Dagur - 16.05.1964, Blaðsíða 8
Góðir gestir komu til ölafsfjarðar
Ólafsfirði, 12. maí 1964. Laugar-
daginn 2. maí hélt karlakórinn
Vísir, Siglufirði, söngskemmtun
hér í félagsheimilinu Tjarnar-
borg við mjög góða aðsókn. Á
söngskrá voru 16 valin lög eftir
innlenda og erlenda höfunda.
Var kórnum og söngstjóra hans
Gerhard Schmidt, frábaerlega
vel tekið og varð kórinn að end
urtaka mörg lögin. Einsön'gvar-
ar voru Guðmundur Þorláksson
og Sigurjón Sæmundsson. 26
hljóðfæraleikarar aðstoðuðu kór
inn seinni hluta söngskrárinnar .
og 10 konur sungu með í tveim
s.íðustu lögunum, sem voru
óperukórar eftir Verdi. Öllu
þessu fólki, milli 70 og 80
manns færum við Olafsfirðingar
okkar alúðarfyllstu þakkir fyrir
ógleymanlega ánægjustund.
Hér hefur verið mesta kalsa-
veður undanfarið, norðan- og
norð-austangarrí með bleytu-
hríð stundum, svo að færð yfir
Lágheiði hefur jafnvel orðið
mjög þung minni bílum, þó hef-
,ur umferðin ekki teppzt neitt
verulega vegna snjóþyngsla og
hefur Heiðin verið fær öllum bíl
um nú síðustu daga, en vantar
tilfinnanlega víða ofaníburð í
veginn.
Gæftir hafa verið stopular og
gmærri bátar vart komizt á sjó
nú u mlengri tíma og þá sjaldan
þeir hafa róið, hefur afli verið
sáralítill jafnt á færi sem línu.
Það virðist síður en svo hafa
lifnað yfir, þótt hánn bræidi
þetta. Guðbjörgin hættir á línu-
veiðum í þessari viku,- ef afli
ekki glæðist verulega. Bátarnir,
sem fóru á Suðurlandsvertíð,
eru flestir komnir heim og fara
nú þegar að búa sig undir sum-
arsíldveiðarnar. Þá hafa síldar-
saltendur einnig hafið undirbún
ing til söltunar á plönunum. —•
(Framhald á bls. 2).
Sludenlerorkeslrel
F egr unarf élagið ávarpar íbúana
og heitir á |>á að vinna að fegrun bæjarins
EINS og um var getið í síðasta
blaði, bauð stjórn Fegrunarfé-
lags Akureyrar bæjarstjóra,
bæjarverkfræðingi, yfirlögreglu
þjóni, heilbrigðisfulltrúa, bygg-
ingarfulltrúa, fréttamönnum o.
fl. í smáferð um bæinn til skrafs
og ráðagerða um það, hvað bet-
ur mætti fara í umgengni. Var
ferðin fróðleg mjög, og sem bet-
ur fer skemmtileg að því leyti,
hvað margt er bæði fallegt og
snyrtilegt í Akureyrarbæ.
Forsjónin gaf bæjarbúum feg-
ursta bæjarstæði landsins, til-
viljunin skolaði kunnáttu- og á-
hugamönnum um ræktun og
fegrun hér á land og settu verk
þeirra svip á bæinn. Akureyri
varð mesti blóma- og trjáræktar
bær landsins og er gróður hans
rómaður.
En í iðnaðarbæ og bæ, sem
hefur fjölda hesta og á þriðja
þúsund fjár á fóðrum, er mörgu
áfátt í almennri umgengni. f
ÁTTRÆÐUR
GUÐJÓN BENJAMÍNSSON á
Kroppi í Eyjafirði varð áttræð-
Ur 5. maí sl. Hann bjó lengi á
Björk, en síðan á Stekkjarflöt-
um, en hin siðari ár hefur hann
dvalið hjá Steingrími syni sín-
um, bónda á Kroppi. Guðjón er
vel ern og fylgist vel með, en er
orðinn sjóndapur síðustu árin.Q
þéttbýli er slíkt ekki einkamál
og öðrum óviðkomandi. Fegrun-
arfélagið, undir stjórn Jóns
Kristjánssonar, er samvizka bæj
arins í þessu efni og hefur
mörgu góðu til leiðar komið.
Það vill enn vekja bæjarbúa til
umhugsunar um úrbætur, þar
sem þeirra er þörf og hefur sent
blaðinu eftirfarandi til birting-
ar, ásamt nafnlausum myndum,
þar sem hver á að þekkja sitt.
(Ljósmyndirnar tók E. D.).
„Tillögur F. A. um lagfæring
ar og hreinsun lóða í bænum
fyrir hvítasunnu:
1. Malbera svæðið vestan,
norðan og austan Ferðaskrif
stofunnar.
2. Lagfært verði á lóð Atla við
Sjávargötu. Sett port að
austan.
3. Hreinsað verði til á skepnu-
svæðinu vestan við Sjávar-
götu og Grímseyjargötu.
4. Skúr á Bergstúni verði fjar
lægður.
5. Skúrar meðfram Glerá að
sunnan norður af lóðum
(Framhald á blaðsíðu 2).
KEMUR til Akureyrar 19. maí,
heldur hér koncert í Akureyrar
kirkju kl. 20.30 og fer síðan
með flugvél héðan til Osló kl.
24.00.
Stjórnandi er kapelmester
Harald Brager-Nielsen, ein-
söngvari með hljómsveitinni:
Eva Prytz, norsk sopransöng-
kona, nú starfandi um árabil
við Stockhólmsóperuna og Per
Öien, flautusólóisti.
Telja má víst að færri fái að-
göngumiða en vilja, því bæði
eru Norðmenn miklir íslands-
vinir og kórar héðan farið í
söngferðalög til Noregs og hlot-
ið sérstaklega góðar móttökur.
Þar að auki mun hljómsveitin
kunna vel sitt hlutverk og heim
sókn þessi má teljast merkur
tónlistarviðburður.
Stefán Ág. Kristjánsson, for-
maður Tónlistarfélags Akureyr-
ar, sér um undirbúning og mót-
tökur hér, en að öðru leyti eru
hljómleikarnir ekki á vegum
Tónlistarfélagsins.
Á hljómleikaskrá verða sin-
fónískur dans nr. 4 eftir Grieg,
Serenade fyrir blástur- og strok-
liljóðfæri e. Sparre Olsen, þrjú
verk eftir Mozart og Sinfónía
nr. 2 í D-dúr e. Brahms. Verður
hér um merkilegan listviðburð
að ræða.
Um byggingaframkvæmdir á Akureyri
r
Jón G. Agóstsson byggingafulltrúi svarar
spurningum blaðsins um það efni
í NÍU ÞÚSUND manna bæ þarf
árlega að byggja allt að 100 í-
búðir, ef miðað er við eðlilega
fólksfjölgun og einhvern inn-
flutning fólks frá öðrum stöð-
um. Slíkár framkvæmdir í í-
búðabyggingum næðu þó
skammt, ef miðað væi'i við öran
vöxt bæjarins. En þótt ekki sé
við annað miðað en eðlilegan
vöxt, eru húsnæðismálin einn
af veigamestu þáttum kaupstað-
arins og íbúanna. Því miður
hafa litlar framfarir átt sér stað
í byggingariðnaðinum hér á
landi og má segja, að með fáein-
um undantekningum hjakki allt
í sama farinu um fjölda ára,
þótt nágrannar okkar á hinum
Norðurlöndunum hafi tekið mik
ilsverðar nýjunagr í þjónustu
byggingariðnaðarins, sem bæði
liafa lækkað byggingarkostnað,
stytt byggingarkostnaðinn og
aukið öryggi í byggingarefnum
og vinnu með ströngu eftirliti.
í húsnæðiskostnaði er heldur
ekki um framför að ræða, eða
lánamálum. Ungu fólki er því
mjög örðugt að byggja eða eign-
ast eigin íbúðir, örðugra en
nokkru sinni fyrr, þrátt fyrir
mikla atvinnu.
Þrátt fyri rerfiðleikana er þó
töluvert byggt hér á Akureyri
og ný byggðahverfi bætast ár-
lega við og færa þéttbýlistak-
mörkin út. Og nýju byggða-
hverfin bera síður en svo fá-
tæktinni vitni, þótt hins vegar
megi um það deila, hve mikla
áherzlu fólk eigi að leggja á.
stórt og íburðarmikið húsnæði.
Fjölbýlishús og brotin skúrþök
minni húsa eru meira áberandi
en fyrr. Steinhúsin eru yfirgnæf.
andi í öllum húsbyggingum,
margt af þeim raunar ljótir
(Framhald á blaðsíðu 5).
Harald Brager-Nielsen.
SAMVINNUBANKI
Á HÚSAVÍK
ÞRIÐJUDAGINN 12. maí stofn-
aði Samvinnubanki íslands h.f.
umboðsskrifstofu í Húsavík.
Forstöðumaður umboðsskrifstof
unnar er Stefán Sörensson, sem
jafnframt er sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs K. Þ. Umboðsskrif-
stofan verður fyrst um sinn í
húsakynnum K. Þ., en gert er
ráð fyrir, að í sumar verði haf-
izt handa um byggingu húss
fyrir Útibú Samvinnubankans á
Húsavík. Þ. J.
SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS
SJÖTUGUR
SKAFTI GUÐMUNDSSON
bóndi í Gerði í Hörgárdal varð
sjötugur 14. maí og er hann því
einum degi yngri en forsetinn.
Skafti er mikill- búmaður og
gerði kot að stórbýli. Þar býr
nú einnig Olafur sonur hans.
Onnur börn Skafta og Sigrúnar
Sigurðardóftur konu hans eru
Guðmundur lögfræðingur og
Guðný húsfreyja, bæði búsett á
Akureyri. □