Dagur - 06.05.1964, Side 1
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar 20 krónur á
mánuði.
Dagur
Símar:
1166 (ritstjóri)
1167 (aígreiðsla)
BRAGI JÓHANNSSON
KJÖRINN FORMAÐ-
UR F.V.S.A.
AÐALFUNDUR Félags verzl-
unar- og skrifstofufólks var
haldinn mánudaginn 4. maí s.l.
Formaður félagsins, Kristófer
Vilhjálmsson, skýrði frá starf-
inu á síðasta ári, samningavið-
ræðum sem fram höfðu farið
og þeim launasamningum sem
gerðir voru.
Við stjórnarkjör lýstu því yf-
ir að þeir gæfu ekki kost á sér
til endurkjörs, þeir Kristófer
Vilhjálmsson, Sigurður Jóhann-
esson og Baldur Halldórsson.
Hin nýja stjórn er þannig skip-
uð: Bragi Jóhannsson formaður,
ísak Guðmann ritari, Ingólfur
Gunnarsson gjaldkeri, Kolbeinn
Helgason meðstjórnandi, Þor-
steinn Svanlaugsson meðstjórn-
andi.
Hinn nýkjörni formaður þakk
aði fráfarandi stjórn ágæt störf
og vænti eins góðrar samvinnu
innan félagsins og stjórnarinn-
ar í framtíðinni, eins og verið
hafði að undanförnu. □
Frá Mjólkursamlagsfundi KEA í Samkomuhúsinu á Akureyri í gær. (Ljósmynd E. D.)
Aðalfundur Mjólkursamlags K.E.A. í gær
DAYÍÐSHÚSIÐ
BÆJARSTJÓRN Akureyrar
kaupstaðar og ættingjar Da-
víðs Stefánssonar frá Fagra-
skógi áttu nýlega viðræður
um hús skáldsins á Akur-
eyri, bókasafn þess og aðra
muni, sem fyrirhugað er að
varðveita. Samkomulag varð
um, að fá óvilhalla menn til
að meta eignir þessar til
verðs, og yrði matið grund-
völlur framhaldsviðræðna
um þessi mál.
Það fer vel á því að Ey-
firðingar taki mál þetta upp,
en öll þjóðin á hér hlut að.
Væntanlega taka einhverjir
þingmenn málið upp innan
veggja Alþingis, til þess að
tryggja framgang þess.
Ungmennafélögin við Eyja
fjörð liafa þegar samþykkt
að heita sér fyrir því að láta
gera styttu af skáldinu til að
setja upp á æskuheimili
hans, Fagraskógi.
Jónas Kristjánsson forstjóri flyt
ur skýrslu sína á aðalfundinum.
Kaupíélsg Þingeyinga frestar framkvæmdum í ár
vegna „ótryggs efnahagsmálaárferðis44
AÐALFUNDUR Kaupfélags Þingeyinga var haldinn á Húsavík
dagana 29.—30. apríl s.l. Á fundinum mættu 107 fulltrúar frá deild-
um félagsins, félagsstjórn fullskipuð, kaupfélagsstjóri og endur-
skoöendur, einnig margir gestir. Fundinum stýrði formaður félags-
ins, Karl Kristjánsson. Fundarritarar voru Indriði Ketilsson, Ás-
kell Sigurjónsson og Jóhann Ilermannsson.
Fjöldi mála var tekinn fyrir
og ræddur. Skýrslur um starf-
semi félagsins á liðnu ári flutt-
ar, svo og aðalreikningar, sem
samþyktir voru einróma.
Heildar-vörusala í búðum fé-
lagsins hafði verið 65 millj. kr.
á árinu. Framleiðsluvörur á
vegum félagsins á ái'inu höfðu
numið 55 millj. króna. Önnur
vörusala varð 17 millj. kr. Sölu-
aukning frá næst ári á undan
varð að krónutölu rúml. 20%.
Á árinu hafði tveimur sölu-
búðum félagsins í Húsavík,
Járn & Glervörudeild og Ný-
lenduvörudeild, verið breytt í
kjörbúðir. Haldið áfram bygg-
ingu hraðfrystihúss, og það tek-
ið í notkun að nokkru leyti.
Stækkun á byggingu Mjólkur-
samlagsins að mestu lokið, og
unnið að ýmsum minni háttar
framkvæmdum.
Aðalumræður fundarins urðu
um framtíðarverkefni félagsins,
og kom fram mikill og almenn-
ur áhugi hjá fundarmönnum
fyrir áframhaldöndi framfara-
sókn. Hins vegar voru menn
Finnur Kristjánsson.
sammála um, að vegna sérstak-
lega erfiðs og ótryggs verzlun-
ar- og efnahagsmálaárferðis
væri ekki hægt að komast hjá
því að fresta öllum meiri háttar
(Framh. á bls. 7).
Bændur fengu kr. 5.65 fyrir mjólkurlítrann
ÁRSFUNDUR mjólkursamlags Kaupfélags Eyfirðinga var haldinti
í Samkomuhúsinu á Akureyri í gær. Sóttu fundinn um 350 full-
trúar frá 526 framleiðendum af samlagssvæðinu auk stjórnar og
framkvæmdastjóra kaupfélagsins og forstjóra mjólkursamlagsins.
Formaður KEA, Brynjólfur
Sveinsson, setti fundinn, en
fundarstjórar voru kjörnir Sig-
urjón Steinsson Lundi og Mar-
ínó Þorsteinsson Engihlíð, en
fundarritarar Aðalsteinn Jóns-
son Kristnesi og Sæmundur
Guðmundsson Fagrabæ.
Jónas Kristjánsson forstjóri
' flutti skýrslu mjólkursamlags-
ins fyrir s.l. ár. Innlögð mjólk á
árinu var 17.443.890 lítrar og er
það 1.260.852 lítrum meira magn
en 1962. Nemur aukningin
7,8%. Meðaltal framleiðanda er
rúmir 33 þús. lítrar en mesta
framleiðslan er í Hrafnagils-
hreppi, þar koma rösklega 51
þús. lítrar á hvern framleið-
anda. Á s.l. tveim árum hefur
mjólkurframleiðendum fækkað
um 53.
Flokkun mjólkurinnar hafði
versnað á árinu og var nú
3,884% mjólkurinnar í III. og
IV. flokki, og er það mun lak-
ari útkoma en hjá flestum öðr-
um samlögum. Af mjólkurfram
leiðslunni fóru 19,5% til neyzlu,
en hitt til vinnslu. Varð mikil
aukning á vörubirgðum á árinu,
sérstaklega osti sem ætlaður er
til útflutnings. Á þriðja hundr-
að tonn eru nú til af smjöri. En
búið er að semja um sölu á 50
tonnum til Tékkóslóvakíu. Alls
námu vörubirgðir í árslok 1963
(Framhald á blaðsíðu 2).
Verkalýðsráðstefna Framsóknar-
ntanna verður haldin a Akureyri
NÚ undirbýr verklýðsmála-
nefnd Framsóknarflokksins
verkalýðsmálaráðstefnur víða
um land. Fyrir Norðurlandskjör
dæmi eystra verður hún haldin
á Akureyri um næstu mánaða-
mót og er hún nú í undirbún-
ingi
Ráðgert er að ráðstefna þessi
standi í tvo daga. Hæfir menn
flytja erindi um vinnulöggjöf-
ina, vinnuhagræðingu, arðskipt-
ingu eða hlutdeildarfyrirkomu-
lag, vinnustöðvanir, vinnuvernd
öryggismál o. fl.
Þátttakendur ráðstefnunnar
munu skoða verksmiðjur SÍS og
KEA og fleiri vinnustaði, eftir
því sem tími vinnst til. Búist er
við þátttakendum mjög víða að
úr kjördæminu.
Nánar verður hægt að segja
frá undirbúníhgi ráðstefnunnar
áður en langt líður. □