Dagur - 10.04.1963, Blaðsíða 8

Dagur - 10.04.1963, Blaðsíða 8
8 Þeir gera hreint fyrir sínum dyrum aður en verzlunin byrjar: F. v. Guðmundur Ólafsson 1 Herra- deildinni, Karl Sigfússon í Járn- og glervörudejld^g Paníd foistinssMi^Nýlen^uvö^dejld KEA^I: „Vegirnir eru að detta niður” SAMKVÆMT umsögn Guð- mundar Benediktssonar yfir- vegaverkstjóra í gæi', eru allir vegir í Eyjafjarðarsýslu og S.- Þingeyjarsýslu nú mjög veikir og víða farnir að grafast upp. Og ])ungatakmörk vöruflutningabif- reiga miðast við 5 tonna öxul- þunga í Eyjafjarðarsýslu og 4 tonna öxulþunga í S.-Þingeyjar- sýslu. Ýmsir vegir eru alls ófærir fólksbifreiðum, svo sem Dalvík- urvegur og vegurinn frá Akur- eyri til Húsavíkur. Guðmundur tók sérstaklega fram, að nauðsynlegt væri að settum reglum um hámarks- þunga bifreiða og vegabönnum væri hlýtt og að allir þyrftu að vera samtaka um að fresta þeim þungaflutningum á landi, sem mögulegt væri, þar til vegir breyttust til hins betra — og kemur blaðið þessum ábending- um hans hér með á framfæri. Nú, eins og ætíð á vorin tog- Peir skjóta liákarlinn með haglabyssu Vopnafirði 9. apríl. Fimm bátar leggja hákarlalínu og hafa feng- ið sæmilega veiði, mest stór- an hákarl. Lifrin er sett í tunn- ur og fæst lítið verð fyrir hana. En hákarlinn sjálfur er nú aðal- verðmætið og er hann verkaður að gömlum og góðum sið og fá sjómenn 50—60 krónur fyrir kílóið. Vænn hákarl leggur sig á 5—6 þúsund krónur, fyrir utan lifrina. Sjómenn skjóta hákarl- inn með haglabyssu, um leið og .hann kemur upp á yfirborðið, er línan er dregin, í stað þess að nota hákarlaskálmina. í byggingu er stór mjöl- geymsla við síldarverksmiðjuna, og töluverð byggingarvinna önnur hér í þorpinu, svo sem ný mjólkurstöð, sem væntan- lega tekur til starfa í sumar og er nú tilbúin undir tréverk. Nokkrar trillur róa til fiskjar með færi, en afla lítið ennþá. ast flutningaþörfin á við vernd- un veganna. Ýmsan flutning er ekki hægt að stöðva, svo sem mjólkurflutninga. Megn óá- nægja hefur ríkt undanfarin ár vegna þess hve slælegt eftirlit hefur verið með því, að settum reglum sé fylgt og sektai'ákvæði hlægilega lág. Hér er verkefni fyrir vegalög regluna, og ætti hún að láta sjá sig hér fyrir norðan á þeim árs- tíma, sem nú fer í hönd. Það er óþolandi ástand að settar regl- ur séu þverbrotnar ár eftir ár til stórkostlegs skaða fyrir heild ina, svo sem verið hefur fyrir- farandi í þessum málum. □ r Sumaráætlun Flugíélags Islands SVEINN SÆMUNDSSON, blaðafulltrúi F. hafði fund með blaðamönnum á Akúreyri í gær og gaf upplýsingar um ýmsar nýjungar í sumarstarfsemi F. í. í sambandi við utan- landsflugáætlun, sem hefst 1. maí n. k. Sumaráætlun innanlandsflugs gengur í gildi um næstu mánaða mót. í höfuðdráttum er ferðum hagað með svipuðum hætti og sl. sumar. Það nýmæli er, að teknar verða upp hringferðir, þ. e. frá Reykjavík til ísafjarðar, Akur- eyrar, Egilsstaða, Hornafjarðar, Fagurhólsmýrar í Öræfum og þaðan til Reykjavíkur. Frá 1. júní til 1. sept. verður farmiði allan hringinn fáanlegur fyrir kr. 2000.00. Þá verða hin vinsælu sumai'- fargjöld, sem fyrst voru tekin upp í fyrrasumar, til sölu á nokkrum flugleiðum, þar sem hægt er að nota stórar og af- kastamiklar flugvélar að stað- aldri. Sumarfargjöldin ganga í gildi 1. júní og gilda til 30. sept. á leiðunum Reykjavík — Akur- Tilbúinn áburður hækkar í verði í BLÖÐUM hefur mátt sjá frétt ir um verðlækkun tilbúins á- burðar (Morgunbl. sl. miðviku- dag). En þetta er því miður röng frétt, því að í fréttatilkynn ingu frá sjálfri Áburðarverk- smiðjunni, segir að meginhluti áburðarins, þ. e. allur köfnunar- efnisáburðurinn, bæði innlend- ur og útlendur, hækki um 160 krónur hver smálest, eða um 6%. □ eýri — Egilsstaðir og Akureyri — Egilsstaðir. Eftirtaldir viðkomustaðir verða í sumaráætlun Flugfélags íslands í sumar: Reykjavík, Ak- ureyri, Kópasker, Þórshöfn, Sauðárkr., Húsavík, ísafjörð- (Framhald á blaðsíðu 2). ROLLA sú hin mikla, sem Verkamaðurinn birti 22. marz sl. um stjórnmálaflokka hér á landi, er athyglisverð fyrir sál- fræðinga, og þó sérstaklega kafl inn um „Alþýðubandalagið11. Hér er um að ræða það, sem kalla mætti „eintal sálarinnar", og ritstjórinn er þar að reyna að sannfæra sjálfan sig um það, sem hann á erfitt með að trúa. Honum er það að vonum mik- ið áhyggj uefni, að „launþegar“ hafa, eins og hann segir orðrétt, „ekki þorað að styðja Alþýðu- bandalagið af því að þeir hafa ekki þolað að heyra sjálfa sig nefnda kommúnista“. En nú ætl ar hann að reyna að hressa upp á hugrekkið hjá „launþegum“ og hjá sjálfum sér um leið. Rödd samvizkunnar. Sálarstríð ritstjórans birtist þarna í viðtali, sem hann lætur eiga sér stað milli útlendings, sem bersýnilega er rödd sam- vizkunnar og Alþýðubandalags- manns á íslandi, sem er hin sef- andi rödd skyldunnar við flokks línuna að sunnan. Þetta er ein- kennileg og dálítið brosleg við- ureign, þar sem höf. tekst með erfiðismunum að láta samvizk- una (útlendinginn) lúta í lægra haldi. Sýnishorn. Sýnishorn: „....Næst spyr hann (þ. e. útlendingurinn = samvizkan) eftir kommúnistá- flokknum. Ja, við höfum nú eig- inlega engan kommúnistaflokk, svarar heimamaður. Enn fær sá útlendi (samvizkan) að heyra fréttir. Hann hafði heyrt það löngu áður en hann fór til ís- lands, að þar væri mjög öflugur kommúnistaflokkur, einhver sá öflugasti vestan járntjalds. Og svo segir sá útlenzki fræðari, að hér sé engan kommúnista- flokk að finna. Sá útlenzki (sam vizkan) lætur í ljós efasemdir Þeir ræðast við a bæjarhlaði. (Ljosmynd: K. S.) um, að rétt sé frá skýrt. Já, seg- ir íslendingurinn. Kommúnista- flokk höfum við engan, en samt talsvert af kommúnistum, sem styðja flokk, sem kallast Alþýðu bandalag.“ Á milli línanna í framanskráð um línum Verkamannsins læð- ist sýnilega að ritstjóranum sú grunsemd, að þetta sé raunar ekki alveg svona, að það sé Al- þýðubandalagið, sem styðji kommúnistana, en ekki komm- únistar, sem styðji Alþýðubanda lagið! Hann veit um hlutfallið 7.5 : 2.5 í þingliði bandalagsins. Hann veit, að Einar Olgeirsson, form. Sósíalistaflokksins, sem ræður bandalaginu og formaður þingflokks „bandalagsins", Lúð- vík Jósefsson, voru eitt sinn í kjöri fyrir Kommúnistaflokk ís- lands, eins og það var orðað í verkalýðsblaðinu og hafa ekki einu sinni afneitað Stalin enn- þá(!) svo að kunnugt sé. Rit- stjóri Verkamannsins veit líka, að báðir ritstjórar Þjóðviljans lúta boði Einars Olgeirssonar, samanber vitnisburð Arnórs Hannibalssonar o. s. frv. Og svo hefur hann lesið það, sem Jó- hannes úr Kötlum segir um Al- þýðubandalagið og allt ástand á þeim bæ, þar sem hver og einn hótar „að kjósa sjálfan sig og engan ella“, eins og skáldið komst að orði. Annað sýnishorn. Svo er hér annað sýnishorn úr Verkamannsgreininni: „. .. . Útlendingurinn (áamvizkan) dregur í efa, að það eigi sér stað nokkurs staðar annars staðar á jarðkúlunni, að kommúnistar og sósíaldemókratar (þ. e. Hanni- bal) séu í einum og sama flokki. En sá íslenzki getur bent honum á, að þetta eigi sér víðar stað og bendir á Lýðveldisbandalagið í Finnlandi. . ..“. Það var lélegt haldreipi. Já, það var ekki ónýtt að benda á „Lýðræðisbandalagið“ í Finnlandi. Formaður þess er Hertha Kuusinen, dóttir manns- ins, sem sveik þjóð sína þegar rússneski herinn, undir stjórn Stalins, réðist á Finnland haust ið 1939. Þetta góða „lýðveldis- bandalag“ skortir víst ekki stuðning frá yfirþjóðinni austan við landamærin. Rúsínan í pylsuendanum. Svo er það rúsínan í pylsu- endanum: Að Þjóðvarnarmenn hafi fyrrum „afneitað kommún- (Framhald á blaðsíðu 2). Bjargfuglinn kominn Grímsey 6. marz. Bjargfuglinn er kominn fyrir nokkru og er þá sem nýtt líf færist í köld og veðruð björgin. Tún eru farin að grænka og snjór er hvergi sjáanlegur í eyjunni. Fiskaflinn er misjafn, en þó stundum mjög sæmilegur. Hér hafa allir nóg að starfa og sjálf- sagt vantar hingað fólk þegar fram á sumarið kemur. □ SMÁTT OG STÓRT

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.