Dagur - 30.10.1963, Qupperneq 8
8
A tamninganámskeiði hjá Hestamannafélaginn Þjálfa í sumar voru yfir 30 hross og árangur talinn
góður. Tamningamaður var Einar Höskuldsson frá Vatnshorni í Skorradal. Hér á myndinni, sem
Matthías O. Gestsson tók, er Einar tamningamaður á Iðu, fjörmiklum gæðingi, sem hann á sjálf-
ur. Hún ei af hestakyni Sigurðar frá Brún. Formaður Hesiamannafélagsins Þjálfa er Sigfús Jóns-
son, bóndi á Einarsstöðum.
Gangnantenn á Bárðardalsafréit í hrakningum
Eritt að aera ski! um áramótin
Blönduósi 29. okt. Allur snjór
er horfinn af láglendi. Slátrun
er lokið. Lógað var 39 þúsund
fjár. Meðalvigt var 13.3 kg og
er það um einu kílói minni
vigt en í meðalári. Nú stendur
nautgripaslátrunin yfir og síðar
hefst slátrun hrossa.
Óttast er, að margir bændur
eigi í fjárhagslegum erfiðleik-
um um næstu áramót. Sauðfjár-
afurðir eru lélegri nú en áður,
ALLMIKIÐ hefur verið látið af
því undanfarið, að lán úr stofn-
lánadeild Búnaðarbankans til í-
búðarhúsa í sveitum hafi verið
hækkuð. Eftir hækkunina eru
þessi lán allt að 150 þús. kr.
Menn gera sér vonir um, að
þessi 150 þús. kr. lán nægi til
að borga þá hækkun í ár, sem
orðið hefur á byggingarkostn-
aði síðan „viðreisnin“ hófst. Eft
ir væri þá að sjá fyrir fjár-
magni í húsverðið, eins og það
bæði lélegri vigt, sem nemur t.
d. 70 tonnum hér.og helmingi
fleiri kroppar fóru í þriðja flokk
en í fyrra. Fóðurbætir hækkar
í verði, því að í haust var á-
kveðið að stöðva niðurgreiðsl-
ur. Leggst því mafgt á sömu
sveif, bændum í óhag.
Tvéir menn stunda nokkuð
rjúpnaveiðar og fá upp í 50 stk.
á dag. Kaupfélagið gefur 35 kr.
fyrir vel skotnar. rjúpur. -
ir skammrifi
Hér í blaðinu var sagt frá því
um daginn, að dráttarvélaián úr
stofnlánadeild myndu vera 35
þús. kr. Nánar tiltekið mun
reglan vera sú, að lánuð séu
30% út á di’áttarvélina með ljá.
Þetta nægir því miður ekki til
að greiða mismuninn á því
verði, sem nú er á þessum vél-
um og því verði, sem var fyrir
„viðreisn“. Dráttarvél, sem þá
kostaði 52 þús. kr. mun nú
(Framh. á bls. 2).
Hrepptu ofsaveður og áttu kalda nótt
Stórutungu. Þriðjudaginn 22. þ.
m. fóru 4 menn í tveimur bíl-
um, Landrower og léttum fjalla
bíl, í göngur í framhluta afrétt-
arinnar upp af Bárðardal aust-
an Skjálfandafljóts. Mennirnir
voru Haraldur Jónsson, Jaðri,
Aðalsteinn Jónsson, Einarsstöð-
um, Árni Halldórsson, Garði og
Tryggvi Harðarson, Svartárkoti.
Þeir héldu úr byggð eftir há-
degi á þriðjudag og fóru fram
á Öxnadal um kvöldið. Þennan
dag var hægviðri og bjart, gott
færi á meðan leiðin lá með fljót-
inu. Við Krossá var haldið sem
leið liggur upp og suður grjótin
austan Ki'ókdals og fram að
Öxnadal. Færi var þungt og
komust þeir ekki svo langt með
bílana, sem venja er, sökum
snjóa. Tveir fóru suður vestar
og gengu svæðið meðfram fljót-
inu norðan Öxnadals. Þeir
fundu tvær kindur. Þeir hittust
Frá Æskulýðsheimili
J
templara
ÆSKULÝÐSSTARF vetrarins
er að hefjast. Barnastúkurnar
ei’u byrjaðar að halda fundi.
Útlán á barnabókum í Varð-
borg verður í vetur á fimmtu-
dögum kl. 5-—7. Hefur safnið
verið talsvert aukið á árinu. Að
sókn var mikil að safninu í
f yrravetur. F rímerkj aklúbbur
heimilisins mun starfa í Varð-
borg eihs og undanfarin ár.
Kvikmyndaklúbbar í Borgar-
bíói munu senn taka til starfa.
Ljósmyndanámskeið eru fyrir-
huguð eftir áramótin. Þá mun
verða námskeið í föndri, ef þátt
taka verður nægileg.
Síðar í vetur mun Æskulýðs-
heimilið beita sér fy rir að koma
á fjórða starfsfræðsludeginum,
en það hefur gengist fyiir þrem
starfsfræðsludögum og hafa
þeir verið annað hvort ár. □
við bílana og gistu þar um nótt-
ina.
Venjan er nú, síðan farið er
að hafa bila í þessar feiðir, að
halda til í þeim um nætur eða
þá í tjaldi þar við, þó sæluhús-
ið sé niður á dalnum. Þangað
verður ekki komizt með bíl og
var um 40 mín. gangur þangað.
Þó er þar haldið til þegar hest-
ar eru í ferðum, því þar eru
góðir hagar. Um kvöldið var
suðv. hríð og renningur er þeir
hittust við bílana og var svo um
morguninn og kalt í veðri á mið
vikudagsmorgun, er þeir héldu
suður, og skildi gengið svæðið
sunnan Öxnadals. Mörg voru
veðrabrigðin og af öllum áttum;
fengu þó sæmilegt veður síðar.
Þetta svæði er venjulega geng-
ið á einum degi og aftur gist
í Öxnadal. Þeir skiptu sér á leit
arsvæðið og hittust á Hrannár-
dal síðla dags. Höfðu þeir þá
alls fundið 16 kindur, þar með
taldar þær, sem þeir fundu dag-
inn áður. Þegar þeir fóru af
Hrannárdal, hafði vindur geng-
ið til suðvestan áttar og var ofsa
rok svo óstætt mátti heita. Út
yfir grjótin var skarabylur og
reif upp sand og möl. Þegar
norðar dró og hallaði niður í
Öxnadal, gerði úrhellis rign-
ingu svo þeir urðu holdvotir á
skammri stundu. Nú var nátt-
myrkur og eftir að komast yfir
ána og finna kofann. En það
tókst að lokum og voru þeir
ÓHAGSTÆDUR
vöruskiptajöínuður
HAGSTOFAN skýrði nýlega
frá því, að vöruskiptajöfnuður-
inn fyrstu 9 mánuði ársins, eða
frá áramótum til september-
loka, liefði orðið óhagstæður
um 706 milljónir króna. f fyrra
á sama tíma var vöruskiptajöfn
uðurinn óhagstæður um rúml.
100 milljónir. □
mjög illa á sig komnir. Allt, sem
þeir þurftu nú með, var í bíl-
unum: matur, hitunartæki og
þurr föt. Svona höfðust þeir
við um nóttina við illan aðbún-
að, nema skjólið. Um morgun-
inn hafði lægt svo að þeir fóru
og sóttu í bílana vistir og ann-
að, og gátu þurrkað föt sín svo
líðanin varð skárri. Féð skildu
þeir eftir og töpuðu í óveðrinu.
Seinnihluta dags á fimmtudag
héldu þeir til byggða á öðrum
bílnum, hinn skildu þeir eftir.
Tíð er óstillt með afbrigðum,
auð jörð á láglendi en grátt í
hlíðum fjalla. Hér var aftaka
veður seinnipart á miðvikudag
og á fimmtudagsnótt. Töluverðu
tjóni olli það heilt yfir. Járn
fauk af hlöðum og uppborin hey
fuku um koll, en heyið tapaðist
ekki til stórra muna.
Leitt er þegar prentvillur
slæðast inn í ritað mál og snúa
alveg við meiningu þess, sem
segja á.
Svo varð í fréttapistli úr Bárð
ardal, sem birtist í Degi 9. þ.
m. Þar segir í sambandi við um-
ferð og vegi, þar á meðal leið-
ina up púr Bárðardal til Sprengi
sands, að ekki sé „vanda laust“
(Framh. á bls. 2)
var fyrir „viðreisn“.
Auðvitað er nú allt í óvissu
um byggingarkostnað næsta
sumar. En sumir kalla þetta
rausn við bændur, aðrir ekki.
Böggull fylgir skammrifi. Til
skamms tíma var það venja og
er enn, að greiða út helming
láns þegar hús er fokhelt. Síðan
var borgað út smám saman eft-
ir því sem byggingu miðaði á-
fram og vottorð bárust um það
frá trúnaðarmönnum bankans.
Haldið var eftir dálítilli upphæð
þangað til húsið var fullgert og
ekki gengið frá skuldabréfi fyrr.
Nú er aðeins borgað út þegar
hús er fokhelt og síðan ekki sög
una meir fyrr en því er að fullu
lokið. Ef það dregst af einhverj-
um ástæðum, t. d. af því að ekki
er hægt að fá mann í bili til að
vinna eitthvað af síðustu hand-
tökunum, verður bóndinn að
greiða 9—9.5% vexti á meðan
af víxli eða annarri lausaskuld,
og getur e. t. v. ekki staðið í
skilum á þann hátt, sem gert
var ráð fyrir. Þetta er, frá sjón-
armiði bóndans, afturför frá
því, sem áður tíðkaðist um út-
borganirnar og mjög óþægilegt
fyrir þá, sem gerðu ráð fyrir að
hið eldi’a fyrirkomulag héldist.
Úthlutað úr Bygginga-
lánasjóði Akureyrar-
kaupstaðar
f GÆR var úthlutað þeim fjár-
munum, sem Byggingarlána-
sjóður Akureyrarkaupstaðar
hefur yfir að ráða að þessu
sinni.
Umsóknir höfðu borizt frá 90
husbyggjendum. En úthlutunar
uppliæðin var tæplega 1,5 inillj.
króna.
Nánari fregnir af úthlutun-
inni höfðu ekki borizt, er geng-
ið var frá.blaðinu til prentunar.
Nýr íþróttavöllur
VTÐ Menntaskólann á Akureyri
er búið að gera góðan íþrótta-
völl, sem vígður var á mánu-
daginn með kappleik í lcnatt-
spyrnu milli 4. og 5. bekkjar
skólans. Völlur þessi hefur ver-
ið í byggingu síðustu 3 árin og
hafa nemendur unnið þar þau
störf, sem vélar gátu ekki ann-
azt. En nú fagna nemendur nýj-
um íþróttavelli við skóla sinn. □