Dagur - 27.11.1963, Síða 7
7
ii ii 111111111111 iii iii iii imiiiin iii iii miiiiiini iii
- Frá bókamarkaðinum ] borgarbíÖ
(Framhald af blaðsíðu 5).
Kristsmenn höfðu eflzt við þol-
gæði og þrautseigju og gerðust
í fyrstu stuðningsmenn, síðan
drottnarar, og loks erfingjar
mesta alríkis veraldarsögunnar.
En þessi margbreytta hlið-
skjálfarsýn hefur dýpri merk-
ingu í sér fólgna: Hún ber glögg
an og stundum uggvænlegan
svip af menningu vorra daga,
og vandamálum þeim, sem vér
eigum við að stríða. Þennan
kost hefur það með sér að rann
saka menningu þjóðar í öllum
sínum margbreytileik. Þá get-
um vér, við hvert fótmál á ferli
hennar, borið hana saman við
áþekk einkenni og eðlisþáttu í
vorri eigin menningu, og fund-
ið vörnuð eða hvatningu í hinni
fornu eftirlíkingu nútíðarlífsins.
í basli Rómverja við óþjóðir
utan og innan lands er okkar
basli' lifandi lýst. Átök Róm-
verja við líkamlega og siðlega
úrkynjun þjóðarinnar mættu
verða leiðarsteinar við farveg
vors nútíðarfólks. Stríð Gracc-
husbræðra við öldungaráðið,
Maríusar við Súllu, Cæsar við
Pompeius, Antóníusar við
Octavianus, er það stríð, sem
enn í dag logar með stundar-
hléum friðarins. Og hin örvænt-
ingarþunga viðleitni Miðjarðar-
manna til að varðveita vott
frelsis undir oki harðstjórnar er
spásögn um það ætlunarverk,
sem oss er fyrir hugað. . . .
Saga Rómverja er saga vor.“
í mikilfenglegu kvæði: Kvöld
í Róm, lýsir Einar Benediktsson
reisn og hruni hinnar róm-
versku menningar í nokkrum
ógleymanlegum ljóðlínum. Á
sléttum fleti Tíberfljótssins sér
hann bregða fyrir svipum forn-
aldar eins og sýning skugga-
mynda á tjaldi. Síðan vaknar
spurningin mikla: Hvað er orð-
ið af öllu þessu litríka og mátt-
uga mannlífi, sem um þúsund
ár var þungamiðja heimsmenn-
ingarinnar? Og skáldið svarar
spurningum sínum sjálft:
Þú varðst til, svo eilífð mætti
erfa
anda þann, sem beindi þínu
stáli,
stýrði afli þínu í mynd og
máli,
meitlaði þinn svip í ásýnd
heimsins.
í þessari bók er dregin upp
skýr mynd af menningu hinnar
duglegu þjóðar, kostum hennar
og löstum og þeirri spillingu,
sem að lokum varð henni að
falli. Þessi saga minnir furðu-
mikið á nútímann og er því óum
ræðilega lærdómsrík fyrir alla,
sem skyggnast vilja eftir rök-
um giftusamlegra örlaga og
þeirrar óhamingju, sem verður
allt að vopni.
Þýðing bókarinnar er yfirleitt •
forkunnarvel af höndum leyst,
örlítið stytt á stöku stað, en
annars gerð á svo blæfögru og
kjarnauðugu máli, að bókirí
nýtur sín engu miður í íslenzku
útgáfunni en, á frummálinu.
Sakna ég helzt landabréfa og
uppdrátta, sem komið er fyrir
á saurblöðum frumútgáfunnar,
en úr þessu mætti bæta í seinna
hálfbindinu. Þar ætti einnig að
vera nafnaskrá. Einhverjum
kann að þykja þýðandinn full-
spar á kommum, en furðulítið
saknar maður þó þeirra, enda
þótt þarna sé ekki farið eftir
venjulegum skólareglum um
þessa hluti. Hafi allir miklar
þakkir, sem til þessa verks hafa
hvatt og að henni unnið. Okkur
hefur bætzt í búið öndvegisbók,
sem á skilið að vera mikið les-
in. Menningarsjóður gat ekki
valið betri bók til að láta þýða.
Og bókin er svo skínandi vel
íslenzkuð, að óvíða sér þess
merki, að hún sé ekki frumrituð
á íslenzku. Og þá hefur vel
tekizt.
<3
STEFANIA E. SNÆVARR, Völlum i Svarfaðardal.
Faðir okkar,
BERGÞQR BALDVINSSON,
Lundargötu 13, Akurevri,
lézt í Borgarspítalanum, Reykjavík, þann 25. nóv. sl.
Anna Bergþórsdóttir, Valgerður Bergþórsdóttir,
Hörður Bergþórsson.
Bróðir okkar og fósturfaðir
HALLDOR GUÐMUNDSSON,
Naustum,
andaðist á Fjórðungssjúkraliúsinu á Akureyri 24. nóv.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Systkini og fósturbörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu
við andlát og jarðaríör föður míns og fósturföður
okkar
TRYGGVA JÓNSSONAR, blikksmiðs.
Agnea Tryggvadóttir.
Georg Iíarlsson. Þórhallur Guðlaugsson.
Sími 1500
MYND VIKUNNAR:
| ®
f Ölliim þeim, er glödclu mig með gjöfum, heimsókn-
f um eða sheytum á áttreeðisafmœli minu, þ. 6. þ. rn., ð
£ sendi ég aluðar þakkir og kveðjur. f
t
DRENGJAFÖT,
dökk, stærðir 7—12 ára,
verð kr. 1290.00 til
1500.00.
Aðeins örfá sett.
Gunnar Kristjánsson,
klæðskeri,
Munkaþverárstræti 13,
sími 1838.
ÓDÝRAR
BARNAPEYSUR
langerma.
FALLEGAR
BARNAHOSUR
hvítar og mislitar.
VERZLUNIN LONDON
Sírni 1359
WOLF
rafmagnsverkfæri:
HANDSAGIR, 2 teg.
BORVÉLAR, 4 teg.
lÁ, 3/g, l/2, 5/b’
SLÍPIVÉLAR, 2 teg.
RAFSMERGLAR, 2 teg.
VÉLA- OG
BÚSÁHALDADEILD
□ RUN 596311277 -
HULD 596311307 -
H &V.
I. O. O. F. Rb. 2 — 11311278^2
S. T. K. E.
gm/
WMfc> u'’*-.. j'V v • ^
.’ *v» ' ’ : IwBK&Sf&R ti V'4 »ktðv8'f«ir;
' -cfwt adtösðGu
• . - .íttstt-ffimjuæesus
M:o
^HARRIETASDtRSSOH
— .Á lÁí.JtÍV z
I Mynd um heitar ástríður og =
i vilta náttúru, eftir sögunni j
É Far veröld, þinn veg, sem |
j komið hefur út á íslenzku og =
1 verið lesin, sem framhalds-1
i saga í útvarpið.
| Bönnuð yngri en 14 ára. |
AUGLYSIÐ I DEGI
I. O. O. F.
k. e.
14511298ya — F. t
FATASKAPUR
óskast til kaups.
Sími 2575.
SÍMASKRÁIN
Stóra SÍMASKRAIN verður afhent símanotendum í
afgreiðslusal stöðvarinnar, 1. hæð, kl. 8—21 daglega.
SÍMASTJÓRINN.
ÆSKULYÐSMESSA verður í
Akureyrarkirkju n. k. sunnu-
dag kl. 2 e. h. Ungmenni lesa
pistil og guðspjall. Sálmar:
198, 201, 645, 424, 675. Þess er
óskað, að sem flestir foreldr-
ar mæti með börnum sínum
og ungmennum. Sóknarprest-
ar.
Æ. F. A. K. Aðaldeild
Fundur verður hald-
inn n. k. fimmtudags
kvöld kl. 8.30. Fund-
arefni: Gísli Ólafsson yfirlög-
regluþjónn talar og sýnir
skuggamyndir. Auk þess
skemmtiefni, mjög góð kvik-
mynd og veitingar. Mætið vel
og stundvíslega. Stjórnin.
GUÐSÞJÓNUSTUR í Grundar
þingaprestakalli: Munkaþver-
á sunnudaginn 1. des. kl. 1.30
e. h.
ZÍON: Samkomur eru á hverju
kvöldi kl. 8.30 þessa viku (24.
nóv.—l.des). Margrét Hró-
bjartsdóttir, kristniboði í
Konsó og Gunnar Sigurjóns-
son cand. theol. o.fl. tala. Ein-
söngur. Allir hjartanlega vel-
komnir.
I. O. G. T. St. Isafold-Fj allkon-
an nr. 1. Fundur að Bjargi
fimmtudaginn 28. nóv. kl. 8.30
e. h. Fundarefni: Vígsla ný-
liða. Bögglauppboð og dans
eftir fund. Æ. T.
S. T. Georgsgildið —
Fundurinn er í Varð-
borg 2. des. kl. 9 e. h.
Stjórnin.
ÁHEIT á Slysavarnadeild
kvenna kr. 500.00 frá ónefndri
og kr. 100.00 frá M. Kærar
þakkir. Sesselja.
TIL Elliheimilisins í Skjaldar-
vík: Frá S. S .K. kr. 200.00, J.
J. kr. 100.00, gamalt áheit frá
G. R. kr. 200.00. Beztu þakk-
ir. Stefán Jónsson.
LESTRARFÉLAGEÐ í Ásgarði
í Glerárhverfi er opið til út-
lána á sunnudögum kl. 17—
18 og miðvikudögum kl. 20—
21.
TIL Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri: Gjöf frá G. H. kr.
1000.00 og frá ónefndum kr.
500.00. Með þökkum mótekið.
G. Karl Pétursson.
ÞÓRSFÉLAGAR!
Munið hlutavelt-
una í Alþýðuhús-
inu sunnudaginn 1.
des. n. k. Munum verður veitt
móttaka í verzluninni Hebu,
hjá Jóni Bjarnasyni og í Tóm
stundabúðinni. Stjórnin.
KVENFÉLAGIÐ HLÍF heldur
bazar í Túngötu 2 sunnudag-
inn 1. des. kl. 4 e. h.
ÁHEIT á Dalvíkurkirkju 1963:
Arngrímur og Sólveig kr.
1000.00, S. K. kr. 200.00, Sig-
hvatur og Gissur kr. 1000.00,
A. G. kr. 100.00, Björn R.
Árnason kr. 100.00, Ónefndur
kr. 100.00, Kristrún Frið-
björnsd. kr. 200.00, Friðrika
Jónsdóttir kr. 200.00, kom í
bréfi frá Akureyri S. H. kr.
200.00, Gunnl. Skarphéðins-
son kr. 200.00, Gestur Magn-
ússon kr. 500.00, R. Þ. kr.
1200.00. Beztu þakkir Stefán
J. T. Kristinsson.
FRA SJÁLFSBJÖRG: Áríðandi
almennur fundur að Bjargi
sunnudaginn 1. des. kl. 2 e. h.
Fjölmennið! Síðasti fundur
fyrir jól. Stjórnin.
ÞINGEYINGAFÉLAGIÐ á Ak-
ureyri heldur skemmtun fyr-
ir félagsmenn og gesti að
Bjargi laugardaginn 30. nóv.
n ,k. kl. 8.30 e. h. Til skemmt-
unar verður: Félagsvist,
myndasýning og dans. Góð
verðlaun. Fjölmennið. Mætið
stundvíslega! Skemmtinefnd.
BAZAR. Okkar árlega muna-
og kaffisala til ágóða fyrir
Barnaheimilið Ástjörn, verð-
ur að Sjónarhæð laugardag-
inn 30. þ. m. kl. 3 til 10 e. h.
Kl. 9 um kvöldið verða sýnd-
ar litskuggamyndir frá starf-
inu og fleiru. Gefst fólki þá
kostur á að kaupa sér kvöld-
kaffið um leið.
SLYSAVARNAKONUR Akur-
eyri! Jólafundirnir verða í A1
þýðuhúsmu fimmtudaginn 5.
des. fyrir yngri deildina kl.
4.30 og fyrir eldri deildina kl.
8.30 Mætið vel og stundvís-
lega og takið með kaffi.
AKUREYRARDEILD Menn-
ingar- og friðarsamtaka ís-
lenzkra kvenna heldur fund
miðvikudaginn 27. nóv. 1963
kl. 8.30 e. h. að Hótel KEA —
Rotarysal. — Dagskrá: 1. For
maður og framkvæmdastjór;
Æskulýðsráðs Akureyrar, srj
Pétur Sigurg’eírssön og Her-
mann Sigtryggsson ræða um
starfsemi og framtíðarstarf
Æskulýðsráðsins. 2. Önnur
mál. 3. Kaffidrykkja. Félags-
konum er heimilt að taka með
sér gesti. Stjórnin.
hollenzkar, á drengi og
stúlkur.
STRIGAEFNI
dökkblátt og rautt,
hentugt í matrósaföt.
SVART EFNI
í framreiðslukjóla.
MARKAÐURINN
Sími 1261