Dagur - 06.06.1964, Blaðsíða 1
Dagur
Símar:
1167 (afgreiðsla)
1166 (ritstjóri)
Prestar og lermiugar-
drengir í í
Fermingarbarnamót á
Á SUNNUDAGINN var ferm-
ingarbarnamót Eyjafjarðarpró-
fastsdæmis haldið á Dalvík. —
Þátttakendur voru um 250 tals-
iris úr flestum sóknum prófasts-
dæmisins. Mótið var sett kl. 10
f. h. í Samkomuhúsi Dalvíkur
af ' séra Birgi Snæbjörnssyni
sóknarpresti á Akureyri og
Guðlaug Elsa Björnsdóttir las
upp ávarp frá biskupi íslands.
ALLT AÐ FARA
í GANG
íþróttum
Dalvík um sl. helgi
Þá var biblíulestur, sem séra
Kristján Búason í Ólafsfirði
stjórnaði.
Eftir hádegi var hlýtt guðs-
þjónustu í hinni fögru Dalvíkur-
kirkju. Séra Bolli Gústafsson í
Hrísey, predikaði, en séra Stef-
án Snævarr á Völlum þjónaði
fyrir altari. Gestur Hjörleifsson
lék á kirkjuorgelið.
Eftis það hófust útileikir og
íþróttir, sem stóðu með miklu
fjöri tvo klukkutíma, og náðu
hámarki milli presta og ferming
ardrengja, sem skildu jafnir.
(Framhald á blaðsíðu 7).
M/s Þórður Jónsson RE 350 í reynsluferð í Noregi
\ ýtl skip bætist við fiskiflotami
Raufarliöfn, 5. júni. Hingað eru
komin allt að 10 þús. mál í
bræðslu og meira á leiðinni. —
Snæfellið var fyrsta skipið, sem
hingað kom með síld. Verksmiðj
an er að verða tilbúin að hefja
síldarbræðsluna og verið er að
vinna við undirbúning á síldar-
plönunum. Það er sem sagt allt
að fara í gang hérna, eins og
geta má nærri, eftir að fyrsta
síldin kemur. H. H.
VIÐ ERUM TILBÚNIR
Vopnafirði, 5. júní. Hér er allt
tilbúið fyrir síldarmóttökuna. —
Bræðslan er nú stórlega endur-
bætt og fjórar söltunarstöðvar
taka síldinni opnum örmum, þeg
ar söltun hefst. Þær hafa verið
endurbættar og stækkaðar að
mun.
Hér verður nú unnt að veita
síldarbátum mun betri þjónustu
að mörgu leyti en áður hefur
verið unnt að gera.
Ég sá lax stökkva hér skammt
undan nú fyrir skömmu. Tölu-
vert hefur veiðzt af vænni
bieikju hér í vor. K. V.
Eigendur eru Valtýr Þorsteinsson Akureyri
og Sæmundur Þórðarson Stóru-Vatnsleysu
SNÆFELL
HEPPIÐ
SNÆFELL á Akureyri
fór áleiðis á síldarmiðin
kl. 2 á þriðjudag. Um kl.
4 í gær var það búið að J
afla 4000 mál og tunnur
og var þá á leið meðj
þriðja farminn til lands,
ca. 1000 mál. □
vi. .—- —'J
S.L. fimmtudag kom hingað til
Akureyrar, frá Noregi, nýtt 300
tonna fiskiskip, Þórður Jónas-
son RE 350. Eigendur eru Val-
týr Þorsteinsson, útgerðarmað-
ur hér, og Sæmudur Þórðarson,
skipstjóri, Stóru-Vatnsleiðslu,
er sigldi skipinu heim og verður
skipstjóri á því.
Samningur um smíði skipsins
var gerður við A/S Akers mek.
Verksted Oslo, en byggt hjá
Stard Verft, Stord, en Stord
Verft er ein af þeim skipasmíða
stöðvum, sem eru í Akers
grúppunni, og er m/s Þórður
Jónasson fyrsta skipið, er þeir
byggja fyrir íslendinga. Um-
boðsmaður hér á landi fyrir Ak-
ers mek Verksted er Pétur O.
Nikulásson, Reykjavík.
M/s Þórður Jónasson er
byggður í klassa Norsk Veritas
-þ 1A1 ISC Havfiske og sam-
kvæmt kröfum skipaskoðunar
ríkisins og er vandáður að allri
gerð. Skipið er búið öllum beztu
öryggis- og fiskileitartækjum,
svo sem tveimur dýptarmælum,
sem báðir eru með sjálfleitandi
asdic - útfærslu, öðrum af Sim-
rad gerð og hinum af Atlas
gerð, Kelvin Huges radar, Ark-
as sjálfstýringu, Koden miðun-
(Framhald á blaðsíðu 2).
Átlð síldðrbátar frá Dðlvík
Sæmundur Þórðarson skipstjóri og Valtýr Þorsteinsson útgerðar-
maður, eigendur M/s Þórðar Jónassonar. (Ljósmyndiy: E. D.)
Dalvík, 5. júní. Héðan verða
geræðir út 8 bátar á síldveiðar
í sumar og eru 6 þeirra farnir
út. Baldur EA 12 fékk um 800
mál sl. nótt, djúpt norðaustur af
Rauðunúpum.
Þrjár söltunarstöðvar verða
starfræktar hér í sumar og er
unnið að undirbúningi við þær.
Nokkuð magn hefur borizt á
land af ufsa og er hann unninn
á frystihúsinu. Hafa bátar af
Grenivík og Hauganesi lagt hér
upp og kom t. d. Níels, Hauga-
nesi, með góða veiði í gær og er
væntanlegur aftur í dag. Héðan
er aðeins einn bátur gerður út
á línu og er veiði lítil. Atvinna
er nóg, og er m. a. unnið að
húsabyggingum.
S. H.
Karlakór Akureyrar
•/
til Vestfjarða
NÆSTKOMANDI föstudag legg
ur Karlakór Akureyrar upp í
söng- og skemmtiferð um Vest-
firði. Gert er ráð fyrir viðkomu
og söng á mörgum stöðum á um
viku ferðalagi. □
Samkomulagi náá
í vinnudeilunum
milli ríkisstjórnariimar, Alþýðnsam-
bandsins og atvinnurekenda
HELZTU ATRIÐIN ERU ÞESSI:
Komið verði á verðtryggingu kaupgjalds og kaupgjaldsvísi-
tala reiknuð út ársfjórðungslega.
Orlof lengist í 21 dag og samningsbundnir frídagar, aðrir
en sunnudagar, séu greiddir.
Eftirvinna, 2 klst. eftir að dagvinn lýkur og eftirvinnu-
álag lækki í 50%.
Gerðar verði ráðstafanir í húsnæðismálum, m. a. á þann
veg, að lán út á íbúð verði 280 þús. kr. meö 4% vöxtum.
Ltínin séu til 25 ára, vísitölubundin.
Samkomulagið er í helztu
dráttum þetta:
Ríkisstjórnin mun beita sér
fyrir að verðtryggingu kaup-
gjalds verði komið á með laga-
setningu og verði hún miðuð
við vísitölu framfærslukostnað-
ar í Reykjavík. Þó nái verð-
tryggingin ekki til þeirrar vísi-
töluhækkunar, sem stafa af
greiðslu verðlagsuppbóta. —
Reikna á út sérstaka kaup-
greiðsluvísitölu fjórum sinnum
á ári, 1. febrúar, 1. maí, 1. ágúst
og 1. nóv. Kaup breytist sam-
kvæmt hækkun kaupgreiðslu-
vísitölunnar frá því, sem hún
var 1. maí 1964 og fari þessar
breytingar síðan fram ársfjórð-
ungslega. Skal kaup hækka eða
lækka, ef vísitalan breytist um
eitt stig eða meira.
Verkafólk, sem unnið hefur
hjá sama vinnuveitanda fulla
dagvinnu í sex mánuði samfellt,
fær greitt óskert vikukaup,
þannig að samningsbundnir frí-
dagar, aðrir en sunnudagar,
verða greiddir. Það jafngildir
samfelldri vinnu, ef unnið hefur
verið í árstíðabundinni vinnu
samtals í sex mánuði hjá sama
vinnuveitanda á undanförnum
tveimur árum. Samkomulag náð
ist um eftirvinnutíma og álag á
eftirvinnukaup, þannig, að eft-
irvinna telst fyrstu tvær klst.
eftir að dagvinnu lýkur, þannig
að dagvinna styttist um 15 mín-
útur. Greiddur kaffitími er lát-
inn standa óbreyttur. Eftirvinnu
álag lækkar í 50%. Nætur- og
helgidagakaup stendur óbreytt
í krónutölu. Jafnframt er dag-
(Framh. á bls. 7).