Dagur - 05.02.1964, Blaðsíða 1

Dagur - 05.02.1964, Blaðsíða 1
NÝIR KAUPENDUR fá framhaldssöguna, „GULLNA BORGIN“ frá byrjun. Hringið í síma 1166 eða 1167. XLVII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 5. febrúar 1964 — 10. tbl. VINSAMLEGA LÁT- IÐ VITA EF VAN- SKIL VERÐA Á BLAÐINU. Símar 1166 og 1167. ■v-.....- ■ ..^. Byrjað var á lmndrað íbúðum á Akureyri á síðastliðuu ári Gerfihnötfur sást hér í gærkveldi í KVÖLD, miðvikudag, frumsýna nemendur Menntaskóians á Akureyri skóialeik sinn, „Er á meðan er“, eftir Kaufman og Hart, sem er gamanleikur, léttur og fyndinn. Leikstjóri er Jón- as Jónasson. Æft liefur verið af miklu kappi og áhuga. Þótt hér séu ekki leikarar á ferð, lieldur nemendur, sem flestir stíga nú sín fyrstu skref á leiksviðinu, er líklegt að þeir veiti bæjarbúum ánægjuleg leikliúskvöld, eins og nemendur M.A. fyrri ára hafa jafnan gert. (Ljósmynd: E. S.) Grímur Sigurðsson frá Jökulsá sagði blaðinu í gærkveldi, að hann hefði kl. 5.45 séð gerfi- hnött og horft á liann í 10 mínút ur. Hnötturinn, Bergmál II., fór frá syðri til norðurs og var 60° yfir sjóndeildarhring í suðri, er Grímur sá hann. — Kl. um 7.30 sást linöttur þessi aftur og var þá mun vestar, er hann fór hér yfir og sást þá greinilega. Hnött- urinn fer hringinn á 1,50 klst. Q BLAÐIÐ leitaði fregna af bygg- ingamálum á Akureyri á sl. ári hjá Jóni Geir Ágústssyni bygg- ingafulltrúa kaupstaðarins. Upp lýsingar hans fara hér á eftir. íbúðarhús: Hafin var á árinu bygging 59 íbúðarhúsa með 100 íbúðum. Um sl. áramót voru samtals 99 íbúðarhús með 154 íbúðum í byggingu á Akureyri. Heildar- stærð þessara íbúðarhúsa er 69,997,0 rúmmetrar, grunnflötur þeirra er 13,954,0 fermetrar og herbergjafjöldi er 692. Skráð eru fullgerð 32 hús með 45 íbúðum. Fokheld voru 47 hús með 84 íbúðum og 20 hús með 25 íbúðum voru skemmra á veð komin. Meðal- stærð þeirra íbúða, sem skráð- ar voru fullgerðar er 450,2 rúm- metrar og í þeim eru að meðal- tali 4,53 herbergi. ELDBJARMI Á VESTURLOFTI UM KLUKKAN 5.30 síðdegis á miðvikudaginn, 29. janúar, sá- ust frá Akureyri rauðir blossar í vesturátt, er stigu mörg hundr- uð metra í loft upp og með skömmu millibili. Ekki var þetta líkt norðurljósum dumb- rautt að lit. Menn horfðu á blossa þessa eða sterku litbrigði í 4 mín., sem mjög líktust gos- bjarma. Q UM HELGINA kom til Akureyrar hópur væntanlegra flugfreyja í sinni fyrstu námsferð hjá Flugfélagi íslands. Leiðbeinandi þeirra er yfirflugfreyjan, B:na Rúna, sem er hér fyrir miðju. Nýr og grjóMóðraSur larvegur Glerár Kostnaðuriiin við þá framkvæmd 8 millj. kr. Ýmsar byggingar: Af ýmsum húsum voru 31 í byggingu s.l. áramót, þar af voru - 15 skráðar fullgerðar, 9 fokheldai' og 7 voru skemmra á veg komnar. Af þeim byggingum, sem skráðar voru fullgerðar má t. d. nefna Skíðahótelið í Hlíðar- fjalli, Sjálfstæðishúsið (sam- komusal), stórgripahús S.N.E. á Rangárvöllum og 2. áfanga Barnaskólans við Víðivelli. Fokheldar voru t. d. verzlun K.E.A. við Byggðaveg 98, skrif- stofuhús Akureyrarbæjar, verk- stæðisbygging Hafnarsjóðs við Hjalteyrargötu, hús Efnagerðar Akureyrar við Norðurgötu, við- bygging Gagnfræðaskóla Akur- eyrar og hjúkrunarkvennabú- staður við Þórunnarstræti. Hafin er bygging bókasafns við Brekkugötu, vörugeymslu fyrir Rafveitu Akureyrar, á Gleráreyrum, kjötvinnslustöðv- ar K.E.A. við Sjávargötu. Þá var og hafin bygging nýrr- ar lögreglustöðvar nyrst við Þórunnarstræti. Breytingar og viðætur við eldri hús voru samtals 19. Sjö sérstæðar bifreiðageymsl- ur voru byggðar á árinu. Q MEÐ iðni og ástundun um ár og aldir hefur Glerá flutt jarð- vegsefni úr Glerárdal og hlað- ið þeim upp þar sem nú er Odd- eyri og Gleráreyrar. Þetta land, sem áin hefui' búið til á þennan hátt, er nú að verða mestur vettvangur iðnaðar- og íbúða- hverfa í höfuðstað Norðurlands. Þar er hallalítið og hentugt til bygginga húsa og vega. Á síðari árum hefur byggð bæjarins færst norður fyrir Glerá, svo áin rennur um sjálf- an bæinn. Orka hennar er ekki notuð, þótt undarlegt sé, svo sem rætt hefur verið hér í blaðinu. Nú er farvegur hennar einnig á dagskrá og eru uppi ráðagerðir um það mál. Verkfræðiskrifstofa Sigurðar Thoroddsen hefur nýlega skilað áliti um, hversu búa megi um farveg árinnar og hefur það álit verið rætt í bæjarráði. Sam- kvæmt þeirri ályktun (áætlun A, sem er aðgengilegri) er gert ráð fyrir grjótfóðruðum skurði eða ái'farvegi með tveim 1,3 m stöllum eða fossum. Er þar mið- að við árfarveginn allt frá Gefjunarstífla niður undir ós. Árfarvegurinn áætlaður 20 m breiður og 2,5 m djúpur með fláandi hliðum, grjótfóðraður botn og hliðar. Lengd frá Gefj- unarstíflu til sjávar er um 1220 m og fallið 20 m. En vatnasvæði Glerár er 90 ferkm og meðal- vatnsmagn 3,3 rúmm. á sek. Áin getur orðið mjög vatns- mikil. Árfarvegurinn á að taka 60 kl/s án skemmda og þó mun meira án þess að út úr flói. Fyrir nokkrum árum var graf inn nýr farvegur fyrir Glerá fyrir neðan Glerárbrú og út að sjó, en aðeins haft eitt skilið eftir. Þennan skurð á að nota, samkvæmt áætluninni og liggur hann norðar en núverandi ár- farvegur. Skurður sá eða árfarvegut', sem hér um ræðir, er áætlað að kosti um 8 millj. króna. En (Framhald á blaðsíðu 2). Helgi Eiríksson frá Þórustöðum látinn HELGI EIRÍKSSON Ilrafnagils stræti 8 Akureyri varð bráð- kvaddur 2. febrúar s.l. Hann var bóndi á Þórustöð- um í Kaupvangssveit frá 1913 til 1958 að hann flutti til Akur- eyrar. Ilelgi var tæplega áttræð ur að aldri. Q Nú er þráttað um NorSurlandsborinn Húsavík, 4. febr. Fengist hefur viðurkenning á því hjá Jarðbor unardeild, að verði Norðurlands borinh látinn fara frá Húsavík, án þess að gerð sé með honum er græfi ekki minna en 2—3 holur, 500 metra djúpar. Með því móti væri e. t. v. fyrr og með ódýrari hætti hægt að komast til fullvissu um, hvort frekari leit með borun eftir heitu vatni á Húsavík, teljist æskileg. ísleifur Jónsson verkfræðing- ur hjá Jarðborunardeild er nú staddur á Húsavík og fara nú fram viðræður milli hans og for ráðamanna Húsavíkurbæjar um málið. Borinn er hér ennþá, og brátt verður úr því skorið hvort hinn mikli bor heldur hér áfram eða verður fluttur til Vestmannaeyja. Þ. J. BORUN ÁTTI NÆST AÐ HEFJAST A AKUREYRI. Norðurlandsborinn er einnig mjög á dagskrá meðal Akureyr- inga. Hann átti að hefja hér (Framhald á blaðsíðu 2). önnur hola, þá sé samningi við Húsavíkurbæ ekki fullnægt. Hins vegar kemur mjög til álita hvort Húsavíkurbæ muni ekki hagkvæmara að fá minni bor,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.