Dagur - 04.12.1963, Page 8
8
Héraðsdýralæknarnir voru málshefjendur
Á MÁNUDAGSKVÖLDIÐ var enn fjölmenni, á annað hundrað
manns, á bændaklúbbsfundi eyfirzkra bænda, sem að venju var
luildinn á Hótel K. E. A. Fundarstjóri var Eggert Davíðsson bóndi
á Möðruvöllum, en málshefjendur béraðsdýralæknarnir Gudmund
Knutsen og Ágúst Þorleifsson. Þetta var skemmtilegur fundur og
umræður og fyrirspurnir mjög almennar að framsöguerindum
læknanna loknum.
Héraðsdýralæknarnir, þeir
Gudmund Knutsen og Ágúst
Þorleifsson, voru frummælend-
ur á bændaklúbbsfundi síðastl.
mánudagskvöld.
Gudmund Knutsen talaði um
ófrjósemi kúnna, orsakir henn-
ar og ráð til úrbóta. Hann gat
þess í upphafi máls síns, að
mjög margar kýr, sem á hverju
hausti eru fluttar á sláturhús,
væru þangað fluttar vegna ó-
frjósemi þeirra, væri því sýnt,
hver skaði væri að þessum
kvilla kúnna.
Dýralæknirinn nefndi því
næst helztu atriðin, sem ófrjó-
semi orsaka, en til hennar telst
einnig, þegar kýr þarf að sæða
oft, eða þær liggja niðri lengri
eða skemmri tíma.
Meðfædd ófrjósemi er sjald-
gæf en þó til. Við henni eru eng
in ráð og verður að lóga slíkum
gripum. Kvígutvíkelfingar, sem
eiga naut að tvíburabróður, eru
flestar ófrjóar, eða um 90 af
hverjum hundrað.
Ofrjósemi stafar oft af bak-
teríum utanfrá, sem rekja má
til burðar, og þá e. t. v. fastra
hilda o. þ. h. En oftast er hægt
að ráða bót á þeim kvillum. í
þriðja lagi er oft um einskonar
ruglun að ræða, í sambandi við
hormónaskiptin og galla, sem
þá koma fram í eggjastokkun-
um, í formi blaðra og berja. —
Blöðrurnar eru egg, sem ofvöxt
ur kemur í, í stað þess að losna
eðlilega. Þegar kýr liggja niðri,
er orsakanna oft að leita í smá-
berjum í eggjastokki. Þetta er
oftast hægt að lækna í bráðina,
en orsakirnar geta verið flókn-
ar. Efnaskortur getur orsakað
ófrjósemi, t. d. er því haldið
fram, að skortur á fosfór geti
valdið henni.
Otti sá, sem margir bera í
brjósti vegna smithættu af sæð-
ingum, er ástæðulaus nú, eftir
að hægt var að hafa fullkomið
hreinlæti með bættum húsa-
kynnum á búfjárræktarstöðinni
á Lundi. Það tilheyrir undan-
tekningu nú, að finna iegbólgu,
sem orsakazt hefur af sæðingu,
sagði dýralæknirinn.
í sumar og haust er heilbrigði
kúa með bezta móti. Og að sjálf
TALIÐ Á MORGUN
Á MORGUN fer fram á skrif-
stofu biskups, talning atkvæða
í prestskosningunum í Reykja-
vík, er fram fóru á sunnudag-
inn. En þann dag var kosið í
6 prestaköllum í Reykjavík, og
var kjörsókn sæmileg, en þÓ
ekki lögleg í tveim prestaköll-
um, vegna slælegrar kjörsókn-
ar. Búizt er við að atkvæðataln
ingunni verði útvarpað. □
sögðu er það ætíð mikilsverðast
að koma í veg fyrir sjúkdóma,
t. d. með góði'i fóðrun og góðri
umhirðu almennt. í sambandi
við sjúkdóma í legi, er mjög
nauðsynlegt að halda básunum
hreinum um burð, og þurrum,
og hafa gott loft. Þá er það áríð
andi, ef hildir hafa verið fastar,
að skola kúna nokkru eftir burð
Ágúst Þorleifsson.
og láta um leið fara fram athug-
un á, hvort um blöðrur er að
ræða eða annað, sem hægt er að
laga um leið.
Þegar líklegt er, að ófrjósemi
reki rætur til vöntunar í fóðri,
er auðvitað mjög nauðsynlegt,
að reyna að bæta úr því, með
Gudmund Knutsen.
steinefnagjöf, fjölbreyttara og
betra fóðri, og í samráði við
dýralækni.
Þá má minna á fangrannsókn
ina, sem bændur ættu að láta
dýralækna framkvæma meira
en gert er. Þetta er mikið fjár-
hagsatriði, sem mörg dæmi
sanna, en kostnaðarlítið að láta
gera fangrannsóknina, sagði
ræðumaður.
Ágúst Þorleifsson talaði um
nýtt lyf gegn iðraormum, sem
komið er á markaðinn. En iðra-
ormar hafa valdið mjög miklu
tjóni á búum sauðfjárbænda
fram á þennan dag. Einkum er
um tvær tegundir orma að
ræða, sagði dýralæknirinn, held
ur önnur tegundin sig í vinstr-
Myndin tekin er bókagjöfin var afhent. (Ljósmynd: B. S.)
Gjöf fil Fjórðungssjúkrahússins
inni, en hin í mjógörn. Ormarn-
ir eru mjög litlir, frá hálfum
upp í 2 mm og verða tæpast
greindir með berum augum.
Þeir lifa á blóði og standa bæði
lömbum og fullorðnu fé fyrir
þrifum og valda veikindum og
dauða.
Frá upphafi hefur baráttan
við þessa iðraorma verið erfið,
einkum vegna vöntunar á hald-
góðum lyfjum, ennfremur hefur
þekking á smitun ormanna vei'-
ið takmörkuð. Fullorðinn orm-
ur myndar egg, sem síðan ganga
niður af kindinni, en það eru
ekki eggin sjálf, sem eru hættu-
leg, heldur breytast þau í lirf-
ur, sem síðán komast aftur með
fóðri upp í kindina og setjast að
á fyrrnefndum stöðum, verða
þar kynþroska, eiga egg og
þannig koll af kolli.
Dýralæknirinn taldi, að
skömmu eftir sauðburð væri oft
mjög mikilvægt að gefa ám
ormalyf, þar sem eggjamagn í
saur kindarinnar ykist þá mjög.
Góð fóðrun og meðferð hefur
(Framh. á bls. 7)
Skipulagsmál.
Á fundi sínum, þann 19. þ. m.
samþykkti bæjarstjórn skipu-
lagstillögu skipulagsnefndar um
skipulag svæðanna sunnan Lög-
mannshlíðar og vestan Mýrar-
vegar, norðan Þingvallastrætis.
Á svæðinu sunnan Lögmanns-
hlíðar, er gert ráð fyrir: 6 ein-
býlishúsalóðum, einnar hæðar,
5 keðjuhúsalengjum, alls 31
íbúð, 15 tveggja hæða húsum,
tveggja íbúða, og 5 þriggja hæða
fjölbýlishúsalóðum með alls 78
íbúðum.
Á þessu svæði er alls gert ráð
fyrir 145 íbúðum.
Á svæðinu vestan Mýrarveg-
ar, norðan Þingvallastrætis, er
gert ráð fyrir 78 lóðum fyrir
einbýlishús, einnar hæðar og 20
íbúðum í 5 keðjuhúsum næst
Þingvallastræti að norðan.
Gert ei' ráð fyrir, að Mýrar-
vegur verði 20 metra breið gata,
með möguleikum til breikkunar
í framtíðinni. Gert er ráð fyrir,
að Þingvallastræti verði 24
metra breitt.
Margar tillögur hafa verið
gerðar á undanförnum árum um
skipulag þessara svæða, og á
síðasta ári gerði bæjarráð til-
lögu um að framkvæmdum yrði
hraðað. Mest eftirspurn hefur
verið eftir einbýlishúsalóðum,
en þær hafa ekki verið fyrir
hendi.
Vestan Mýrarvegar má búast
við, að gera yrði miklar fram-
kvæmdir á vegum vatnsveit-
unnar, áður en lóðirnar yrðu
tilbúnar, en að áliti bæjarverk-
fræðings, þyrfti ekki að koma
til fjárfrekra framkvæmda á
suðurhluta svæðisins.
Breyting háspennukerfis.
Á fundi rafveitustjórnar þann
11. þ. m. upplýsti rafveitustjóri
S. L. ÞRIÐJUDAG afhenti
stjórn Lionsklúbbs Akureyrar
Fjórðungssjúkrahúsinu hér í
bæ safn bóka, sem ætlað er
sjúklingunum á barnadeild
sjúkrahússins. Klúbbfélagar
höfðu lagt fram á 3. hundrað
barnabækur í þessu skyni.
Formaður Lionsklúbbs Akur-
að hann áformaði að taka upp
þá nýbreytni í sambandi við
lagningu háspennukerfis, að
spennistöð í fyrirhuguðu hverfi
vestan Mýrarvegar, verði byggð
380 volta í stað 220 v., sem tíð-
kast hefir til þessa.
Rafveitustjóri telur, að með
þessu móti muni fást meiri hag-
kvæmni í rekstri kerfisins, og
þetta tíðkaðist nú allvíða og
muni ríkjandi í framtíðinni.
Þetta fyrirkomulag mun spara
spennistöðvar, en spennistöð
með 380 v. nær yfir 500 m.
radius.
Nýja hverfið sunnan Lög-
mannshlíðar verður líklega tek-
ið inn á 380 v. og stefnt verður
að því að taka það fyrir allt
hverfið. — Hægt er að breyta
spennistöðvunum úr 220 v. í
380 v., en það mun útheimta
nokkra birgðaaukningu. Q
LAUGARDAG 7. þ. m. efnir
Varðberg ,félag ungra áhuga-
manna á Akureyri um vest-
ræna samvinnu, til kvikmynda-
sýningar helgaðri minningu
hins fallna forseta Bandaríkj-
anna, John F. Kennedy.
Sýningin verður kl. 3 e. h. í
Borgarbíói og hefst með kvik-
mynd sem sýnir þegar Banda-
ríkin kusu Kennedy sem for-
seta. Þá er og kvikmynd um
valdatöku Kennedys, svo og
ferðalög hans til Evrópu. Einn-
ig verða sýndir kaflar úr þeim
tveimur ræðum, sem taldar eru
hvað merkastar af ræðum hans,
þ. e. ræðan um kynþáttavanda-
málið svo og friðarræðan svo-
kallaða, sem Kennedy flutti í
júlí sl. í American Universety
eyrar, Geir S. Björnsson, af-
henti bókagjöfina og gat þess,
að klúbbfélagar hefðu í hyggju
að auka við þetta safn árlega,
eða leggja annað af mörkum til
gagns eða dægradvalar þeim, er
þurfa sjúkrahússvistar við
hverju sinni. Mætti þetta og ef
til vill verða hvatning til ann-
arra félagasamtaka að aðhafast
nokkuð í þessu sama skyni.
Læknar sjúkrahússins, stjórn-
endur og yfirhjúkrunarkona
veittu bókagjöfinni viðtöku og
þökkuðu hana og þá hugulsemi,
er á bak við byggi.
Noregsför skógræktar-
manna næsta sumar
v 1
SKÓ GRÆKT ARFÉL A G ís-
lands hefur ákveðið, að farin
verði skógræktar- og kynnisferð
til Noregs næsta sumar. Sam-
kvæmt ósk Norðmanna verður
farið í byrjun ágústmánaðar.
Hópur Norðmanna verður við
gróðursetningu á íslandi á sama
tíma.
Þeir, sem óska að koma til
greina sem þátttakendur í ferð-
inni á vegur Skógræktarfélags
Eyfirðinga, eru beðnir að gefa
sig fram við framkvæmdastjóra
félagsins, Ármann Dalmanns-
son, fyrir 20. þ. m. □
í Wasington. Þá verða að lok-
um sýndar nýjar fréttamyndir
frá útför Kennedys og fl.
Ollum er heimill ókeypis að-
gangur að sýningu þessari, þó
börnum aðeins í fylgd með full-
orðnum. □
SÁ GRÁMÓRAUÐI
Ófeigsstöðum 3. des. Tveir
menn náðu 7 kindum í Náttfara
víkum, þeirra á meðal grámó-
rauðum hrút, sem tapaðist þar
í fyrrahaust og gekk af. Hann
var mjög vænn. Leitarmenn
komu heim mittisvotir og féð
sundvott á fullveldisdaginn, —
þurftu að fara fyrir forvaða.
Förin var töluvert frækileg.
Hér er blítt veður og sumar í
hjörtum manna í trattsti þess,
að samningar takist syðra. Q
FRÁ BÆJARSTJÖRN
KVIKMYNDASÝMNG TIL MINNINGAR !M
KENNEDY í BORGARBÍÓI N.K. LAUGARD.