Dagur - 18.01.1964, Page 1
NÝIR KAUPENDUR
fá framhaldssöguna,
„GULLNABORGIN“
frá byrjun.
Hringið í síma
1166 eða 1167.
- ■ ' ...................-'■!
VINSAMLEGA LÁT-
IÐ VITA EF VAN-
SKIL VERÐA Á
BLAÐINU.
Símar 1166 og 1167.
BLINDUR
AÐ JAFNAÐI þykja veikindi
manna, einkum af völdum smit-
næmra sjúkdóma, meiri tíðind-
um sæta en hreysti manna og
heilbrigði.
Á Akureyri er aðeins einn
blindur maður á svokölluðum
starfsaldri. En hann varð fyrir
slysi, bam að aldri. Auk þess
eru nokkur-blind gamalmenni.
Tala blindra mun því 'óvenju-
lega lág hér, og Verður sú gæfa
forsjóninni vart fullþökkuð. □
SETTIR f „STEININN“
FYRIR REYKINGAR
NÝLEGA var skýrt frá því í
sunnanblaöi, að ný auglýsinga-
herferð væri hafin, m. a. jafn-
hliða kvikmyndum, fyrir auk-
inni notkun á vissum sígarettu-
tegundum. Eru slíkar auglýs-
ingar í fullum gangi í okkar
kæra föðurlandi og nýlega stór
auknar, samkvæmt sunnanfrétt
um.
Fyrir nokkrum dögum var
birt skýrsla bandarískra vís-
indamanna um áhrif sígarettu-
reykinga á heilsu manna. Segir
þar, að reykingar sé ein aðal-
orsök krabbameins í lungum.
Jafnhliða bárust þær fréttir,
að í bænum Eastland í Texas
séu nú sígarettureykingar bann
aðar algerlega og varða brot á
þessu allt að 43 þús. kr. sektum
og 3ja ára fangelsi. þar er þetta
mál tekið föstum tökum.
Heilbrigðisyfirvöld Bandaríkj
anna eru sögð í undirbúningi
með einskonar herferð gegn
réykingum, og að takmarkað
verði mjög leyfi til að auglýsa
slíka vöru.
Þess ber að minnast, að fyrir
tveim eða þrem missirum, sam-
þykktu brezk stjórnarvöld mikl-
ar verðbreytingar tóbaksvara,
létu stórhækka verð vindlinga
(Framhald á blaðsíðu 5.)
Þelamerkurskólinn, nýr heimavistarbarnaskóli þriggja hreppa, er tekinn til starfa. Skólinn er mikið hús, byggður við heitar
uppsprettur á Laugalandi. Þar eru nú rúmlega 80 börn til skiptis. Skólastjóri er Jóhannes Óli Sæmundsson fyrrv. námsstjóri
og með honuin tveir kennarar. Nýja skólaliúsið er enn ekki fullgert en vinnuflokkar, 6—12 manns, eru daglega að störfum.
Enn er aðeins smávegis handavinna kennd og sundlaugin er ekki í lagi, en bókleg fræði eru kennd af fullum krafti. (Ljm. E. D.)
KOMA SIGLFIRZKIR TUNNUSMIÐIR
TIL AKUREYRAR?
Málið athugað í stjórn tunnuverksmiðjanna
og hj á verkalýðsfélögunum á Sigluf. og hér
eru einnig athugaðir í þessu
sambandi og vonandi að úr ræt-
ist. Þess mætti vænta að Siglu-
fjarðarkaupstaður hlynni að
þessu máli og e. t. v. gætu
tunnuverksmiðjurnar sýnt meiri
rausn við verkamenn sína.
Björn Einarsson verksmiðjustj.
á Akureyri, telur ekkert því til
fyrirstöðu að taka upp vakta-
vinnu í verksmiðjunni hér, með
flokk Siglfirðinga, sem uppi-
stöðu á annarri vaktinni, hvort
(Framh. á bls. 2)
ÓSKIR bárust um það frá
tunnusmiðum á Siglufirði, eftir
bruna tunnuverksmiðjunnar
þar, að tekin yrðu upp vakta-
vinna í tunnuverksmiðjunni á
Akureyri með Siglfirðinga, 25—
30 á annarri vaktinni. Stjórn
verksmiðjanna hefur málið í
athugun og liefur, að því er
hlaðið hefur lauslega fregnað,
hoðið 60 kr. uppbót kaups á dag
til að mæta nokkru af dvalar-
kostnaði Siglfirðinganna á Akur
eyri.
Eins og er, strandar raunveru
lega á því, að Akureyringar geti
hýst hina aðkomnu tunnugerð-
armenn og selt þeim fæði á svo
hóflegu verði, að aðgengilegt
þætti. Fyrir liggur tilboð um
gistingu og fæði fyrir nálægt
5800 krónur á mánuði pr. mann,
en kaup í tunnuverksmiðju er
um 9 þús. kr. Aðrir möguleikar
„Góðir eiginmenn sofa
og „Er á meSan er
eru næstu sjónelikirnir, sem sýndir verða á Ak*
ara
f GÆR varð Eimskipafélag ís-
lands 50 ára. Það var stofnað
af þjóðarnauðsyn og með sam-
eiginlegu átaki ríkra og fátækra
í þessu landi. Starfsemin hófst
ineð kaupum á Gullfossi, síðan
Goðafossi.
Síofnun Eimskipafélagsins og
kaup fyrstu skipanna, var eitt
af stærstu sjálfstæðismálum
þjóðarinnar í þess orðs réttu
merkingu og hefur cflaust ált
noklturn þátt í fullveldi lands-
ins 1918. Eimskipafélagið varð
einskonar sigurtákn þeirrar
framvindu efnahags og atvinnu-
mála, er hófst á fyrstu árum
aldarinnar og enn er væntan-
lega ckki lokið. En í dag er
„óskabarn þjóðarinnar“, en svo
var félagið oft nefnt, talandi
tákn uin samtakamátt þjóðar-
innar, þegar hún vill.
Saga Eimskipafélagsins í
hálfa öld var viðburðarík og
hefur svo verið fram á þennan
dag. Það valt á ýmsu um skipin,
cn þau voru þó lífæð þjóðar-
innar — hluti af sjálfstæði lienn-
ar. Árið 1960 voru skip Eim-
skipafélagsins orðin 10 að tölu,
30 þús. tonn að burðarmagni.
Á sl. ári bættust Mánafoss og
Bakkafoss við.
Fyrsti formaður félagsins var
Sveinn Björnsson, síðar forseti.
Fyrsti framkvæmdastjórinn var
Emil Nielsen.
Núverandi stjórn skipa:
Bjarni Benedikisson, Einar B.
Guðmundsson form., Jón Árna-
son, Thor R. Thors, Pétur Sig-
urðsson, Páll Sæmundsson og
Birgir Iijaran. Framkvæmda-
stjóri er Óttar Möller. □
LEIKFÉLAG Akureyrar er nú
að æfa sjónleikinn „Góðir eigin-
menn sofa heima“. En leikur sá
var sýndur í Þjóðleikhúsinu ár-
ið 1953 og hlaut ágætar viðtök-
ur, sem góður gamanleikur.
Leikendur eru 10 og er Jó-
hann Ögmundsson leikstjóri.
Með veigamikil hlutverk fara:
Eggert Ólafsson, Þórhalla Þor-
steinsdóttir, Júlíus Oddsson,
Þórey Aðalsteinsdóttir og Ólaf-
ur Axelsson.
Sýningar liefjast strax að
sýningum M. A. loknum.
Skólaleikur M. A.
Menntaskólaleikurinn í ár
verður „Er á meðan er“, og
mun leikstjóri frá Reykjavík,
Jónas Jónasson, væntanlegur
einhvern næsta dag til að setja
leikinn á svið með nemendum,
og búist við frumsýningu um
eða eftir næstu mánaðamót. „Er
á meðan er“ er eftir þá Kauf-
man og Hart, sömu höfunda og
sjónleikurinn „Gestur til mið-
degisverðar“, sem nemendur
M. A. hafa sýnt áður.
Formaður Leikfélags M. A. er
Jóhann Heiðar Jóhannsson frá
Siglufirði. Q
FRAMSOKNARMENN!
FRAMHALDSFUNDUR um
fjárhagsáætlun bæjarins verður
í húsakynnum flokksins, Hafn-
arstr. 95, á þriðjudaginn. Stef-
án Reykjalín er framsögumað-
ur, eins og á fimmtudagsfundin-
um. En þá var fjárhagsáætlunin
og önnur bæjarmál rædd af
miklu fjöri.
Fundurinn hefst kl. 8.30 e. li.