Dagur - 06.06.1964, Qupperneq 7
7
GÍFURLEG FÓLKSFJÖLGUN
í STÓRUM hlutum heimsins á
hin öra fólksfjölgun sér enga
hliðstæðu í sögunni — í mörg-
um vanþróuðum löndum nem-
ur hin árlega fjölgun nú rúm-
lega 3 af hundraði, en það merk
ir að íbúafjöldi þessara landa
tvöfaldast á u. þ. b. 23 árum.
Þetta er ástæðan til þess að Sam
einuðu þjóðirnar hafa boðað til
annarrar ráðstefnu sinnar um
fólksfjölgunarvandamálið, og
verður hún haldin í Belgrad frá
30. ágúst til 10. september 1965.
Hin feiknlega öra fólksfjölg-
un er talin eitt af mest aðkall-
andi vandamálum samtímans,
segir í boðsbréfi Sameinuðu
þjóðanna. Vandamálin sem
fólksfjölgunin skapar, og þá
einkanlega í vanþróuðum lönd-
um, verða ennþá meir aðkall-
andi með tilliti til þeirrar við-
leitni að örva efnahagsþróunina
og láta vonir um betri lífskjör
rætast.
Geigvænlegt vandamál.
Fyrri ráðstefnan um fólks-
fjölgunarvandann var haldin í
Róm árið 1954. Hún stuðlaði
mjög að alþjóðlegum skilningi
á þessu geigvænlega vandamáli
og auknum vísindalegum rann-
sóknum á þessum vettvangi.
Síðan hefur vandamálið orðið
æ alvarlegra með hverju nýju
ári. Eftirspurn eftir upplýsing-
um um þessi efni hefur farið
pívaxandi, og umræðurnar í hin
um ýmsu stofnunum Samein-
uðu þjóðana hafa leitt í Ijós auk
inn áhuga á þessu vandamáli.
Meðal þeirra spurninga, sem
ráðstefnan mun taka til með-
- Samb. norðlenzkra
kvenna 50 ára
(Framhald af blaðsíðu 8).
uppeldis- og skólamálum.
Við höfum séð rísa 4 kvenna-
skóla á sambandssvæðinu þessi
50 ár og fjölda líknarstofnana.
Við megum vel við una.
Formaður SNK er nú for-
stöðukona Hulda A. Stefánsdótt
ir, Blönduósi. Deildir SNK eru
8: Sýslusambönd og Samband
kvenna á Akureyri.
Um þetta leyti kemur út
skýrsla um starfsemi SNK
þessi fimmtíu ár. Stutt yfirlit
um það, sem unnið hefur verið.
Stödd á Akureyri 4. júní.
Halldóra Bjarnadóttir.
ferðar, . eru framtíðarhorfur
fólksfjölgunar, hlutfallið milli
fólksfjölgunar í tilteknum lönd-
um og hinnar almennu efna-
hagsþróunar, áhrif fólksfjölgun
ar á ýmsa þætti þjóðlífsins, svo
sem menntun, atvinnumögu-
leika, útvegun matvæla og á-
standið í húsnæðismálum. Ráð-
stefnan mun einnig fjalla um
hlutfallið milli frjósemdar og
manndauða, um flutning fólks
- Samkomulagi náð
(Framhald af blaðsíðu 1).
vinnukaup hækkað þannig, að
tekjur verða óbreyttar þrátt fyr
ir styttingu vinnutímans og
lækkun eftirvinnuálags.
Ríkisstjórnin mun nú þegar
beita sér fyrir lagasetningu um
lengingu orlofs verkafólks úr 18
dögum í 21 dag, sem svarar
hækkun orlofsfjár úr 6% í 7%.
Þá mun ríkisstjórnin beita sér
fyrir setningu laga um vinnu-
vernd og undirbúa frekari stytt
ingu vinnutímans.
Ríkisstjórnin mun beita sér
fyrir ráðstöfunum í húsnæðis-
málum til að létta íbúðakaup
efnalítilla fjölskyldna og tryggja
nægar íbúðabyggingar. í því
skyni verður aflað á næstu mán-
uðum 250 millj. króna til að af-
greiða óafgreiddar umsóknir til
Húsnæðismálastjórnar. Þá verð-
ur frá og með árinu 1965 komið
á riýju kerfi íbúðalána, þannig
að ekki verði lánin færri en 750
á ári og lánsfjárhæð á hverja
íbúð ekki lægri en 280 þúsund
krónur. Þar að auki verði varið
fé til viðbótarlána fyrir efnalitla
meðlimi verkalýðsfélaganna, og
nemur það fé samtals 15—20
milljónum árlega.
Þá er gert ráð fyrir, að tekin
verði upp vísitölubinding á öll-
um íbúðalánum, lánin verði af-
borgunarlaus í eitt ár og greið-
ist síðan á 25 árum með \%
vöxtum. Þá er gert ráð fyrir 1%
launaskatti, sem renni í Bygg-
ingasjóð ríkisins sem stofnfram-
lag og ríkið veiti sjóðnum að
auki 40 milljónir á ári.
Samkomulag þetta var háð
því skilyrði, að samningar náist
milli verkalýðsfélaga og vinnu-
veitenda, er gildi til minnst eins
árs og feli ekki í sér neina
hækkun grunnkaups. □
I
minu 29. maí siðastl. — Guð blessi ykkur öll.
SIGURBJÖRG SIGFÚSDÓTTIR,
Eiðsvallagötu 26, Akureyri,
andaðist á Fjórðungssjúkrahiisinu á Akureyri mið-
vikudagtnn 3. júní. — Jarðarförin fer fxam fiá Akui-
eyrarkirkju þriðjudaginn 9. þ. m. kl. 2 e. h.
Aðstandendur.
frá sveitum til bæja og borga,
og um árangurinn af þeim ráð-
stöfunum sem gerðar eru til að
hafa áhrif á frjósemina.
Til þátttöku í ráðstefnunni
hefur verið boðið sérfræðingum
í fólksfjölgunarvandamálum og
öðrum skyldum efnum frá 122
löndum.
% , |
w Ég þakka innilega öllum, sem glöddu mig með %
s heimsóknum, gjöfum og skeytum d dttræðisafmœli f
t ftllllU fULU. LLLf LSLL.^L>L V I ,. V LL I Lf L L.
| f
| SIGl'RYGGUR HALLGRIMSSON, Stórureykjum. f
£ ' «
•©-^#'^©'«S'^S'í'íH'©'*'íH'©'5'-:H'©'HH-©HH-©'i'íH-©HH-©'í'íH-íjW'íH-©'S'í*
HERBERGI ÓSKAST
sem næst miðbænum. — Há
leiga. — Upplýsingar í síma
1800.
PEDEGREE
BARNAVAGN
til sölu.
Verð kr. 2.200.00.
Uppl. í síma 2651.
Agæt, súgþurikuð
TAÐA til sölu.
Uppl. í Skjaldarvík.
Stefán Jónsson.
TIL SÖLU:
Hjónarúm ásamt nátt-
borðum og snyrti-
kommóðu.
Tækifærisverð.
Uppl. í síma 2315.
Sem ný
Monza SKELLINAÐRA
til sölu.
Uppl. í síma 1302.
ÚTSÆÐI TIL SÖLU
(Gullauga)
Tryggvi Jóhannesson,
Y tia-Laugalandi.
Vil taka að mér
RÁÐSKONUSTÖÐU
í sveit.
Uppl. á Vinnumiðlunar-
skiifstofunni, sími 1169
og 1214.
Rússnesku píanóin
væntanleg næstu daga.
Þeir, sem eiga píanó í
pöntun hjá- okkur hafi
samband við okkur sem
fyrst.
Bóka- og blaðasalan
Brekkugötu 5.
O
BIFREIÐ TIL SÖLU
Til sölu er Reno-bifieið,
árgerð 1946, nýupptek-
inn nrótor og nýskoðaður.
Verð 14.000.00 krónur,
útborgun.
Ægir Sæmundsson,
Hjalteyri.
AKUREYRARKIRKJA. Mess-
að í Akureyrarkirkju á sunnu
daginn kemur kl. 10,30 árdeg-
is, sjómannamessa. — P. S.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURS-
PRESTAKALL. Guðsþjónusta í
Skjaldarvík sunnudaginn 7.
júní kl. 4. Ágúst Sigurðsson
predikar. — Sóknarprestur.
HJALPRÆÐISHERINN. — Á
sunnudag liggur leiðin til
Hersins til að kveðja Lautn.
Berthu Serigstad, sem er að
fara frá íslandi. Samkoman
byrjar eins og venjulega kl.
20,30. Söngur. Vitnisburðir.
Allir hjartanlega velkomnir!
MINNINGARSPJÖLD Fjórð-
ungssjúkrahússins fást í Bóka
verzlun Jóhanns Valdimars-
sonar, Bókaverzlun Gunn-
laugs Tryggva og á skrifstofu
sjúkrahússins.
FERÐALÖG. — Frá Ferðafélagi
Akureyrar og Ferðafélagi
Svarfdæla: Ferð á Snæfells-
nes 13.—17. júní og Grímseyj-
arferð 14. júní.
Upplýsingar og farmiðasala
á skrifstofu Ferðafélags Akur
eyrar, Skipagötu 12.
Skrifstofa félagsins er opin
á þriðjudögum og fimmtudög
um kl. 8—10 e. h. Sími 2720.
HEILSUVERN D ARSTÖÐ AK-
UREYRAR: Eftirlit með þung-
uðum konum fimmtudaga kl.
4—5 e. h. — Ungbamaeftirlit
miðvikudaga og annan hvern
mánudag kl. 1—2 e. h. Þarf
að pantast í síma 1977 og
1773. — Hvorttveggja þetta
fer fram í Hafnarstræti 81,
neðsta hæð. — Berklavamir:
Þriðjudaga og föstudaga kl.
2—3,30 e. h. og bólusetningar
fyrsta mánudag hvers mánað-
ar kl. 1—2 e. h. — Hvort-
tveggja í húsnæði Berklavarn
arstöðvarinnar við Spítala-
stíg.
DÝRALÆKNAVAKT næstu
helgi, kvöld og næturvakt
næstu viku hefur Guðmund
Knutsen, sími 1724.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ er
opið almenningi á sunnudög-
um kl. 2—4 e. h. Sími safn-
varðar er 2983.
- ÁTTRÆÐUR
(Fi-amhald af blaðsíðu 4).
eru þau hjónin svo ern, að furðu
gegnir.
Þau hjónin á Stóru-Reykjum
eignuðust fjögur börn. Tvo syni,
er nú búa á nýbýlum úr landi
jarðarinnar, Oskar að Reykj-
arhóli og Garðar að Reykjavöll-
um. Fanney dóttir þeirra er
kennari við húsmæðraskólann
að Laugum, en önnur dóttir
þeirra, Laufey, er látin. Hún
var uppkomin og gift og dó frá
ungum börnum.
Sigtryggur er kunnur dugn-
aðar- og eljumaður, sem ræktað
hefur og bætt sína jörð. Hann
var hvatamaður að ýmsum fram
faramálum í sveit sinni og verk-
stjóri við vegalagnir þar í mörg
ár.
Sigtryggur og Ásta eiga nú
margt mannvænlegra niðja. —
Hópurinn er orðinn stór með
öðrum og þriðja lið og jafnvel
fjórði ættliðurinn er farinn að
lita ljós þessa heims. Þ. J.
HJONAEFNI. Nýlega opinber-
uðu trúlofun sína ungfrú Guð
rún Jónsdóttir Garðsvík Sval
barðsströnd og Halldór Þor-
leifur Ólafssori bifreiðastjóri
Miklabæ Óslandshlíð Skaga-
firði.
HANDAVINNUSÝNING nem-
enda Húsmæðraskólans á
Laugalandi verður sunnudag-
inn 7. júní kl. 1—10 e. h.
JKttttsbófcasafmð er opið
alla virka daga, nema laugar-
daga, kl. 4—7 e. h.
NONNAHÚS er opið alla daga
frá kl. 2—4 síðd. Opnað n. k
sunnudag.
TAPAÐ OG FUNDBE). Á ferm-
ingarbarnamótinu á Dalvík
varð eftir blár stakkur. Þar
tapaðist einnig Parker penni,
blár með gullhettu. Vinsam-
legast hafið samband við séra
Stefán Snævarr, Völlum.
ÖRN SMÁRI ARNALDSSON
læknir, gegnir störfum mín-
um til 15. júlí n. k. Heimilis-
fang hans er~Þingvallastræti
22. Sími 1542. — Jóhann Þor-
kelsson.
BYGGINGARSJÓÐI sumarbúð
anna við Hólavatns (sumar-
búða K.F.U.M. og K.) bárust
nýlega kr. 2000.00 — tvö þús-
und krónur — að gjöf frá ó-
nefndum, sem með þessari
gjöf minnist látinnar, trúaðr-
ar móður sinnar á afmælis-
degi hennar. — í bréfi, sem
gjöfinni fylgdi, stóð m. a.: —
Hún dó í trú á fullkomnað
frelsisverk Guðs í Jesú Kristi.
Megi þessi gjöf verða æsku fs
lands til blessunar og Guðs
ríki til eflingar. — Næsta dag
barst 'önnur gjöf frá ónefnd-
um að upphæð 100 krónur. —
Með þökkum móttekið. Björg
vin Jörgensson.
í telpnadragtir
EFNI
í dömudragtir
NYLONSLOPPAR
allir litir og stærðir
NYLONSLOPPAEFNI
6 litir
ELDHÚSSLOPPAR
nýjar gerðir
Nylonundirkjólar
frá kr. 135.00
MARKAÐURINN
Sími 1261