Dagur - 04.04.1964, Side 4

Dagur - 04.04.1964, Side 4
4 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1166 og 1167 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERJLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Ivö sjónarmið í stórvirkjunarmálinu NORÐLENZKA sjónarmiðið í stór- virkjunarmálinu er í stuttu máli þetta: Næstu stórvirkjun íslendinga á að framkvæma með það fyrir aug- um, að hún stuðli að jafnvægi í byggð landsins. Þess vegna er tillaga um stórvirkjun Jökulsár á Fjöllum fram komin. Sú tillaga felur í sér að mestur hluti orkunnar yrði um sinn notaður til stóriðju, en að jafnframt skapaðist varasjóður orku fyrir Norð ur- og Austurland. Þess vegna þurfti að rannsaka, hvort unnt væri að framleiða raf- orku við Jökulsá, á verði, sem væri samkeppnisfært við heimsmarkaðs- verð á iðnaðarorku. Ef jákvætt svar fengist við Jteirri spurningu, mátti gera ráð fyrir, að hægt væri að fá erlent fjármagn til framkvæmdanna — lán í orkuverið og lán eða beina fjárfestingu í sam- bandi við iðjuverið. Þó erlent fjár- magn geti verið viðsjált og meðferð þess vandasöm, er að margra dómi ekki áhorfsmál að reyna J>á leið til að hamla á móti hinum óheillavænlegu fólksflutningum til Reykjavíkur. Þeir, sem styðja hið norðlenzka sjónarmið í þessum málum, hafa lit- ið svo á, að fullnæging hinnar al- mennu og vaxandi raforkuJ>arfar á Faxaflóasvæðinu væri mál út af fyrir sig, og að á Suðurlandi væru ýmsir möguleikar til að leysa J>að mál á viðunandi liátt, þar sem hægt er að tryggja mikinn markað fyrir raforku til almenningsj>arfa. Þar myndu koma virkjanir í áföngum á borð við Sogsvirkjunina. En til var annað sjónarmið í J>ess- um málum — hið J>rönga Stór- Reykjavíkur sjónarmið. En talsmenn J>ess eiga innangengt hjá stjórnar- völdum landsins. Frá því sjónarmiði var stórvirkjunarmálið ekki jafn- vægismál, heldur allt annað. Þeir, sem þetta sjónarmið höfðu, litu Jök- ulsár-ályktun Alþingis hornauga, þótt þeir teldu sér ekki henta að hindra samþykkt liennar. Um fram- kvæmd liennar (J>að er fullnaðar- rannsókn) er J>að að segja, að hún hefir verið framkvæmd bæði seint og illa. Ahugamál sunnanmanna var að undirbúa áætlun, um virkjun, sem væri nær Reykjavík og á pappírnum ódýrari, bjóða síðan ritlendingum orku frá }>eirri virkjun, til að byggja iðjuver og leysa í leiðinni raforku- mál Reykjavíkur. Og nú er sjón sögu ríkari, J>ví bollalagt er um Búrfells- virkjun, en engin skýrsla gefin um framkvæmd ályktunar Alþingis frá 22. marz 1961. Hvernig verður búsetu bezt hagað á íslandi? i. MIÐSTJÓRNARFUNDUR Framsóknarflokksins, sem hald- inn var 6.—8. marz sl., sam- þykkti einróma svohljóðandi á- lyktun, sem er í fullu samræmi við yfirlýsingu flokksþingsins 1963: „Þjóðinni er lífsnauðsyn að byggja vel landið allt. í því skyni skal tryggja skipulega efl- ingu atvinnuveganna og stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Unnið verði að því á næstu ár- um að gera heildarskipulag fyr- ir öll héruð landsins og landið í heild, þar sem sérstök hliðsjón verði höfð af: að stuðla að sem beztri hagnýt- ingu gæða lands og sjávar. að efla þéttbýliskjarna í dreif- býlinu, þar sem aðstæður leyfa. að stuðla að því, að landið verði byggt þannig og ræktað, að auðveldað verði samstarf og samhjálp í sveitum og skil- yrði batni þar til menningar og félagslífs. að á hverjum stað byggist helzt upp þær atvinnugreinar, sem þar hafa sérstök skilyrði til að blómgast. að unnið sé gegn því, að lífvæn leg byggðarlög fari í eyði. II. f framanritaðri ályktun kem- ur glöggt fram stefna Framsókn arflokksins í búsetumálunum og afstaða hans til dreifbýlisins. Þjóðin á að kappkosta að sitja, svo vel sem henni er unnt, land sitt allt. Hún á að vinna skipu- lega að eflingu atvinnulífs á hverjum stað í þeim atvinnu- greinum, sem þar henta bezt. Viðurkenna ber þá þróunarþörf — og koma til móts við hana — að í héruðum eflist þéttbýl- iskjarnar, er verði viðskiptamið stöðvar og iðnaðarhverfi og strjálbýlinu umhverfis til margs konar þjónustu og öryggis. Gera þarf áætlun um skipu- lag byggðanna og haga fram- kvæmdum í meginatriðum eftir því. Hraði framfaranna með stórvirkri tækni og kunnáttu, sem er komin til sögunnar, ger- ir nú orðið slíkar áætlanir og skipulagningu nauðsynlega og aðkallandi. Fólki er mikilsvert að vita að hverju er þjóðfélagslega stefnt á hverjum stað. Ætti áætlaunrgerð um búset- una meðal annars að geta orðið til þess að draga úr fólksflóttan- um, sem á undanförnum árum hefur átt sér stað frá ýmsum stöðum. Búferlaflutningur til Reykja- víkur og grenndar hennar ægir öðrum landshlutum. Fólkinu fjölgar örar í höfuðborginni en hún getur eðlilega tekið á móti. Strjálbýlið geldur afhroð vegna fólksfækkunar, — og missir krafta til uppbyggingar og framfara. III. Nýlega hefur Valdimar Krist insson, viðskiptafræðingur, birt athyglisverðar hugleiðingar um „Þróunarsvæði á íslandi". Hann er annar ritstjóri tímaritsins „Fjármálatíðindi“, sem Seðla- banki íslands gefur út. Grein hans kom út í síðasta hefti tíma ritsins 1963, og hefur verið end- urprentuð í sumum dagblöðun- um. Valdimar Kristinsson lýsir því í nefndri grein, hvernig hann telur skynsamlegt, að byggðin á íslandi þróist. Ræðir hann þessi mál skýrt og rólega. Dregur markalínur á kortum til glöggvunar, en er þó alls ekki einstrengingslegur. Sá, sem kann að vera honum ósammála — meira eða minna — hefur enga ástæðu til að ýfast, heldur telja þakkarvert að málin eru reifuð svo skilmerkilega. Ég vil ráðleggja mönnum að lesa grein V. K. með athygli. Hér er ekki rúm til að endur- segja hana, nema í örfáum drátt um. IV. V. K. talar um þróunarsvæði með þéttbýliskjörnum, en það er búsetuskipun, sem Framsókn arflokkurinn hefur fyrir all- löngu talið æskilega. Reykjavík er mesti þéttbýlis- kjarninn. Þróunarsvæði Reykja víkur telur V. K. að segja megi að nái „frá ofanverðum Borgar- firði út á Reykjanes og austur undir Eyjafjöll." Á því svæði búi nú um tveir þriðju lands- manna. Um Reykjavík sjálfa sem þétt býliskjarna segir hann: „Reykjavík og nágrenni er á góðri leið með að verða að 100 þús. manna borg. Þá mun hún á flestum sviðum geta boðið upp á eins góð skilyrði til fjölbreytts atvinnulífs, menningar og mennta eins og borg með 150 eða jafnvel 200 þús. íbúum. En það er einmitt sú stærð, sem Reykjavík gæti náð á næstu ára tugum. Því mun ör stækkun Reykjavíkur í framtíðinni ekki hafa sömu þýðingu fyrir þjóð- félagið, eins og verið hefur, enda fara nú fólksfjöldans vegna að skapast skilyrði til myndunar annarrar borgar í landinu, auk höfuðborgarinar." V. Borgin, sem V. K. vill mynda til jafnvægis, er Akureyri. í því sambandi segir hann: „Þegar mynda skal þróunar- svæði utan Suðvesturlands, hlýt ur miðbik Norðurlands að koma fyrst í hug. Þar er mannfjöldinn mestur, atvinnulífið fjölbreytt- ast, stærstur bær utan Reykja- víkur og aðstæður að mörgu leyti svipaðar og í höfuðborg- inni, með minni bæi í nágrenn- inu og landbúnaðarhéruð á báð- ar hliðar. Bendir í rauninni flest til, að Akureyi'i sé eini staður- inn á landinu, þar sem hægt væri að mynda fullkomlega sjálfstæða borg á þessari öld aðra en Reykjavík, enda myndi borg í nágrenni höfuðstaðarins verða mjög í skugga hans. Á hinn bóginn er Akureyri langt í burtu, og þar hefur þegar skap azt mikilvægur grundvöllur fyr ir borg.“ Þróunarsvæði Akureyrar hugsar V. K. sér: svæðið frá Suður-Þingeyjarsýslu til Skaga- fjarðarsýslu, að báðum þeim sýslum meðtöldum, þar með að sjálfsögðu taldir, auk Akureyr- ar, kaupstaðirnir: Húsavík, Ól- afsfjörður, Siglufjörður og Sauð árkrókur. Á þessu landssvæði telur hann að nú búi um 13.5% lands- manna. Akureyri, sem er með rúm- lega 9 þús. íbúa, segir hann að auka þurfi að sjálfsögðu mann- fjölda sinn verulega til þess að geta gegnt jafnvægishlutverki sínu. Skilyrði til þess eigi hún að hafa. Þar megi koma upp um boðsstjórn í ýmsum málum fyr- ir Norður- og Austurland. Margs konar iðnaður skipti þar miklu máli. Staðsetja mætti þar í grennd stóriðju. Efla þar menntastofnanir, hafa þar mið- stöð ferðamála o. s. frv. VI. V. K. segir að „fleiri borgir en tvær geti ekki myndazt á ís- landi í næstu framtíð.“ Hins vegar telur hann, að „þegar litið ér á aðstæður um allt land, virðist fjögur svæði vera líklegust til að geta fallið undir það, sem kalla mætti minni þróunarsvæði. Það er miðhluti Vestfjarða með innan við 6 þús. íbúa, norðurhluti Austfjarða, ásamt Fljótsdalshér aði, með yfir 6 þús. íbúa, norð- urhluti Snæfellsness með 3 þús. íbúa og Vestmannaeyjar með tæpa 5 þús. íbúa, en þær hafa að sjálfsögðu sérstöðu sem eyj- ar.“ Utan við þessi sex þróunar- svæði talar V. K. um fjóra „mik ilvæga athafnastaði.“ Þeir eru: Vatneyri og Sveinseyri (sem einn staður), Blönduós og Höfða kaupst. (einnig sem einn stað- ur), Raufarhöfn og Höfn í Hornafirði. Ennfremur segir þar: „Þróunarsvæðin sex ásamt hinum fjórum athafnastöðum, sem rætt hefur verið um, höfðu 1. desember 1960: 159500 íbúa eða 90% þjóðarinnar, og hefur þeim fjölgað að tiltölu síðan. Það eru því ekki margir, sem skildir eru útundan, ef svo má segja.“ Þá segir V. H, einnig: „Hér er að sjálfsögðu ekki verið að gefa í skyn, að 10% þjóðarinnar KARL KRISTJÁNSSON, alþingismaður. eigi engrar þjónustu að njóta og þurfi sem fyrst að flytja til hinna 9/10 hlutanna. En þjón- ustan við þessar dreifðustu byggðir yrði eðlilega mun minni en við íbúa þeirra svæða, sem ákveðið væri að byggja örast upp.“ VII. Hugleiðingar sínar segir V. K. að séu tilraunir til að setja fram tillögur á kerfisbundinn hátt um það, hvernig megi hafa jákvæð áhrif á þróun byggðar- innar í landinu og „tryggja þróttmikla byggð“ — — „án þess að hamla gegn hagvextin- um“. Tillögurnar eru þörf hreyf- ing mikilsverðs vandamáls. Hún kiprar munnvikin lítið eitt, er hún tekur í hönd Rossí. Það er eins og að taka í höndina á anda, hugsar hún. Fastara var hand- takið ekki. En Haraldur Gilde, hann. .. Rossí er á heimleið. Hann smeygir sér í skyndi inn til sín. Og þá fyrst getur Iðunn gefið brosinu lausan tauminn. Hún hlær innvortis að öllu samn. Að ungu vorinu, hugsuninni um Rossí á garðsvölunum, hrópandi hátt í sálarneyð sinni! Hm! — Hann náði að minnsta kosti að trufla eitthvað, — en það vissi hann ekkert um! Og hefði hann vitað það, myndi það eflaust hafa orðið enn verra fyrir Rossí. XJII. Björg vaknaði um fimm leyti morguns, þegar Iðunn var að koma heim úr veizlunni hjá frú Gilde. Henni virtist hún vera alveg útsofin. Hún lá glaðvakandi í rúminu og varð að brosa. Hún var svo fullkom- lega hamingjusöm. Já, hana langaði helzt til að brosa og hlæja allan daginn. Hún hafði vist þá eina hugsun í kollinum. Eitt nafn hljómaði í huga hennar, er hún sofnaði, og óðar, er hún vaknaði aftur: Eyvindur! Björg heyrði Iðunni læðast stillt inn í svefnherbergi sitt til þess að vekja hana ekki. — Bu-u, — B-ú-ú! baulaði Björg allt í einu dimmrödduð og bola- lega. Hún bældi niður í sér hláturinn með rúmfötunum. Hún heyrði eitthvað detta á gólfið inni hjá Iðunni, og að vörmu spori var hún komin inn til Bjargar. — Þú gerðir mig dauðhrædda, sagði hún hlæjandi og settist á rúmstokkinn hjá Björgu. — Segðu mér nú allt! sagði Björg og vafði yfirsænginni vel að sér. Iðunn krosslagði handleggina á brjóstinu og brosti. — Jæja, bara að ég vissi á hverju ég ætti að byrja! — Byrjaðu bara þar, sem Haraldur Gilde kemur til sögunnar! En það gerði Iðunn einmitt ekki. Hún sagði frá allt öðru. En Har- ald Gilde nefndi hún ekki. Hún sagði aðeins, að þau hefðu setið saman til borðs. Björg rís upp við olnboga í rúminu, horfir alvarlega á Iðunni með glettni í augum: — Nei, þú segir það ekki! Jæja, gekk það þá svona fljótt! — Hvað? Hvað áttu við? — segir Iðunn hlæjandi. Hún skildi vel, hvað Björg átti við. — Hvað verður nú um aumingja peyjann í ramma á náttborð- inu þínu eftir þennan dag? — Þegar nú er kominn málaraskarfur á slóðina? Iðunn vafði yfirsænginni utan um höfuðið á Björgu. — Nú skaltu sjálf segja mér, hvað þú hefur hafst að og haldið til núna á annan mánuð. Þú sleppur ekki, fyrr en þú hefir sagt mér frá því! — Æ-i, góða, ég get ekki sagt þér frá því! stundi Björg upp. — Það er dálítið einka-ævintýri mitt. Eg skal segja þér það einhvern tíma seinna, þegar . . . Myndin sýnir þróunursvæóiu og aðra mikilvæga at- hafnastaði. sem rætt er um í greiniuni. Orvarnar ciga að tákna. hvert eðlilegast sé að sækja ýmiss konar þjúnmtu, eftir að þéttbýliskjarnarnir hafa þróazt frekar. Af tengihrautunum milli þróunarsvæðanna ér leiftin frá Borgarfirfti í Skagafjörft lang'míkiívæg- ( ust, þar seni hún tcngir saman höfuöborgarsvæftið j \»g A k u r <■ y r a r s v a- öiA. 5 Ólöf, Ilallmundur og Baldur í hlutverkuni sínum. (Ljósm.: G.P.K.) Gimbill leikinn í Freyvangi Hins vegar má ekki taka þær of bókstaflega eða sem lausnar- orð. Með tillögunum vantar — enda eðlilegt að svo sé á þessu stigi — ýtarlega greinargerð um það, með hvaða ráðum þær yrðu framkvæmanlegar. í tillögunum er gengið á sjón- arhól, en varla skyggnzt nógu langt. Það er nærtækt að hugsa sér að sjá í anda kerfisbundna byggðaþróun. Og áreiðanlega þarf að leitast við að hafa skipu lag á þróun byggðarinnar. Hing að til hefur þróunin verið að kalla mætti sjálfvirk. En hún gæti líka hins vegar orðið um of stjórnvirk. Hún gæti leitt til aleyðingar mannabyggðar utan „þróunarsvæðanna", ef of geyst er farið í kerfisbindingu. Þjóðinni fjölgar ört. Talið er að um næstu aldamót sé líklegt að hún verði orðin hátt á fjórða hundrað þúsundir manna eða meira en helmingi fjölmennari en hún er nú. Að því ber að stefna — að mínu áliti — að tryggja í höfuð- atriðum jafnvægi í byggð lands- ins með þéttbýliskjörnum — og vöxt borgar norðanlands til mót vægis aðdráttarafli höfuðborg- arinnar syðra. En jafnframt á, eins og segir í ályktun miðstjórnar Framsókn- arflokksins, „að vinna gegn því að lífvænleg byggðarlög fari í eyði.“ Það víðsýni er nauðsynlegt að hafa í þessum málum. Hin öra fólksfjölgun í landinu á að geta gert kleift að fullngja báðum þessum sjónarmiðum, ef vel er á haldið. VIII. Um leið og þjóðinni fjölgar þarf hún meira og meira til sín. Atvinnuvegirnir þurfa að geta vaxið með henni. Sú skoðun er uppi, að fisk- stofnarnir á íslandsmiðum þoli ekki nema 20% meiri veiði en nú er. Ekki getur útvegurinn, samkv. þvi, tekið á móti vænt- anlegri fólksfjölgun, nema stutta stund. Iðnaðurinn getur að sjálf- sögðu aukizt takmarkaminna, en hann er að miklum hluta ekki beinn frumgjafi lífsþarfa á sama hátt og sjávarútvegur og landbúnaður, þjónusta hans í þjóðarbúskapnum er í eðli sínu fyrst og fremst til aðstoðar og þægindasköpunar, nema að því leyti, sem hann getur lagt til út- flutningsvöru. Á hvað verður þá mest að treysta, þegar fram í sækir? Verður það ekki landið sjálft — gróðurmoldin? Sagt hefur verið, að aðeins 3% af hinum ræktanlega hluta íslands séu komin í rækt. í þessu virðist liggja mesta fram- tíðaröryggi íslenzku þjóðarinn- ar. Þjóðir, sem búa við land- þrengsli mundu telja það mikil auðæfi að eiga 97% af stóru landi ótekin til ræktunar. Strjálbýlisfólkið er aðalvarð- sveitir þessara landkosta okkar. Það verndar og viðheldur þeim (Framhald á blaðsíðu 7). Á MIÐVIKUD AGSKV ÖLDIÐ frumsýndi Leikfélag Önguls- staðahrepps sjónleikinn Gimbil í félagsheimilinu Freyvangi. Leikstjórinn er Guðmundur Gunnarsson á Akureyri og hafa æfingar staðið í tvo mánuði með tveim æfingum á viku. Gimbill er nefndur „gesta- þraut í þrem þáttum“, sniðin eftir „George and Margaret“ eftir G. Savory. Gimbil er gamanleikur, sem margt var um talað í höfuðborg inni, er hann var sýndur þar, og þótti ómaksins vert að sjá hann, sökum fyndni og fjörs. Um efnið verður ekki fjölyrt hér, en aðeins á það bent, að það er til þess ætlað að veita skemmtun, fremur en flytja veigamikinn boðskap, og í því ljósi verður að meta hann. En að sjálfsögðu gerir Gimbill engu að síður kröfu til góðs leiks og leikstjórnar og er engan veginn auðveldur í meðferð. Guðmundur Gunnarsson leik- stjóri hefur lagt sig vel fram við leiðbeiningar, og fengið í sín ar hendur furðu góða leik- krafta, þótt flestir leikendur séu nýliðar, eða því sem næst. Hér hefur það enn einu sinni sannazt, eins og mörg dæmi hafa sýnt í vetur, að hvarvetna í sveitum er hægt að grípa upp (Framh. á bls. 7). AUÐHILDUR FRÁ VOGI: | GULLNA BORGIN I 26 *>*>8>=®<'8>=s — Þegar hvað? Ertu kannski að trúlofa þig rétt framan við nefið á okkur? Björg brosti aðeins og svaraði þessu engu. Hún varð snöggvast hugsi. Henni varð hugsað til þess, að Eyvindur hefði aldrei nefnt neitt um trúlofun. En honum þætti verulega mjög vænt um hana. Og það ætti nú að vera aðalatriðið. — Hér er þá um pilt að ræða? sagði Iðunn og stóð upp í rúminu. — Já, það er það, sagði Björg og lagði beran, ávalan handlegginn undir höfuð sér. Iðunn geispaði. — Jæja, nú verð ég líka að halla mér út af dálitla stund, sagði hún og gekk inn til sín. —- Björg dáðist að Iðunni. En hve hún var falleg! Þvílíkan hörunds- lit hafði Björg aldrei séð á nokkurri stúlku. Gullinbrúnn blærinn fór dásamlega vel við hvítan samkvæmiskjólinn. En Björg öfundaði hana ekki af neinu. Hún óskaði þess eins að mega alltaf vera vinkona Iðunnar. Hún væri aldrei tilgerðarleg eða meinleg í orðum. Og hún var harla ólík öðrum borgarstúlkum. Hún gat spjallað um ýms mál- efni alveg eins og sveitastúlka. Henni þætti víst jafn vænt um sveit- ina sem borgina. Og hún þekkti vel hvort tveggja. Björgu hafði í rauninni langað til að segja Iðunni allt ævintýrið sitt. En hún hafði samt hikað við það. Hún fann eiginlega á sér, að Iðunni myndi ekki geðjast að því öllu, — og til dæmis þykja alltof óvarkárt að fara að kvöldi dags um borð í skip til ókunnugs karl- manns. Og það hafði henni sjálfri í rauninni einnig fundizt. — En svo hefði hún vísað öllu slíku á bug. Hér var eiginlega engin hætta á ferðum. Það myndu allir sanna, ef þeir vissu, hve góður og nærgæt- inn Eyvindur væri. Hann hefði alls ekki reynt að kyssa hana fyrr en í annað skiptið sem hún kom til hans. Fyrsta kossinn hans ætlar hún sérstaklega að muna! Enda var það líka fyrsti karlmannskossinn, sem hún hafði fengið. Það var henni alger nýjung. Hún fann einkennilega sælukennd streyma um allan líkamann. — Vinkonur hennar myndu víst hafa orðið heldur en ekki hissa, hefðu þær komizt að því, að hún 22. ára gömul væri svo barnaleg að hafa aldrei kysst nokkurn pilt! Björg minnist annars laugardagsins, sem þau Eyvindur voru sam- an. Hún var jafnhrædd og í fyrra skiptið við að klöngrast um borð. Nú voru þau frjálsari í tali og öllu viðmóti en í fyrra skiptið. Hann skákaði henni umsvifalaust niður við hliðina á sér, stakk sykurmol- um í munninn á henni og gældi dálítið við höndina á henni. — Æ, hún mundi svo vel, hve hann allt í einu hafði tekið utan um hana, þrýst henni fast að sér og horft lengi, lengi á hana, og faðmað hana fastara og fastara að sér, unz hún lá í faðmi hans og fann hendur hans strjúka um brjóst sitt, andlit og háls. Hún fann hita þeirra gegnum kjólinn. Hár hans hafði snert enni hennar og augu, og hún hafði strokið hendi sinni í gegnum það. Áður en hana varði höfðu varir hans þrýstst fast að munni hennar. Henni hvarf allur heimur. Eyvindur þrýsti henni enn fastar að sér án þess að sleppa munni hennar. — Hvað hefði hún hugsað þessa stundina? Helzt ekkert. Og heldur ekki eftir á, er þau hálf lágu fast saman með kinn við kinn. Það var orðið rökkvað í klefanum, blikaði aðeins á ofurlítið gljáandi kaffidótið á borðinu. Hún hafði heyrt sjáv- argjálpið á skipssúðinni og langt burtu á milli skipanna, og það olli því, að hún hafði þrýst sér enn fastara inn að Eyvindi. Hann hafði haldið fast utan um hana lengi, lengi. Tíminn var horfinn og gleymdur umhverfis þau, unz Eyvindur reis upp við olnboga og náði sér í vindling og sagði eitthvað á þá leið, að nú færi víst að verða framorðið fyrir hana. Þá hefði hún risið snöggt upp og skammast sín fyrir, að hún skyldi ekki hafa verið fyrst til að ympra á þessu. Það hefði alls ekki átt að vera hann, sem þurft hefði að segja þetta! Svo hefðu þau setið þarna stundarkorn og aðeins séð glóðina á vindlingnum, sem hann var að reykja. Hún hefði staðið upp og ætlað að fara, en hann hefði dregið hana aftur niður til sín og slökkt í vind- lingnum. Hún hefði samt átt að fara þá þegar. En hún var of veik. Hún sá ekki einu sinni eftir því, þegar hún nú rifjar þetta upp fyrir sér. Hann hafði fundið munninn hennar á ný. Og tíminn hefði liðið og horfið þeim, án þess hún yrði þess vör. Henni hefði þá fundizt, sem væri þessi stundin mikilvægasti þáttur lífsins, sem hún yrði að njóta til fulls sem allra lengst. Hún hefði getað verið hjá honum alla ævi. Kinn við kinn og munn við munn. Það hefði orðið seint þetta kvöld, dálítið of seint. En það hefðu orðið mörg slík kvöld. Tvisvar og þrisvar sömu viku fór hún með bæjarferjunni yfir Voginn. í kvöld eiga þau líka að hittast. Fyrst á bíó, og síðan.. . Dýrlega dásemdar-borg! Hún getur ekkert annað sagt. Borgin verður óefað hamingjuvegurinn hennar, eins og hún hefði búizt við.--------- Iðunn reyndi að sofna í snatri, en það tókst eki. Fyrst og fremst var fuglasöngurinn í trjánum í Sjúkrahússgarðinum svo hávær og morgunfagnandi. Og á hinn bóginn gat hún ekki látið vera með að hugsa um veizluna hjá frú Gilde, eftir að hún var háttuð. Hún var dauðþreytt. Allur líkami hennar var þungur sem blý, eftir að hún var komin í rúmið. En heilinn starfaði traust og skýrt fullum fetum. Og þá var ekki að hugsa til að sofna. Hún sá Harald Gilde fyrir sér frá öllum hliðum. En oftast alvarleg- an. Og í þeirri mynd hafði hann bæði góð og miður góð áhrif á hana. En svo smaug Rossí inn á milli í huga hennar. Hvað var það, sem kom yfir hann í kvöld? — Nei, hún getur ekki sofnað. Hugur hennar er allur á reiki. Augu hennar nema staðar við myndina af Jörundi á náttborðinu. Framh,

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.