Dagur - 08.01.1964, Page 7

Dagur - 08.01.1964, Page 7
7 Úr ófarabálki „viðreisnarinnar" (Framhald af blaðsíðu 4). II. Nú eru lýsingar ráðherr- ans í höfuðatriðum á þessa leið: Innflutningur hefur vaxið of mikið. Greiðslujöfnuður versn- andi. Of mikil bankaútlán. Óheillaþróun í launamál- um. Neyzla og fjárfesting meiri en framleiðslan. Of miklar framkvæmdir. Sparifjáraukning rninnk- andi. Lánsfjáreftirspurn vax- andi. Horfur á, að gjaldeyris- varasjóður minnki, þrátt fyr- ir hækkandi verð á útflutn- ingsvörum. Þannig lýsir ríkisstjórnin ástandinu í efnahagsmálun- um, þrátt fyrir það, að sjávar afli hefur verið meiri en nokkru sinni áður og verð- lag á útflutningsvörum hækk andi. Jafnvel ríkisstjórnin lítur nú alvarlegum attgum á á- standið, sem stefna hennar hefur skapað. III. Ljóst er, að ríkisstjórninni hefur algerlega mistekizt það, sem hún taldi höfuð- verkefni sitt, þegar hún ltom til valda. Stjórnin kvaðst ætla að koma atvinnulífi þjóðarinn- ar á traustan og heilbrigðan grundvöll. Það hefur henni ekki tekizt. Hún kvaðst ætla að stöðva verðbólguna og halda dýrtíð inni í skefjum. Efndimar liafa orðið þær, að dýrtíðin liefur aukizt stórkostlega og verðbólgan leikur lausum hala. Hún sagðist ætla að hafa vextina þannig, að hægt væri að fullnægja eðlilegri eftir- spum eftir lánsfé án strangr- ar skömmtunar. En lána- stofnanir hafa aldrei verið fjær því en nú að fullnægja eftirspurn þrátt fyrir liáu vextina. Hún sagði að það skyldi vera verkefni samtaka laun- þega og atvinnurekenda að semja um kaup og kjör, en efndirnar eru kaupbindang- arfrumvarpið, sem flutt var á Alþingi í vetur. (Grein þessi er að mestu sam- hljóða kafla úr nefndaráliti al- þingismannanna Einars Ágústs- sonar og Skúla Guðnmmjssonar (minni hl. fjárhagsnefndar n.d.) dags. 4. nóv. sl. um launamál). □ Frá Skákféiaginu SKÁKFÉLAG AKUREYRAR efndi til jólahraðskáksmóts fyr- ir áramótin. Þátttakendur voru 22. Halldór Jónsson hlaut 1814 vinning, Júlíus Bogason 17V2, Hjörleifur Halldórsson I6V2, Jón Björgvinsson 16 og Jón Þór 15 vinninga. Skákfélagið efnir nú til fyrir- tækjakeppni, sem hefst n. k. mánudagskvöld í Verzlunar- mannahúsinu kl. 8 s. d. Fjög- urra manna sveitir keppa. Þátt- tökutilkynningar þurfa að ber- ast formanni félagsins, Jóni Ingimarssyni, hið fyrsta. □ - Góðtemplarareglan (Framhald af blaðsíðu 8) komuhús bæjarins 1906—1907, enda var hagur stúknanna þá með miklum blóma í bænum. Þá fyrir skömmu hafði stúkan Brynja nr. 99 verið stofnuð, 4. júlí 1904, og á liún því 60 ára afmæli í vor. Voru stofnendur hennar flestir iðnaðarmenn. Af þeim er nú aðeins einn á lífi Hallgrímur Jónsson járnsmiður. Enn eru þessar tvær stúkur, sem nefndar hafa verið, starf- andi í bænum og eiga sameigin- lega þau fyrirtæki; sem rekin eru hér á vegum Reglunnar. Auk þess starfa hér þrjár barnastúkur, ein við hvern barnaskóla bæjarins. Hafa þær fundi reglulega yfir vetrarmán- uðina og jólatrésskemmtun ár hvert. Þar læra börnin að koma fram á fundum og læra fundar- reglur. í barnastúkunum er tóbaksbindindi og börnin þar frædd um bindindismálið. Fyrir rúmum áratug, þegar Reglan keypti Hótel Norður- land fsprðis starfssvið hennar inn á nýjar leiðir í auknum mæli. Að vísu hafði kvikmynda rekstur verið hafinn nokkrum árum áður, en fékk nú bætt skil yrði. Borgarbíó er annað af tveimur kvikmyndahúsum bæj- arins og nýtur almennra vin- sælda bæjarbúa. Jafnframt er það aðalhljómleikahús bæjarins um þessar mundir. Stúkurnar hafa rekið Hótel Varðborg síðastliðin 10 ár, og er það eina bindindishótelið hér á landi. . □ Talkennsla í esiskn Enskunámsflokkar Iðnskólans taka til starfa á ný í næstu viku. Kennari: Aðalsteivn Jónsson, verkfræð- ingur. Framhaldsflokkur komi á mánudagskvöld kl. 8 í Geislagötu 5. Nýr byrjendaflokkur fimmtudags- kviild kl. 8. — Iðnaðarmenn sitja fyrir. Nánari upplýsingar gefur JÓN SIGURGEIRSSON, skólastjóri, sími 1274. Frá Húsmæðraskó! any m NÁMSKEII) lvefjast aftur um miðjan janúar. Nánari upplýsingar í Húsmaaðraskólanum næstu daga. Hjartkcerar pakkir til allra, cr sendu mér jólakort ^ °g sjajir um síðuslu jól. — Guð blessi ykkur og gefi f ;t ykkur gœfurikt komandi ár. — Lifið heil! 27. desenvber 1963. SIG. HELGASON frá Skógum i Fnjóskadal. © 2'.'- $ © ■r I © ■r & I t í 4 V íj'rS' ^ í’ÚS" Q'J- í'/c'í' 0*^ v;cS' i;'-^ % Elliheimilið i Skjaldarvik óskar öllum gleðilegs nýs f J árs og þaltkar innilega alla vinsemd á liðnu ári. — \ Sérstaklega þökkum við góðar heimsóknir um jól og i t áramót og jólagjafir frá stúkunni ,,Auðar systur“ og jj J. Kvenskátafélagi Akureyrar. — Guð blessi ykkur og % 4 gefi ykkur gengi á nýja árinu. |- t. I | STEFÁN JÓNSSON. f ? f IW' Q'L íjW- í Q*1}- 7vi?'k (§*&■ vlí ® ^ Ykkur öllum, sem auðsýndu okkur vinsemd og samúð við andlát og jarðarför SÆVALDAR VALDIMARSSON, Sigluvík, vottum við okkar innilegustu þakkir. Einnig viljum við þakka læknum og hjúkrunarkonum Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri, sem önnuðust hann af alúð í veikindum hans. — Guð blessi ykkur öll. Bernólína Kristjánsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. I. O. O. F. Rb. — 114198*4 — I. O. O. F. — 1451108*4. MESSA í Akureyrarkirkju fyrsta sunnudag eftir þrett- ánda kl. 2 e. h. — Sálmar nr. 500 — 494 — 105 — 579 — 684. P. S. MESSAÐ í Svalbarðskirkju n. k. sunnudag klukkan 2. Sóknarpresiur. AÐALFUNDUR K. F. U. M- verður haldinn fimmtudaginn 16. þ. m. í kristniboðshúsinu Zíon kl. 8 e. h. — Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnm. SUNNUDAGASKÓLI Akur- eyrarkirkju er á sunnudaginn kemur kl. 10.30 f. h. Yngstu börnin í kapellunni, eldri börnin í kirkjunni. — Bekkja- stjórar mæti kl. 10.15 f. h. — Mætið vel og stundvíslega. — KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZÍON: Sunnudaginn 12. jan. Sunnu- dagaskóli kl. 11 f. h. Sam- koma kl. 8.30 e. h. — Allir velkomnir. HJALPRÆÐISHERINN á Akur eyri þakkar hjartanlega öll- um, sem gáfu í jólapottinn og á annan hátt stuðluðu að því, að gleðja aðra um þessi jól. Guð gefi ykkur öllum gleði- legt ár. DRENGIR! Munið drengjafund- inn að Sjónarhæð n. k. mánu- dagskvöld kl. 6. — Sýndar verða litskuggamyndir. Allir drengir velkomnir. L I O N S KLÚBBUR AKUREYRAR Fundur í Sjálfstæðis- húsinu fimmtudaginn 9. þ. m. klukkan 12.15. Stjómin. FRAMSÓKN ARFÉLÖGIN á Akureyri halda fund á skrif- stofu flokksins fimmtudaginn 9. þ. m. kl. 8.30 e. h. Frum- mælandi er Ingvar Gíslason alþingismaður og talar um stjórnmálaviðhorfið. — Fjöl- mennið stundvíslega. KARLAKÓR AKUREYRAR Æfing á venjulegum stað og tíma á morgun (fimmtudag). Mætið allir stundvíslega. ■— Stjómin. FRA SJALFSBJÖRG. Föndur á mánudaginn 13. janúar klukkan 8. SKÍÐAHÓTELIÐ HLfÐAR- FJALLI. Opið daglega fyrir gístingu og greiðasölu. Borð og matpantanir í síma um 02. Hótelstjóri. ATHYGLI skal vakin á augl. Iðnskólans á öðrum stað í blaðinu í dag um ensku- •kennslu. HJÓNAEFNI: Á gamlárskvöld opinberuðu trúlofun sína ung frú Ágústa Sverrisdóttir verzl unarmær og Björn H. Garð- arsson sjómaður. IIJÓNAEFNI: Á gamlárskvöld opinberuðu trúlofun sína ung frú Auður Birgisdóttir frá ísa- firði og Páll Skúlason Austur byggð 7 Akureyri. FRA BRIDGEFÉLAGI Akur- eyrar! Meistaraflokkskeppnin hefst þriðjudaginn 14. þ. m. kl. 8 e. h. — Spilað verður í Landsbankasalnum. Stjórnin. I. O. G. T. st. Ísafold-Fjallkonan no. 1, og st. Brynja no. 99 halda sameiginlegan hátíðar- fund í tilefni af 80 ára afmæli Góðtemplarareglunnar á ís- landi, fimmtudaginn 9. þ. m. kl. 8.30 e. h. að Bjargi. Fund- arefni: Vígsla nýliða, afmæl- isins minnst. Kaffi og dans að loknum fundi. Framkvæmda- nefndir stúknanna væntir þess, að félagar fjölmenni á fundinn og taki með sér nýja félaga. Æ. T. ARMANN BÚASON, Myrkár- bakka stjórnaði hófi því á Melum í Hörgárdal, sem frá var sagt í síðasta blaði, en ekki Haukur Steindórsson, eins og ranghermt var. - DRUNUR OG HÖGG í BRÚARJÖKLI (Framh. af bls. 1) um Jöklarannsóknarfélagsins á 8 stöðum, héldum svo yfir Kringilsá og gistum þar, sagði Hrafn. Eftir það var farið þar, sem Kverká kemur undan jöklinum og stikur settar niður. Jökullinn er á hreyfingu, um 1 m. á klst. Hann er sprunginn og ófrýnilegur. Jökulröndin er upp í 10 m. á hæð. Drunur og högg heyrast stöðugt og er það ófögur hljómlist. Jökullinn á skammt farið að þeim stöðum, sem hann hefur lengst gengið fram áður, eða aðeins 2—3 km. Hin síkvika jökulrönd er hrikaleg. Við sáum 3 hreindýr í Kring- ilsárrana. Síðustu nóttina gistum við á Brú og komum heim á mánu- dagskvöldið, 6. janúar. Færðin var sæmileg, einkum á heim- leiðinni og veður gott. Q Vel sótt leiksýning Hrísey 7. jan. Kvennfélag Hrís- eyjar hefur sýnt sjónleikinn Hreppstjórann á Hraunhamri þrisvar sinnum í Hrísey. Enn- fremur þrisvar á Dalvík fyrir troðfullu húsi sama daginn og munu slíks fá dæmi. Auk þessa var ein sýning á Grenivík og komu fleiri þar, en húsrúm leyfði. Leikstjóri er Kristján Jóns- son leikari frá Reykjavík. Formaður Leikfélags Hríseyj- ar er frú Lára Sigurjónsdóttir. Jóhannes Helgi rithöfundur er setztur að í Hrísey. Þ. V. Afgreiðslu- og auglýs- ingasími Dags er 1167

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.