Dagur - 13.03.1963, Blaðsíða 5

Dagur - 13.03.1963, Blaðsíða 5
4 5 <." . . ..... Daguk Af íslenzkri róf FRAMSÓKNARFLOKKURINN kom inn á svið sögunnar fyrir 46 árum, í morg unsári fullveldisaldar á íslandi. Þátttakan í stofnun fullveldisins 1918 var eitt af stærstu viðfangsefnum hans í öndverðu. Starf hans og stefna var vígt því hlutverki, að byggja upp hið nýja íslenzka þjóðríki á þann hátt að ísland framtíðarinnar mætti verða bömum sín- um það „farsældar frón“, sem „listaskáld- ið góða“ kvað um í árdagsljóma frelsis- baráttunnar. Þannig, eða því sem næst, er til orða tekið í riti, sem út koin á vegum flokks- ins fyrir einum áratug eða svo. Þar segir ennfremur: Sé tilkomu fullveldisins líkt við vorið, má með sama liætti líkja Framsóknar- flokknum við hinn fyrsta vorgróður. En það skildi þennan vorgróður frá öðrum um þessar mundir, að hann var eins og kjami túngrasanna, AF ÍSLENZKRI RÓT, nærður í jarðvegi landsins sjálfs, og því þess umkominn að vera þjóðinni brautryðjandi til þroska við hennar hæfi í hinni miklu framsókn til betra lífs, sem hefja varð og flokkurinn tók nafn sitt af. Uppruna Framsóknarflokksins má rekja til félagshreyfinga þeirra, er vaktar vom i býggðum Iandsins á 19. öld og á fyrsta tugi þessarar aldar. Með tilliti til þess er sú staðreynd auðskilin, að flokkurinn miðaði þegar í öndverðu starf sitt og stefnu algerlega og eingöngu við íslenzka staðhætti, íslenzkt þjóðfélagsástand og sérþarfir þær til breytinga og framfara, sem mótazt höfðu af sögu þjóðarinnar og að hann jafnframt, vegna uppmna síns, leit á viðfangsefni sín frá sjónarmiði al- mennings í landinu. Með stofnun Framsóknarflokksins var í raun og veru terið að hefja starfsemi hinna eldri þjóðfélagshreyfinga, sem sprottin var af ríkri þjóðarþörf, eftir því sem nauðsyn bar til, yfir vettvang stjóm- málanna. En að sjálfsögðu hlaut sú starf- semi að verða víðtækari er tímar liðu. Að þessu leyti var Framsóknarflokk- urinn mjög frábrugðinn hinum aðalflokk- unum. Hann var alíslenzkur flokkur, byggður á sögulegri félagsmálaþróun í landinu. Hinir aðalflokkarnir voru, ef svo mætti segja, skapaðir í erlendri mynd. Stefna þeirra og lífsviðhorf var innflutt írá stóriðnaðarþjóðfélögum annara landa, þar sem atvinnurekenda- og múgvald snauðra stórborgarbúa höfðu fyrir löngu sett svip á flokksskipunina. Með „hinum aðaIflokkunum“ er að sjálfsögðu átt við Alþýðuflokkinn, sem var stofnaður um sama leyti og Fram- sóknarflokkurinn, en nú hefur týnt sjálf- um sér, íhaldsflokkinn, sem stofnaður var 1924, en skipti um nafn og heitir nú Sjálfstæðisflokkur, og Kommúnistaflokk inn, sem stofnaður var 1930 sem „deild úr alþjóðasmabandi kommúnista“, en breytti sér í „Sósíalistaflokk“ og síðan í „Alþýðubandalag“. Um þá verður hér ekki nánar rætt að þessu sinni. Margt hefur breytzt og viðfangsefni stjórnmálaflokkanna eru að ýmsu leyti önnur nú en þau voru fyrir 4—5 áratug- um. En eðli flokkanna og uppruni segir til sín, nú sem fyrr, þegar vanda ber að höndum eða er vaxandi. Þess vegna er það nú t. d. að sjálfsögðu Framsóknar- flokkurinn, sem öðrum flokkum fremur gerir sér grein fyrir þeirri hættu, sem (Framhald á bls. 7) SJÖTUGUR: Stefán Jónsson, námsstjóri Áððlheiður frá Barká sjötug — ÓTRÚLEGT, en satt — Ste- fán Jónsson námsstjóri varð sjö tugur sunnudaginn 10. þ. m. — Stefán er Mýramaður að ætt, fæddur að Snorrastöðum í Kol- beinsstaðahreppi 10. marz árið 1893. Foreldrar hans voru þau hjónin Jón bóndi í Mýrdal og á Snorrastöðum og kona hans Sól veig Magnúsdóttir, bónda í Mýr dal. Stefán stundaði nám við A1 þýðuskólann á Hvítárbakka vet urna 1911—13. En kennarapróf tók hann vorið 1917. Hann hef- ur oft farið til útlanda. M. a. fór hann "námsferð til Danmei'kur, Noregs og Svíþjóðar árin 1923 og aftur 1946. Eftir 1913 var hann kennari á ýmsum stöðum vestanlands, en haustið 1920 verður hann skólastjóri ung- lingaskólans í Stykkishólmi, og haustið 1920 verður hann einnig skólastjóri barnaskólans þar. Því starfi gegndi hann til ársins 1946. Árin 1942—46 er hann náms- stjóri í Austfirðingafjórðungi, •en heldur samt stöðu sinni í Stykkishólmi. En 1946 verður hann námsstjóri í Vesturlands- umdæmi, en hættir þá jafnframt skólastjórn. Því starfi gegnir hann til ársins 1954. En þá verð- ur hann námsstjóri í Norðlend- ingafjórðungi og tekur þar við af Snorra Sigfússyni, sem þá verður að hætta sökum aldurs. Hefur hann þá alls verið námsr stjóri í 21 ár. Á meðan Stefán Jónsson var búsettur í Stykkishólmi hlóðust á hann ýmis trúnaðarstörf. Með al annars var hann í stjórn Kaupfélags Stykkishólms og for maður þess um skeið. Seinna skrifaði hann 25 ára minningar- rit félagsins. Síðan hann fluttist til Reykjavíkur hefur hann tek- ið mikinn þátt í samtökum Breiðfirðinga í höfuðborginni og verið um skeið í stjórn Breið- firðingafélagsins. Stefán er ágætlega ritfær og hefur skrifað allmikið í blöð og tímarit. Þá hefur hann flutt all- mörg útvarpserindi og séð um fjölda barnatíma í útvarpinu. Hann hefur þýtt margar bækur, einkum barna- og unglingabæk- ur eða 6 bækur alls. Hann hefur verið ritstjóri æskulýðsþáttar tímaritsins Heima er bezt frá 1956. Þá var hann ritstjóri Breið firðings 1949—’52. Af þessu verð ur séð, að Stefáni hefur verið létt um að halda á penna. Hann er einnig ræðumaður góður og hefur haldið fjölda fyrirlestra víða um land, einkum í sam- bandi við ferðalög sín sem náms stjóri. Stefán er tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðrún Þórðardóttir. Þau slitu samvist- um 1943, Börn þeirra eru Bjarg- hildur Sofíía, húsfreyja í Reykjavík, og Davíð kennari. Síðari kona Stefáns er Lovísa Margrét Þorvaldsdóttir. Börn þeirra eru Einar Páll og Sól- veig. Hér hefur verið drepið á ör- fáa þætti úr lífi Stefáns, en hvað er svo að segja um mann- inn sjálfan? Hann er fyrst og fremst góður drengur. Hið mesta Ijúfmenni og prúðmenni og glaður í viðmóti. Hann hefur á sinni löngu námsstjóratíð not- ið vinsælda allra, sem einhver skipti hafa haft við hann. Hann hefur aldrei barið að nokkrum skóladyrum með valdsmanns- svip, heldur þeirri vingjarnlegu hæversku, sem einkennir alla hans framkomu. Stefán hefur á ferðalögum sínum um landið kynnzt fjölda manna, ekki að- eins kennurum og börnum held- ur og mörgum öðrum, og eign- azt vini bæði úr hópi fullorð- inna og barna. Stefán er einn af þeim mönnum, sem ákaflega notalegt er að kynnast og hafa í návist sinni. Ég sagði einhvern tíma við Stefán, að það liti ekki út fyrir að það væri erfitt verk að vera námsstjóri, því að svo hefur það verið hér á Norður- landi að minnsta kosti, að þeir eru ungir fram yfir sjötugt. Ég óska Stefáni til hamingju með þennan áfanga, sem er nú að ljúka. Hann á enn mikla starfskrafta eftir, sem hann get- ur varið til hugðarefna. Og að lokum þakka ég honum fyrir ágæta og elskulega samvinnu undanfarin ár, bæði fyrir mína hönd og skóla míns. Ég á von á, að hlýja strauma leggi til af- mælisbarnsins norðan yfir fjöll- in á þessum merku tímamótum í lífi hans. Innilegar hamingjuóskir með sjötugsafmælið frá okkur öllum hér fyrir norðan. Hannes J. Magnússon. - Viðvörunaratkvæði greidd í bæjarstjórn (Framhald af blaðsiðu 8) isvaldið hefur nú þegar sýnt nokkurn lit í þessu máli, en bet ur má ef duga skal, bæði hér og víða annars staoar á landinu. Með línum þessum viljum við að það komi skýrt fyrir almenn ingssjónir, að hér er á ferðinni það mál Akureyrarbæjar, sem nú þegar hefur valdið bæjarfé- laginu miklum erfiðleikum, og allar líkur benda til að þeir erf iðleikar fari fremur vaxandi en minkandi. Að lokum má geta þess, að skipin okkar eru þegar farin að eldast, og ný tækni í skipasmíði flýtir fyrir aldri þeirra. Allt þetta og margt fleira er vert að hafa í huga þegar þessi mál eru rædd. Vissulega ber að vona, að mál Útgerðarfélags Akureyringa hf. leysist á hinn farsælasta hátt, afli glæðist og ríkisvaldið rétti togaraútgerðinni vaxandi hjálp- arhönd, en hvað sem því líður, má eigi fljóta sofandi að feigð- arósi, og mótatkvæði okkar voru viðvörunaratkvæði til bæj arsíjórnar og Útgerðarfélags- stjórnar um að taka öll mál Út- gerðarfélagsins til rækilegrar endurskoðunar, bæði í smáu og stóru. Haukur Ámason. Amþór Þorsteinsson. LENGI notuðust Öngulsstaða- hreppsbúar við hina hrakleg- ustu húskumbalda til funda- og skemmtanahalds. Þar í sveit hef ur þó um langan tíma verið haldið uppi leikstarfsemi á hverjum vetri. Um listagildi sjónleikjanna skal ekkert sagt og fólk getur farið nærri um að stöðuna. Hinu er ekki að leyna, að leikstarfsemin var hinn mesti gleðigjafi og starfið sjálft og stappið við að koma upp sjón leikjum var mörgum mikils virði. Nú eru viðhorf breytt. Hið glæsilegasta félagsheimili, Frey vangur, leysti hin eldri sam- komuhús af hólmi. Bygging Freyvangs var mikið átak, en vegna algerrar samstöðu og góðrar forustu varð fram- kvæmdin að ýmsu leyti til fyrir myndar. En vandi fylgir veg- semd hverri. Rekstur hússins þurfti að bera sig og hefur gert það. Og menningarlegu hlut- verki átti húsið einnig að þjóna í sinni sveit, og einnig það hef- ur tekizt, þótt sá skuggi hvíli á, eins og á öðrum félagsheimilum, að of mikill þáttur rekstursins er á of „lágu plani“. Um þann þátt er mörgum tíðrætt, en hinu oftast gleymt, sem vel er gert. Á miðvikudaginn sýndu hreppsbúar í Öngulsstaðahreppi það ótvírætt, að þeir hafa ekki alveg gleymt sér við „málmsins hljóm“ og hinn umdeilda rekst- ursþátt, því að þá frumsýndu þeir þriggja klukkustunda sjón- leik, sem lengi hefur verið í undirbúningi. Þar í sveit hafa allar hendur mikil verk að vinna á degi hverj um, jafnvel enn meiri en oft á árum áður þegar heimilin voru fjölmennari, og gildir það jafnt um helgar sem virka daga. Tímafrekar leikæfingar eru því erfiðleikum bundnar, en að- staða að öðru leyti hin ákjósan- legasta í Freyvangi. í Öngulsstaðahreppi er nýlega stofnað leikfélag og stendur það fyrir leiksýningum. Sem fyrr- verandi hreppsbúi er ég inni- lega þakklátur fyrir að sjá, hve myndarlega er hér að unnið og hreppsbúum til sóma. Sjónleikurinn „Pétur kemur heim“ er gamanleikur, léttur í meðförum við fyrstu sýn, en þó með nokkurn boðskap ef betur er að gáð. Leiðbeinandi er Guð- mundur Gunnarsson, kunnur leikhúsmaður í höfuðstað Norð- urlands. Flestir leikendur eru nýliðar, að ég hygg, sem í þetta sinn rak á fjörur leikstjórans. Og án efa er þarna nokkuð góð ur efniviður, en auðvitað ekki fullkomlega úr honum unnið eða með vissu vitað hvar kjör- viður kann að leynast. Fyrri hluti sjónleiksins var á ýmsan hátt góður, en erfiðar senur í síðari hlutanum, sem gjarnan hefði mátt stytta, drógu hann niður á frumsýningunni. Leikfólk vill gjarnan sjá sín að einhverju getið eftir frum- sýningar. Gagnrýnendur, sem hvorki hafa tíma né tækifæri til að lesa leikritið, fylgjast.með æfingum og leikfólkinu eða kynna sér hinar ýmsu aðstæð- ur, sem máli skipta, geta ekki verið samvizka leiks eða listar eins og þeir ættu að vera. En þeir eru þá heldur ekki undir áhrifum kunningsskaparins og eru jafn opnir fyrir áhrifum þess sem fyrir augu ber og hverjir aðrir leikliúsgestir. En þegar gagnrýnendur fylgjast ekki með leikurum og öllu því starfi, sem unnið er að tjalda- baki, áður en tjaldinu er lyft á frumsýningu, eru áhrifin fersk. Frúrnar Rósa Árnadóttir á Höskuldsstöðum og Ár- veig Kristinsdóttir á Jódísar- stöðum leika systurnar, Kötu og Millu, sem bíða þess fullar eftirvæntingar að Pétur komi heim eftir 20 ára dvöl í Amer- íku. En hann er fyrrverandi kær asti Millu og hún er ólofuð enn og Kata orðin ekkja. Frúrnar gera hlutverkum sínum góð skil og skemmtileg. Stefán Árnason á Þórustöð- um leikur Pétur og nær tölu- vert góðum tökum á hlutverk- inu í fyrri hluta leiksins, sérstak lega í málblæ og framandlegum hreyfingum og gerfið er gott. Ungfrú Þuríður Baldursdóttir á Syðra-Hóli leikur fósturdóttur hin sheimkomna Péturs, mjög frísklega og fumlaust. Vignir Gunnarsson leikur Jóa, son Kötu, uppkominn pilt, sem farinn er að líta í kringum sig og ekki árangurslaust. Hann býður af sér góðan þokka, en mætti vera röskari í fasi. Ólöf Tryggvadóttir og Birgir Þórðarson leika feðginin Dóru og Kela, nágranna, sem koma verulega við sögu. Þau gera hlutverkum sínum góð skil. Baldur Kristinsson leikur Bessa, ómerkilegan blaðamann, í fullu samræmi við leikritið. Á frumsýningunni var Frey- vangur fullsetinn af heimafólki og skemmtu menn sér hið bezta. Leikendum og leikstjóra var vel fagnað að sýningu lokinni. E. D. - Stálskipasmíði á Ak. (Framhald af bls. 1) báta, sem fjölgar á Norður- og Austurlandi. En einnig beinist áhugi hluthafa að smíði stál- skipa, sem er ný iðngrein á Norðurlandi og mikil þörf fyr- ir. Slippstöðin hf. á Akureyri tekur nær öll fiskiskip, 'allt frá Vestfjörðum ‘ suður til Horna- fjarðar í slipp hér, og að jafnaði tvisvar á ári hvert þeirra. Skafti Áskelsson hefur veitt fyrirtæk- inu forstöðu frá byrjun. Auk viðgerðanna á fiskiskipa flotanum annast Slippstöðin hf. nýsmíði fiskibáta, allt upp í 90 tonn. Verður 27. báturinn sjó- settur í lok þessa mánaðar en sá 26. í röðinni var sjósettur síðasta laugardag. Til þess að byggja skip, þarf iðnaðarmenn af ýmsu tagi, svo sem trésmiði, vélsmiði, járn- smiði, rafvirkja, húsgagnasmiði, málara og seglasaumara, auk manna, sem hafa verkfræðilega kunnáttu. Smíði stálskipa krefst að vísu fleiri járniðnaðarmanna en tréskipasmíði, og þeirra er vant þegar stálskipasmíðar hefj ast. í öðrum iðngreinum eru Ak ureyringar mjög vel settir með sína mörgu og viðurkenndu iðn aðarmenn. FLÝJA SÆLURÍKIÐ í frosthörkunum í vetur lagði Havel-fljótið vestan við Berlín, á mörkum A.-Þýzkalands og V.- Berlínar. Þar var því örlítil undankomuleið fyrir þá, sem flýja vildu úr sæluríki komm- únista. En yfirvöld A.-Þýzka- lands brutu þá undankomuleið, þ. e. brutu ísinn jafnharðan. □ HINN 7. marz sl. varð Aðalheið- ur Jónsdóttir ljósmóðir frá Bark á í Hörgárdal sjötug. Hún er fædd og uppalin í Oxnadal en var starfandi ljósmóðir í Skriðu hreppi frá 1915—1950. Aðalheiður var heppin ljós- móðir og kjarkmikil kona í margs konar erfiðleikum bú- skapar og ljósmóðurstarfa. Hún giftist árið 1923, Manasesi Guð- jónssyni og bjuggu þau góðu búi að Barká í Hörgárdal, unz hann lézt árið 1938. Eftir það bjó Aðalheiður áfram með börn- um þeirra hjóna, allt til ársins 1950, að hún fluttist þaðan og síðar til Akureyrar, og býr nú í Eyrarlandsvegi 14. Böm þeirra Aðalheiðar og Manasesar voru tvö: Stefán, iðnverkamaður á Akureyri og Sigríður, húsfreyja í Glæsibæ. Þótt Aðalheiður yfix-gæfi jörð og síðar sveit sína, hefur hún látið fornar slóðir njóta stai-fs- krafta sinna. Og verkin hennar (Framhald af blaðsíðu 8). sneiú snarlega frá, en sá maður- inn, sem veiðibráðari var, lét þá ekki sjóinn aftra sér og stökk út í, á eftir minknum. Var þá skemmst milli manns og dýrs. En þá sneri dýrið sér við eins og örskot og sókn mannanna snerist í vörn. Varð það allt jafn snemma, að maðurinn gaf frá sér hljóð nokkurt, sem félaga hans þótti með fádæmum mik- ið, sami maður hljóp í loft upp, svo sá í iljar hans, en minkurinn stökk milli fóta hans og skauzt á þurrt land. Eftir þessi þáttaskil orrust- unnar, sem hafði nú tekið rúm- ar 15 mínútur, að sjófei-ð og töf um beinharðs bai-daga meðtöld- um, hófst aðgangur mikill í fjör unni. Enginn varð ennþá sár eða marinn, utan mennirnir, við það að steyta fótum hart við fjöru- steina. Annar var þó orðinn gleraugnalaus en hinn sjóblaut- ur. Minkurinn komst í urðar- eða klettasmugu ofan við fjöruna. Þar varð ekki að komizt og ekki grjóti kastað á þann veg, að hitt gæti beina stefnu. Ekki varð heldur með spi'ekum eða út- skotsmerki Vegagerðarinnar potað að gagni vegna þess að smugan, síðasta vígi minksins, var óbein. Af herkænsku sinni, sem mörgum er meðfædd og eflist hjá flestum í raun, sáu ferða- menn, að ef grjóti væri fast skotið, myndi úr því geta kvarn ast og drepið kvikindið. Þetta var rétt reiknað og leiddi tím- inn það í ljós. Hófst enn skot- hríð grjóts, mikil og látlaus í allt að 15 mínútur. Þeir félagar töldu nú dýrið dautt orðið og gættu náið að. Brá þeim í brún er djöfsi, í líki þessa harðsvír- aða minks, kom á móti þeim með hávaðaöskrum og blástri, sem gekk þeim gegnum merg og bein. Var nú lokasprettux-inn svíkja engan, og ekki eru þau unnin í ábataskyni. Við, sveitakonumar, sendum henni hlýjar kveðjur og árnað- aróskir í tilefni af sjötugsafmæl- inu, og þökkum greiðasemi hennar og glaðværðina — og, hve góð hún var við börnin okk- ar. G. B. eftir. Hann fólst í því að kasta enn meira grjóti um stund, og það dugði. Frækilegur sigur var unninn. Uppi stóðu að síðustu tveir þreyttir menn. Annar þeirra gat ekki lyft kaffibolla, er hann litlu síðar fékk sér til hressingar. Hinn hefur rokið upp við minkaöskrin í draum- um. Útskotsmerkið settu þeir á sinn stað, óbrotið. Skottinu fram vísuðu þeir félagar réttum yfir- völdum og hirtu verðlaun sín. Skrifað eftir frásögn minka- bananna, sem lýstu viðureign- inni á mjög sannfærandi hátt, með viðeigandi stökkum, sveifl- um og öskrum, þar sem annar lék mink en hinn mann, af diúpri innlifun. □ - Sjóðandi hiti (Framh. af bls. 1). borað í bæjarlandinu, þar sem yfirborðshiti væri enginn. Hann taldi n(inni hita«i jörðu hér á Akureyri en berglög harðari og hagstæðari en á Húsavík. Blaðið hringdi einnig til fréttaritara síns á Húsavík, Þar- móðs Jónssonar. Sagði hann eitt hvað á þessa leið: Þegar búið var að bora um stund, tóku vísur að heyrast um þetta verk og teikningar voru gerðar. Áttu starfsmenn Norð- urlandsborsins sinn þátt í þess- ari gamansemi. Á einni teikn- ingunni gefur að líta bæjar- stjóra Húsavíkur, Áskel Einars- son, sem ávarpar Húsavíkur- Jón og heitir á hann að duga Húsvíkingum og láta þá hafa heitt vatn. Möi'gum bei'glögum neðar sézt hvar Húsavíkui'-Jón tekur um odd borsins og sveigir hann frá feikna miklum potti. í pottinum sýður vatn. Húsavík ur-Jón er hinn þverasti og tím- ir ekki að sjá af nokkrum dropa til Húsvíkinga, enda er hann Strandamaður en ekki Þingey- ingur. □ Siðasta minkasagan SMÁTT OG STÓRT ÞEGAR FORSÆTISRÁÐ- HERRANN NÁÐI EKKI FLUGTAKINU „Þau hin miklu mál, sem rík- isstjórnin hefur verið að fjalla um að undanfömu, þ. e. a. s. efnahagsleg viðreisn þjóðarinn- ar, hafa gripið svo hug minn all ann og liggja mér svo þungt á hjarta, að ég GET EKKI NÁÐ FLUGTAKINU, ekki lyft mér yfir þau og valið mér annað ef til vill ýmsum hugþekkara um- ræðuefni á þessari hátíðlegu stund.“ Þetta er upphaf ræðu, sem flutt var í ríkisútvarpinu fyrir nál. 3 árum og 3 mánuðuni. Hin „hátíðlega stund“ var gamlárs- kvöld 1959. Ræðumaður, Ólafur Thors, þá nýbakaður forsætis- ráðherra í fyrstu ríkisstjórninni, sem mynduð var eftir kjördæma byltinguna. 59 SPARNAÐARFYRIRHEIT Þarna var um tímamót að ræða á fleiri sviðum en einu. í Arnarhvoli sat um þessar mund ir nýr fjármálaráðherra, önnum kafinn við að undirbúa þá „þjóð lífsbreytingu“, sem hann boðaði opinberlega þennan sama vet- ur. Þá og síðar komu svo 59 fyrirheit um sparnað á ríkisfé o. fl. Þau voru eins og þar segir: Stutt gaman og skemmíilegt, og efndir eins og til stóð. HETJUTENORINN Það leyndi sér ekki, að for- sætisráðherrann, sem talaði í út- varpið á gamlárskvöld 1959, var rnikið niðri fyrir. Og það var svo sem ekkert undarlegt um sjálfan hetjutenorinn í liinni nýju þjóðlífsbreytingaróperu. Á hyggjurnar út af þjóðarhag voru svo yfirþyrmandi, að sál hans, svo léttfleyg sem hún ann ars átti að vera, náði ekki „flug- takinu“ og varð að halda sig við jörðina. „..DÝPRA OG DÝPRA I FEIGÐARFENIГ Áhyggjum sínum lýsti for- sætisráðherrann m. a. á þessa leið: „Undanfarin 5 ár hafa ís- lendingar eytt 1000 millj. króna meira en þeir öfluðu og greitt þennan halla á búskapnum með erlendum lánum . . . .“ Vextir og afborganir af erl. lánum eru „meir en tvöfalt við það há- mark, sem Ieyfilegt þykir .... Af þeim leiðir, að engin þeirra lánastofnana, sem gegna því höf uðhlutverki að lána þjóðum eins og okkur þegar örðugleikar steðja að . . . er ekki lengur heimilt að lána íslendingum, hvorki til langs eða skemmri tíma, nema við komum efnahags málum okkar á annan og traust ari grundvöll, þ. e. breytiun um stefnu . . . Mun á næsta ári verða lxalli á ríkis- og útflutn- ingssjóði, sem nemur livorki meira né minna en 250 millj. kr. . . . Verði ekki breytt urn stefnu, verður okkur sá einn kostur nauðugur að afla þess fjár með nýjum álögum á al- menning . . . .“ Stórfé „höfum við notað til kaupa á Iiátollavörum, sem mest eru hreinn óþarfi — lux- us . . . .“ Ef áfram verður hald- ið „án stefnubreytingar“, HÆKKA SKATTAR OG VÍSI- TALA „OG SÉR ÞÓ EKKI FYRIR ENDA ÓGÆFUNNAR IIELDUR SÖKKVUM VIÐ DÝPRA OG DÝPRA í FEIGÐ- ARFENIГ. Þetta mælti hann o. fl. af sama tagi. ÁHRIFARÍK SVIÐSETNING í fyrsta Reykjavíkurbréfi ðlorgunbk, sem út kom eftir umrædd áramót, var svo haldið áfram að sctja hina tilvonandi „viðreisn“ á svið. Til þess að gera þá sviðsetningu áhrifaríka, var þar birt æviágrip stjórn- málasögu Winstons Churcliills frá stríðsárunum. Vitnað var í hin frægu orð lians, er hann mælti til þjóðarinnar í upphafi orrustunnar um England: Ég hef ekkert. að bjóða annað en erfiði og svita, blóð og tár. íslenzku þjóðinni var ætlað að skilja, að einnig hún hefði nú eignazt sinn sigursæla leið- toga á hættunnar stund! En sá er munurinn, að blóðið og tárin, sem Churchill talaði um, voru raunveruleg og Bret- land í lífshættu. En hættumerk- in, sem Ólafur Thors setti upp á gamlárskvöld 1959, áttu litla stoð í veruleikanum. Þar var farið með ýkjur í áróðursskyni. Það kom fram siðar, að ekki vantaði 250 millj. kr. í ríkissjóð og útflutningssjóð, heldur lægri uppliæð, en þó svo liefði verið, sýnist víst engum það miklar álögur nú, cftir tvöfalda gengis fellingu og hækkun fjárlaga um meira en milljarð í stað við- reisnar. FRAMKVÆMDALÁN Fjámiálaráðherrann frá 1958 hefur lýst því yfir opinberlega, að þá hafi ísland haft góða möguleika til að taka lán er- lendis, og ólíklegt er að Emils- stjórnin hafi eyðilagt þá mögu- leika á því eina ári, sem hún var við völd. Það var fjarstæða að kalla erlendu lánin, sem tekin höfðu verið undanfarin ár, „eyðslu“. Þetta voru framkvæmdalán, er tekin voru til að virkja Sogið, byggja Sementsverksmiðjuna, kaupa skip og flugvélar o. s. frv. Það vita menn líka, að verð- bólguvandamálið, eins og það var í árslok 1958, lireyttist til muna á Emils-árinu, þegar tekin var til baka mikill hluti þeirrar kauphækkunar, sem andstæð- ingar vinstri stjómarinnar beittu sér fyrir, rétt ofan í liina lögboðnu kauphækkun vorið 1958. Það er rétt, að hátollavörur voru keyptar inn í landið fyrir viðreisn. En ekki liefur innflutn ingur þeirra minnkað síðan. „Feigðarfenið“, sem Ólafur Thors þóttist .sjá framundan, var heilaspuni, til þess fram sett ur að sætta menn við ráðagerð- ir ríkisstjórnarinnar. Það er hægt að gera sér í liug- (Framhald á bls. 7)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.