Dagur - 22.04.1964, Síða 1

Dagur - 22.04.1964, Síða 1
Dagur kernur út tvisvar í viku og kostar 20 krónur á mánuði. XiLVII. árg. Akureyri, miðvikudaginn 22. apríl 1964 — 33. tbl. Dagur Símar: 1IG6 (ritstjóri) 1167 (afgreiðsla) NÝIR KJARASAMN- INGAR BRAÐIJEGA Alþýðusambönd Norður- og Austurlands óska eftir umboði til verkfallsboðunar 20. maí ALÞYÐUSAMBOND Norður- og Austurlands héldu ráðstefnu á Akureyri fyrir helgina. Þau hafa óskað heimildar sambands félaganna um að boða til vinnu- stöðvunar frá og með 20. maí n. k., hafi samningar ekki tekizt. Samböndin samþykktu ályktan- Tvíburabáf- arnir frá KEA SKIPASMÍÐASTÖÐ KEA hefur nýlokið smíði þessara fallegu báta, sem sjást hér á siglingu: Farsæll EA 130 og Venus EA 15, og afhentir eig endum, sem eru, Sigmar Jó- hannesson, Gunnar Jóhann- esson og Óli Björnsson, Hrís- ey, sem eiga Farsæl, og Guð- mundur Benediktsson og syn ir hans 'þrír, Litla-Árskógs- sandi, sem eiga Venus. Bátarnir eru byggðir úr eik, 18,75 lestir að stærð og með 200 HK Volvo Penta vélum. Þetta munu vera minnstu bátar hér um slóðir sem hafa radar en að öðru leyti eru þeir búnir venju- legum tækjum. Þetta er 99. og 100. bátur og skip, sem stöðin hefur smíðað og er hún löngu lands þekkt fyrir sérlega vandað- an og góðan frágang. Á myndinni hér fyrir neð- an sjást, frá vinstri, Gunnar Jóhannesson, Tryggvi Gunn- arsson, yfirsmiður stöðvar- innar, er gerði teikningar af bátunum, og Guðmundur Benediktsson. Ljósm.: E. D. ir um samningsgrundvöll. Fara þær hér á eftir: 1) Að óhjákvæmileg launa- hækkun komi til framkvæmda 15. maí n. k. og síðar í áföngum, ef um langan sanmingstíma gæti orðið að ræða. 2) Að verkalyðsfélögin og samtök atvinnurekenda beiti öll um áhrifum sínum til þess að afnumið verði bann við verðlags SIGURJON OG ÞORSTEINN á bát sínum. (Ljósmynd: E. D.) bótum á laun og að því fengnu verði samið um fullgilda verð- fryggingu á það grunnkaup sem um kann að semjast. 3) Gerðar verði raunhæfar ráðstafanir til styttingar vinnu- dagsins með eða án atbeina lög- gjafarvaldsins. 4) Orlofsréttindi verði aukin svo að lágmarksorlof verði 21 virkur dagur og orlofsfé 6%. 5) Greiðslur til sjúkrasjóða verði 1% af öllum greiddum vinnulaunum. 6) Vikukaup með óskertu kaupi fyrir helgidaga verði tek- ið upp fyrir allt verkafólk, sem (Framhald á blaðsíðu 4). Margir hraðbátar í smíðum á Akureyri Sá fyrsti er fullgerður og gengur 33 mílur ÁHUGI hefur vaknað fyrir þvi á Akureyri, að nota Pollinn til að stunda þar ýmis konar sjó- sport. Fyrrum var hann drjúg matarkista bæjarmanna og er það raunar enn, en hann er líka sem kjörinn til siglinga, sport- veiða, kappróðra og hvers kon- ar sjósports. Kappróðrar hafa verið stundaðir mörg undanfar- in ár og kappróðrarmenn frá róðrardeild Æskulýðsfélags Ak- Slagsmál í bænum Seytján ára gamall piltur fótbrotnaði MJÖG MIKIL ÖLVUN var á Akureyri á laugardagsnóttina. Slags- mál urðu víða í miðbænum, samkvæmt umsögn lögreglunnar. Margir urðu blóðugir og rifu föt sín. Piltur einn, 17 ára, fót- brotnaði í þessum óeyrðum og liggur hann nú á sjúkrahúsi. Fólk innan 21. árs var þarna í stórum meirihluta, og óeyrðimar og hin áberandi ölvun- á götum bæjarins gætti þá fyrst að marki, þegar fólkið kom af dansleikjum í Alþýðuhúsinu, Sjálfstæðis- húsinu og Hótel KEA, svo mjög undir áhrifum víns, sem raun ber vitni. Þessi greinargerð lögreglunnar þarf ekki skýringar við. Hvort liún verður þeim umhugsunarefni, sem gæta eiga framkvæmdar ureyrarkirkju hafa í þeirri grein vakið sérstaka athygli. Tími kajakanna er líka upp- runninn hér og hafa margir unglingar haft mikla ánægju af. Og hér eru einnig seglbátar, sem of lítið eru notaðir. Og nú eru hraðbátarnir í upp- siglingu. A. m. k. sex hraðbát- ai' eru í smíðum í bænum, flest- ir ætlaðir tveim mönnum. Fyrsti hraðbáturinn var fullgerður fyr ir fáum dögum og var þá reynd ur á Pollinum, fjölda áhorfenda til mikillar skemmtunar. Þessi hraðbátur mun sá fyrsti sem hér er smíðaður og tekur sex manns. Hann er 13 feta langur, flatbotna, með 40 hest- afla utanborðsmótor og gengur 33 mílur. Hann er gerður eftir amerískri teikningu. Eigendur eru unglingarnir Sigurjón Jóns- son og Þorsteinn Björnsson. Smíðuðu þeir bátinn og eyddu til þess 800 klst. samanlagt. Efnið í grind er úr eik og kross- við, mjög vönduðum. Efnið, (Framhald á blaðsíðu 4). DEYDDIBARN SITT í ÖLÆÐI S.L. sunnudag skeði það á Hell- issandi, að ungur, ölvaður fað- ir banaði barni sínu, ellefu mán- aða syni. Faðirinn heyrði son sinn gráta, ætlaði að hugga hann. Tók hann um fætur bamsins og sveiflaði því síðan kring um sig. .1 þeim svifum hrasaði hann og lenti höfuðið á barninu á steinvegg og var það þegar örent. □ SKAUT AÐ FOLKI f REYKJAVÍK skaut maður einn, eitthvað „við skál“ og meira truflaður, sex skotum á verkamenn, sem unnu í hús- grunni. Ekki varð slys að þessu og skall þó hurð nærri hælum, því sumar kúlurnar fóru mjög nærri. Q áfengislaganna, er svo annað mál. Q

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.