Dagur - 08.08.1963, Blaðsíða 8

Dagur - 08.08.1963, Blaðsíða 8
8 TVÖ SÍLDARSKIP SUKKU TVÖ síldarskip fórust við Aust- urland 30. júlí. Það voru Snæ- fugl SU 20 og Fróðaklettur GK 250. Mannbjörg varð á báð- um skipum. Snæfugl var 79 tonna eikar- bátur, sænskur. Sagt er, að hann hafi verið smíðaður eftir sömu teikningu og Borgey, Hamar, Bergur og Erlingur IV., sem allir hafa farizt „með svip- legum hætti“. Snæfugl var með 700 tunnur af síld og staddur 7.5 mílur út af Skruð er hann lagðist á hliðina og sökk á skammri stund. Veður var hvasst. Fróðaklettur var 250 tonna skip og sigldi Ægir á hann í svarta þoku, 20 mílur út af Dalatanga. Tilraun Ægis að draga Fróðaklett til lands heppnaðist ekki. Eins og áður segir varð ekki manntjón. □ Hinn myndarlegi hópur bindindismanna við brottför sína frá Akureyri. Myndin tekin við flug- stöðina. (Ljósm. E. D.) Ólík viðliorf í byggingamálum NORRÆNT húsnæðismálaþing var háð í Reykjavík fyrri hluta júlímánaðar. — Þar sem hús- næðismálin eru jafnan ofarlega á baugi hjá þeim þjóðum, sem ekki geta, af veðurfarsástæðum, komizt af með stráhús eða lauf- krónur, þykir rétt að benda á nokkur atriði, sem fram komu á þingi þessu. Svíar veita íbúðabyggjendum 85—100% ríkislán af áætluðum byggingarkostnaði. Lánin eru veitt til 40 ára og allt til 60 ára og vextir frá 1958 hafa verið 3.5%. En að sjálfsögðu eru íbúð- ir þær, sem ríkislánin eru veitt út ó, miðaðar við húsnæðisþörf en ekki lúxus. Og þar í landi er byggingatæknin notuð í þjón- ustu landsmanna. Hér á landi fer það að nálgast kraftaverk, ef fólk með venju- legar tekjur eignast þak yfir höfuðið. Hér eru hámarkslán húsnæðismálastjórnar aðeins 150 þús. krónur út á hvei’ja ibúð. En það svarar til þess að mæta hækkunum þeim, sem orðið hafa í byggingakostnaði síðustu árin. Meiri er aðstoðin ekki hér. Lánstími og vextir af þessu litla láni, þolir heldur engan samanburð við það, sem tíðkast hjá nágrannaþjóðum og dæmi var tekið af hér að fram- an, frá Svíþjóð. Má um þetta segja, að ólík viðhorf séu til húsnæðismál- anna. Og því miður hefur nú- verandi ríkisstjórn lýst því yfir, að hún telji viðunandi séð fyrir húsnæðismálum fólks með um- ræddu 150 þús. kr. láni. Um stefnu hennar verður því ekki villzt, svo mjög sem þörfin er þó fyrir aðstoð við hina mörgu, sem árlega stofna heimili. Q Enclurreisn Skálholtsstaðar SUNNUDAGURINN 21. júlí var mikill viðhafnardagur í Skálholti. Þá var ný Skálholts- kirkja vígð. Þar var fjölmenni mikið, sem eflaust vitnar um áhuga almennings á því, að hinn fornfrægi staður verði vettvangur mikils og lieillaríks starfs og að þar verði á ný bæði menntasetur, dómkirkja og biskupsbústaður. Þjóðin hefur lagt fram mikla fjáz-muni til uppbyggingar á staðnum. Erlendir aðilar hafa gefið dýrmætar gjafir. Alþingi og ríkisstjórn hefur afhent þjóð- kirkjunni Skálholtsstað, ásamt rausnarlegri meðgjöf. Kirkj.uráð samþykkti fyrr á þessu ái'i þá ályktun, að fi’um- skilyrði endurreisnar í Skál- holti sé, að þar verði kirkjuleg miðstöð. Þar verði komið upp lýðháskóla og menntaskóla og prestaskóla, enn fremur sumar- búðum fyrir böi'n og unglinga og þjálfunaraðstaða fyrir æsku- lýðsleiðtoga og að endurreistur verði biskupsstóll í Skálholti. Q SUNNUDAGINN 28. júlí héldu Eyfirðingar „bændadag" sinn, hinn sjötta í röðinni og að þessu sinni að Laugarborg — hátíð- legan —. Hinn stóri og mynd- arlegi samkomusalur félags- heimilisins var fullskipaður fólki, bæði bændum og ung- mennafélögum. En Búnaðar- samband Eyjafjarðar og Ung- mennasamband Eyjafjarðar hafa jafnan staðið fyrir þessum hátíðahöldum í sameiningu. Hátíðasöldin hófust með guðs þjónustu. Séra Benjamín Krist- jánsson flutti stutta predikun, en frú Sigríður Schiöth stjórn- aði söng. Ásgeir Bjarnason, al- þingismaður, og Ái-mann Dal- mannsson, foz-m. Búnaðarsam- bandsins, fluttu ræður. Þrótt- mikill og fjölmennur bændakór söng undir stjórn frú Sigi'íðar Schiöth, og hefur hann ekki áð- ur sungið opinbei'lega. Karl Guðmundsson las upp smásögu og flutti skemmtiþætti og Kz-istján Kristjánsson sýndi sjónhverfingar. Að þessum at- riðum loknum fóru fram íþrótt- ir undir berum himni og um kvöldið var dansað. Þóroddur Jóhannsson for- maður U. M. S. E. stjórnaði sam komunni, er fór hið bezta fram. LÁTLAUS SÖLTUN Raufarhöfn 7. ágúrt. Hér hefur verið látlaus síldarsöltun síðan á sunnudag og útlit fyrir enn meiri söltun því að hingað eru alltaf að koma skip. En það vantar fólk síðan hálfsmánaðar uppihald varð og fólk fór héð- an. Búið var að salta um 60 þús. tunnur í gærmorgun. Það er svipað og í fyrra. 100 þús. mál eru komin í bræðslu í stað 250 þús. í fyiTa á sama tíma. Síldin hefur fært sig heldur norðar og mikið af henni er mjög gott. Um 40 m. kantur nýju hafn- argerðarinnar hefur verið tek- inn í notkun. K JÖRDÆMISÞING KJÖRDÆMISÞING FramsóknarféLganna í Norðurlandskjör- dæmi eystra, verður haldið að Laugum daganna 31. ágúst og 1. sept. og hefst klukkan 15.00 fyrri daginn. Nánar auglýst síðar. Minjasafnið á Akureyri opnað Munir þess eru um 2000 og þeira vel fyrir komið í Kirkjuhvoli SDMARMÓT FRAMSÓKNARFÉLAGANNA í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA ÞÓRSHÖFN laugardaginn 10. ágúst klukkan 9. Ræðu flytur Gísli Guðmundsson. Ásamir og Saga skemmta. Aðalfundur F. U. F. við Þistilfjörð verður haldinn á undan skemmtuninni og hefst klukkan 16.00 HINN 17. júlí var Minjasafnið á Akureyri, sem áður var kall- að Norðlenzka byggðasafnið, opnað með viðhöfn, almenningi til afnota. Klukkan tv'ö þann dag var margt boðsgesta í safn- inu og flutti þá formaður safn- stjórnarinnar, Jónas Kristjáns- son, ræðu um minjasafnið, til- DALVÍK laugardaginn 10. ágúst klukkan 9. Ræður flytja Ingvar Gíslason og Jón Skaftason. Skemmtiatriði: Ámi Jónsson óperu- söngvari og Jón Gunnlaugsson flytur skemmtiþátt. Gautar leika fyrir dansi. SKÚLAGARÐUR laugardaginn 17. ágúst klukkan 9. Ræður flytja Gísli Guðmunsson og Helgi Bergs. Til skemmtunar: Róbert og Rúrik, Ólafur Þ. Jónsson ópemsöngvari. Gautar leika. FREYVANGUR sunnudaginn 18. ágúst klukkan 9. Ræður flytja Ingvar Gíslason og Helgi Bergs. Róbert og Rúrik, Ólafur Þ. Jónsson óperusöngvari skemmta. Gautar leika. Jónas Kristjánsson formaður Minjasafnsins opnaði safnið með ræðu. drög þess og fyrirkomulag. Síð- an ávarpaði þjóðminjavörður, dr. Kristján Eldjárn viðstadda og flutti kveðjur frá Þjóðminja- safni íslands, sem varð 100 ára fyrr á þessu ári. Síðan var safnið skoðað en að því loknu bauð safnstjómin viðstöddum til kaffidrykkju á Hótel KEA. Þar voru ræður fluttar og ám- aðaróskir. Hér verða nú rakin nokkzir atriði um hið nýja safn á Akzxr- eyri, samkvæmt upplýsingum formanns við þetta tækifærL Það voru þeir Þórarinn Eld- járn á Tjörn og Eiður Guð- mundsson á Þúfnavöllum, sem fyz'stir fluttu opinbez'lega þetta mál, árið 1949, bæði á aðalfundi Mjólkursamlags KEA og sz'ðan á aðalfundi KEA. Málið fékk góðar undirtektir og jákvæðar ályktanir voru sanzþykktar. Árið 1951 fékk KEA mjög hæfan og áhugasaman mann, Snorra Sigfússon námsstjóra, til að ferðast um héraðið og skipu- leggja söfnunarstarfið. Næstu árin fez-ðaðist hann, ásamt Helga Eiz-íkssyni bónda á Þóru- stöðum og Ragnari Ásgeirssyni, ráðunaut, og safnaði munum. Þeim varð vel til fanga fyrir væntanlegt safn. Safnmunir voru síðan geymdir á Akureyri á ýmsum stöðum, en voru skrá- settir að nokkru. Árið 1962 var (Framhald á blaðsíðu 5.) Dr. Kristján Eldjám þjóðminja- vörðurflutti ræðuvið opnimina. I

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.