Dagur - 03.11.1962, Blaðsíða 8

Dagur - 03.11.1962, Blaðsíða 8
Hólaskóli tekinn til staría Nemendur 19 í yngri deild og 3-4 í eldri deild HÓLASKÓLI var settur 15. Miklar tekjur af ferðamönnum Nauðsyn fyrir Akureyringa að gefa ])ví gaum orkóber s. 1. Hófst setningarat- höfnin í Hóladómkirkju. Að henni lokinni flutti skólastjór- inn, Árni G. Pétursson, skóla- setningarræðuna í skólahúsinu. Nemendur eru 19 í yngri deild skólans og 3—4 nemendur verða í eldri deild og eru það piltar þeir, sem í fyrravetur yf- irgáfu skólann á miðjum vetri og eru þeir ókomnir ennþá. Dalvík 1. nóv. Snjórinn er ekki svo mikill að umferðatruflun valdi hér um slóðir, þótt hann tefji eitthvað för. Björgvin kom í gærkveldi og var vel fagnað. Alls staðar er búið að taka fé á hús og gjöf. Álíka margt sauð fé mun sett á í vetur og síðast- liðið haust. Septembermánuður greiddi svo úr heyskap bænda, að þetta varð mögulegt. Dálítill fiskreitingur var á dekkbátana fyrir helgina, en síðan hafa ógæftir verið. Ennþá er atvinna næg. □ Fólkið í atvinnuleit Haganesvík, 2. nóv. Margt fólk er farið héðan í atvinnuleit og fleira fer um áramótin. Búin eru of lítil til að framfleyta mörgu fólki. Þótt ekki sé kominn mikill snjór, er mjög erfitt fyrir bíla að komast um Austur-Fljót. Gísli á Sleitustöðum hefur 2 áætlunarferðir í viku milli Haganesvíkur og Sauðárkróks og er það mjög til bóta. Ekki hefur verið farið til rjúpna að neinu ráði ennþá, og lítið er um sjósóknina. Kennarar við Hólaskóla eru, auk skólastjórans: H. J. Hólm- járn, nýr kennari, Vigfús Helga- son, Jón Friðriksson og stunda- kennai’arnir Páll Sigurðsson frá Hofi (íþróttir), séra Björn Björnsson, Guðný Ágústsdóttir og Sigurður Haraldsson ráðs- maður, sem kennir búsmíðar og hrossatamningar. Áherzla er lögð á verklegt nám, bæði margs konar smíðar, viðgerðir og hirðingu véla og hiiðingu búfjár og búfjárdóma. Dag hvern stunda nemendur tvær og hálfa klukkustund verk legt nám og æfingar. Á skólabúinu er rúmlega 500 fjár, um 70 nautgripir og 50 hross. í byggingu er nýtt mjólk- urhús og verið er að breyta raf- lögnum með hliðsjón af nýrri héraðsrafveitu næsta ár. Vatns- aflstöðin á Hólum mun tekin í notkun eftir helgina, endur- bætt. □ Á ALÞINGI var nýlega upplýst af menntamálaráðherra, að á árinu 1961 hefðu 13513 erlendir ferðamenn komið til landsins og skilið eftir 114 milljónir kr. Gert er ráð fyrir allt að 140 milljón króna tekjum af ferða- fólki á yfirstandandi ári. Er því mjög að vonum að margir velti fyrir sér spurningunni um það, hversu hægt sé að auka og hag- nýta ferðamannastrauminn. Ferðamenn eru tekjustofn fyr ir þjóðarbúið. En hinir einstöku staðir geta miklu um það ráðið, margir hverjir, hvort móttaka og margvísleg fyrirgreiðsla ferðamanna skuli gerð að at- vinnugrein eða ekki. Rétt er að benda á, að um tíma í sumar var nær hver kvöldflugvél, sem fór frá Akur- eyri til Reykjavíkur að yfir- gnæfandi meirihluta hlaðin er- lendum ferðamönnum, sem voru að koma frá Mývatnssveit eða lengra að austan. Þetta ferðafólk hafði litla viðdvöl á Akureyri eða enga á norður og suðui'leið. Hér á Akureyri er viðkomustaður flests þess ferða fólks, sem til norðurlands kem- ýms þau störf, sem áður var að- eins trölla meðfæri. Folaldaslátrun hófst í gær og stendur í hálfan mánuð. Folöld in munu vera 1000—1200 króna virði hvert, eftir vænleika. Vegna lítilla heyja var miklu af nautgripum slátrað. í barna- og unglingaskólan- um eru 150 börn. Notaðar eru þrjár stofur í nýja félagsheim- ilinu, sem kennslustofur. Mokafli upp við land Hofsósi, 2. nóv. Hér var' lógað 8 þús. fjár. Meðalvigt var 13,7 kg. og er það aðeins betri vigt en í fyrra. (Framhald á bls. 7.) ur. En Akureyringar hafa ekki raunverulega tekið á móti þessu fólki og látið svo sem sér kæmi það ekki við. En hvað væri hægt að gera? Er ekki kominn tími til að opna augun fyrir þeim möguleika í alvöru, að ferðamannastraumurinn getur haft mikla fjárhagslega þýðingu í höfuðstað Norðurlands? tlillllll tlllllllllllll illilimini Miklu minni kartöflu- uppskera á Svalbarðs- strönd en í fvrrahaust Leifshúsum, 29. okt. Sauðfjár- slátrun lauk á Svalbai'ðseyri þann 19. þ. m. Alls var slátrað þar 14.200 kindum, þar af til innleggs 13.639, og er það að- eins færra heldur en haustið 1961. Af sláturfénu voru 12.208 dilkar lagðir inn hjá Kaupfélagi Svalbarðseyrar, og var meðal fallþungi þeirra 14,415 kg., eða örlítið minni en haustið áður. En þá var meðalfallþungi þeirra dilka, sem þá var slátrað 14,42 kg. Stórgripaslátrun stendur nú yfir á Svalbarðseyri og er áætl- að að þar verði slátrað 130—150 nautgripum. Hrossaslátrun er sáralítil. Kartöfluuppskera hér í sveit var undir meðallagi í heild, en mjög misjöfn eins og venjulega. Frost spilltu ekki uppskerunni í haust. Samkvæmt lauslegri áætlun má gera ráð fyrir að Kaupfélag Svalbarðseyrar fái Vá — Vz minna kartöflumagn til sölumeð ferðar nú, heldur en haustið 1961, eða í mesta lagi 6 þúsund tunnur. Byggingai-framkvæmdir eru heldur með minna móti hér í sveitinni á þessu ári. Búið er að ýta upp í nýjan veg til Svalbarðseyrar, og nú er unnið að því að bera ofan í hann. Mikill hluti af unglingum sveitarinnar er farinn í skól- ana. S. V. mmmm Féð komið á gjöf Rafmagn til Eyja SÁ STÓRVIÐBURDUR gerðist um síðustu helgi, að í notkun var tckinn rafstrengur sá, sem la.gður hafði verið til Vestmanna- eyja, og rafmagni frá Soginu hleypt á. Opnun sæstrengsins fór fram með viðhöfn. Vitaskipið Árvekur lagði strenginn milli lands og eyja. □ Meðalvigt sláturdilka varð 14,07 kg., án nýrnamörs, og er það 7% meira en í fyrx-a. Mjólkui-flutningum til Sauðár kx-óks fer að Ijúka, en þeir hefj- ast á ný upp úr áramótun- □ um. Góðæri spáð í Kinn Ófeigsstöðum 1. nóv. Á laugar- daginn vérður Jónas Friðmunds son á Ófeigsstöðum jarðsettur. En hann lézt af slysförum, 65 ára að aldri. Nokkuð vantar enn af fé og liggja til þess þær orsakir helzt ar, að leitai-menn fengu hið versta veður í Náttfaravíkum, en þar er seint gengið. En síðan hefur verið ófæi't þangað vegna sjógangs, þar til nú. En fara þarf um fjöi'ur út þangað. Og vafasamt er, hvort unnt muni að sækja féð vegna snjóa, þótt brim lægi. Fátt er orðið um forustufé og fylgdi lítið vestfirzka stofnin- um, sem hingað var fluttur, en menn hafa verið að reyna að bæta úr því eftir ki'ókaleiðum. Þó skal þess getið, að hingað kom maður einn til að sækja kind. Leiddi hann með sér for- ustusauð, vitran og vel taminn. Lítið er sett á af lömbum. Við erum nú farnir að hlusta á þing fréttirnar og hér um slóðir er pólitísku góðæri vegna væntan legra viðbui'ða og bi-eytinga á næsta vori — í sambandi við al þingiskosningai’nar — spáð. Rjúpan á 50 krónur Húsavík, 1. nóv. Fært er, en þungfært um sveitir og ófært í Bárðardal. Ekki hefur gefið á sjó undanfai'ið, þar til í dag. Leikfélag Húsavíkur mun hefja sýningar á Gildrunni um helgina. Enginn hefur fai’ið til rjúpna undanfarið, enda veður hin verstu. Rjúpur voru seldar í haust á 35—50 krónur, en veið in var ekki mikil. Hræringar eru ennþá fremur litlar á sviði félagsmálanna en munu vaxa innan tíðar, ef að vanda lætur. • □ Trölla-meðfæri Blönduósi 1. nóv. Hér snjóaði lítið og eru allir vegir vel færir í héraðinu. Vei’ið er að taka fé í hús þessa dagana. Ekkert mun hafa farizt eða hrakizt að þessu sinni. Verið er að rífa gömlu Blöndubi’úna. Verður hún los- uð og henni síðan lyft upp á nýju brúna og síðan di’egin yf- ir á annanhvoi-n ái’bakkann til geymslu í vetur. Næsta vor verður hún svo væntanlega not uð í héraðinu, því enn er bi’úa þörf hér og þar. Vei'ður hún flutt í heilu lagi á ákvörðunar- stað og engin tormerki talin vera á slíkum flutningi. Tækn- in og vélaaflið vinna léttilega •iiiiiimimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii* | Skíðalæri og skaufasvell | | Vetraríþróttirnar í undirbúningi í bænum | f MEÐ KOMU VETRARINS vaknaði áhugi fyrir skautasvelli I I og skíðabrekkum hér í bænum. Mun í athugun að búa til jj j skautasvell hið allra fyrsta, og lýsa hina vinsælu skíða- f f brekku austan Brekkugötu. En fyrirfarandi vetur hafa þess- f j ir staðir verið fjölsóttastir allra skemmtistaða á Akureyri, i f þegar þeir hafa verið starfræktir. f Kominn er góður skíðasnjór í Hlíðarfjalli. Framkvæmdir | f við Skíðahótelið hafa legið niðri í sumar, nema vegurinn f : var endurbættur. Margir hafa áhuga fyrir því, að fram- 3 j kvæmdum verði hraðað þar, og að þar verði skíðakennsla j f í vetur. f í dag er ráðgerður fundur hinna nýstofnuðu „ráða“ hér á 3 f Akureyri, íþróttaráðs og Æskulýðsráðs. Án efa verða þessi j 3 mál og nýjar greinar æskulýðsstarfsemi í bænum ræddar 3 j þar ítarlega. Mun blaðið leita fregna af þessum málum og j f skýra frá fréttnæmum ákvörðunum, sem þar kunna að verða f j teknar og „ráðin“ veita upplýsingar um. ' □ j •••iiiuiiiiiiuiiiilillniiiimimiiiiiiiiiimimiiiiiiiimiiiiiiDiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimimiiiiiiniiiiiiiinimiiiii"

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.