Dagur - 06.12.1962, Page 1
Máuíacn Framsóknarmanna
Kítstjóri : Eklincur Davíðsson
-Skrií'Stofa í Hafnarstræti 90
Sími 1166. Sf.tnincu oc prentön
ANNAST PrENTVERK OdDS
Hjörnssonar H.F., Aköreyri
Dagur
XLV. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 6. desember 1962 — 63. tbl.
<■"..— ........................
Auclýsincastjóri Jón Sam-
ÚF.LSSON . ÁRCANCURINN KOSTAR
kr. 120.00. Gjalddaói ek 1. júi.í
Bladid kemur út á midvikudöc- ,
UM OC Á I.AUGARDÖCI'M,
ÞECAR ÁSI.EDA ÞYKIR TIL
■ ■ -
Þórólfur Jónsson bóndi í Slóru-
tungu er fréttamaður Dags í
Bárðardal, og sendi hann með-
fylgjandi frétt.
Skóli og heimavist.
í skólanum er heimavist fyrir
14 börn, 2 snyrtiherbergi með
steypibaði, eldhús, borðstofa,
vinnustofa og kennslustofa, sem
rúma á 20 börn við nám. Aðal-
inngangur er sameiginlegur fé-
lagsheimili, sem fyrirhugað er
að rísi áfast þessari byggingu,
þó eru einnig dyr inn á aðal-
gang skólans. Skólinn er vel
frá genginn hið innra, en eftir
er að gera við húsið utan.
Byggingamenn.
Yfirsmiður og byggingameist-
ari var Stefán Halldórsson, Ak-
ureyri. Trésmíðameistari var
Friðiák Ketilsson, Akureyri.
Hita og aðrar pípulagnir annað-
ist Olafur Magnússon pípulagn-
ingameistari, Akureyri. Raf-
SAMBANDIÐ hefur nýlega
undirritað samning við Amer-
íska fyrirtækið Gortons of Glou
cester um heimild til þess að
nota svonefnda „Fresh-Lock“
aðferð við frystingu á fiskflök-
um. Aðferðin er í því fólgin, að
eftir að flökin hafa verið snyrt,
eru þau böðuð í sérstakri upp-
lausn, sem hefur þau áhrif, að
safinn sem er í fiskinum renn-
ur ekki, en það hjálpar til að
halda hinum upprunalegu nær-
ingarefnum í fiskinum — eða
með öðrum orðum varðveita
ferskleikann. Gildir þetta jafnt
eftir að fiskurinn hefur verið
þýddur. Aðferð þessi var fund-
in upp í amerískri rannsóknar-
stofu, í samvinnu við Gorton’s,
og það fyrirtæki hefur fengið
einkaleyfi á notkun hennar í 3
ár. Allmiklar rannsóknir hafa
farið fram á þessari aðferð og
þykir hún lofa svo góðu, að full-
víst er talið, að þegar einkaleyfi
Gorton’s rennur út, verði þessi
aðferð almennt tekin upp við
fiskfrystingu. í samningnum við
Sambandið er aðeins gert ráð
Bárðdælskar mæður með börn sín í nýja skólanum við hinn mikla vígslu- og veizludag.
Lokun sölubúða
ATHYGLISVERÐ NÝJUNG VIÐ FRYSTINGU
Ný barnaskólabygging vígS aS Stóruvöllum í S.-Þing.
Fresli-lock aðferðin
VERZLANIR bæjarins verða
opnar sem hér segir, til jóla:
Laugardaginn 8. des. til kl. 18
Laugardaginn 15 des. til kl. 22
Laugardaginn 22. des. til kl. 24
Þetta mun vera sama fyrir-
kómulag og gildir í Reykjavík.
DANSINN
LÖGBOÐINN?
í SÍÐASTA hefti Samvinnunn-
ar segir Bjöm Jakobsson m. a.:
„Svo er með dans sem aðrar
listir, að hann krefst leiðbein-
ingar og þjálfunar, ef hann á
að fá á sig form fegurðar og
samræmis. Þykir mörgum hlýða
að þessu sé meiri gaumur gef-
inn en verið hefur og að liér
sé um merkara verkefni að
ræða en margur hyggur. Og
fyrir þá sök er höfuðefni þessa
pistils að koma á framfæri
þeirri ósk, að dans verði lögboð
inn sem nauðsynleg og sjálf-
sögð námsgrein í hverjum skóla
og njóti þar kennslu engu síð-
ur en aðrar skyldunámsgreinar.
Með kennslu og þjálfun á að
stefna að því að gera dansinn
að listrænni íþrótt.“
Jón Þórðarson, liúsvörður í KEA, kemur út á tröppumar
að morgunlagi með sóp í hendi. (Ljósm. E. D.)
lagnir annaðist Gústaf Jónasson
rafvirkjameistari, Akureyri. —
Málningu hússins annaðist Aðal
steinn Vestmann, málarameist-
ari, Akureyri. Gluggar eru smíð
aðir á Fjalar í Húsavík. Innrétt-
ingar í eldhús, skápar í her-
bergi og skólastofu er smíðað
hjá hf. „Kögri“, Reykjadal.
Hurðir eru smíðaðar á Akur-
eyri. Borð og stólar í kennslu-
stofu og rúmstæði í svefnloft
eru frá Reykjalundi.
Ljós, hiti til matseldar og
orku á kyndingar- og hitakerfi
er frá 12 kw dieselrafstöð.
Framkvæmdir þessar munu
kosta um 2 millj. króna. Fram-
kvæmdastjórn við bygginguna
(Framhald á blaðsíðu 7).
fyrir að aðferð þessi verði not-
uð í sambandi við framleiðslu á
blokkum fyrir Gorton’s. En von
ir standa til að unnt verði að ná
samkomulagi um að nota hana
einnig við framleiðslu fisks fyr
ir Evrópumarkað. Sambandið
telur þennan samning hinn mik
ilvægasta, og fagnar góðri sam-
vinnu við Gorton’s of Glouces-
ter, en það fyrirtæki er stærsti
framleiðandi fiskstauta og
skammta í heiminum. Forstjóri
Gorton’s, Robert Kinney, kom
hingað til landsins í þessum
mánuði, en hann og Valgarð J.
Olafsson framkvæmdastjóri
Sj á varaf urðade i ldar undirrit-
uðu samninginn. Bjarni V.
Magnússon, framkvæmdastjóri
Iceland Products, Inc., vann að
undirbúningi samningsins.
Þoka á Eyjafirði
Á MÁNUDAGSKVÖLDIÐ var
niðaþoka yfir Eyjafirði svp að
smábátar áttu örðugt um vik.
Yfir Akureyri lá þokan mjög
lágt. En bjart og heiðskírt veð-
ur var uppi hjá aðalspennistöð-
inni. Mikil hálka varð á gang-
stéttum og annars staðar, þar
sem slétt var undir. Tvær eldri'
konur biluðu illa í baki, er
þeim varð fótaskortur. □
Félagsheimili sveitarinnar verður sambyggt
skólahúsinu - Byggt þegar ástæður leyfa
AKYEGIR Á ÍSLANDI
BJÖRN PÁLSSON alþingismað
ur segir í blaðagrein 1. des., að
akfærir vegir á öllu landinu séu
7700 km og ef þeir væru lagðir
nú, myndu þeir kosta um 2000
milljónir króna.
ÁRIÐ 1957 var telcið fyrir
grunni að heimavistarbarna-
skóla í Bárðdælahreppi. Árið
1958 voru veggir steyptir og
húsinu komið undir þák. Síðan
hefur verið unnið að því meira
og minna, og nú er byggingunni
að mestu lokið'og frágengin og
hófst skóli þar 25. nóvember.
Skójastjóri og kennari er Svan-
hildur Hermannsdóttir
Bygging þessi er reist á landi,
sem erfingjar Páls H. Jónssonar
fyrrv. hreppstjóra á Stóruvöll-
um og Sigríðar Jónsdóttur
konu hans gáfu til þessara nota.
Landið er 10 ha og er hluti af
Stóruvallalandi.
Húsið er ein hæð með kjall-
ara til geymslu og fyrir upphit-
unarkerfi.
Á hæðinni er íbúð skólastjóra,
4 stofur, eldhús, bað og rúm-
góður gangur og sérinngangur.