Dagur - 26.10.1963, Page 8

Dagur - 26.10.1963, Page 8
8 um fauk járn af fjárhúsi og þar brotnaði einnig steyptur vegg- ur. Á Skútustöðum tók mikið járn og langbönd, af fjárhúsi og hlöðu. í Neslöredþm- fauk fjár- húsþak. Víða fauk eitthvað af heyjum. Á Arnarvatni brast ný steyptur fjárhúsveggur. Brúin fauk. í Laxárdal fauk brú, sem átti að setja á Laxá skammt frá Kasthvammi. Brú þessi var gömul, ættuð úr Axarfirði. Bú- ið var að reisa turn, til að lyfta brúnni upp og setja hana yfir ána. En brúin fauk á turninn og lagði hann saman. skemmdar. Víða fuku hey. Á Langanesströnd fauk hlaða á Hölkná, nýbyggð, þakið alveg og veggir að nokkru. í Hvammi fór stafn úr hlöðu o. s. frv. Símastaurar brotnuðu þótt ekki væri ísing og er það algert einsdæmi, enda var veður þetta ægilegt og mesta aflveður, sem menn muna. Menn lentu í hvassviðrinu í eftirleit. Á heiðavatni einu var nokkuð þykkur ís að morgni. Um kvöldið hafði ísinn látið undan rokinu og hrannazt í tveggja metra háa bólstra við enda vatnsins. Mótorbáturinn Þorvaldur brotnaði á Grenivíkurfjöru. (Ljósm. Magnús frá Skógum). Fárviðrið mikla á Norðurlandi (Framh. af bls. 1) sem var mest kl. 10—12 á mið- vikudagskvöldið. Tvær trillur slitnuðu upp og eru þær eitthvað skemmdar, og sú þriðja sökk á legunni og hafði hún ekki náðst upp síð- degis á fimmtudag. Þá fauk verkfæraskúr og sleit raflínur, svo að rafmagnslaust varð í suðurhluta þorpsins. — Girðingar fuku og hey, og rúð- ur brotnuðu í húsum. Járn fauk alveg af einu íbúð- arhúsi og töluvert af öðru. Allt var á tjá og tundri. Á skrifstofu kaupfélagsins var ljót aðkoma á fimmtudagsmorguninn. Stór rúða hafði brotnað og álíka um- horfs og þar hefði sprengja fall- ið. Járn fauk af húsum. Á Kópaskeri gerði sunnan rok, sem síðan snerist í vestan ofsaveður. Járn fauk af annarri hlið þaks ins á nýja barnaskólahúsinu í Lundi í Axarfirði. Hús þetta var um það bil fokhelt. Járnplötur fuku af þaki íbúðarhúss á Hóli í Kelduhverfi og af fjárhúsþaki í Skógum. Ennfremur fauk eitt- hvað af þakjárni á hlöðu á Reist arnesi á Sléttu. Heyin ultu um koll. Bílstjói'i, sem ók um Keldu- hverfi morguninn eftir hvass- viðrið sagði, að tvö af hverjum Biðlað til Aljiýðii- bandalagsins ORÐRÓMUR er á kreiki um það í Reykjavík, að í þreng- ingum sínum hafi ríkisstjórn- in ákveðið að leita stuðnings Alþýðubandalagsins. Mun Ólafur Thors íorsætis- .ráðherra hafa tekið að sér að kanna það mál og bera upp bónorðið. Og víst er, að hann situr löngurn stundum á fund- um með Einari Olgeirssyni og í öðru lagi með Hannibal. Ó- líklegt þykir, að forsætisráð- herra bjóði minna en tvo ráð- herrastóla. Alþýðubandalags- menn eru mjög hikandi og vita, að kaupbindingin er efst á blaði á óskalista stjómar- innar um þessar mundir. □ þrem heyjum þar í sveit væru að meira eða minna leyti fokin eða oltin um koll. Hafa því hey- skaðar orðið miklir þar í sveit. Skúr, sem hvarf. Verkfæraskúr, sem þeir Haga menn á Akureyri höfðu reist á Kópaskeri, hvarf í rokinu, en mest af verkfærunum fannst skammt frá þeim stað, er skúr- inn stóð. Unnur dró iegi í. Tíu tonna pátu Jnnur, sem lá við Hrísey, dró legi -in, en fór ekki upp. Af þaki frystihúss- ins fuku 10 járnplötur. Aðrar teljandi skemmdir urðu ekki þrátt fyrir versta veður. Hvasst í Sölvadal. f Sölvadal var veðurhæð mik il. Þriðjungur þaks á nýlegri, stórri heyhlöðu á Draflastöðum fauk. Ennfremur skemmdist heyhlaða á Eyvindarstöðum. Skemmdir á Stafni í Reykjadal. í Revkjadal í S.-Þingeyjar- sýslu urðu töluverð tjón. í Stafni fuku járnplötur af tveim húsum, að Verulegu leyti, og hey fauk þar einnig. Þar fauk líka heyvagn á jeppa og skemmdist jeppinn og gamall skúr fauk. Á Öndólfsstöðum fauk helmingur af þaki hey- hlöðu og heyvagn fauk og eyði- lagðist. Ennfremur fauk nokk- uð af þakjárni af barnaskólan- um nýja á Litlu-Laugum. Víða varð eitthvert tjón af völdum hins mikla veðurs, þótt ekki væri í stórum stíl. Á Mývatns- heiði var Akureyrarbíll á ferð og fauk hann út af vegir.um. Ekki meiddist ökumaðurinn, sem var einn, né heldur laskað- ist ökutækið svo teljandi væri. Blásið í brunalúðra. Á Húsavík var blásið í bruna lúðra óveðurskvöldið. Eldurinn var í verbúð við höfnina og brann hún, en útbreiðslu elds- ins tókst að hefta þótt hvasst væri. Öðru hverju var raf- magnslaust á Húsavík þetta kvöld og fór rafmagnið af, rétt eftir að brunalúðrar voru þeytt ir. En þeir ganga fyrir raf- magni. Var því heppni með, að hægt væri að nota þá við útkall slökkviliðsins. Fáum dögum fyrr, eða á mánudagskvöldið, kviknaði í búð í verzlunarhúsi KÞ, 4. hæð. Skemmdir urðu, einkum af reyk og vatni. Talið er að kviknað hafi í út frá raf- magni. Veðrið tók trillubát og sjóliús. Á Rauðuvík á Árskógsströnd tók rokið sjóhús, svo ekkert sást eftir, ennfremur fauk lítill trillubátur og er hann ónýtur. Skemmdir urðu á fjárhúsþaki þar og einnig í Syðri-Haga. Hey fauk í Stærra-Árskógi. Þá vildi það til óveðursdag- inn, að kviknaði í nýbýlinu Sól- vangi við Þorvaldsdalsá. Eng- inn var heima er þetta gerðist. Kviknað hafði út frá rafmagns- saumavél. Slökkviliðið frá Dal- vík kom á vettvang. Tjón varð ekki mikið af eldi, en töluvert mikið af reyk og kolsýringi. Ofsaveður í Mývatnssveit. Á flestum bæjum í Mývatns- sveit urðu einhver tjón af því voðaveðri, sem þar gekk yfir. í Vogum fauk helmingur af hlöðuþaki og steyptur veggur sömu hlöðu lirundi. Á Hofsslöð- 300 járnplötur fuku. Af síldarverksmiðjunni í Vopnafirði fuku 300 plötur. Ekki flugu þær þó á sjó út, en féllu til jarðar örskammt frá, beyglaðar og rifnar. Eitthvað fauk á flestum bæjum. Eitthvað fauk, næstum á hverjum bæ, sagði fréttaritari Dags á Gunnarsstöðum. Þak fauk af nýbyggðu íbúðarhúsi í Flögu, verkfærageymsla fauk á Óslandi og Tunguseli. Og gam- alt geymsluhús fauk á Þórs- höfn, að mestu leyti — þakið fór fyrst í heilu lagi. Tvær trillur sukku á höfninni í Þórs- höfn, en þeim var náð upp í gær, lítt eða ekki skemmdum, nema að vélarnar eru auðvitað ALLT BAR UPP A SAMA DAGINN ÞANN DAG töpuðu Akureyr- ingar fyrir Keflvíkingum í bik arkeppni KSÍ. Þann tlag var priggja-banclalaga-keppni háð — þ. e. UMSE, ÍBA og ÍBK. Þetta var hin árlega frjáls- íþróttakeppni nefndra aðila. Akureyringar lögðu til einn keppanda — aðeins einn —. Þann dag birti „blað allra landsmanna“, Morgunblaðiðý myndir af nýja vínbarnum í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri. Vínútsölum fjölgar, drykkju- skapur vex — og íþróttirnar í öldudal. □ Véið- og búsáhaldadeild K. E. Á. í nýju húsnæði í Glerárgöfu ÞANN 23. október sl. opnaði Véla- og búsáhaldadeild KEA sérstaka verzlun í Glerárgötu 36, þar sem seldir eru allir vara hlutir í bifreiðar og landbúnað- arvélar, sem fram til þessa hafa verið seldir í kjallai'a deildar- innar í Hafnarstræti 93. Verzl- unin er á annarri liæð húss þess er KEA er að reisa fyrir Bygg- ingavörudeild sína. Húsakynni eru þar mjög björt og rúmgóð og veita stóraukna möguleika til bættrar þjónustu. Rúmgott bílastæði er fyrir framan verzlunina. Afgreiðslumenn eru 2: Þór- gnýr Þórhallsson, sem er verzl- unarstjóri, og Sigurður Frið- steinsson. Símanúmer verzlunarinnar er 2997, og á næstunni fæst einnig samband við þessa deild í gegnum aðalsíma kaupfélags- ins: 1700. □ Guðmundur Jónsson og Gunn ar Eyjólfsson skemmta á veg- um Æskulýðsfélags Akureyr- arkirkju á morgun, sunnudag, í Borgarbíói. Þessar, því miður of mis- stóru myndir, eru af þehn Guðmundi og Gunnari.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.