Dagur - 06.12.1963, Blaðsíða 4
4
5
Hugrakkur forseti
ENN er hins látna forseta Banda-
ríkjanna, John F. Kennedy, minnzt
um víða veröld. I kirkjum, skólum
og samkomuhúsum, norður við ís-
haf, hér í okkar landi, er minning
forsetans heiðruð við vms tækifæri.
Íslenzk-ameríska félagið á Akur-
eyri gaf bæjarbúum kost á að sjá
nokkrar stuttar kvikmyndir um ævi
og störf þessa leiðtoga á fimmtudag-
inn var. Þeir fjölmenntu í hús Sjálf-
stæðismanna, þar sem sýningin fór
fram. Þórarinn Björnsson skólameist
ari flutti stutt ávarp áður en mynda-
j sýningin hófst. Fer það hér á eftir:
„Dáinn, horfinn, harmafregn,“
var einu sinni sagt á íslandi. Þau
hljóma raunar sífellt í einhverra eyr-
um, þessi orð. En föstudaginn, 22..
nóvember, fyrir tæpum hálfum mán-
uði, fyllti þungi veruleika þeirra
ekki aðeins hugi allra íslendinga,
' heldur hugi flestra í víðri veröld.
Það má næstum fullyrða, að sama
tilfinning felmturs og trega og
missis, hafi aldrei í veraldarsögunni
bærst í svo mörgum brjóstum sam-
tímis. Fullhugi var fallinn. Drengi-
legasti forystumaður heimsmálanna
var horíinn af sviðinu. John F.
Kennedy Bandaríkjaforseti var lát-
inn. Heimurinn sat eftir, linípinn.
Við höfðum eflaust ekki gert okkur
grein fyrir því áður, hver styrkur
okkur öllum var að þessum eina
manni. Nú fundum við það. Það
var eins og þróttur okkar hvers og
eins væri lamaður við fráfall hans.
Vafamál er, að nokkur einn maður
hafi áður veitt jafn mörgum mönn-
um af gnægð orku sinnar. Hinn
ungi, djarfi og vitri forseti hafði á
stuttum ferli megnað að létta þá ó-
vissukennd, sem þjakar mannkynið
meira en nokkuð annað. Sjálfur mun
hann hafa metið hugrekkið öllu
öðru fremur, enda mun það sannast,
að án þess verður flest annað að
hjómi. Það er ekki nóg að sjá rétt,
ef kjarkinn vantar til að fylgja því
fram. Orðið dyggð er komið af dug-
ur. Það þarf kjark og dug til dyggð-
arinnar. Þann dug átti Kennedy for-
seti. Án hans hefði hann ekki verið
mikilmenni. Hræðslan er andstæða
kjarksins og hræðslan hún skekkir
sjónarmiðin, og hræðslan er fóstra
margra okkar verstu lasta, t. d. bæði
grim'mdarinnar og lieiftarinnar. Rétt
sýni Kennedy og vitsmunir, sann-
girni og mannúð nærðust á hugrekki
hans. Með lífi sínu og starfi hefur
hann flestum fremur á þessari marg-
slungu öld bent okkur á hvað verð-
mætast er í þessum heimi. Við kom-
um hér saman í kvöld til að votta lífi
hans og starfi og minningu virðingu
okkar. Við vottum bandarísku þjóð-
inni, fjölskyldu hins látna forseta
samúð vora í djúpri sorg þeirra og
við biðjum bandarísku þjóðinni og
hinum nýja forseta hennar allra
heilla í erfiðum vanda. Það er eitt
auðkenni mikilla manna, að þeir
verða enn meiri í dauða sínum en
lífi. Vér vonum og biðjum, að líf og
dauði Kennedy forseta megi verða
bandarísku þjóðinni og heiminum
öllum lýsandi kyndill um torsóttan
veg framtíðarinnar.
frá Miðgerði
MINNING
ÚTVARPIÐ flutti mér þá fregn,
að vinkona mín, Soffía Kristjáns
dóttir frá Miðgerði, væri látin.
Ég hafði ekki hitt hana lengi;
ekki frá því stuttu fyrir síðustu
jól, að við hittumst á götu á
Akureyri. Ég sá þá að vísu, að
hún myndi ekki vera heil heilsu,
en hún bar sig vel að vanda, og
lét ekki mikið yfir heilsuleysi
sínu.
Ég hafði ákveðið að hitta
Soffíu nokkru eftir áramótin,
um leið og ég tæki mér far með
flugvél til Reykjavíkur. Vissi ég
að hún dvaldi þá á sjúkrahús-
inu á Akureyri. En það var sem
örlögin ætluðu okkur ekki að
sjást framar í þessu lífi; af þessu
gat ekki orðið, þar sem brott-
farartími flugvélarinnar breytt-
ist. Hugðist ég þá hitta hana
strax er ég kæmi norður aftur,
en var þá orðin veik af innflú-
ensu og fékk því ekki við kom-
ið. Skömmu seinna frétti ég, að
Soffía væri komin til Reykja-
víkur, ásamt Höllu nágkonu
sinni, og dóttur hennar, en þær
höfðu allar búið saman á Akur-
eyri.
Soffía sáluga var flutt norður
í átthaga sína til greftrunar, því
þar hefði hún viljað dvelja allt
sitt líf. En náttúruhamfarir eyði
lögðu jörðina, sem hún var bor-
in og barnfædd á, og því dvaldi
hún á Akureyri seinnihluta ævi
sinnar, ásamt bróður sínum og
mágkonu og börnum þeirra.
Mesta annadag haustsins til
sveita, var Soffíu minnzt í Akur
eyrarkirkju, þar langaði mig að
vera viðstödd, en komst ekki
sökum anna og illviðris.
Það var árið 1921, sem að við
Soffía sáluga sáumst fyrst á
hinu gamla sjúkrahúsi „Guð-
manns minni.“ Vorum við þar
báðar í sömu erindum, — að
reyna að fá fræðslu í hjúkrun-
arstörfum. Kynni okkar urðu
stutt, því að þetta var um nema
skipti, ég var að fara eftir stutt
námskeið, en hún að byrja á
því næsta. Aftur hittumst við
um næstu námskeiðaskipti, og
endurnýjuðum við þá hin stuttu
kynni okkar, og urðu þau að
ævilangri vináttu.
Það var ekki tilviljun að
Soffía fékk sér atvinnu í nám-
unda við sjúkrahúsið, er hún
fluttist til Akureyrar 25 árum
seinna, (hún vann í þvottahúsi
þess og fleira þar að lútandi)
því að með því móti gat hún
lagt leið sína um stofur þess og
ganga. Og víst varð hún ýms-
um þar að liði, þó aldur hennar
og heilsa meinuðu henni að
stunda hjúkrunarstörf.
Sigurrós heitin, systir mín,
var ein af þeim er nutu hjálpar
hennar í ríkum mæli. Soffía
gerðist tengiliður milli hennar
og mín um árabil, og var henni
sem bezta systir. Þau voru
aldrei talin sporin hennar
Soffíu, sem gengin voru Sigur-
rósu til heilla og hjálpar. Þetta
kærleiksverk fæ ég aldrei full-
þakkað, en mun aldrei gleyma
því; og ég veit að það var eitt
af því, sem hún lagði inn í reikn
ing lífsins eftir dauðann, og
mun nú mæta þar í ljósi hins
eilífa kærleika.
í fullri vissu um það kveð ég
þig, Soffía. Svo blessi þig góður
guð.
Skrifað í nóvember 1963.
Anna Sigurjónsdóttir.
- Sendibréf að sunnan
(Framhald af blaðsíðu 8)
samtökunum er nú svo rík nauð
syn að hafa handbærar m. a.
vegna þeirra sleggjudóma sem
misjafnlega skynbærir og mis-
jafnlega velviljaðir menn eru
að kveða upp yfir landbún-
aðinn. En hvernig sem niður-
staðan af þessum samanburði
kann að verða þá gildir það hér
sem annars staðar að hverjum
er hollast að þekkja sjálfan sig
og átta sig á því hvar hann
stendur. Ekki verður þess vart
að aðrar atvinnugreinar hafi
gert slíka sjálfskönnun.
Greinilegt er að mörgum
stjórnarsinnum a. m. k. í Sjálf-
stæðisfl. þykir sem menntamála
ráðherra hafi verið helzt til dóm
harður í ummælum sínum um
landbúnaðarmál. Bæði forsætis-
ráðherra og síðar landbúnaðar-
ráðherra hafa a. m. k. óbeinlínis
andmælt honum nokkuð. Land-
búnaðarráðherra gerði það í
langri ræðu í Neðri-deild. Sú
ræða gaf nokkuð ólíka mynd af
ástandinu. Ráðherrann taldi og
sýndi raunar fram á með tölum
hver afkastaaukning hefur orð-
ið miðað við mannafla í stétt-
inni á þessari öld. Allt voru það
vel þekktar staðreyndir, en við
það bætti hann svo hugleiðing-
urrf um framtíðina, sem hann
taldi vera bjarta. Stofnlánamál-
in kvað hann nú vera í góðu
lagi og mundu fara batnandi.
Bændum fækkaði ekki, sagði
hann, enda má þeim nú ekki
fækka frá því sem er. Þvert á
móti þarf stéttin nú að fara að
vaxa aftur og ráðherrann lýsti
yfir þeirri sannfæringu sinni,
að það mundi líka gerast alveg
á næstunni. Endurskoðuð jarð-
ræktarlög, sem legið hafa í ráðu
neyti hans komin frá stéttar-
samtökum bænda minntist hann
ekki á og draga menn mjög í
efa að þau líti þingsins ljós á
þessum vetri. Ef til vill ekki al-
mennur áhugi á þeim í stjórn-
inni.
Reykjavík, 30. nóv. 1963.
H. E. Þ.
Sigurður Stefánsson vígslu-
biskup: Jón Þorláksson, þjóð
skáld íslendinga. Ævisaga.
Almenna bókafélagið. R-vík
1963.
Sagt er, að ókunnugur mað-
ur hafi eitt sinn mætt séra Jóni
Þorlákssyni á Bægisá á förnum
vegi og síðan spurt samferða-
mann sinn, er hann var riðinn
fram hjá: Hver var þessi mað-
ur með engilsaugun?
Annars var Jóni ekki lýst svo,
að hann hafi verið tiltakanlega
fríður maður, en það er eins og
hann iði allur af lífi, og fljótur
hefur hann verið að vinna hylli
manna með gleði sinni og gam-
anmálum, hispursleysi og ljúf-
mennsku. Skopskyn hans og
gamansemi náði auðvitað langt
út yfir það, sem hæfa þótti
kirkjunnar þjóni, þar sem hátíð-
leikinn er talinn að bera vitni
um heilags manns hugarfar, en
framar öllu voru þó barneignir
hans skelfilegt hneyksli i aug-
um kirkjuhöfðingja á þeirri tíð.
Nú þykir það hins vegar sannað
með ættartölum, að afkomend-
ur séra Jóns voru yfirleitt gáfað
fólk og ágætir þjóðfélagsþegnar,
svo að tími er kominn til að
fyrirgefa honum þessar yfirsjón
ir hans, enda mun söfnuður
hans aldrei hafa áfellzt hann
eða klagað fyrir þetta né annað,
heldur elskað hann og þótt mik-
ið til hans koma. Og sá vitnis-
burður segir mikla sögu.
Nú hefur vígslubiskup vor
Norðlendinga skrifað mikla og
góða bók um þennan örlynda,
viðkvæma og breyska mann,
sem ávallt kom til dyranna eins
og hann var klæddur, og var
kannske snillingur einmitt
vegna þess. Má vera, að hann
hefði aldrei átt að vera klerk-
ur, ef það að vera prestur er
meira komið undir yfirskini guð
hræðslunnar en því að vera
sannur maður. En ef þessu lund
arfari fylgdi einlægari auðmýkt
fyrir guði, sterkari trú og til-
beiðsluandi, meira andríki en
venjulegt var í stéttinni?* Ef
hann var mesta skáld sinnar
samtíðar á íslandi og átti líka
þá engilstungu, sem séra Pétur
á Miklabæ talar um, hvar átti
hann þá annars staðar frekar
heima, þó að hann gæfi lítinn
gaum að hræsni og yfirdreps-
skap?
Margt ágætt hefur verið skrif-
að um ævi og skáldskap séra
Jóns Þorlákssonar áður, en
hvergi í svo samfelldu og yfir-
gripsmiklu máli sem hér. Höf-
undurinn hefur grafizt vel eftir
öllum heimildum, og er eins og
hann gerþekki hvern mann,
sem á vegi hans verður og kann
því frá mörgu fróðlegu að segja.
Einkum flýtur hér með mikill
kirkjusögulegur fróðleikur, til
dæmis segir ítarlega frá sálma-
bókardeilunni, sem varð útaf
Aldamótabókinni, en það var
hin svo nefnda Leirgerður, sem
tíðkazt hefur að ófrægja mjög
í íslenzkri kirkju og að sumu
leyti að ástæðulausu. Á séra Jón
Þorláksson óneitanlega mikinn
þátt í því, og fór hann óþarf-
lega hvatskeytlega í það mál,
og er ef til vill eggjaður til þess
af öðrum.
Þó að Jón Þorláksson kvæði
margt af snilld, gátu honum ver
ið mislagðar hendur, og einkum
féllu sumir hinna þýddu sálma
hans illa að söng. í því efni var
Magnús Stephensen miklu bet-
ur að sér, og munu margar
breytingar hans, alveg eins og
sálmabókarnefndarinnar 1886,
vera gerðar í því skyni að fella
betur saman lag og Ijóð, en
eigi vegna þess, að hann þætt-
ist Jóni snjallara skáld, enda
viðurkenndi hann ávallt skáld-
skapargáfu Jóns afdráttarlaust.
Verður því heldur ekki neitað,
að stundum sneiði Magnús
hnökra af málfari Jóns, ems og
þegar hann setur „forsjón" fyr-
Séra BENJAMÍN i!
skrifar um
bækur
ir „Guðs um sorgun" og svo
framvegis, og e'r það ósennilegt
að Jón hefði ekki getað fallizt
á það, ef hann hefði verið um
það spurður. En gæta verður
þess, að ekki var hlaupið að því
að semja um þetta við mann
norður í landi. Það gat skipt
mánuðum, að bréf kæmust til
skila. Höfundarrétturinn var
heldur ekki tekinn eins hátíð-
lega í þá daga eins og nú. Ymis-
legt af þessum sálmum var
margþýtt af einum eftir annan,
og voru þeir þá komnir langt
frá sinni upprunalegu gerð.
Dómar bókarhöfundar um allt
þetta eru mjög hófsamlegir og
yfirleitt gerir hann sér far um
að kanna hvert atriði út í æsar
svo sem vera ber, þar sem unnt
er. Mest er um það vert, hvað
NORÐURLAND á enn ellefu
þingmenn og Austurland fimm.
Auk þess voru nokkrir uppbót-
arþingmenn í framboði á Norð-
urlandi. Þetta er nálega þriðj-
ungur Alþingis. Þessi þriðjung-
ur Alþingis boðaði til fundar í
fyrra á Akureyri um Jökulsár-
málið, og hafði áður fengið til
þess hvatningu frá fundum
heima í héröðum, en líklega ein
dregnasta frá fundi bændafélags
á Fljótsdalshéraði og frá fundi
Norður- og Suðurþingeyinga á
Húsavík. Þetta var fjölsótt og
einarðleg samkoma alþingis-
manna og fulltrúa frá sýslu-
nefndum og bæjarstjórnum úr
tveim landsfjórðungum. Norð-
lendingar og Austfirðingar
gerðu þar sína „Áshildarmýrar-
samþykkt“. Þeir vildu ekki láta
hlunnfara sig af stjórnarvöld-
um eða stórborgaröflum syðra
í máli, sem svo mikið er undir
komið. Þeir sögðu svo glöggt, að
ekki verður um villst, að með
tilliti til jafnvægis í byggð lands
ins, ætti fyrsta stórvirkjun með
iðjuver fyrir augum að vera
norðan fjalla. Þeir kusu fjóra
alþingismenn, einn oddvita
tveggja sýslunefnda og bæjar-
stjórann í höfuðstað Norður-
lands, sem vökumenn í þessu
stórmáli og til að fylgjast með
því, sem fram færi hjá sérfræð-
ingum og stjórnarvöldum á
þessu sviði.
Nefndarmennirnir á Alþingi
beittu sér fyrir því, að málinu
var hreyft í fyrirspurnarformi
á síðasta þingi. Þeir fengu svör,
sem ekki verða rædd hér og
héldu uppi merki Akureyrar-
fundarins, hver á þann hátt,
honum tekst að gera söguna lif-
andi með frásagnargleði sinni
og fögrum stíl. Fer vel á því að
einn af eftirmönnum hins mikla
skálds í Bægisárprestakalli skuli
verða til að reisa Jóni Þorláks-
syni svo fagran og veglegan
varða, sem gert er með þessu
verki.
Bókin er allavega fallega frá-
gengin af útgefandans hálfu,
myndum skreytt og með ítar-
legum tilvitmmum í heimildir
og nafnaskrá.
Skáldið á Sigurliæðum. Safn
ritgerða um þjóðskáldið
Matthías Jochumsson. Davíð
Stefánsson tók saman. Bóka-
forlag Odds Björnssonar.
Akureyri 1963.
Hér kemur önnur falleg bók
um þjóðskáld, sem tengt er
eyfirzkri sögu, var Vestfirðing-
ur að ætt eins og Jón Þorláks-
son og prestur eins og hann,
aðeins nær okkur í tímanum.
Þetta er bók um Matthías
Jochumsson, sálusorgara Akur-
eyringa um skeið og að lokum
heiðursborgari þeirra. Og það er
arftaki hans að ástsældum og
skáldafrægð, Davíð Stefánsson,
sem tekið hefur bók þessa sam-
an að hvötum Matthíasarfélags-
ins á Akureyri og á í henni ekki
minnstan þátt. Má því vænta
þess, að Akureyringar taki bók
sem honum þotti við eiga. Al-
þingi hafði á sínum tíma sam-
þykkt að gera fullnaðaráætlun
um Jökulsá. Framkvæmdin var
sú, að allmiklu fé hafði verið
varið til þess, en þó 4—5 sinn-
um meira vegna Þjórsár, sem
ekki var nefnd í ályktun Alþing
is. Áætlanir um báðar virkjan-
irnar töldust langt komnar en
ekki fullgerðar. Og enn hafa
þær ekki verið birtar. Sérfræð-
ingur hér nyrðra hefur upplýst,
að vatnið í Þjórsá sé ekki trygg
ara en það, að gert sé ráð fyrir
gastúrbínustöð á orkusvæðinu,
til þess að hún geti framleitt
varaafl, álíka mikið og það afl,
sem vatnsvirkjunin sjálf fram-
leiðir. Gerð mun hafa verið sér-
stök tillaga, um svo sem helm-
ing virkjunarinnar við Búrfell
til að fullnægja þörf Stór-
Reykjavíkur, og til greina mun
hafa komið að flytja afgangs-
orku norður. Til þess að bæta
úr hinni almennu þörf mun og
hafa verið rætt um gufuvirkjun
og virkjun minna fallvatns,
hvorttveggja nær borginni.
Ég held, að Sunnlendingar
austan Fjalls hafi ekki mikinn
áhuga fyrir því að virkja Þjórsá
til að reka stóriðjuver við Faxa-
flóa. Vestfirðingar ekki heldur.
Borgfirðingar geta sennilega
boðið upp á hentugt vatnsafl,
sem væri nægilegt til að full-
nægja hinni almennu þörf syðra
fyrst um sinn. Enga nauðsyn ber
til að blanda óhjákvæmilegri
orkuaukningu til almennings-
þarfa á Suðvesturlandi saman
við stórvirkjun í sambandi við
iðjuver.
Rafveitustjórinn á Akureyri,
þessari tveim höndum og reynd-
ar landsmenn allir, því að enn
hefur ekki fyrnzt yfir frægð
Matthíasar, heldur mun hún
aukast og fara vaxandi, þegar
tímar líða, eins og vant er að
vera um afburðamenn.
Þetta er allmikil bók, nær því
fjögur hundruð blaðsíður,
smekklega út gefin með litmynd
af skáldinu og húsi hans. En
gjarnan hefði mátt vera þar
meira af myndum frá heimili
hans, og ætti að vera auðgeng-
ið að þeim í Matthíasarsafni.
Þessi bók hefur að geyma veru-
legan hluta þess, sem um Matt-
hías hefur verið skráð, og er
henni „ætlað að kynna mönn-
um líf og starf þjóðskáldsins, og
þess vænzt, að hún á þann hátt
verði sem flestum til gleði og
sálubótar", segir Davíð Stefáns-
son í formála.
Aldrei gerir þjóð vor of vel
til skálda sinna og snilldar-
manna og aldrei gaumgæfir hún
um of verk þeirra. Um hálfa
öld var Matthías Jochumsson
höfuðskáld og einn mesti and-
ans höfðingi á landi voru. Það
var ekki aðeins, að hann bæri
höfuð og herðar yfir aðra að
vitsmunum og andríki í kirkju
vorri, kvæði manna djarfast
niður skottur og móra úreltra
og hugmynda og blési fegurri
trú og von inn í hjörtu lands-
ins barna með óviðjafnanlegum
trúarljóðum. Hann lét sér fátt
mannlegt óviðkomandi. Varla
kom út blað eða tímarit á ís-
landi, svo að þar ætti hann ekki
ritgerð, meðan hans naut við,
um hin margvíslegustu menn-
Knútur Otterstedt, sem er ung-
ur og áhugasamur rafmagns-
verkfræðingur, hefur að vonum
áhyggjur út af því, að raforku-
skortur verði áður en langt líð-
ur á Akureyri og víðar á Norð-
urlandi. Hann gerir sér einnig
vel Ijóst mikilvægi þess, að
næsta stórvirkjun verði á Norð-
urlandi. Sl. sumar vakti hann
máls á hugmynd, sem Sigurður
Thoroddsen verkfræðingur í
Reykjavík hefur haft til athug-
unar: Að hagnýta fallhæðina úr
Mývatni niður í Aðaldal eða
Reykjadal og viðbótarvatn, sem
nú fellur í Skjálfandafljót, til
stórvirkjunar — í einu lagi eða
í áföngum. Sú virkjun virðist
a. m. k. í fljótu bragði geta orð-
ið álíka stór og Dettifossvirkjun
og Knútur Otterstedt virðist
álíka, að hún gæti komið að
svipuðum notum fyrir Austur-
land.
Hér er um bráðabirgðaniður-
stöður að ræða. En frá sjónar-
miði Norðlendinga og Austfirð-
inga ætti það ekki að vera var-
hugavert, að þessi leið sé einnig
athuguð. Beðið hefir verið um
nokkurn tíma eftir Þjórsár-
rannsókn. Eins mætti nú fresta
ákvörðun um virkjun stærstu
fallvatna enn um stund og rann-
saka þetta mál, úr því að stjórn-
arvöld telja sig ekki skorta fé
til rannsóknar fleiri stórvirkj-
unarmöguleika en þeim var fal-
ið að rannsaka. En mikilsvert
er, eins og Áskell bæjarstjóri á
Húsavík sagði á Akureyrarfund
inum, að Norðlendingar og Aust
firðingar haldi áfram að fylgj-
ast að og hafa samráð sín á
milli. G. G.
Um Jökulsárvirkjim og fleira
ingarmál, og urðu Akureyrar-
blöðin ekki sízt aðnjótandi
ótæmandi andríkis hans. Þar
birtust kvæði hans og ritgerðir
um bókmenntir og menningar-
mál viku eftir viku, og bar það
af öllu, sem í þau var ritað, og
er enn í dag hreinasti skemmti-
lestur. Skrifuðu þó margir ágæt
ir menn í blöðin á þessari öld
öndverðri, eins og t. d. Einar
Kvaran, Páll Briem, Stefán
skólameisari, Guðmundur Frið-
jónsson og fleiri, og hefur sjald-
an meira mannvel ritað í blöð
samtímis en t. d. í Norðurland
í ritstjóranartíð Einars Hjör-
leifssonar og Sigurðar bróður
hans. Engum var þó Matthías
líkur og dró arnsúg í flugnum.
Mér eru ritgerðir hans í barnS-
minni, hafði unun af þeim, og
skildi aldrei, þegar menn voru
að segja, að Matthías væri að
vísu ágætt skáld, en ómögulegt
væri að lesa ritgerðirnar hans
þær væru svo mikið „fimblu-
famb.“
Eitthvað þessu líkt höfðu líka
ung skáld realismans svo kall-
aða sagt jafnvel um allrafeg-
urstu kvæði Matthíasar eins og
Hafísinn og fleira af trúarljóð-
um hans. Þeir höfðu tekið hann
á kné sér og látið sem hann
kynni lítið til skáldskapar. En
broslegar þykja nú þær ritgerð-
ir. Um þær má segja líkt og
Matthías komst eitt sinn að orði
í Þjóðólfi: „Ekkert er óyndis-
legra en heyra ófiðraðan ung-
ann garga hærra en gamlan
fuglinn. Það er líkt og að sjá
soninn skyrpa í skegg föðurins.“
Og enn standa í fullu gildi orð,
sem Matthías skrifaði um ís-
lenzkar bókmenntir í Stefni fyr-
ir nær því sjötíu árum síðan,
þegar realisminn- var hér í al-
gleymingi: „Það er ekki skáld-
skapur, ef lesandinn hrífst ekki,
kvelst ekki, nýtur ekki, gleðst
ekki, hryggist ekki. Og hvað
braglist snertir og orðfæri, er
það ekki skáldskapur, sem les-
andi og heyrandi lærir ekkert í
eða man af, eins og gamall sann-
leiki sé nýr eða nýr sannleiki
gamall. Braglistin er lífsins
æðsta list. . . . Annars hygg ég,
að hinn svonefndi realismus sé
annaðhvort dauður eða í andar-
slitrunum hér á landi. Og er þá
herzlukippurinn eftir, sá, að
losna undan víli og örvinglun
og yrkja með nýrri trú á tilver-
unnar sannleik og samhljóðan,
og með nýrri barnslegri gleði
yfir hennar eilífu sólarhæðum.“
Enda þótt menn fylgdu lár-
viðarskáldinu ekki alltaf eftir á
fluginu, var hann þar fyrir utan
svo mikill af sjálfum sér, svo
ástúðuegur í umgengni við alla,
æðri sem lægri, að almennt var
hann elskaður í Eyjafirði og
Akureyrarbúar voru stoltir af
að eiga þennan skáldakonung'
búandi innan vébanda sinna.
Því er ég sannfærður um að
þessari bók um Matthías verð-
ur vel tekið. Henni er aðeins
ætlað að vera inngangur að því
að öðlast skilning á skáldinu og
læra að lesa hann sjálfan.
En hvenær koma ritgerðir
hans í fallegri útgáfu, þessar
perlur ótæmandi andríkis, sem
enn liggja gleymdar og týndar
í ótölulegum grúa blaða og tíma
rita fáum tiltækar?
Þarf að líða hálf öld þangað
til þær verða dregnar fram í
dagsljósið?
STÖKUR
JÓN FRÁ PÁLMHOLTI svarar
og biður blaðið um leið fyrir
kveðju til Steingríms í Nesi.
Meðan nöpur norðanhríð
næðir um stein og birkihríslu
yrkja þau í erg og gríð
atómskáldin í Þingeyjarsýslu.
Opna þau sinn eðla hvoft-
ætla það sé mikið sport :
en þingeyinga þynnist loft
þeir eru hættir að geta ,ort.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
Jón frá Pálmholti.
- DYNKUR ...
(Framhald af blaðsíðu 8).
farizt fyrir að tilkynna þetta
nógu fljótt jöklarannsóknar-
mönnum og nú í dag var verið
að reyna að fara á snjóbíl inn
að Vatnajökli en var snúið við
skammt fyrir innan Brú á Jök-
uldal. Færi var afleitt og snjór
víða laus og snjólaust á milli.
Búið er að fara á flugvél til
að skoða verksummerki þarna,
en skilyrði voru slæm til að sjá
nokkuð að ráði hvað gerzt hef-
ur. Jökulsá á Dal hefur verið
óvenjulega ljót síðari hluta sum
ars, ekki meiri en venjulega, en
þykk leðja og mjög dökk settist
á steina við ána og skarir þegar
fraus. G. A.
- NÝJA FJÓSIÐ ...
(Framh. af bls. 1)
þar ganga ungviðin óbundin.
En naut verða bundin á básum.
Undir norðurenda fjóssins er á-
burðarkjallarinn grynnri, en
þar er ca 14 metra mykjusníg-
ill, sem flytur mykjuna í aðal-
áburðarkj allarann.
í nýja fjósinu á Rangárvöll-
um verða ekki mjólkandi kýr.
Eins og kunnugt er, er erfða-
gildi hinna einstöku nauta próf-
að á búfjárræktarstöðinni, á
þann hátt að ala upp kvíguhópa
undan ákveðnum nautum, og
þær síðan á fyrsta mjólkurskeið
inu látnar dæma um feður sína.
Þetta eru nokkuð tafsamar til-
raunir, svo sem flestar tilraunir
eru, en taldar gefa þær niður-
stöður, er bezt verður treyst.
En með sæðingu getur eitt lé-
legt naut haft þýðingarmikil á-
hrif til öfugþróunar í héraðinu,
á sama hátt og úrvalsnaut geta
haft ómetanlega fjárhagslega
jákvæð áhrif. Stöðin á að koma
í veg fyrir, að nokkur léleg naut
verði notuð.
Án efa verður auðvelt að
hirða í fjósinu á Rangárvöllum,
og með byggingu þess verður
hin fyrri vandræða-aðstaða við
hirðingu úr sögunni.
Einangrun er mikil og loft-
ræsting góð. Allt fjósið er mál-
að, og neðan til með Sjafnar-
lakki, sem á að þola hin tær-
andi efni fjósloftsins, og heitir
það uretan-lakk.
Kostnaður við nýbyggingu
þessa, sem Möl og sandur ann-
aðist, liggur enn ekki fyrir, en
áætlunarverð er 1,5 millj. kr. □
|
KNITTAX PRJÓNA- VÉL með snúningsstykki til sölu. Uppl. í síma 2218.
VIL SELJA: Dieseldráttarvél, Deutz, 15 hestöfl. Skipti á Clievroletvörubíl kemur til greina. Haraldur Hannesson, Víðigerði.
GÍTAR TIL SÖLU. Uppl. í síina 2056.
Til sölu: PLÖTUSPILARI með innbyggðum hátal- ara ásamt nokkrum plötum. Sími 1668.
TIL SÖLU vegna brottflutnings: Sófasett og borð, borð- stofusett, svefnstóll, skrif- borð, ísskápur (Elektro- lux), tvenn skíði, barna og fullorðinna og margt fleira. — Allt göðir mun- ir, sem seljast ódýrt. REYNIVELLIR 4 (syðri dyr)
Tómstundabúðin
KRAKKAR!
JÓLASVEINNINN
sýnir ykkur leikföngin
í glugganum á sunnu-
daginn kl. 1.30 e. h.
(^ómstundabúdLn
STRANDGÖTU 17 • PÖSTHÖLF 63
AKUREYRI _
HERRAFÖT
FRAKKAR
ÚLPUR
PEYSUR
SKYRTUR
DRENGJAFÖT
FRAKKAR
PEYSUR
BUXUR
VESTI
SKYRTUR
DÖMUBLÚSSUR
fallegt úrval
BARNAHÚFUR
og HATTAR
NYLONSTAKKAR
allar stærðir
Höfum einnig
margt smávegis
TIL JÓLAGJAFA
KLÆÐAVERZLUN
SIG. GUDHUNDSSONAR