Dagur - 01.05.1964, Blaðsíða 1
XLVII. árg. — Akureyri, föstudaginn 1. maí 1964 —
36. tbl.
Dagur
Símar:
1166 (ritstjóri)
1167 (afgreiðsla)
HAFMEYJUM
HÆTT!
ALLIR muna hvernig fór fyrir
hafmeyjar-styttunni í Reykja-
vík. Hún var sprengd í loft upp
og varð' að rusli. Verknaðurinn
var ljótur þótt menn sakni hinn-
ar horfnu styttu misjafnlega
mikið.
Fyrir fáum dögum hvarf höf-
uðið af „Litlu hafmeyjunni“ í
Kaupmannahöfn, þekktu lista-
verki, sem gerð var eftir einu
af ævintýrum H. C. Andersens.
Höfuðið hafði verið sorfið eða
sagað af. □
„MÖL OG SANDUR“ er að færa út kvíamar. Lundur, búfjárræktarstöð, er litlu fjær og enn austar á miðri myndinni er hin mikla
spennistöð Rafveitu Akureyrar.
.... ......--.................
Varlega er þeim treysfandi!
ÞAÐ bar til á bæ einum í
Eyjafirði á sl. hausti, að
bóndinn þar tók í hús hrúta
sína tvo. Annar þeirra var
mjög illa á sig kominn og
auk þess blindur. Hugmynd
bóndans var að hafa hrút-
ana saman í stíu, en sambúð-
in varð ekki góð milli þeirra
og átti „sjúklingurinn“ í vök
að verjast. Bónda fannst því
réttast að láta hann til ánna,
í trausti þess, að ekki kæmi
að sök. Enda varð hann þess
ekki var, að hann brygðist
traustinu. — En þegar líða
tók á, kom annað í ljós. —
50 ær eru bornar. □
Aðalfundi K, Þ. lauk á Húsavík i gær
Sala erlendra og innlendra vara nam nálega
127 milljónum króna á síðastliðnu ári
Húsavík 30. apríl. Aðalfundur
Kaupfélags Þingeyinga á Húsa-
vík hófst í gær. Karl Kristjáns-
son alþingismaður og formaður
félagsstjórnar KÞ flutti árs-
skýrslu kaupfélagsstjórnarinnar
og Finnur Kristjánsson kaup-
félagsstjóri skýrði frá liag og
rekstri félagsins á liðnu starfs-
ári.
Sala erlendra og innlendra
vara nam á árinu krónum
137.783.826,00 og hafði aukizt
um krónur 24.256.875,00 frá ár-
inu á undan.
gesti þeirra. Þar sagði Baldur
á Ofeigsstöðum frá ævintýr-
um sínum í Þýzkalandi á liðn-
um vetri og kirkjukórinn söng
undir stjórn Reynis Jónassonar.
Fundur hófst kl. hálf tíu í
morgun. Mörg kaupfélagsmál
eru á dagskrá og standa umræð
ur nú yfir (kl. 2.30). Fundinum
lýkur síðar í dag og verður nán-
ar sagt frá honum síðar.
Þ. J.
Hjartasjúkdómarnir eru mannskæðaslir
Á LAUGARDAGINN var hald-
inn fundur í Tjarnarbæ í
Reykjavík, sem boðað hafði ver
ið til í því augnamiði að stofna
Hjarta- ag æðasjúkdómavarna-
félag í Reykjavík. Þegar á fund-
inn kom reyndist húsnæðið allt
of lítið, svo hundruð urðu frá
að hverfa, en 400 manns stofn-
uðu félagið. í stjórn þess eru:
Eggert Kristjánsson stórkaup-
maður, Ólafur Jónsson fulltrúi,
Pétur Benediktsson bankastjóri,
Sigurður Samúelsson prófessor
og Theorór Skúlason yfirlækn-
ir. En á stofnfundi flutti Sigurð-
ur Samúelsson aðalræðuna,
skýrði frá hjarta- og æðasjúk-
GÖMUL BRÚ
í GLERÁRDAL
NOKKRIR framtakssamir Ak-
ureyringar, sem nú eru á
miðjum aldri, eða rúmlega það,
byggðu á sínum duggarabands-
árum göngubrú á Glerá, all
langt fram í Glerárdal.
Nú er þessi brú hrörleg orð-
in og ófær yfirferðar venjulegu
fólki. En steinstöplarnir standa
óhaggaðir og burðartrén milli
þeirra einnig. Eigandi brúarinn-
ar fyrirfinnst víst enginn og
þurfa því áhugamenn að annast
viðgerðina. Kæmi það mörgum
vel, sem leið eiga um Glerár-
dal, að geta notað hina gömlu
dómum og dánartíðni af völd-
um þessara sjúkdóma, sem hafi
ellefu-faldast frá 1911—1955 og
síðan enn vaxið.
Hjarta- og æðasjúkdómar eru
í dag mannskæðastir allra sjúk
dóma á íslandi, sagði prófessor-
inn. Skoraði ræðumaður að síð-
ustu á alla viðstadda, að hefja
baráttu gegn sjúkdómum þess-
um.
Hið nýja félag ætlar að fræða
almenning um einkenni þessara
sjúkdóma og kenna mönnum
varnir gegn þeim, ennfremur
að styðja aukið rannsóknar-
starf í því sambandi og að auk-
inni sérmenntun lækna á þessu
sviði.
Hér er um stórt mál fjallað.
Þann sjúkdóm, sem um þessar
mundir leggur fleiri menn í
gröfina en nokkur annar sjúk-
dómur annar í okkar landi.
Er of mikil bjartsýni að vona
að í höfuðstað Norðurlands yrði
bráðlega stofnað hliðstætt fé-
FÉLL í SJÓINN
ÖLVAÐUR
TVÍTUGUR piltur héðan úr
bænum féll ölvaður út af Torfu-
nefsbryggj unni í sjóinn, s.l. mið-
vikudagskvöld. Skipverji á Jök-
ulfelli, sem var nærstaddur,
lcom til hjálpar og bjargaði pilt-
inum. Munaði litlu að ver færi,
eins og oft áður, þegar áfengi
er annars vegar. □
lag? Þess er sannarlega þörf,
að barátta sú, sem nú er upp-
tekin, verði almenn og hljóti
bæði skilning og stuðning allra
landsmanna. □
SAMKVÆMT upplýsingum
mjólkurbússtjórans í Borgar-
nesi, Sigurðar Guðbrandssonar,
verður hafin í næstu viku fyrsta
tilraun hérlendis til að sækja
mjólk til bænda á tankbílum.
ÁFENGISSALAN
JÓKST UM 19%
SAMKVÆMT nýútkomnum
skýrslum frá Áfengis- og tóbaks
verzlun ríkisins, nam heildar-
sala áfengis frá þeirri stofnun
þrjá fyrstu mánuði þessa árs
64,6 millj. kr., sem í krónutali
er 19% aukning frá sama árs-
tíma í fyrra.
Áfengissalan skiptist þannig
eftir útsölustöðum á fyrrnefndu
tímabili: Reykjavík 54,8 millj.
kr., Akureyri 5 millj., ísafjörður
1,9 millj., Seyðisfjörður 1,4 og í
Siglufirði seldist áfengi fyrir
955 þús. kr.
Verðhækkun hefur orðið á
áfengi síðan í fyrra. Munar það
svo miklu, að láta mun nærri að
selt áfengismaðn sé svipað nú
og þá. □
Eftir að reikningar höfðu ver-
ið samþykktir hófust víðtækar
umræður um málefni félagsins.
í kaffihléi milli fundarstarfa var
unað um stund við söng og gam
anvísur látnar fjúka.
í gærkveldi var samkoma í
boði KÞ fyrir fundarmenn og
Tilraunabíllinn hefur verið út-
búinn í Borgarnesi og hefur sér-
stakt mælitæki frá Mejeriernes
Maskinfabrik í Kolding til að
vikta mjólkina um leið og henni
er dælt úr mjólkurbrúsunum á
brúsapöllunum.
Þessi aðferð hefur verið not-
uð í nágrannalöndum okkar í
5—6 ár og nú verður stefnt að
því, að sækja alla mjólk til
mjólkurbúsins í Borgarnesi á
þennan hátt. (Þjóðólfur).
NORÐLENDINGAR bíða eftir
Norðurlandsbornum mikla, en
urðu að sjá af honum til Vest-
mannaeyja í vetur. Síðustu
fréttir herma, að borunin, sem
átti að gefa eyjabúum neyzlu-
vatn, sé nú komin niður á 60°
heitan sjó. á 900 metra dýpi,
en ekki fundið neinn kaldan
dropa. Haldið vei’ður áfram að
bora niður á allt að 1200 metra
SKEMMDARVERK
Á BIFREIÐ
NÚ í VIKUNNI voru nemend-
ur Verzlunarskólans í Reykja-
vík á ferð hér í bænum á tveim
stórum langferðabifreiðum. —
Höfðu þeir hér nætúrdvöl og
skildu farkostina eftir á bif-
reiðastæði við Landsbankann.
Um morguninn þegar leggja
átti af stað, kom í ljós að búið
var að hleypa loftinu úr báðum
framhjólum annarrar bifreiðar-
innar og einnig tveim hjólum
að aftan. Höfðu verið brotnir
loftventlar á sumum hjólunum,
og olli þessi verknaður tveggja
klukkustunda töf fyrir fei’ða-
fólkið. — Lögreglan hafði svo
upp á 18 ára pilti héðan úr bæn
um, sem viðurkenndi, að hafa
framkvæmt skemmdarvei’kið,
ásamt tveim öðrum. Q
dýpi, samkvæmt upphaflegri á-
ætlun, og má gera ráð fyrir
meiri hita og e. t. v. meira vatns
magni á þeirri leið.
Við óskum Vestmannaeying-
um góðs ái-angurs af boruninni,
og þess einnig, að hinn mikli
jai’ðbor, sem inn var keyptur til
notkunar á Noi’ðui’landi, komi
hingað sem fyrst. □
Mjólk í tankbílum
KOMIHEITAN SJO
á 900 metra dýpi í borholu í Vestmannaeyjum