Dagur - 15.12.1962, Blaðsíða 4
"" JÓNAS JÓNSSON FRÁ HRIFLU:
Dagub
-
Gömul lygasaga
SÍÐAN Áki Jakobsson Ijóstraði því upp
í blaðaviðtali við Morgunblaðið, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði, árið 1944 boðið
kommúnistum embætti dóms- og lög-
reglumála, hafa allir séð það enn betur
en áður hve áróður Sjálfstæðismanna
gegn kommúnistum er marklaus. Eftir
uppljóstrunina, sem mikla athygli vakti,
hefur Morgunblaðið verið í eins konar
úlfakreppu. Þá greip það til gamallar
lygasögu um, að Frainsókn og konunún-
istar hafi myndað með sér eins konar
þjóðfylkingu. Saga þessi á að koma í
staðinn fyrir yfirlýsingu Ólafs Thors að
hann hefði aldrei boðið konunúnistum
dómsmálastjórnina á íslandi. En sú yfir-
lýsing er ókomin ennþá. Um þetta segir
Tíminn:
„Það er annars ekki neitt nýtt, að í-
haldsblöðin hampi þessari lygasögu.
Þessi tilbúningur þeirra á hvorki meira
né minna en 25 ára afmæli á þessu ári.
Fyrir þingkosningamar 1937, var megin-
áróður Sjálfstæðisflokksins byggður á
svipaðri lygasögu. Til staðfestingar á
henni, var birt falsbréf í Mbl. og ísafold,
eignað ónafngreindum, háttsettum
manni í Framsóknarflokknum. Það
myndi ekki koma á óvart, þótt einhver
sh'k falsgögn ættu eftir að koma til sög-
unnar nú.
Uppruni lygasögunnar fyrir 25 árum,
leyndi sér heldur ekki. Hér var um að
ræða nákvæmlega sömu aðferðina og
Hitler beitti mcðan hann var að komast
til valda í Þýzkalandi. Hann ásakaði and
stæðinga sína fyrir samstarf og undir-
lægjuhátt við kommúnista og „sannaði“
þetta með alls konar falsgögnum. Á sama
tíma hafði hann svo sjálfur meira og
minna náið samstarf við kommúnista á
þessum árum um að grafa grunninn und
an Veimarlýðveldinu, alveg eins og Sjálf
stæðisflokkurinn hér hefur haft meira
og nánara samstarf við kommúnista en
nokkur flokkur annar.
Sjálfstæðisflokkurinn greip til um-
ræddrar lygasögu í kosningunum 1937,
þegar hann fann sig standa höllum fæti.
Hann hefur jafnan reynt að beita henni
síðan, þegar eins hefur staðið á fyrir
honum og hann hefur þurft að draga at-
hyglina frá stefnu sinni og störfum. Því
er það skiljanlegt, að hann grípur til
hennar nú, því að aldrei hefur málefna-
leg aðstaða hans verið eins slæm og nú.
Eftir fjögurra ára „viðreisnarstjórn“ hans
og Alþýðuflokksins blasir það nú betur
við en nokkru sinni fyrr, að hann er
flokkur hinna fáu ríku, því að aldrei hef
ur verið stefnt að þvílíkri misskiptingu
þjóðarteknanna sem á þessum tíma síðan
fslendingar fengu sjálfstjórn í hendur
sínar. Aldrei hefur flokkur heldur verið
staðinn að meiri svikum við kjóscndur
en Sjálfstæðisflokkurinn nú, þar sem
hann sagði fyrir seinustu kosningar, að
„leiðin til bættra Iífskjara“ væri að kjósa
hann, en þetta hefur verið efnt þannig,
að þrátt fyrir stórauknar þjóðartekjur
og mikið góðæri, er afkoma alls fjöldans
nú lakari en hún var fyrir fjórum árum.
Þess vegna grípur Sjálfstæðisflokkur-
inn nú, einu sinni enn, til hinnar 25 ára
gömlu lygasögu, sem þá var innflutt frá
Þýzkalandi. Þess vegna á að endurtaka
hana svo hátt og lengi, að allt annað
gleymist. En það mun misheppnast nú,
alveg eins og 1937.“
^--------------------------------J
Fjórða bréf fðl Jónasar G. Rafnars
ÉG VAR hræddur um, þegar
lokið var þriðja bréfi mínu, að
ég væri orðinn of langorður um
afmælishátíð hins norðlenzka
höfuðstaðar, en þá varð ég þess
var, að sumir fyrir norðan vildu
fá meira að heyra af þessu bréfi.
Mig grunaði að mönnum hafi
líkað vel gamlar Austrasögur,
þar sem sögunum lýkur með
sælum friði og sátt eftir marga
erfiðleika. Ég lét mig þess vegna
dreyma um, að þannig ætti
fjórða bréf mitt að vera til þín
og ljúka þar með þessum bréfa-
skiptum.
Tilgangur minn með þessum
skrifum var hvorki sá að hrella
þig né gleðja sérstaklega með
hrósi eða gagnrýni, heldur að
leiða hugi Akureyrarbúa að
nokkrum atriðum, sem snerta
sókn þeirra eftir forustu í and-
legum og efnalegum málefnum
Norðurlands. Sagnfræði ykkar
Gísla Svarfdælings snertir ykk-
ur að vísu persónulega, en líka
samtíð, sem sækir fram eftir
norðlenzkri forustu.
Ég vil nú hefja mál mitt að
nýju með því að benda á furðu-
legan bylgjugang í andlegu lífi
og athöfnum fólks, bæði í stór-
um héruðum og kaupstöðum.
Það gekk mikil hitabylgja yfir
Eyjafjörð í sambandi við frelsis
tökuna 1874. Þá stofnsettu Ey-
firðingar Laugaland með al-
mennum samskotum karla og
kvenna í héraðinu. Mest mun-
aði í það sinn um móður og
bróður Hannesar Hafsteins, og
mundi skólinn varla hafa kom-
izt á legg án mikilsverðrar hjálp
ar Kristjönu amtmannsekkju
frá Möðruvöllum og hins gáf-
aða fésýslumanns Eggerts Gunn
arssonar. Gamli Laugalandsskól
inn lifði við sæmileg kjör ná-
lega 20 ár, en þá var komin ein-
hvers konar tregðusýki í Ey-
firðinga og Þingeyinga. Lauga-
landsskólinn var lagður niður.
Hjölur hans voru seldar og and
virði þeirra geymt hjá sýslu-
manni Eyfirðinga á Akureyri.
En nú kom,langt hvíldartíma-
bil í kvennaskólamálum þjóðar
innar, en um 1930 varð vart
nýrrar vakningar í þessum efn-
um. Þá voru á nokkrum árum
reistir húsmæðraskólar á Hall-
ormsstað, Laugum í Þingeyjar-
sýslu, Laugalandi í Eyjafirði,
Löngumýri í Skagafirði, Laug-
arvatni, Varmalæk í Borgar-
firði og Staðarfelli í Dölum.
Við þessar skólastofnffnir
lögðu konur fram bróðurpart-
inn af áhuganum og fjármagn-
inu, en karlmenn studdu málið.
Um alla þessa skóla má segja,
að þeir voru reistir af áhuga-
fólki í andlegum og félagslegum
efnum. Einn þessara skóla,
Laugarvatn, er að sumarlagi
orðinn víðfrægur hvíldarstaður
fyrir húsmæður, sem nota hér
orlofstíma sinn til gleði og hress
ingar.
Þegar þessir húsmæðraskólar
voru reistir víða um land, var
mikil grózkubylgja í fram-
kvæmdalífi Akureyrar. Voru
Vilhjálmur Þór kaupfélagsstjóri
og Guðjón Samúelsson mjög
riðnir við miklar húsabygging-
ar. Samvinna þeirra var hin
bezta um þvílík málefni. Enginn
kaupstaður á íslandi á jafn
margar byggingar í almanna-
þágu, sem eru gerðar með list-
rænni forsjón, eins og þá voru
reistar á Akureyri. Má þar
nefna Pósthúsið, Landsbank-
ann, Barnaskólann við Eyrar-
landsveg, Kirkjuna, Gagnfræða
skólann, Kvennaskólann,
Sjúkrahúsið og hin viðamiklu
heimavistarhús Mennaskólans.
Þá var þar reistur húsmæðra-
skóli. Er byggingin öll hin
prýðilegasta, enda eftir Guðjón
Samúelsson, og öll innri tilhög-
un gerð í samræmi við tillögur
mjög þroskaðrar konu í hús-
mæðrafræðslu. En einhver und
arlegur tómleikablær hefur frá
upphafi hvílt yfir þessari snotru
og velgerðu skólabyggingu.
Nemendur vilja ekki þangað
fara. Akureyringar verða að
horfa ár eftir ár á sinn hús-
mæðraskóla eins og ung-
menni, sem fallið hefur frá í
blóma aldurs.
Sorgarsaga húsmæðraskólans
á Akureyri er eftirtektarvert
reynsludæmi í sögu íslenzkra
nútímaskóla. Gamla Laugaland
fékk sína blómaöld í 20 ár, og
húsmæðraskólarnir frá 1930
blómgast ár frá ári. Hitabylgj-
an frá 1930 hefur fram að þessu
orðið þeim til lífvæns framdrátt
ar, svo að ekki sé fastar að orði
kveðið. Vafalaust verður ein-
hvern tíma ráðin sú gáta, hvers
vegan húsmæðraskóli Akureyr-
ar gat ekki dafnað. Mun ég ef
til vill víkja að því atriði ein-
hvern tíma síðar. Nú er mér
hugstæðari önnur framkvæmd
á Akureyri.
Milli styrjaldanna hófu norð-
lenzkar konur fjársöfnun. —
Berklaveikin herjaði þá á land-
ið allt og ekki sízt hinn sólríka
Eyjafjörð. Oftsinnis lágu hel-
sjúkir menn í sömu baðstofu og
heilbrigt fólk. Þær vildu reisa
berklahæli, helzt í Eyjafirði.
Sennilega hafa þær konur, sem
hér lögðu fram fé og vinnu,
skippt hundruðum, en mér eru
ekki persónulega kunnar nema
tvær þeirra, Kristbjörg Jóna-
tansdóttir, kennslukona á Ak-
ureyri, og Laufey Pálsdóttir
kaupkona. Norðlenzkum konum
varð vel ágengt með fjársöfnun
þessa. Fjárráð voru rúm á heim
ilunum síðustu misseri fyrri
styrjaldartímans. Söfnunin mun
á þeim tíma hafa náð 100 þús-
und krónum, en það var fimmt-
ungur þess fjár, sem þurfti í
nýja hælisbyggingu. En þegar
kreppan gekk í garð um byggð
og bæ 1920, hurfu allir sam-
skotamöguleikar, bæði vegna
berklahæla og annarra mann-
úðar-fyrirtækja. Hvert heimili
hafði þá meir en nóg viðfangs-
efni að afla daglegs brauðs
handa fjölskyldunum.
Norðlenzkar konur geymdu
nú um stund hælis-hugsjón sína
og sjóðinn góða. Liðu þannig
nokkur misseri. Þá var Jónas
Þorbergsson ritstjóri Dags á
Akureyri. Honum tókst með
hugsjóna-auði sínum og rit-
snilld að gera blað sitt Dag að
áhrifablaði langt út fyrir fjórð-
unginn. Þegar batnaði í ári að
nýju, taldi Jónas Þorbergsson
mál að taka upp aftur berkla-
hælismál Norðlendinga. Ritaði
hann þá í Dag hverja greinina
annarri sjallari og þróttmeiri
um nauðsyn málsins. Hins veg-
ar minntu berklarnir á sig, hvar
sem var í fjórðungnum, svo að
mönnum var með hverjum degi
augljósari þörfin fyrir nýjar að
gerðir í berklamálum.
Ritgerðir Dags-ritstjórans
voru vissulega orð í tíma töluð.
Þær endurvöktu hugsjón
kvenna í fjórðungnum, einmitt
þeirra, sem höfðu verið næst
eldi sjúkdómshættunnar og
fundið bezt varnarleysi sitt eins
og málum var þá háttað í land-
inu. Nú létu margir á sér skilja,
að þeir væru fúsir til að safna
fé í sjóð hinna framsýnu
kvenna. Ritstjóra Dags var
ljóst, að ekki var nóg, þótt skrif
að væri vel um málið í blaðið,
það þurfti sterka og samhenta
stjórn kvenna og karla til að
afla nýrra fjármuna og standa
fyrir framkvæmdum. Jónas Þor
bergsson taldi bezt henta að
bæta þremur áhrifamönnum úr
athafnalífi Akureyrar í þá
nefnd, sem áður var til á veg-
um kvenna. Hann valdi sjálfur
þá menn sem hann taldi álitleg-
asta til forustu og sneri sér til
þeirra persónulega. Máli Jónas-
ar ritstjóra var vel tekið. Hann
kvaddi þar til starfa Böðvar
Bjarkan, hinn skarpgáfaða og
fjölhæfa lögfræðing, Ragnar Ó1
afsson kaupmann, sem var at-
hafnamestur maður við fram-
kvæmdir í liði samkeppnis-
manna og að lokum Vilhjálm
Þór, sem sýnt hafði í verki
mikla hæfileika til að standa
fyrir vandasömum bygginga-
framkvæmdum. Ragnar Olafs-
son lét ekki standa fyrir góðu
máli, þó nokkur skoðanamunur
hefði áður verið um landsmál-
in milli hans og Dags-ritstjóra,
og var Ragnar nú kosinn for-
maður nefndarinnar. Samstarf
var nú hið bezta í nefndinni
bæði milli fulltrúa kvenna og
karla. Peningarnir streymdu
hvaðanæfa að í hendur nefndar-
innar. Ragnar kaupmaður gaf
20 þúsund krónur, en það mun
jafngilda 500 þúsundum í nú-
verandi mynt. Eru slíkar stór-
gjafir sjaldgæfar hér á landi,
jafnvel eftir að peningaráð urðu
meiri heldur en var á þeirri tíð.
Skuggalaus góðhugur lyfti þess
um heilsuhælis-framkvæmdum
á hátt og göfugt stig. Enn voru
nýir menn kvaddir til samhjálp
ar, Guðmundur landlæknir, fað
ir Vífilsstaðahælis og Guðjón
Samúelsson húsameistari komu
norður til ráðagerðar við áhuga
lið hælis-málsins. Nefndin og
ráðuneyti hennar völdu Krist-
S
VELFARNAÐARMINNI ESJU
Sveimar upp frá Esjunni sótlitað ský
sunnangolan leikur um farþega á dekkinu.
Tapparnir úr flöskunum teknir á ný
til þess keypt er vínið að dreypa á því.
Svalbarðseyrarvitinn hann sendir frá sér blikk
siglt er beint í vestur, en þá fær Esjan hnykk.
Vaðlaheiði og Gæseyri sveipast hvítum kristalsskrúða
hvað er þá fallegra en eimskip í Oxnadal.
Hvað er þetta? Esja er komin í strand
klifrað ofan stiga og niður í bátana.
Farþegar með töskurnar fluttir í land
friðsæl mynnist báran við pússningasand.
Akureyrarbílarnir bruna þarna að,
og bændasynir líka, sem erfa þennan stað.
Vaðlaheiði og Gæseyri sveipast hvítum kristalsskrúða
hvað er þá fallegra en eimskip í Oxnadal.
Leiftra yfir Gæseyri ljósanna fjöld,
leikur báran svefnljóð við kyrrláta Esjuna.
Nú má ekki hátta þó komið sé kvöld
knúð skal Esjan landveg á tækninnar öld.
Botnfjalirnar eru sem bárujáx-n á skúr
brotnar eru vonir að fara í jólatúr.
Vaðlaheiði og Gæseyri sveipast hvítum kristalsskrúða
hvað er þá íallegra en eimskip í Öxnadal.
, Risi.
nes með heitum lindum. Krist-
nes var prýðilega staðsett í hér-
aðinu. Þar var skýlt og fagurt
útsýni yfir Eyjafjarðardalinn.
Brátt var byx-jað að byggja
húsið. Vilhjálmur Þór stóð mjög
að framkvæmdum við bygging-
una. Samvinna hans við Guð-
jón Samúelsson í byggingamál-
inu stóð lengi, og fór vel á
þeii-ra framkvæmdum. Kristján
Kristjánsson, stærsti bifreiða-
eigandi norðanlands, lét vagna
sína flytja byggingavörur til
hælisins með sérlega hagstæð-
um kjörum. Ragnar Ólafsson
formaður hælisnefndarinnar á-
kvað nú að hei-ja á Alþingi og
ríkisstjói-n. Jón Þox-láksson og
flokksbræður hans gættu þá
sjóðs ríkisins. Hann var talinn
varfærinn maður. Ragnar brá
sér til Reykjavíkur og skýrði
málið ýtax-lega fyrir ráðherrum,
þingmönnum og öðrum mönn-
um, sem vildu sinna berklavör-
um með áhuga. Að lokum hélt
Ragnar glæsilega veizlu á sinn
kostnað í stærstu salai-kynnum
höfuðstaðarins á Hótel ísland.
Þar voru meðal gesta helming-
ur þingsins og margir aðrir á-
hrifamenn. Vín var fram borið
í veizlunni, en þess gætt að það
væri til gleðiauka en ekki til
sorgar. Áróður Ragnars Ólafs-
sonar í þessari Reykjavíkur-
ferð hafði mikil áhrif á gang
málsins. Heilsuhælismál Norð-
•lendinga var þá komið yfir örð-
ugasta hjallann. Kristneshæli
var fullbyggt á ótrúlega skömm
um tíma. Byggingin er fögui-,
en einföld svo að af ber. Húsið
vai-ð auk þess fui-ðulega ódýrt,
enda byggt á starfi framsýnna
foi-ystumanna. Og enn kom til
sögunnar í Kristnesmálinu góð-
frægur Eyfirðingur, Jón Rögn-
valdsson. Hann stóð fyrir trjá-
rækt og blómrækt við Kristnes
hæli, og er sá þáttur fram-
kvæmdai-innar að ágætum í
samræmi við hinar fyrri sem
sagt er frá.
Framh.
„Það skal koma fram,
sem fram horfir meðan
rétt horfir“
ÁN ÞESS að „klaga“ nokkuð í
þetta skiptið, vil ég geta þess
hér, að „Svar við svari“, frá
„Einum af möi-gum“, í „íslend-
ingi“, 30. nóv. sL, telst ekki
svara vert. Og fyrst enginn af
„þeim mörgu“ í hópi „sjoppu“-
eigenda vill koma fx-am og
benda á nauðsyn og blessunar-
rík áhrif þessara fyrirtækja fyr-
ir börn og unglinga, og viður-
kenni oi-ð sín með undirrituðu
nafni sínu, tel ég ummæli mín
í greinunum í „Degi‘‘ óhrakin
og bíð bara rólegur eftir meið-
yi'ða-málsókninni. Þá verður
vandalaust að tína fleii'a til.
Svo fagna ég því, að víðar og
víðar er nú hugur í fólki að láta
loka „sjoppu“-holunum á kvöld
in. Því fyrr, því víðar, því
betra. Jónas frá Brekknakoti.
BÓKASÝNING
JÓHANN VALDIMARSSON
bóksali á Akureyri efndi til
bókasýningar um síðustu helgi
í Gildaskála KEA, og var að-
sókn að henni góð.
í dag og á morgun verður
framhald þessarar kynningar á
sama stað, og hefst hún kl. 1 í
dag og stendur til kl. 10 e .h.,
og á morgun á sama tíma.
Jóhann sýnir þarna allar nýj-
ar bækui-, sem út hafa komið á
árinu. Tilgangurinn með bóka-
sýningunni er sá, að gefa fólki
tækifæri á að kynnast bókun-
um ofurlítið, undir handleiðslu
þeirra manna, sem tekið hafa
að sér leiðbeiningar. Með þessu
móti eiga viðskipti í bókabúð-
unum einnig að ganga auðveld-
legar.
Bókasýning Jóhanns er bóka-
kynning en ekki bóksala, en
hins vegar er hægt að panta
bækur á sýningunni. □
Ólafur Thorarensen
fyrrv. bankastjóri sjötugur
ÁRIÐ 1908 gekk 16 ái-a piltux-,
Ólafur að nafni, sonur Þórðar
gullsmiðs Thorarensens á Ak-
ureyri og Önnu Jóhannesdóttur
konu hans, í þjónustu Lands-
banka íslands og hóf starf í úti
búinu hér á Akureyri. Hann
átti eftir að vinna 53 ár sam-
fleytt við þessa stofnun og þar
af bankastjóri Utibús Lands-
bankans á Akui-eyi'i frá 1931 og
allt til þess er hann lét af störf-
um samkvæmt eigin ósk fyrir
um það bil hálfu öðru ári.
Ævistarf Ólafs Thorarensen
var hljóðlega unnið en af svo
mikilli trúmennsku og öryggi,
að orð hans þóttu jafngildi vott-
festra undirskrifta, og nafn
hans hinum gullna málmi betra.
Með ríkum skilningi á at-
vinnuháttum bæja og byggða á
Norðurlandi mætti hann óskum
viðskiptavinanna og átti drjúg-
an þátt í farsælu samstarfi
banka og þeirra aðila, er leita
þurfa til peningastofnana vegna
nauðsynlegra framfaramála.
Sá þáttur verður seint að fullu
metinn.
Þótt Ólafur væri algert borg-
arbarn að uppruna jafnt sem
uppvexti, var hann skilnings-
ríkur á þarfir og þýðingu land-
búnaðarins og mikill unnandi
hinnar gróandi jarðar. Til dæm
is um það rná nefna hið stór-
myndarlega framlag hans til
Vaðlaskógar, sem vel dafnar og
ber þeim fegurst vitni á löngum
ókomnum tímum, sem trúðu
moldinni fyrir fjármunum.
- Áfengisneyzla . . .
(Fi-amhald af blaðsíðu 1)
leiki var á, að spyx-ja þriðja
stýrimann hvort hann hefði ver
ið fullur.
Hér verður sú breyting að
koma til fi-amkvæmda, að herða
á eftirliti skipstjórnarmanna í
sambandi við notkun áfengra
drykkja í starfi, á líkan hátt og
framfylgt hefur verið gagnvart
bifreiðastjói-um, með góðum ár
angri. □
jSSg
sss
ALLS KONAR
SMÁPRENTUN
Síml
VALPRENT HF |
mSm
uuiuuiuiiiifloiHimiuiiul
Hér er engin ævisaga sögð,
þess aðeins minnzt, að hæglát-
ur drengskapai-maður, sem um
áratugi stjórnaði stærstu pen-
ingastofnun á Norðurlandi, er
sjötugur ox-ðinn, hættur störfum
í þágu fjöldans — en er ekki
gleymdur —.
E. D.
HEIMILISTÆKI
með afborgunum:
HRÆRIVÉLAR
3 tegundir
KÆLISKÁPAR
ÞVOTTAVÉLAR
2 tegundir
RYKSUGUR
3 tegundir
PRJÓNAVÉLAR
SAUMAVÉLAR
3 tegundir
ELDAVÉLAR
2 tegundir
<^>
VÉLA- 0G
BÚSÁHALDADEILD
NÝ SENDING AF
rERYLENE-PILSUM
MARGAR GERÐIR AF
GJAFAKÖSSUM
VERZLUNIN SKEMMAN
Simi 1504
verð kr. 250.00.
TIL JÓLAGJAFA:
ELDHÚSSLOPPAR
verð kr. 158.00.
BLÚSSUR
nýjar gerðir.
hanzkar, slæður
TREFLAR
HERÐASJÖL, ullar
NÁTTJAKKAR, ullar
o. m. fl.
MARKAÐURINN
Sími 1261
Jón Ólafsson
forstöðum. Bifreiðaeftirlitsins - MINNING
ÞANN 4. des. sl. andaðist Jón
Ólafsson, fyx-rv. forstöðumaður
Bifreiðaeftii-litsins. í dag, 12.
des., fer útför hans fram frá
Laugai-neskirkju, en hann átti
sjálfur manna mestan þátt í því
að sú kirkja reis af grunni.
Jón var Eyfirðingur og hélt
alla ævi tx-yggð við heimabyggð
sína og gamla vini. Mér finnst
því rétt og skylt, að hans sé einn
ig minnzt í blaði, sem gefið er
út hér á Akureyi'i, en sunnan-
blöðin ekki látin ein um það.
Jón Ólafsson var fæddur 11.
maí 1892 að Stóra-Dunhaga í
Hörgárdal. Þar bjuggu þá for-
eldrar hans Anna Jónsdóttir frá
Skriðu í sömu sveit og Ólafur
Tryggvi Jónsson. Síðar fluttu
þau að Dagverðartungu í Hörg-
áx-dal og þar ólst Jón síðan upp.
Skriða í Hörgárdal hefur lengi
verið hið mesta menningai-heim
ili, en Anna móðir Jóns var elzt
hinna möi-gu og kunnu Skriðu-
systkina. Ólafúr faðir Jóns var
greindur maður og vel að sér.
Fékkst hann á yngri árum tölu-
vert við barna og unglinga-
kennslu og þótti fara það vel úr
hendi. Ég efa því ekki að Jón
Ólafsson hefur fengið hið bezta
uppeldi og notið meifi fræðslu
heldur en þá var títt (áður en
fræðslulögin voru sett), enda
bar hann það með sér. Það var
eins og prúðmennska væri hon-
um jafnan í blóð borin.
Ekki var auður á æskuheimili
Jóns. Hann fór því ungur að
heiman til að vinna fyrir sér.
Haustið 1909 réðst hann t. d.
til föður míns að Þverá í Öxna-
dal sem vetrarmaður. Hann var
þá aðeins 17 ára gamall, en þó
full vaxinn. Foreldrum mínum
líkaði mæta vel við hann, enda
vann hann störf sín af trú-
mennsku og sá var háttur hans
alla ævi. Jón var rúmlega þrem
árum yngri en ég, en þennan
vetur á Þverá tókst með okkur
vinátta, sem síðan hélzt. Var ég
þó ekki heima nema til ára-
móta.
Um tvítugsaldur lá leið Jóns
til Akureyrar. Gekk hann þar í
þjónustu ökumanns og fékkst
um tíma við að aka hestvögn-
um, bæði með fólki og vörum.
Síðan lá leiðin til Reykjavíkur.
Þá var bílaöldin að hefjast. Jón
lærði þar að aka bíl og kynnti
sér auk þess gerð þessa nýja
samgöngutækis. Fljótt réðist
hann í að kaupa bíl og gerðist
bílstjóri í Reykjavík. Mátti
hann heita einn af brautryðj-
endum þeirrar stéttar. Vann
hann allmörg ár á Bifreiðastöð
Reykjavíkur og var meðeigandi
stöðvarinnar.
Þegar bifreiðaeftirlit var sett
á stofn 1928, varð Jón Ólafsson
bifreiðaeftirlitsmaður og munu
þá fáir, eða jafnvel enginn í
landinu, hafa vei-ið jafn vel til
þess starfs fallinn. Þegar svo
bifi-eiðaeftirlitið var sett á stofn
sem sérstök stofnun, varð Jón
foi-stöðumaður hennar og
gegndi því stai-fi svo að segja til
dauðadags. Hygg ég að þar lxafi
vei-ið réttur maður á réttum
stað. Starf þetta var ekki leikur
einn, sízt í byrjun. Því fylgdi
m. a. að veita forstöðu námskeið
um bifreiðarstjóra og vera pi-óf-
dómari við meira próf þeirra.
í annan stað var það, að á fyrri
árum bifreiðaeftii-litsins var rík
ið ekki enn farið að leggja ráð-
herrum til bíla og bílstjóra.
Gripu ráðherrarnir þá oft til
þess að láta bifreiðaeftirlits-
mennina aka sér og öðrum,
voru þeir m. a. stundum sendir
með þingmenn t. d. heim af
þingi. Var ég stundum sjálfur
í slíkum ferðum með Jóni Ól-
afssyni.
Þegar ég kom í fyx-sta sinn til
þings árið 1924, rifjuðust þegar
upp fyrri kynni okkar Jóns Ól-
afssonar. Var ég oft gestur á
heimili hans og Guðrúnar fyrri
konu hans og naut þar gestrisni
og alúðar. Þau hjón voru bai-n-
laus, en ólu upp fósturson. Guð
rún andaðist árið 1928 eða 29
(man ekki hvort heldur). Jón
giftist í annað sinn frú Herþrúði
Hermannsdóttur og áttu þau
þi-jú börn og síðar barnabörn.
Jón var áreiðanlega hinn bezti
heimilisfaðir. Eg fyrir mitt leyti
naut þar jafnan gestrisni og al-
úðar hans og beggja eigin-
kvenna hans. Svo mun og hafa
vei'ið um marga aðra héðan að
norðan — og auðvitað fleiri.
Jón Ólafsson vann mikið
starf fyrir Laugai-nesssöfnuð
að kirkjubyggingu þar o. fl. Þau
störf þekki ég þó lítið pei-sónu-
lega. Hitt veit ég, að hann vann
hvert starf af fyllstu samvizku-
semi og trúmennsku, allt frá
æskuárum og til endalokanna.
Hann var prúðmenni í allri
framgöngu og drengur hinn
bezti.
Við hjónin sendum frú Hei--
þrúði ekkju Jóns og öllum ást-
vinum hans okkar hjartanleg-
ustu samúðarkveðju.
Bemharð Stefánsson.
12 manna
KAFFISTELL
frá kr. 730.00
12 manna
MATARSTELL
frá kr. 997.00
MATARSTELL
6 manna
frá kr. 430.00
BOLLAPÖR
frá kr. 18.00, 10 teg.
BOLLAPÖR m. diski,
5 tegundir
DISKAR frá kr. 19.50
2 tegundir
VÉLA- OG
BÚSÁHALDADEILD