Dagur - 18.01.1964, Page 4
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1166 og 1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Rúblan lalar
ÞJÓÐVILJINN, sem út kom 10 jan.
var með hátíðlegu yfirbragði og hafði
miklar fréttir að færa, er verma
skyldi hin trúu hjörtu í landinu
kalda norður við heimsskautsbaug.
Það hafði verið mikill dagur í austri,
byltingardagurinn sæli 7. nóvember,
því að einmitt þá, „á 45 ára afjnælis-
degi októberbyltingarinnar miklu“,
eins og það er orðað, var opnuð í
Póllandi 5500 km. löng olíuveita,
sem „á upptök sín austan við Volgu,
liggur yfir 18 stórfljót og 440 minni
ár, læki og gil og meira en 200 akvegi
— meira en einn metri í Jjvermál —
á sér engan líka neinsstaðar í heim-
inum — er meiri en tvöföld á lengd
við liina frægu Arabíuolíuleiðslu og
Ilig Inch í Bandaríkjunum — geym-
ar sem gætu rúmað 12 hæða hús —
Þessi mikla leiðsla er nú ekki að-
eins komin til Póllands, segir blað-
ið, heldur einnig til Tékko Slovakíu
og Ungverjalands og væntanleg til
A.-Þýzkalands. Hún heitir: „Olíu-
veitulína vináttunnar“, segir Þjóð-
viljinn.
Siðan segir svo: „Vináttulínan er
tekin til starfa. Eins og sameining
orkuveitukerfanna í löndum Efna-
hagssamhjálparráðsins var Jietta
mannvirki glæsilegt dæmi um bróð-
urlega samvinnu margra J)jóða með
áður óþekktum liætti“. O-jæja. f
Vestur-Evrópu er nú víst fyrir hendi
eitthvað, sem líka kann að vera Jiægt
að kalla „bróðurlega samvinnu
margra þjóða“, ef einhverjum sýnist
þótt ekki sé nefnt eins hugljúfu nafni
og „Efnahagssamhjálparráðið“ í
Þjóðviljanum, heldur bara Efnahags
bandalagið, og ekki alltaf með mik-
illi andagt! Trúlega skilja Jrað flestir,
sem líta á hlutina með raunsæi, að
hin mikla olíuveita úr Volgubyggð-
um, vestur í Mið-Evrópu, er ekki
„vináttulína" og ekki nema að
nokkru leyti ætluð til flutninga á
Jteim nauðsynjavörum, sem olía og
benzín eru nú á tímum í daglegu tali.
Hún er jafnframt, og trúlega fyrst
og fremst eitt af mestu hernaðar-
mannvirkjum í veröldinni. Hún er
hinn fyrirhugaði, mikli aflgjafi skrið
dreka — flugskeyta — og sprengju
flugvélastöðva í hugsanlegri styrjöld
við Vesturlönd. Þetta hefur stjóm
Vestur-Þýzkalands trúlega gert sér
ljóst Jjegar hún gerði efni hennar að
hernaðarbannvöxu. Sú ráðstöfun
reyndist þó árangurslítil, segir Þjóð-
viljinn og bætir við talsvert kampa-
kátur: „REIKNINGAR ANDSTÆÐ
INGA VORRA FENGU EKKI
STAÐIST“. Hvað kemur til, að
Jxannig er að oxði komist? Er hægt
að telja Jxá, sem líta Jxetta mikla
mannvirki Rússa hornauga, til „and-
stæðinga vorra“ (íslendinga) af Jxeim
(Framh. á bls. 7)
Sj ávarútvegurinn um áramótin
Aflinn á síðasta ári var um 780 þúsund tonn
SAMKVÆMT skipaskrá um þil
skip og lauslegri áætlun um
opna vélbáta, sem stunda fisk-
veiðar að staðaldri, var íslenzki
fiskiskipaflotinn um síðustu vet-
urnætur nálega 76300 rúmlest-
ir. Eru þá meðtalin hvalveiði-
skipin átta, samtals 2749 rúm-
lestir. Fyrir 10 árum, eða árið
1953, var fiskiflotinn 58400 rúm-
lestir. Aukning á áratug nálega
18 þús. rúmlestir eða ca. 31%.
Þetta segir skipaskráin, en
ýmsu mætti við bæta til skýr-
ingar. Vera má, að minna sé nú
talið af gömlum skipum og
aflóga, t. d. togurum, er gert
var fyrir 10 árum. Mörg fiski-
skip farast eða verða ónothæf
ár hvert. Ég hygg að aukning
fiskiflotans samkvæmt þessum
tölum, sé minni en margur hef-
ur gert sér í hugarlund, að hún
væri. Nú eru allmörg fiskiskip í
smíðum, flest erlendis. Þetta eru
yfirleitt stór skip og einkum
ætluð til síldveiða á hafi úti.
Hið æskilega takmark, að íslend
ingar smíði fiskiskip sín sjálfir
og gerist skipaútflytjendur, er
enn ekki orðið að veruleika, en
að því verður væntanlega stefnt.
Láta mun nærri, að sjávar-
aflinn á árinu, sem leið, hafi
verið um 780 þús. tonn af fiski
upp úr sjó. Það mun nú vera í
þann veginn að verða föst regla
að telja allan aflann á þennan
hátt í stað þess að telja hann að
verulegu leyti „slægðan með
haus“ eins .og tíðkast hefir hér
á landi, enda er hin nýja fram-
talsaðferð í samræmi við al-
þjóðaskýrslur. Talinn á sama
hátt hefir ársaflinn undanfarin
ár verið þessi:
Ár 1954 452 þús. tonn
Ár 1955 496 þús. tonn
Ár 1956 531 þús. tonn
Ár 1957 516 þús. tonn
Ár 1958 580 þús. tonn
Ár 1959 641 þús. tonn
Ár 1960 593 þús. tonn
Ár 1961 710 þús. tonn
Ár 1962 832 þús. tonn
Ár 1963 780 þús. tonn
(Áætlað magn árið 1963).
Til samanburðar við fiskafla
okkar íslendinga er þess að
geta, að allur fiskafli heimsins,
var á árinu 1962 áætlaður 44—
45 milljónir tonna. Japanir, sem
eru mesta fiskveiðiþjóð jarðar,
öfluðu þá hátt á sjöunda milljón
tonna og Perúmenn í Surðu-
Ameríku, sem í seinni tíð hafa
mokað upp feitfiski til mjöl-
Gísli Guðmundsson alþingism.
vinnslu eins og kunnugt er, öfl-
uðu nærri ins mikið. Sovétmenn
veiddu rúmlega 4 millj. tonna
og Bandaríkjamenn nálega 3
millj. tonna.
Útflutningsverðmæti sjávar-
aflans 1963 er nú áætlað um
3500 milljónir eða álíka og 1962,
þótt aflamagnið sé minna. Verð
hefir verið hækkandi vegna
gengisbreytinga og vei'ðhækk-
ana erlendis síðustu árin, en
framleiðslukostnaður á sjó og
landi hefir þó aukizt mun meii'a
en því svarar á sama tíma, eða
svo er almennt talið. Hin mikla
aukning sjávaraflans í heild er
öll fólgin í aukningu síldarafl-
ans, en þorskaflinn hefir farið
minnkandi, enda afli togaranna
sáralítill miðað við það, sem áð-
ur var. Þorskafli („slægður með
haus“) var rúmlega 304 þús.
tonn árið 1960, nálega 249 þús.
tonn árið 1961, rúmlega 223 þús.
tonn árið 1962, en var heldur
meiri á tveim fyrstu ársfjórð-
ungum 1963, en á sama tíma ár-
ið áður. Vetrarvertíðarbátum á
þorskveiðum fer fækkandi, en
því meiri áherzla lögð á síld-
veiðarnar, og hin nýju skip eink
um við það miðuð, eins og fyrr
var sagt.
Það, sem nú vekur sérstaka
athygli í sambandi við afkomu
sjávarútvegsins um áramótin,
eru reksturserfiðleikar vinnslu-
stöðvanna, sem breyta þorskafl-
anum í markaðsvöru, en um
síldarsöltun og síldárvinnslu er
minna rætt enn sem komið er,
hvað sem síðar kann að verða.
Hinn 22.—23. okt. sl. hélt Sölu
miðstöð hraðfrystihúsanna auka
fund og var þetta gert, eins og
komizt er að orði í blaði, sem
hún gefur út, „vegna hins alvar-
lega ástands, sem skapast hefir
í hraðfrystiiðnaði landsmanna“,
en í félaginu eru 56 hraðfrysti-
hús. Á þessum fundi kom það
fram, að miðað við þáverandi
ástand byggi hraðfrystiiðnaður-
inn við reksturstap, sem næmi
14% af söluverðméeti útflutn-
ingsframleiðslunnar. Sjálfur
heyrði ég reynda menn á þessu
sviði halda því fram um þetta
leyti, að reksturstapið væri
meira, og síðan hafa a. m. k.
sumir liðir reksturskostnaðar
hækkað talsvert.
Um sama leyti héldu fram-
kvæmdastjórar í fiskiðnaði á
vegum samvinnufélaganna ann-
an fund um þessi mál. Þar var
vakin athygli á hinum sérstöku
reksturerfiðleikum fiskiðnaðar-
ins á Norður- og Austurlandi,
en þeir voru þar einkum taldir
þessir:
1. Meðalstærð svonefnds stór-
fisks að jafnaði miklu minni en
í öðrum landshlutum.
2. Óslægður fiskur hlutfalls-
lega minna virði en slægður
fiskur, þar sem hrogn og lifur
nýtast illa eða ekki.
3. Hráefnisöflun erfiðari og
ótryggari.
4. Fiskvinnslustöðvarnar yfir
leitt smærri, og dreifing fasta-
kostnaðar því óhagstæðari.
5. Tækniþjónusta dýrari og
lakari.
6. Kostnaður af flutningi
rekstursvara og meiri birgða og
rekstursvörum hærri.
Sérstök athygli var vakin á
smáfiskinum, sem er hlutfalls-
lega mjög mikill í þessum lands
hlutum og dýr í vinnslu, sem
kunnugt er.
Fundur S. H. (Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna) stakk upp á
þessum liðum til úrbóta:
1. Að vextir Seðlabanka fs-
lands á afurðalánum verði lækk
aðir úr 7% niður í 3% og útlán
hans aukin í % af fob-verði.
2. Að útflutningsgjöld, 7.4%,
verði afnumin og tekna í þeirra
stað aflað á annan hátt.
3. Að aðstöðugjald á fisk-
vinnslu verði afnumið.
3. Að tollar á vélum og vara-
hlutum til frystingar og annars
fiskiðnaðar verði afnumdir.
5. Að frestað verði í eitt ár að
innheimta afborganir af slofn-
lánum sjávarútvegsins.
6. Að rafmagn til fiskvinnslu
verði lækkað.
Að lokum var stjórn Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna
falið að leita umboðs frystihús-
anna til rekstursstöðvunar, ef
ekki fengist viðunandi lausn
mála.
Fundurinn, sem haldinn var
á vegum samvinnufélaganna,
benti að miklu leyti á svipaðar
leiðir, taldi þó þörf á að hækka
afurðalánin upp í 85% og að
vinnslustöðvar fengju „aðgang
að lánsfjármagni til þess að end-
urskipuleggja vinnslukerfið og
til kaupa á nýjum tækjum og
búnaði, sem stuðlað getur að
aukinni nýtingu vinnuafls og
hráefnis".
Síldveiði varð á árinu, sem
leið, nokkru minni en í fyrra en
nýttist betur, þar sem meira var
saltað. Það er eitt helzta verk-
efnið í sjávarútvegsmálum á
komandi árum að reyna að
koma því í kring, að sem allra
minnst þurfi að bræða af þeim
síldarafla, sem gæti orðið verð-
mætari vara á annan hátt. Nú
síðustu árin hefir tekizt að selja
úr landi verulegt magn af fros-
inni Suðurlandssíld, og má vera
að þar hylli undir nýja og betri
tíma í síldveiðimálum, þótt enn
hafi ekki þótt tiltækilegt að
verka Norðurlandssíldina á
þennan hátt. En ef möguleikar
skapast til að selja mestan hluta
síldaraflans til manneldis, verð-
ur að sjálfsögðu að haga veíðuri-
um svo sem unnt er í samræmi •
við það, þannig að síldin koirii
sem ferskust og bezt með farin-
á land. Trúlegt er, að afláTnagn-
ið yrði þá eitthvað minna en
jafnframt verðmeira.
Eins og kunnugt er varð báta-
afli á sumarveiðum við Norður-
land með minna móti á sl. ári,
og sumstaðar mátti heita afla-
brestur fram á mitt sumar. Af-
koma smábátaflotans norð-
lenzka í heild hlýtur því að hafa
verið mun lakari en undanfarin
ár, og haft í för með sér hrá-
efnisskort hjá ýmsum'frystihús-
um a. m. k. tíma úr árinu.
Nú um áramótin hlýtur það
að rifjast upp fyrir mörgum, að
fyrir svo sem hálfum áratug, á
árunum 1957—58, virtist yfir-
leitt vera fremur góð afkoma
hjá sjávarútveginum, a. m. k.
hjá bátaflotanum, og einnig hjá
vinnslustöðvunum. Verðbóta-
kerfið, sem þá var í gildi og bú-
ið var að samhæfa þörfum út-
gerðar og vinnslustöðva, að
fenginni reynslu, var sniðið eftir
mismunandi staðháttum, t. d.
hinna svonefndu sérbætur á
afla, sem er dýr í vinnslu. Þeg-
ar stjórnarvöld landsins fóru að
gera sér í hugarlund, að hægt
væri að koma á hæfilegri gengis
skráningu fyrir sjávarútveginn
í öllum landshlutum, var ekki
tekið það tillit til staðreynda,
sem nauðsyn bar til og aðvör-
unum í því efni lítill gaumur
gefinn. Verstöðvar og landshlut
ar hafa um skeið haft af þessu
tilfinnanlcga reynslu. En nú er
svö komið, að það eru ekki að-
eins.þær verstöðvár, éða þeir
- landshlutar, er einkum.nútu sér
bótariná, sém nú eru illa staddir.
Vandamál vinnslustöðvanna um
land allt er orðið stórmál, sem
veldur ríkisstjórn og almenn-
ingi þungum áhyggjum. Að lok-
inni „viðreisn“ virðist þessi
vandi vera mun meiri en hann
var fyrir fimm árum.
G. G.
- Settir í „steininn“
(Framh. af bls. 1)
en lækka píputóbak að sama
skapi. Átti þetta, ásamt opinber-
um áróðri, að draga úr sigarettu
reykingum. Frá þessu var skýrt
hér í blaðinu á sínum tíma. Hin
ar nýju bandarísku rannsóknir
hljóta að vekja þá spurningu
hjá íslenzkum heilbrigðisyfir-
völdum, hvað gera beri hér á
landi til að draga úr skaðsemi
sigarettureykinga, sem enn fara
mjög í vöxt, einkum meðal ungl
inga og jafnvel barna. Sagt er
að von sé tillagna frá Krabba-
meinsfélaginu, sem raunar hef-
ur áður lagt tillögur sínar fyrir
heilbrigðisyfirvöldin, en án ár-
angurs. Q
ENDURSKINSMERKI
ENDURSKINSMERKIN svo-
kölluðú, sem nokkrar fatagerð-
ir láta setja á vinnuföt og barna
úlpur, hafa því miður ekki orð-
ið svo algeng sem skyldi hér á
landi og hafa þó bjargað mörg-
um mannslífum.
Þessi litlu merki, sem eru
mjög skýr þegar bílljós falla á
þau í myrkri, þykja fullorðnum
leið og Ijót og vilja ekki nota
þau, segjá ennfremur, að það
skemmi góð föt að festa þau á.
Þetta er mikill misskilningur,
því merki eru til, sem menn
hafa í vasa sínum en festa á sig
lauslega þegar þess er þöff.
Dökkklætt fólk á dökkum
srij ólausum götum og végum,
sézt mjög illa í myrkri og er
það kunnara en frá þurfi að
segja. Með endurskinsmerki, er
vegfarandinn nokkurn veginn
viss um, að bílstjórar sjá hann
áður en það er of seint. Þetta
litla og ódýra merki ætti hver
gangandi maður, ungir og gaml-
ir, karlar og konur, að nota í
umferð bæjanna og á vegum
úti, þegar dimma tekur.
Bifreiðarstjóri einn, sem ræddi
þessi mál við blaðið fyrir
skömmu, færði að þessu sterk
rök með dæmum úr atvinnu
sinni, gömlum og nýjum, og bað
jafnframt um, að bent væri á
nauðsyn þess að almennt yrðu
tekin upp' endurskinsmerkin. Q
HÚSMÓÐIR SPYR
KONA EIN, sem nefnir sig
G. M. P. sendir blaðinu eftirtekt
arvert bréf. Hún segir: Fiskur-
inn hefur verið sendur óunninn
til útlanda og atvinna því sára-
lítil hjá þeim, sem áður höfðu
vinnu í fiskiðnaðinum. Þetta er
búið að vera svona frá því um
mánaðamótin sept.—okt.
„Guð hjálpar þeim, sem hjálp-
ar sér sjálfur“ reit faðir ungrar
stúlku sem hafði verið kjörin
ritstjóri Leiðólfs, málgagns ung-
mennafélags austur í Landbroti.
Hvað mundi hann skrifa nú, ef
hann t. d. læsi Vísi, þar sem
stendur í leiðara: „En engin rök
eru fyrir því að íslendingar hafi
skaðazt á þessu samkomulagi“
þ. e. undanslættinum við Breta
til veiða innan 12 mílnanna.
Þetta er þó bæði skaði og
skömm, og enn verra þó, að ís-
lendingar skuli hafa gloprað
þeim rétti úr höndum sér, að
Haganesvík 16. jan. Hér er næst-
um alautt og allir vegii- innan
sveitar eru góðir yfjrferðár og
um það bil ökufært yfir Lág-
heiði til Ólafsfjarðar.
Margt fólk kom hingað heim
um jólin en er nú farið aftur.
Er það bæði skólafólk og fólk,
sem héðan hefur farið í atvinnu-
leit. Með færra móti fer þó á
vertíð í vetur, eins og kallað er,
en til ýmissra annarra starfa.
Fyrir helgina gerði hér hvass-
viðri mikið. Fuku þá 40 járn-
plötur af þaki nýja félagsheim-
ilisins, sem er í smíðum. Það
geta fært einhliða út fiskveiði-
mörkin frá því sem nú er.
Fólk má ekki leggja vanga
sína flata við slíkum höggum.
Ég leyfi mér að beina þeirri
áskorun til ungmennafélaganria,
í byggðum og bæjum, að þgu
bregði skjótt við og boði til ál-
mennra funda og beri fram þá
áskorun til trúnaðarmanna þjóð
arinnar, sem sækja fiskveiðiráð-
stefnuna í London, að flytja þar
þakkir þeim þjóðum, sem frá
upphafi virtu fiskveiðilandhelg-
ina hér við land, allt frá 1958,
og- skýri jafnframt þau sjónar-
mið, að samningurinn við Breta
hafi verið nauðungarsamningur
og verði að líta á hann sem slík-
an, í sambandi við frekari út-
færslu fiskveiðilandhelginnar.
stendur á Ketilási í landi ný-
býlisins Nýrækt. Þarna er fag-
ur staður við enda Miklavatns.
Bændur hafa fjölgað kúm en
sauðfjáreignin mun standa nokk
urnveginn í stað. Reglulegir
mjólkurflutningar eru komnir á
og er mjólkin send til Sauðár-
króks.
Heilsufar er hér gott. Tölu-
vert var um skemmtanir um jól
og nýjár. Nú er rólegt, enda
fremur fámennt, eftir að svo
margt ungt fólk er horfið héðan.
H. J.
Félagsheimili á Ketilási
— Ho-ó, en hve hann sópar inn peningum! segir hún, er Iðunn
kemur til hennar. — Hefði ég aðeins helming þess, sem hann rakar
að sér á einni viku, bætir hún við.
— Hvað myndirðu þá gera? segir Iðunn og styður höndunum á
svörtu glerhilluna uppi yfir borðinu.
— Þá? segir Sigríður og bítur í blýantinn. — Þá gæti ég auðveld-
lega snúið mér að því, sem mig langar mest til af öllu.
— Og hvað er nú það? Iðunn hvarflar augum um allt kvenskraut-
ið skínandi hvíta í afgreiðsluborðinu.
— Syngja! segir Sigríður lágt.
— Syngja! Syngurðu? Iðunn horfist í augu við Sigríði.
— Söngkennslukonan segir, að ég hafi söngrödd. Þú þarft ekki að
segja Björgu þetta eða neinum öðrum, en ég kaupi söngtíma, aðeins
einu sinni í mánuði. Ég má ekki við meiru. Launin ná ekki lengra.
Sigríður fer aftur að telja peningana. — Nefndu þetta ekki við
neinn, segir hún aftur.
— Auðvitað ekki, segir Iðunn og lítur hugsi niður á lútandi höfuð
Sigríðar. Hún er fremur ljóshærð en dökkhærð. Hárið fellur í eðli-
legar bjartar bylgjur um allt höfuðið, með lokk yfir öðru auga. Hör-
undið virðist bjart eins og háraliturinn. En augnabrúnirnar eru vitund
dekri en hárið. Þær fara vel við augun. Eru augun grá eða blá? Svo
virðist sem þau breyti lit. Hún hefir frískan og mjúkan roða í kinn-
um. Furðulegt að hún skuli ekki hafa hlotnast meira af gráa boVgar-
yfirbragðinu. Hún hefir verið lengst okkar þriggja í borginni, hugsar
Iðunn.
Nú kemur Björg líka burt að glerborðinu. Hinar hárgreiðslukon-
urnar eru á leiðinni út. — Þið ættuð bara að finna, hve þreytt ég er!
segir Björg og stígur fæti á stigaþrepið upp að fatageymslunni. Eng-
inn í heimi þarf að strita eins og hárgreiðslukonurnar.
— Jæja, ef til vill, svarar Sigríður og skellir aftur viðskiptabók-
inni.
— En það er nú samt sem áður markmið mitt að verða meistari í
þessari iðn, segir Björg og brosir dauflega.
— Hefði ég bara skildinga! segir Sigríður og fer með Björgu upp
í fatageymsluna.
En Iðunn stendur kyrr á sama stað. Hún bíður eftir, að umsjónar-
stúlkurnar hafi lokið störfum sínum.
— Hve þær eiga gott, Sigríður og Björg. hugsar hún. — þeim er
ljóst hvers þær óska, og hvað þær ætla sér, og þurfa ekki að efast
um, hverja leið halda skuli. — En það verð ég að gera!
III.
Hálfri stundu síðar gengur Iðunn upp stigaþrepin þrjú að fata-
geymslunni. Hún nemur staðar á efsta þrepi, undir hvelfingunni á
milli lágu trésúlnanna tveggja. Þar finnur hún ljósarofana og snýr
þeim, einu sinni, tvisvar og þrisvar sinnum með stuttu hléi á milli.
Það er bæði skrítið og gaman að sjá, hvernig allt hér breytir útliti í
ljósaskiptunum, blikleiftrið í glóbjörtum nikkeláhöldunum, djúpi lit-
blærinn á flauelstjöldunum, sem breytist í sífellu með ljósbrigðunum.
Nú sökkvir hún síðasta ljósið. Glæsilegu skrautljósin í loftinu slokkna,
AUÐHILDUR FRÁ VOGI:
J GULLNA BORGIN
og rökkur ríkir í salnum. Grænu og svörtu litirnir hérna inni renna
saman og smáhverfa, en fosforblæ slær á hvíta litinn.
Götuljósin fyrir utan senda langa ljósrenninga inn um franska
gluggann í biðstofunni og gera hana dularfulla, og hlutir þeir sem i
ljósrákum þessum liggja, verða silfurgljáandþóeðlilega blikandi og
einkennilega lifandi fyrir augum hennar. Og blikið á tíglagólfinu
dýpkar á milli skugganna.
Það er eins og Iðunn sé í álögum. Allt umhverfið hefir djúp áhrif á
hana. Hún finnur léttan þunga yfir sér, góðan og gleðilegan þunga
sem veldur því, að hún hallar sér að annarri trésúlunni. Raunveru-
legur heimurinn hljóðnar umhverfis hana. Klukkutifið frá arinhorn-
inu er eiria hljóðið, sem berst henni að eyrum. Oll önnur hljóð þagna
og hverfa, eiga hér ekki heima. En klukkutifið minnir á hjartslátt, —
hjartslátt tímans.
Þegar hún stendur þarna og hefir útilokað nær öll hljóð umhverfis
sig, lyftist tjaldið frá hennar eigin hugarsviði. Einmitt núna hlýtur
hún að geta fundið rétta leið á lífsbraut sinni. Nú verða allar þær
götur og gangstígir, sem hún hefir vafrað um hingað til, að sameinast
í eina beina braut, sem liggur að ákveðnu marki. Og nú verða allar
hinar sundurleitu hugþrár hennar að sameinast í eitt stórt og ákveðið
markmið, sem veitir henni frið í hug og hjarta og óróar hana ekki
framar.
Hve lengi hefir hún nú staðið hérna við trésúluna? Skuggarnir á
tíglagólfinu hafa lengst og dýpkað. Og rökkrið er orðið þéttara í
sölunum. Musteri hafði Rossí sagt. Musteri, þar sem konur á öllum
aldri ganga inn og út. Já, Fegrunarstofnunin hefir orðið musteri Villa
Rossí. Það er sennilega einnig musteri hugar hans, hugþrá hans. Jæja,
ef til vill það. Hann getur þá verið ánægður. Musterið hans er full-
komið. Vegurinn er vel stikaður. Og hann hikar víst ekki lengur.
Það þarf ekki annað en sjá hann til að gera sér ljóst, að hann hafi
alltaf verið tengdur borg og borgarlífi. En samt er eitthvað furðulegt
við Rossí. Á vissan hátt virðist hann rólegur og fastur fyrir. En stund-
um verður hún vör einskonar vandræðasvips i augum hans, eins og
sé hann að velta fyrir sér einhverri ákvörðun, sem hann ráði ekki
fyllilega við. En að vörmu spori er hann sá sami á ný, er hann hefir
strokið hönd sinni gegnum hárið. En Iðunn hefði þá stundum séð,
að hann var ofurlítið skjálfhentur.
Ljósröndin inn yfir gólfið er lifandi og hreyfir sig í samræmi við
Ijóskerið fyrir utan, sem sveiflast fyrir vindi. Það er svo friðsælt að
standa hérna í þögn og ró eftir allan hávaða dagsins og rafvélasuð-
una. Og eftir allt hjalið í viðskiptakonunum, hver í munninn á ann-
arri, og ánægjuandvörp þeirra undir æfðum höndum starfskvennanna.
En hve hún hefði spjallað mikið í dag! Um allt og ekki neitt. Bara
hjalað og malað eins og kurteis gæluköttur við konurnar. Nú er
þögnin og kyrrðin henni hrein blessun. Og rökkrið sveipist eins og
mjúkar slæður utan um hana. Hún lætur hugann svífa frjálst og frítt,
og er sem hana dreymi.
Henni verður á ný litið fram í biðstofuna, þar sem Ijósrákin lifir
og hreyfist, svo að skuggarnir smjúga öðru hverju í felur eins og
ljósfælnar vofur. Þarna blikar á brúðarskrautið, þar sem ljósrékin
fellur um það í glerskápnum. Og skrautsteinarnir leiftra eins og smá-
eldingar. Iðunni verður hugsað til Bjargar og Sigríðar. Eins og gervi-
steinarnir þarna leiftra í ljósrákinni, þannig virðist víst bærinn blika
og leiftra í þeirra augum! Hún klæðir sig úr hvíta sloppnum í fata-
geymslunni.
Ætli það liggi nú ekki bréf til hennar uppi í íbúðinni, frá Jörundi?
Það væri þá fyrsta bréfið, sem hún fengi frá honum. Þau hafa ekki
þurft að skrifast á fyrr, þessi tvö árin, sem þau hafa verið saman.
Eða ef til vill nefnir hún það aðeins eitt ár? Já, því að árið hennar
í höfuðstaðnum hafði tengt þau saman miklu nánara en áður. Heima
í sveitinni voru þau bæði með í fjölmennum hóp æskulýðsins. En
árið sem hún gekk í Fegrunarskólann, voru það aðeins þau tvö, hún
og Jörundur. Þá voru þau bæði ókunn og gestir í stórri borg. Þetta
olli ef til vill því, að þau héldu svo mikið saman. Þau kærðu sig
ekkert um að leita uppi gömlu kunningjana, sem þarna voru fyrir.
Þau voru bæði úr sömu sveit og höfðu um svo margt að spjalla. Og
svo hittust þau að minnsta kosti þrisvar-fjórum sinnum í viku. Stund-
um fóru þau saman á skemmtun. Oftast voru þau heima hjá henni úti
á Níelsarbakka hjá Gunnhildi og ívari. Henni fannst víst, að þannig
ættu það að vera, að þau skemmtu sér svo vel saman þetta árið.
En það er fyrst nú, að Iðunni verður ljóst, hve þetta voru dásam-
legir tímar sökum þess, að Jörundur var þarna líka.
Jörundur! — Þó að hún aðeins hreyfi varirnar til að mynda nafnið
hans, finnur hún sáran söknuð, og henni verður þungt fyrir brjósti.
En Jörundur er svo fjarri. Hann er enn á búnaðarskrifstofunni í höf-
uðstaðnum. Og hann ætlar að vera þar eitt ár enn, áður en hann
snýr heim aftur og tekur við óðalssetri sínu. Hann er einkasonurinn
og óðalserfinginn á Hellulandi. Til að sjá er bærinn hans sem meðal
herrasetur. Jörundur á þar vel við. Hann er hár og sterkur og karl-
mannlegur í hverri hreyfingu. Það lá við, að hún væri upp með sér
af því, að hann skyldi una sér við að vera með henni, og aðeins
henni, þetta ár í höfuðstaðnum. En Jörundur er þarna framvegis.
Hún verður óglöð við hugsunina: Fyrst hún er nú ekki þarna eystra,
hver hefir þá komið í hennar stað hjá Jörundi?
Nei, nú er hún víst laglega heimsk. Hún þarf víst ekki að hugsa
sér, að Jörundur sé svo sækinn í samvistir stúlkna, að hann grípi
fyrsta og bezta tækifæri, óðara en hún sé utangátta. Hvers vegna
ætti hún að tortryggja hann? Getur hún ekki alveg eins hugsað sér,
að Jörundur sé með félögum sínum. Framhald.