q
Ekki eiturlyfjaneyzla
á Akureyri
(Framhalr af blaðsíðu 1).
ast læknar ekki alveg hjá því
að ávísa deyfi- og örfandi
lyfjum og í mörgum tilfellum
róandi lyfjum, en ekki held ég
að læknar hér ávísi meiru af
þessum lyfjum nú, en gerðist
á fyrstu læknisárum mínum
fyrir 25 árum.“ Q
- Kennslubók í
mannasiðum
(Framhald af bls. 1.)
beiningum um umgengnishætti
og almenna hegðun í daglegu
lífi. Mun þörf á þeirri bók.
Á þessum kennarafundi, sem
náði yfir Norðurlandskjördæmi
vestra, voru mættir 36 kennar-
ar, ásamt Stefáni Jónssyni náms
stjóra, sem flutti erindi um um-
gengnisvenjur í skólum og
skyld mál, og Skúla Þorsteins-
syni, form. Samb. barnakenn-
ara, sem flutti erindj um skipu-
lags- og launamál kennara.
Hinn 26. október sl. var hald-
inn hér aðalfundur sambands
ungra Framsóknarmanna. í sam
bandinu eru 400 manns og fyrir
fundinum lágu 53 inntökubeiðn
ir. Samþykkt var að koma á
stjórnmálanómsskeiði og rætt
um stofun kjördæmasambands
ungra Framsóknarmanna í kjör
dæminu. í stjórn sambandsins
eru: Gunnar Oddsson, Flatar-
tungu, Stefán Guðmundsson,
Sauðárkróki, Jón Óskarsson,
Sauðárkróki, Magnús Sigurjóns
son, Sauðárkróki og Björn
Gunnlaugsson, Brimnesi.