Dagur - 04.04.1964, Blaðsíða 2

Dagur - 04.04.1964, Blaðsíða 2
2 Verður þá grípið til neðanjarðaríarartækja? ÞAÐ virðist vera óKjákvæmi- legt, að á næstu 20 árum fjór- faldist tala bíla í einkaeign, einnig í þeim löndum sem þeg- ar hafa mikið af bílum, segir í yfirliti Sameinuðu þjóðanna. Eigi að vera nokkur leið að ráða við umferðarvandamálin þegar svo er komið, er engan veginn nægilegt að leggja breiða akvegi gegnum borgir (sem eru þar að auki ýmsum vandkvæðum bundnir í göml- um borgum með mikið af sögu- legum minnismerkjum og bygg- ingum), heldur hefur reynsla Bandaríkjamanna sýnt, að þörf- in á almenningsfarartækj um verður æ brýnni, og þá fyrst og fremst á neðanjarðarfarartækj- um. í stórborgum er einungis hægt að komast leiðar sinnar á annatímanum í umferðinni með samgöngutækjum, sem skilin eru frá annari umferð. í mörg- um þéttbyggðum hverfum er meðalhraði annarra samgöngu- tækja á ákveðnum tímum dags- ins lægri en hann var, þegar hestvagnar voru notaðir, ségir í yfirliti S. Þ., sem nefnist „Ahn- ual Bulletin of Transport Stas- istics for Europe.“ í nálega öllum Evrópulöndum jókst sá fjöldi ldlómetra, sem ekið var af einkabílum, um 100 prósent og þar yfir á árunum 1950—62. í nokkrum löndum, svo sem Vestur-Þýzkalandi, KYNNINCAKVÖL3) úngmennafélagamia í Eyjafjarðarsýslii 22. Þ. M. efndi umf. Reynir Ár- skógsströnd til kynningarsam- komu milli ungmennafélaganna í yt’íi hluta sýslunnar. Mættust þarna félagar úr umf. Atla, Þorstéini Svörfuð, umf. Svarf- dæla, Reyni og hinu nýstofnaða félagi í Hrísey, umf. Narfa. Eft- ir að boðsgestir höfðu notið rausnarlegra veitinga, hófust ýmis skemmtiatriðí. Sýndur var leikþátturinn Burnirótin, kynnt- ir voru ýmsir dansar og kvenna flokur söng nokkur lög. Öll þessi atriði fluttu félagar úr Reyni við mikla hrifningu, enda til þeirra vandað á allan hátt. Að lokum var dans stiginn fram effir nóttu. Samkomunni stjórn- aði formaður félagsins Sveinn Jónsson. Slíkar samkomur sem þessar eru merkur liður í starfi ung- menafélaganna, þær stuðla að kynnum milli félaga og einstak- linga og eru gott framlag til menningarauka á sviði skemmt analífsins. Það sýndi sig ljóslega að unga fólkið getur skemmt sér án áfengisdraugsins. □ ítalíu, Svíþjóð og Austurríki, fimmfaldaðist kílómetrafjöld- inn á hvern einkabíl á þessu tímabiii. Ekkert bendir til þess, að þröúnin í þessum efnum verði hægari í framtíðinni. - BYGGÐIR GG BÚ (Framhald af blaðsíðu 1). ar greinina Nokkrir búnaðár- þættir og Stéingrímur Baldvins- son segir sögu Búnaðarsam- bands S.-Þingeyinga á tímabil- inu 1928:—1960. Þá koma búnað- arsögur hreppanna eftir ýmsa höfunda. Öll er bókin girnileg til fróð- leiks og hin eigulegasta, prent- uð á góðan pappír og vel unnin í Prentverki Odds Björnssonar hf. Myndirnar tók Bjarni Sig- urðsson. Árni Kristjánsson menntaskólakennari las handrit og prófarkir. Menningarsjóður Kaupfélags S.-Þingeyinga og sýslusjóður styrktu útgáfuna. Það er mikið átak að gefa út bók á borð við Byggðir og bú og þar verða margir að leggja hönd að, eins' og Þingeyingar hafa hér gert svo myndarlega, að sómi er að. E. D. RÁÐSKONA óskast til Sumarbúðanna við Vestmannsvatn 2—3 mánuði í sumar. Uppl. í síma 1048’ og hjá próíastinum á Grenjaðarstað. VESTFIRÐINGAR! Árshátíð Vestfirðingafé- lagsins verður haldin í Sjálfstæðishúsinu laugar- daginn 11. ap,ríl. — Hefst með borðhaldi kl. 8 e. h. — Áskriftalistar liggja frammi í verzl. Vísi og Markaðinum til kl. 6 e. h. á þriðjudag. — Uppl. í síma 1680 eftir kl. 8" e. h. Miðapantanir afgreiddar í Sjálfstæðishúsinu lrá kl. 7—10 e. h. fimmtudag' 02: föstudag. — Nefndin. SKÓGRÆKTARFÉLAGAR at- hugið! Aðalfundur Skógrækt- arfélags Akureyrar verður að Hótel KEA n. k. miðvikudag. Ráðgert er að Hákon Bjarna son skógræktarstj. og Snorri Sigurðsson skógverkfræðing- ur mæti á fúndinum. □ -SALRAR (Framhald af blaðsíðu 1). mátti heyra, að sýslumaður hafði áhuga fyrir almennri rannsókn, þótt hann teldi hana ekki í sín- um verkahring, sem sýslumanns. En fréttir af fyrirbærum nú eru ekki frá sýslumanni. Það er vel ráðið hjá fólkinu á Saurum, að takmarka mjög frétt- ir af því, sem þar gerist um þess- ar mundir. En það kynni þó að vera þýð- ingarmeira að losna undan oki hinna dulrænu fyrirburða. Til þess þarf aðstoð velviljaðs fólks og sú aðstoð verður að komá áð- ur en verri atburðir gerast. Q - BARÁTTA (Framhald af blaðsíðu 1). málastjórninni, en andinn, sem yfir Vötnunum svífur, er hinn sami og fyrr. Fjarlægðir frá Dettifossi og Búrfelli til hafna norðan lands og sunnan. Lengd beinna loftlína frá Dettifossi og Btirfelli til ýmsra hafnarstaða norðan- og sunnan- lands er sem hér segir eða því sem næst: Frá Detiifossi: Að Gásum 81 km. — Húsavík 50 — — Fjalíahöfða 43 — — Kópaskeri 54 — — Hraunshöfn 81 — —- Raufarhöfn 74 — — Leirhöfn 62 — — Þórshöfn 64 — — Vopnafirði 72 — Frá Búrfelli: Að Þörlákshöfn 78 km. — Hvaleyri við Hafriárfjörð 104 — — Gasúm 197 — (Framhald af blaðsíðu 8). og mjög vont að komast að Gler á, 'og stundum alls ekki hægt. Ég hef lagt til, að vatnslögn verði lögð í gegnum Gefjunar- lóðina og tengdir við hana nokkrir brunahanar, svo vatns- skortur tefji ekki eðlilegar að- gerðir, ef eldur kæmi upp. Þá vil ég sérstaklega nefna, að nókkur stórhýsi- við Glerár- götu eru illa stödd ef eldur geys ar, t. d. Valbjörk og þrjár bygg- ingavöruverzlanir. Aðstaðan fyrir slökkviliðið er á þann veg, að vatnsleiðslan í götunni er mjög grönn og enginn bruna- liani er þar. Þetta er nú í athug- un hjá bænum og von er um úr- bætur í sumar. Þá er hverfið við Raldbaksgötu ekki vel á végi statt. Þar áttu að vera geymslur, en nú eru þar ýmis konar verkstæði og rriikil verð- mæti saman komin. Þetta hverfi er sama sem vatnslaúst. Þá vil ég nefna Glerárhverfi. Þar er mikið byggt, en brunahana vant ar. Verður nokkur bréyting á út- k'öllun á næstunni? Eins og þú veizt, er ekki nema einn vaktmaður á slökkvi stöðinni, og þegar tilkynnt er þangað 'um eld, vanalega í síma 2200, hringir síminn líka á lögregluvarðstofunni. Vaktmáð- urinn verður þá að taka ákvörð un um útkall, biðja lögregluna að látá landsímastöðina vita, ef ákveðið er að kalla slökkviliðið út, og biðja símastúlkurnar að kalla liðið út. Þetta fyrirkomu- lag er gott, það sem það nær, en síminn er ekki skuldbundinn til þess að sinna þessum málum og þetta tekur nokkurn tíma. Breyt ing á þessu er nauðsynleg, bæði vegna öryggis, og svo stendur til, að síminn verði sjálfvirkur og símavarzla engin. Leitað he£ ur verið til símaverkfræðings um tillögur til úrbóta, þ. e. um nýtt útkaliskerfi frá slökkvistöð inni. Frá honum hafa enn ekki komið tillögur. Aðstaða slökkviliðsins' yfirleitt, Sveinu? Hún er að ýmsu leyti góð, segir slökkviliðsstjóri. En það eru alltaf að koma nýjungar, sem verður að fylgjast með. Nú þarf að fara að endurnýja ýms slökkvitæki og fá ný, svo sem. vélknúinn stiga, og aðstöðu þarf að bæta á- ýmsum stöðum, til að auðvelt sé að ná í vatn, þegar eldsvoða ber að höndum. Þá vil ég að' lokum minna á, að allir húseigendur eiga að hafa stiga við hús sín, en mikið vantar á, að svo sé, segir slökkviliðsstjóri að lokum og þakkar Dagur við- talið. □ REYKJARPÍPUR PÍPUTROÐARAR PÍPUHREINSARAR TÓBAKSPUNGAR GASKVEIKJARAR kr. 375.00 Iv VEIKJARASTEINAR KVEIKJ ARAOLÍ A IvVE ÍICjAR AÞRÆDÍR „100% NYL0N“ léttar og þægilegar blússur — vatlfóðraðar — í herrastærðum — „CGRD(JR0Y“ drengjablússur — sérstaklega hagstætt verð. „CANADIAN MÍST“ , Vatnsvarið efni — vattfóðrað — drengja og herrastærðir — 35% Nylon.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.