Dagur - 18.01.1964, Qupperneq 8
8
A klettastöllum við sjóinn er gott að tylla sér, því margt ber bar fyrir augu. (Ljósm. E. D.)
Starfsþjálfun í Bandaríkjumim
1 landbúnaðiiium
MÖRG undanfarin ár hefur
íslenzk-ameríska félagið haft
milligöngu um að aðstoða unga
rrienn og konur við að komast
til Bandaríkjanna til starfsþjálf-
unar. Er þessi fyrirgreiðsla á
vegum The American-Scandina-
vian Foundation í New York.
Höfuðtilgangui’inn með þessum
ferðum er, að menn geti aflað
sér aukinnar þjálfunar og kynnt
sér nýjungar í starfsgrein sinni.
Um margs konar störf er að
ræða, en nú er einkum leitað
eftir umsóknum um ýmis störf
í landbúnaði og garðyrkju.
Myndi starfstímabilið hefjast á
vori komanda og vara 12—18
mánuði.
Nauðsynlegt er, að umsækj-
andi hafi talsverða reynslu í
starfsgrein sinni, og hann verð-
ur að hafa sæmilegt vald á
enskri tungu. Að jafnaði skulu
umsækjendur ekki vera yngri
en 22 ára. Fá starfsmenn greidd
laun, er eiga að nægja fyrir
SÍLDARVERTfÐIN SL.
SUMAR.
Endanlegar tölur um sumar-
síldveiðarnar 1963 fyrir norðan
og austan liggja nú fyrir. En
tölurnar, sem Dagur birti í
haust, voru bráðabirgðatölur, og
þó mjög nærri því, sem reynzt
hefur.
Til sumarslídveiðanna voru
skráð 226 skip, meðalstærð 109
rúmlestir, en tvö þeirra fengu
dvalarkostnaði, en gréiða sjálfir
ferðakostnað.
Nánari upplýsingar verða
veittar í skrifstofu íslenzk-
ameríska félagsins í Reykjavík,
sími 17266 og hjá form. ísl,-
ameríska félagsins á Akureyri,
sími 2500. □
engan afla, hafði þó annað 33
en hitt 45 daga úthald, samkv.
skýrslum.
Meðalafli á skip varð 7787 mál
og tunnur, og eru þá þau tvö
skip meðtalin, sem ekkert fengu.
í fyrra (1962) var tilsvarandi
skipafjöldi 224 og meðaltalsafli
10.897 mál og tunnur. Úthalds-
dagar voru að meðaltali 87,2
dagar en 74,8 í fyrra (1982).
f salt fór rúmlega 463 þús.
tunnur (uppsaltaðar), í bræðslu
1265 mál og í frystingu um 33
þús. uppmældar tunnur. Er þá
ótalinn aflinn á AkureyrarpoIIi,
387 mál í bræðslu og 1772 upp-
mældar tunnur, sem nýtt var á
annan hátt.
Heildarverð, sem útgerðin
fékk fyrir síldaraflann upp úr
sjó var um 335 millj. króna, en
var 413 millj. kr. árið 1962.
GREINAR JAKOBS JAKOBS-
SONAR.
I tveim síðustu töluhlöðum
Ægis birtist mjög fróðleg grein
eftir Jakob Jakobsson fiskifræð-
ing, um svonefnd veiðarfæra-
þing, er Matvæla- og landbún-
aðarstofnun Sameinuðu þjóð-
anna hélt í London sl. ár.
Hefur Jakob einnig sagt frá
ráðstefnu þessari í útvarpinu.
Þarna mætti f jöldi fróðra manna
frá fiskveiðiþjóðum, báru sam-
an bækur sínar og skýrðu frá
rannsóknum og nýungum.
Þarna var m. a. fjallað um efni
í veiðarfæri, skuttogara, línu-
veiðar, herpinótaveiðar, fiski-
leit, veiðarfærarannsóknir, sál-
arfræði fiska, sem svo mætti
kalla og svo frv. Frá því er
skýrt, að Bretar eru farnir að
senda 180 rúmlesta togara, sem
ekki hafa nema 5 manna áhöfn,
og að Rússar hafa síldarsöltun-
(Framhald á blaðsíðu 2).
Skiplusl i heimsóknum
Lómatjörn 16. jan. Við sjávar-
síðuna hefur gengið fremur illa
og varð aflinn miklu minni sl.
ár en árin á undan. Fjórir dekk-
bátar réru héðan síðasta ár og
tveir þeirra, Víðir og Sævar
réru í dag en fengu lítinn afla.
Frá Grenivík eru einnig gerðar
út nokkrar trillur. Stóru bátarn-
ir, Oddgeir, Áskell og Vörður
eru á þorskveiðum við Suður-
land.
í sumar var gerður vegur að
fyrirhugaðri höfn og var það
töluvert mannvirki. En nýja
höfnin á að vera austur í krókn-
um, við Akurlæk. Rífa þurfti
FRÁ LÖGREGLUNNI
í GfflR var ekið á ljósastaur
og bíllinn töluvert skemmdur.
Ökumaður var tekinn fastur
vegna g'lannafengins aksturs. Á
miðvikudaginn var slökkvilið
kallað að Brautarhóli í Glerár-
hverfi, en þar hafði kviknað í
miðstöðvarherbergi. Litlar
skemmdir urðu. Smávegis á-
rekstrar hafa orðið og eina nótt
ina var ekið á mannlausan bíl
í Kringlumýri. Þar urðu nokkr-
ar skemmdir. □
gamallt fiskmóttökuhús KEA
vegna vegagerðarinnar. Við bíð-
um eftir því að vitamálastjórn-
in láti hefja hafnarframkvæmd-
ir. Fyrsti áfanginn verður mik-
ill grjótgarður í sjó fram. Til
hafnarinnar hafa verið sam-
þykktar tvær fjárveitingar, 300
þús. í fyrra og 250 þús. krónur
nú.
Heyskapur varð sl. sumar í
tæpu meðallagi. Túnin hafa ekki
enn náð sér eftir kalskemmdirn-
ar. Garðávextir voru nálægt
meðallagi og meiri en víða ann-
arsstaðar í haust. Dilkar voru
sæmilega vænir hér í hreppn-
um í haust.
Fnjóskárbrúin nýja er mikil
samgöngubót og erum við
ánægðir yfir þeirri framkvæmd.
Kvenfélagið Hlín og íþrótta-
félagið Magni æfðu sjónleikinn
Aumingja Hönnu og sýndu bæði
hér heima og í Hrísey. Hrísey-
ingar heimsóttu okkur með sinn
leik, Hreppstjórann á Hraun-
hamri. Leikstjóri þeirra var
Kristján Jónsson en okkar leik-
stjóri var Steinunn Bjarnadótt-
ir. Því miður urðu sumir leikar-
anna að fara í burtu vegna at-
vinnu sinnar og hefðu sýningar
annars orðið fleiri.
FRA BÆJARSTJORN
AÐALMÁL bæjarstjórnarinnar
um þessar mundir er að sjálf-
sögðu hin nýja fjárhagsáætlun
bæjarins fyrir yfirstandandi ár.
Fyrri umræðu um áætlunina er
lokið. Heildartölur í ýmsum
greinum hennar voru birtar í
síðasta blaði, og verður nú get-
ið nokkurra annarra mála, sem
bæjarstjórn fjallaði um á síð-
asta fundi sínum.
Lögreglumönnum fjölgað.
Bæjarráð samþykkti að ráða
til viðbótar í bænum einn lög-
regluþjón, frá 1. júní n. k. að
telja. Yfirlögregluþjónn og bæj-
arfógeti höfðu farið fram á, að
bætt yrði þrem mönnum í lög-
reglulið, einkum með tilliti til
styttingu vinnutímans og auk-
inna starfa í bænum.-
í sambandi við ráðningu lög- '
regluþjóna og gífurlega hækk-
un kostnaðar á fjárhagsáætlun
vegna löggæzlu, er rétt að geta
þess, að í lögregluliði Akureyr-
ar eru tveir menn, sem tekið
hafa laun sín úr ríkissjóði. Nú ,
verður sú breyting á, að allir
lögreglumenn fá laun sín úr
bæjarsjóði, samkvæmt nýjum
lögum, en ríkissjóður greiðir
eftir á vissan kostnaðarhluta lög
gæzlunnar. Matthías Einarsson
og Páll Rist; sem fengið hafa
laun sín frá ríkinu, munu hér
eftir fá þau greidd úr bæjar-
sjóði. Leggur bæjarráð til, að
nefndir menn verði hér eftir
fastróðnir hjá bænum. Laun
samkv. 12. launaflokki.
Brunavörður.
Slökkviliðsstjóri fór þess á
leit, að fastráðnum brunavörð-
um væri fjölgað um tvo, og jafn
framt myndu brunaverðir ann-
ast sótun, vinna að eftirliti eld-
færa og þá yrðu tveir menn á
vakt hálft árið til öryggis. Bæj-
arráð lagði til, að ráðinn yrði
einn brunavörður.
Strætisvagnagjöld hækka.
Bæjarróð samþykkti að leggja
til við bæjarstjórn eftirfarandi
hækkun á strætisvagnafargjöld-
um: Einstök fargjöld fullorðinna
verði 5 krónur en barna kr.
2.50. Tíu miða blokkir fullorð-
inna 36 krónur en barna 15
krónur.
Leit að heitu vatni.
Bæjarráð ítrekar beiðni til
Raforkumálastjórnarinnar um,
að hún láti fara fram leit að
heitu vatni hið fyrsta, og að
undirbúningi verði hraðað, svo
sem sérfræðingar telji þurfa, áð-
ur en stóri Norðurlandsborinn
kemur.
Beiðni frá Ú. A.
Útgerðarfélag Akureyrar h.f.
sækir enn um aðstoð, nú um
sjálfskuldarábyrgð bæjarsjóðs ó
láni að upphæð 1 millj. kr. hjó
Samvinnutryggingum, sem
greiðist með jöfnum afborgun-
um á 10 árum — og ennfremur
er um það sótt að bærinn ábyrg-
ist einnar millj. króna víxillán
hjá Útvegsbankanum, til
greiðslu á yfirdráttarláni hjá
bankanum, sem bærinn er í
ábyrgð fyrir. Bæjarráð sam-
þykkti beiðnir þessar.
Skíðakennari.
Bæjarráð leggur til, að ívar
Sigmundsson verði ráðinn skíða
k'ennari í Hlíðarfjalli frá 1. jan.
að telja. Laun 7430 krónur á
mánuði og að Ingólfur Magnús-
son taki laun við íþróttahúsið
yfir vetrarmánuðina, samkv. 12.
launaflokki. Eftirvinna greiðist
hvorugum þessara manna.
Bifreiðastyrkir.
Og enn samþykkir bæjarráð,
að 2 þús. kr. bílastyrk á mánuði
fái: Bæjarverkfræðingur, bygg- ■
ingafulltrúi, aðstoðarmaður bæj- -
arverkfræðirigs, verkstjóri R.A.,
eftirlitsmaður raflagna og tengi- .
maður R. A.
í öðrum flokki hinna lánsömu
starfsmanna bæjarins, sem bæj-
arráð leggur til að fái 1500 kr.
bílastyrk á mánuði, eru: Bæjar-
stjóri, rafveitustjóri, umsjónar-
maður raflagna, garðyrkjuráðu-
nautur, yfirlögregluþjónn,
slökkviliðsstjóri, vatnsveitu-
stjóri og æskulýðs- og íþrótta-
fulltrúi.
Amtsbókasafnið.
Bókasafnsnefnd hefur lagt
fjárhagsáætlun sína fram fyrír
1964 og áætlar tekjurnar svo:
Framlag úr ríkissjóði 205 þús.,
framlag úr sýslúsjóði 22 þús.,
framlag frá Akureyrai'kaupstað
440 þús. og húsaleigutekjur 18
þús. krónur. Gjaldamegin eru
launagreiðslur áætlaðar 250
þús. kr. og bækur og bókband
315 þús. kr. hæstu liðirnir.
Amtsbókasafnið verður nú
opið lengur en áður eða kl.
2—7 hvern virkan dag. Lárus
Zophoníasson hefur verið ráð-
inn aðstoðarbókavörður. □
SEXTUGUR
HERMANN STEFÁNSSON
menntaskólakennari á Akur-
eyri varð sextugur í gær. Hann
dvelur í Reykjavík um þessar
mundir, nýkominn af sjúkra-
húsi þar og á góðum batavegi
eftir uppskurð. Hermann er hug
myndaríkur, félagslyndur og
góðgjarn maður, hið mesta
glæsimenni í sjón og drengur
góður. Dagur sendir honum.hin-
ar beztu afmæliskveðjur og
óskir um skjótan og fullan bata.