Dagur - 04.12.1963, Qupperneq 1
- ................—
Málcacn Framsóknarmanna
Ritstjóri: Erlingur Davídsson
Skrifstofa í Hafnarstræti 90
Símar; Ritstjóri 1160. Algl.
oc afcr. 1ÍC7. Prentverk Odds
BjöRnssonar h.f., Akurevpi
____... '.:__í---------------i
G9. tbl.
----- -----——-------— -------->
Augi.ýsincástjöri Jón • Sam-
úf.lsnon . Argancijrínn kostar
KR. 160.00. GjALDDACI ER.J:' JÚLÍ
HLAÐin KEMUR L'T Á ÁflÖVík.L'DÖG-
UM OC Á I.AUCARDÖCL’M,
ÞECAR ÁSTÆÐA l-YKlfi'JÍTI.
• : :'i ~ 'J j »*• .í
NYTT SKIP SAMBANDSINS
Borghildur Jónsdóttir frá Ak. gaf skipinu nafn
í GÆR var í Noregi sjósett nýtt Sambandsskip, 2750 burðarlestir
að stærð og á að annast vöruflutninga. Er meðal annars lientugt
til kornflutninga, enda styrkt með tilliti til siglinga á amerísku
vötnunum.
Sjávarallinn er mikill og örl vaxandi
En útgerðin telur ekki unnt að hækka kaupið
Skipið er afturbyggt, vélarúm
og mannaíbúðir allar í aftur-
skipi. í skipinu eru aðeins tvær
lestar og lestarlúkur stórar til
Kviknaði í þurrkara
í Krossanesi
Á SJÖTTA tímanum í fyrra-
kvöld bar það til í síldarverk-
smiðjunni í Krossanesi, að
kviknaði í síldarmjöli í þurrk-
ara verksmiðjunnar, sem við
það varð rauðglóandi og kveikti
út frá sér í timbri. Starfsmenn
staðarins höfðu að mestu slökkt
eldinn er slökkviliðið bar að
garði.
Skemmdir munu ekki hafa
orðið míklar á húsi, en stokkur
með rafleiðslum mun hafa hitn-
að um of.
Krossanessverksmiðjuna vant
ar hráefni um þessar mundir,
því að togarar sigla með afla
sinn. Lítið eitt hefur veiðzt af
síld á Pollinum undanfarið. □
Þórsliöfn 3. des. Óttazt var um
skemmdir á hafnargarðinum í
miklu brimi um daginn, en þær
urðu litlar.
Vel gengur að reisa rafstaur-
ana á meðan vel viðrar, eins og
nú.
Merkisafmæli
FYRIR skömmu var þess
minnzt á Svalbarðsströnd, að
Búnaðarfélag Svalbarðsstrand-
ar var 75 ára. Boðið var bænd-
um í Búnaðarfélagi Grýtubakka
hrepps og var setið í góðum
fagnaði við ræðuhöld, söng, veit
ingar í samkomuhúsi hreppsins
af þessu tilefni og síðah dansað.
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA
gerði þingheimi nýlega grein
fyrir því, hversu mætti áttfalda
vei'ðmæti þeirra ca 850 tonna
af ull, sem árlega eru framleidd
í landinu. Núverandi verðmæti
taldi hann 51 milljón kr., en
með vélum, sem skilja tog frá
þeli og fullvinnslu, yrði verð-
mæti ullarinnar 408 milljónir.
Sá ljóður virðist þó á, að eftir
er að finna upp þessa ullarskil-
hagræðis við lestun og losun,
byrgðar stállúkuhlerum af Mac-
Gregor-gerð.
Skipið er byggt samkvæmt
ströngustu kröfum Lloyd’s. Sér
staklega styrkt til siglingar í ís.
Styrkt og búið verulega um-
fram kröfur flokkunarfélagsins,
með tilliti til hinna erfiðu hafn-
arskilyrða við íslands strendur.
Ganghraði skipsins fulllestaðs
er áætlaður 13 sjómílur.
Aðalvél skipsins verður af
gerð Deutz, 2150 hestöfl.
Allar þilfarsvindur og vélar
eru vökvadrifnar, en fyrirkomu
lag lestunar- og losunartækja
verður með hætti, sem mun
verða nýlunda hér á landi og
miklar vonir eru bundnar við
með tilliti til hagræðingar við
lestun og losun. Notaðar verða
þrjár einfaldar bómur, auk eins
krana, en bómurnar eiga að
hafa sömu athafnamöguleika og
hann.
Heimahöfn skipsins er Sauð-
árkrókur. Q
lega og komum heim með 90
kindur, en þar af voru 80 frá
Hvammi og var um þær vitað,
en einnig 10 kindur, áður ó-
heimtar, þar af 7 í Tungusels-
heiði. Þrjá daga vorum við í
þessari ferð og tvær nætur. Lág
um nótt í gangnamannakofa og
aðra í veiðimannaskúr.
Við sáum samtals 10 rjúpur,
og má segja, að hér hafi engar
rjúpur verið síðan 1957. Þá var
slík mergð af þeim, að við þurft
um að í'eka þær úi' steypumót-
unum, þar sem við vorum að
I>yggja- Og þá voru þær alls
staðar, en nú sjást þær varla.
Verið er að opna leiðina milli
Þórshafnar og Raugarhafnar.
vindu — þ. e. vélina til að skilja
tog frá þeli. Hins vegar er búið
að gera áætlun ryn verksmiðju-
kostnað fyrir þessa væntanlegu
vél og hljóðar liún upp á 150
milljónir, sainkv. frásögn Morg-
unblaðsins.
En eitthvað virðist þetta vera
laust í reipunum og þarf nán-
ari skýringa.
Hitt er aftur á móti alveg víst,
að í villariðnaði eru miklir
ÍSLENDINGAR stunda fisk-
veiðar með fullkomnari tækj-
um en nokkur önnur þjóð. Til
dæmis voru nær öll síldveiði-
skipin fyrir norðan og austan
búin fullkomnustu síldarleitar-
tækjum og kraftblökk. En slík
tæki eru talin kosta um 800 þús.
kr. á einn bát. Óvíst er, að hin
230 síldveiðiskip hefðu í sumar
fengið mikla veiði án hinna full-
komnu tækja.
Kraftblökkin er norsk fram-
leiðsla, en mjög fá norsk skip
nota hana þó, enn sem komið
er. Þróunin er ör í margs konar
útbúnaði fiskiskiþa.
Þótt nótabátar, bómullarnæt-
ur o. fl. yrði úrelt á síðustu 10
ára hraðri þróunarsögu og dýr
og verðmikill fiskveiðiútbúnað-
ur kæmi í staðinn, má á það
líta, að á sama tímabili hefur
fiskaflinn hækkað úr 33G þús.
tonnum 1952 upp í 768 þús. tonn
síðasta ár. Svo mjög' hefur veiði
tækni fleygt fram á þessu ára-
bili, þótt einnig komi til vöxtur
fiskveiðiflotans, og síðast en
ekki sízt, útfærsla landhelginn-
ar 1958.
,möguleikar með þeim vélakosti,
sem hugvitsmenn hafa þegar
upp fundið, og er raunar mikil
furða, að enn skuli flutt út ó-
unnin ull í stórum stíl.
Reikningsdæmið um áttföld-
un ullarverðs, er að sjálfsögðu
skemmtilega út í loftið, en
þá væri vel, ef það örvaði til
betri hagnýtingar á íslenzkri
ull. □
Síðustu árin hafa verið met-
ár í afla og sjávarafurðir hafa
nú hækkað verulega í verði á
heimsmarkaðinum. En þrátt fyr
ir allt þetta er svo að heyra á
forustumönnum útvegsins, að
einhvers konar uppdráttarsýki
þjaki þennan þýðingarmikla at-
vinnuveg, og það svo mjög að
ekki sé mögulegt að greiða land
verkafílki, sem vinnur fyrir út-
veginn, meira kaup en nú er,
samanber fréttir frá L. í. Ú.
Þetta er harður dómur um
stjórn atvinnu- og efnasagsmála
Húsavík 3. des. Nú fást engar
rjúpur, enda ófærð og lítið sem
ekkert sést af rjúpu. Og svart-
fugl er nær enginn í vetur og
mun það víðar vera svo, hvað
sem veldur.
Þilfarsbátai' róa þegar gefur.
Þeir fengu nokkra góða róðra
fyrir viku eða svo, annars reit-
ing. Búið er að setja marga
litlu þátana. Færð er góð um
allt hérað og til Akureyrar.
Hér er nýlokið hálfsmánaðar
námskeiði í dansi. Kennari var
Rigmor Hansen og þátttakend-
ur um 200 talsins, bæði ungir
og gamlir, giftir og ógiftir og
var þetta góð tilbreyting í
skammdeginu.
Á föstudaginn lauk námskeiði
bifreiðastjóra til meiraprófs.
Forstöðumaður þess var Svavar
Jóhannsson, aðalkennari Vil-
hjálmur Jónsson. Erindi fluttu:
Þormóður Jónsson um bifreiða-
tryggingar, Jóhann Skaptason
sýslumaður um refsilöggjöfina
eftir tvö met-aflaár og góða
markaði fyrir allt, sem veiðist
úr sjó.
f sambandi við uppsláttarfrétt
ir, sem birzt hafa um stóraukn-
ingu fiskiskipastólsins allra síð-
ustu ár, hefur það nú verið upp
lýst (Sig. Egilsson framkv.stj.
L. í. Ú.) að aukningin var inn-
an við 200 rúmlestir árið 1962
og á þessu ári innan við eitt
þúsund.
Togaraútgerðin er í rúst, og
ekki útlit fyrir að auðvelt reyn
ist að fá sjómenn á bátaflotann
á komandi vetrarvertíð. Q
og Vigfús Hjáhnarsson slökkvi-
liðsstjóri um brunavarnir. En sá
síðastnefndi var hvatamaður
námskeiðsins, ásamt Valdimar
Halldórssyni bifreiðaeftirlits-
manni. Stefán Finnbogason
tannlæknir kenndi „hjálp í við-
lögum“. □
Hólmar fórst
HÓLMAR frá Sandgerði, ásamt
fimm manna áhöfn, er talinn af.
Síðast var haft samband við
hann árdegis á föstudaginn var.
Þá var hann á leið til Vest-
mannaeyja með afla sinn, 10
tonn fiskjar. Hólmar var nýr, 48
lestir að stærð. Formaður Helgi
Kristófersson og með honum í
þessari hinztu för: Sigfús Agn-
arsson, Guðmundur Stefánsson,
Ingvar Gunnarsson og Gunn-
laugur Sigurðsson. Veður var
hið versta. □
„Rákum rjúpur úr steypumótum"
Við fói'um þrír í eftirleit ný-
Áttfalda þeir verðið á ullinni?
Enpr rjúpur - Enginn svartfugl
- en Húsvíkingar stytta sér stundir við dans