Dagur - 27.05.1964, Blaðsíða 8

Dagur - 27.05.1964, Blaðsíða 8
8 Verklýðsmálaráðstefnan Þessa klukku gaf Sveinbjöra Jónsson byggingameistari, en hún var í eigu Þorsteins Dan- íelssonar á Skipalóni. — (Ljós- mynd: S. S.). DAGSKRÁ ráðstefnunnar, sem verklýðsmálanefnd Framsóknarflokksins efnir til á Akureyri verður í stór- um dráttum á þessa leið: LAUGARDAGUR 30. MAf: Kl. 9—12 f. h. Heimsóttir vinnustaðir á Akureyri. — Kl. 1,30—7 e. h. Setning ráð- stefnunnar: Jón D. Guð- mundsson verkamaður, for- maður verklýðsmálanefndar. Þá verða flutt erindi, fyrir- spurnir og almennar umrœð- uf. Gert er ráð fyrir að kvöld verður verði borðaður í Skíðahótelinu í Hlíðarfjalli. Enginn fundur verður um kvöldið. SUNNUDAGUR 31. MAÍ: Kl. 9—12 f. h. Erindaflutn- ingur, fyrirspurnir og um- ræður. Ef tími vinnst til og veður leyfir eftir hádegið verður farið í smá ferðalög um nágrennið. Þeir sem flytja erindi á ráð stefnunni eru þessir: Ey- steinn Jónsson formaður Framsóknarflokksins, Ingvar Gíslason lögfræðingur, Hall- dór E. Sigurðsson sveitar- stjóri, Hannes Pálsson full- trúi og Jón Snorri Þorleifs- J; son formaður Trésmiðafélags ;• Reykjavíkur. Þessir menn munu ræða <! m. a. um: Ákvæðisvinnuna, i húsnæðismálin, vinnutímann I; og vinnuhagræðingu, Fram- I; sóknarflokkinn og verklýðs- J; málin og margt fleira. Verklýðsmálanefndin hvet- ;! ur Framsóknarfólk hvar sem ! er á landinu til þess að mæta !; á þessari ráðstefnu. !; Allar upplýsingar um ferð- ;; ir og annað viðvíkjandi ráð- J; stefnunni er hægt að fá á ;! flokksskrifstofunum á Akur- eyri og í Reykjavík. Q <! JÓN D. JÓN SNORRI Sérstaka athygli vekur, hvað öllúm munum er vel og smekk- lega komið fyrir í safninu, svo þægilegt er fyrir gesti að virða þá fyrir sér og hafa gagn af. Á safnvörðurinn, Þórður Frið- bjarnarson, þar stærstan hlut í að svo vel hefur til tekizt, og er safninu áreiðanlega vel borg- við í hans umsjá. Þrátt fyrir allstór húsakynni, sem safnið ræður yfir, er það nú þegar orðið of lítið. Er ekki EYSTEINN HALLDÓR HANNES INGVAR Hinjasafnið á Akureyri opnað á ný S.L. mánudag var blaðamönn- um við Akureyrarblöðin boðið að skoða Minjasafnið á Akur- eyi-i. Safnið, sem er til húsa í Aðalstræti 58, tók til starfa á s.I. sumri, og var opið þar til um páskana í vetur, að því var lokað vegna endurbóta. Verður safnið nú opnað aftur nk. sunnu dag. Þórður Friðbjarnarson, safnvörður, og Jónas Kristjáns- son, formaður safnsnefndar, leiðbeindu fréttamönnum um safnið og skýrðu frá því helzta sem gert hefur verið að undan- förnu til endurbóta á því, og sýndu muni, sem borizt hafa frá ýmsum aðilum. Má þar fyrst nefna nýja deild í safninu, er það deild verkfæra og áhalda hinna einstöku iðngreina. Eru þar margir sjaldséðir hlutir, þó sitthvað vanti þar í. Þá er ný- komin í safnið Borgundarhólms- klukkan, sem Sveinbjörn Jóns- son byggingarmeistari gaf, en hún er upphaflega úr búi Þor- steins Daníelssonar á Skipalóni. Skrifborð, stóll og skápur Ingi- mars Eydal ritstjóra er komið í safnið og von á fleiri munum úr hans búi. Margt fleira mætti nefna, en það bíður að sinni. Ekki er möguleiki á, að skoða safnið á stuttri stund, svo margt ber þar fyrir augu, sem gaman væri að athuga með gaumgæfni GRÓÐURSETNING Á MIÐHÁLSSTÖÐUM GRÓÐURSETNING Skógrækt- arfélags Eyfirðinga er nú í full- um gangi. Um næstu helgi verð ur sjálfboðavinna við gróður- setningu í þrjá daga í röð, að Miðhálsstöðum í Oxnadal. Föstu daginn 29. maí gróðursetja nem endur úr 4. bekk Gagnfræða- skóla Akureyrar að Miðháls- stöðum. Laugardagurinn 30. maí er Þorsteinsdagurinn og verður þá almenn þátttaka í gróðursetn- ingunni. Daginn eftir, sunnudaginn 31. maí, er svo gróðursetningardag- ur U.M.S.E. og hefst vinnan kl. 2 e. h. Q ELDHÚSDAGUR A ALÞINGI ALÞINGI var slitið 14. maí. Rétt áður eða kvöldin 11. og 12. maí var „almennum stjómmála- umræðum," sem svo voru nefnd ar, útvarpað frá fundi í samein- uðu þingi. Þessar „almennu stjórnmálaumræður“ koma í stað „eldhúsdagsins,“ sem lengi hefir tíðkazt. „Eldhúsdagsum- ræðurnar“ áttu að fara fram í lok 1. umræðna fjárlaga, þegar fjárlaga frumvarpið kom úr nefnd og áður en því var vísað til 2. umræðu. Að þessu sinni, eins og stundum áður í seinni tíð, varð samið um það milli stjórnarflokkanna að fresta eld liúsdeginum fram undir þinglok, og gekk hann í dagskrá undir nafninu „almennar stjórnmála- umræður,“ sem er réttnefni, því að samkv. venju má ræða öll þjóðmál á „eldhúsdegi.“ „NÝR TÓNN“ HJÁ FORSÆTISRÁÐHERRA Ræðurnar sem fluttar voru á „eldhúsdegi“ eru nú mörgum kunnar — eða efni þeirra — bæði úr útvarpi og blöðum og verða ekki raktar hér. Það vakti athygli, að forsætisráðherra var mýkri í máli en liann er vanur að vera. Viðurkenndi vanmátt „viðreisnarinnar“ til að koma í veg fyrir verðbólgu, en vildi halda því fram að viðreisnar- stjórninni hefði ekki tekizt verr en öðrum ríkisstjórnum að fást við verðbólgudrauginn. Hærra var risið á þeim bæ fyrir 4 ár- um, þegar stjórnin vildi engum aðvörunum sinna og hóf það glæfraspil, sem nú er tapað. En samanburðurinn við aðrar rik- isstjómir er afsökunarviðleitni, sem erfitt er að rökstyðja. Nú kvaðst forsætisráðherra reiðubú inn til viðræðna við stéttasam- tök, þó liann eða hans niennn ámæltu vinstri stjórninni fyrir slíkt á sínum tíma. BRATTARI I MÁLI Sumir aðrir ræðumenn Sjálf- stæðisflokksins voru brattari í máli en forsætlsráðherrann og reyndu að bera sig vel eftir at- vikum. Einkum var landbúnað- ar ráðherra, Ingólfur Jónsson, að venju nokkuð drjúgur af verkum sínum í þágu landbún- aðarins. Varla gerir hann þó ráð fyrir, að bændur séu búnir að gleyma því, að í ráðkerratíð hans hafa vextir af landbúnað- arlánum verið hækkaðir um þriðjung, framleiðsluskattur lagður á bændur og rekstrarlán seðlabankans út á búvörur lækkuð úr 67% niður í 50—55% en framkvæmda- og rekstrar- Vörur allar stórliækkaðar í verði, svo að nokkuð sé nefnt. Ekki mun það áður hafa hent landbúnaðarráðherra hér á landi að eiga í málaferlum við mikinn hluta bændastéttar- innar, en um 2700 bændur standa nú að máli því, er höfð- að hefir verið út af framleiðslu- skattinum. Hlutaðeigendur telja ráðherrann og stuðningsmenn hans á þingi hafa gengið of nærri stjórnarskránni með (Framhald á blaðsíðu 7). ÞÓR OG K.A. KEPPA Á MORGUN Á MORGUN (fimmtudag) kl. 8,30 verður knattspýrnuleikur milli KA og Þórs í meistara- flokki, á nýja malarvellinum. — Er sá leikur liður í vormótinu. Verður lið ÍBA , sem keppa á við Tindastól um helgina, senni- lega valið eftir þennan leik. Q og sumir munirnir eru hrein listaverk. T. d. væri vel hægt að gleyma tímanum við að skoða úrvinnustofu Friðriks heitins Þorgrímssonar, sem er í sérstöku herbergi. Sögu- og myndasýningardeild Akureyrar er einnig mjög fróðleg. unnt að sýna þar ýmsa stærri liluti, s. s. sleða, kerrur, tað- kvamir, báta o. fl. sem fróðlegt væri að hafa til sýnis. í Minjasafninu eru nú 2.300 skrásettir munir, auk þeirra sem eru í úrvinnustofunni, sem sagt var frá áður. Ennþá er söfnun haldið áfram og hefur safnnefndin mikinn hug á að auka það svo sem kostur er framast á. Biðja foráðamenn safnsins fólk eindregið að stuðla að vexti þess, m. a. með því að útvega gamla hluti, sem e. t. v. liggja í hirðuleysi, engum til gagns eða ánægju á þann hátt. Að lokum vill blaðið hvetja bæjarbúa og aðz-a þá, sem hér eiga leið um, að gefa sér tíma til að koma og skoða Minjasafn- ið. Er óhætt að fullyrða að þeim tíma yrði vel varið, og gildir (Fz-amhald á bls. 2.) NÁMSMEYJAR í husmæðraskolanum a Laugalandi skoða Mjolkursamlag KEA SMÁTT OG STÓRT

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.