Dagur - 10.06.1964, Qupperneq 1
Dagui
kemur út tvisvar í viku
og kostar 20 krónur á
mánuði.
Dagur
XLVII. árg. — Akureyri,, miðvikudaglnn 10. júní 1984 — 47. tbl.
Dagur
Símar:
1167 (afgreiðsla)
1166 (ritstjóri)
SLATTUR HAFINN
í EYJAFIRÐI
HEYSKAPUR er byrjaður á
n'okkrum bæjum í héraðinu. —
Hafa nokkrir bændur í Hrafna-
gilshreppi, Öngulstaðahreppi og
Skriðuhreppi, slegið hluta af
túnum sínum, sem friðuð voru
ög gott gras komið á. — Hey-
skapur mun þó ekki hefjast al-
mennt í héraðinu, fyrr en undir
mánaðamót. □
Löndunarstöðvun?
HREINN HELGASON, frétta-
ritari Dags á Raufarhöfn, sagði
blaðinu síðdegis í gær, að útlit
væri fyrir löndunarstöðvun á
Raufarhöfn.
Til síldarbræðslunnar þar
höfðu þá borizt yfir 50 þús. mál.
Látlaus löndun er þar, allt frá
því á laugardaginn. Og enn eru
skip að koma með afla sinn.
Þrær síldarverksmiðjunnar
taka 10—15 þús. mál í viðbót og
fyllast skjótt, ef svo heldur sem
horfir. Ennþá er ekki farið að
bræða. Bæði vantar menn til
vinnu í verksmiðjunni, og verk
smiðjan mun ekki enn að öllu
leyti tilbúin.
Aðkomumenn eru nú farnir
að streyma til Raufarhafnar, en
engar stúlkur ennþá, og verður
ekki að neinu ráði fyrr en sölt-
unin hefst. Q
Á aðalfundi Stéttarsambands bænda
var enn upplýst, að meðalbóndann vantar
53 þúsund krónur á sínar árstekjur
AÐALFUNDUR Stéttarsam-
bands bænda, hófst í Bænda-
höliinni 8. júní. Þar sagði Gunn-
ar Guðbjartsson formaður Stétt-
arsambandsins m. a.:
„í skýrslu, sem Hagstofan
birti um tekjur atvinnustétt-
anna árið 1962, og sem sýndi, að
bændur eru tekjulægsta stétt
þjóðarinnar, kom fram að með-
altekjur allra stétta á íslandi
voru 131.000,00 kr., meðaltekjur
allra viðmiðunarstéttanna kr.
126.000,00, en tekjur bænda
—;-----------:--------------^----
99 þús. kr. Þá var eftir að draga
frá tekjum þeirra alla vexti af
skuldum vegna stofnlána, trygg-
ingagjöld vegna búreksturs og
viðhald og fyrningu útihúsa.
Þessir liðir eru samkv. grund-
vellinum 1962 kr. 26.000,00. Eft-
ir því hafa meðaltekjur bænda
orðið 73 þúsund, eða 52 þúsund
lægri en viðmiðunarstéttanna,
en áttu samkv. grundvellinum
að vera 88.000,00. Tekjur bænda
eru því allt að 20% neðan við
það, sem þeim er ætlað að vera
þetta ár, þó að konum og börn-
um bænda séu ekki ætluð nein
laun fyrir sína vinnu, og að
bændur fái ekkert fyrir bú-
stjórn né áhættu við búrekstur.
Þetta kemur til af því, að rekst-
urskostnaðurinn er allt of lágt
reiknaður. Bændur verða að
nota % kaups síns til að greiða
rekstrarvörurnar. Bændastéttin
getur ekki unað því, að ákvæði
framleiðsluráðslaganna um
(Framhald á blaðsíðu 7).
VAXANDI OLVUN
Á AKUREYRI
SAMKV. upplýsingum lögregl-
unnar á Akureyri hefur verið
vaxandi ölvun í bænum að und-
anförnu, einkum um helgar. —
Hámarki sínu ná þó drykkju-
lætin eftir dansleikina í vínveit-
ingahúsum bæjarins, þegar fólk-
ið kemur út á göturnar.
Aðfaranótt föstudags kom til
átaka milli tveggja manna fram
an við Kjörbúð KEA, með þeim
afleiðingum 4að annar þeirra
hlaut fótbrot og liggur nú á
sjúkrahúsi.
Um síðustu helgi voru þrír
bifreiðastjórar teknir ölvaðir
við akstur. Lenti lögreglan í
miklum eltingaleik við einn
þeirra. Hófst eltingaleikurinn
hér í bænum, norður Glerár-
hverfi, þar sem ökuhraðinn
(Framhald á blaðsíðu 7).
Teilming af flugvél þeirri, sem Flugfélag íslands liefur í liyggju að kaupa til innanlandsflugsins. —
Reksfursafkomð F. í. jákvæð á liðnu ári
Ný skrúfuþota keypt til innanlandsflugs
AÐALFUNDUR Flugfélags ís-
lands h.f. fyrir árið 1963 var
haldinn 3. júní að Hótel Sögu.
Fundarstjóri var Guðmundur
Vilhjálmsson og fundarritari
Jakob Frímannsson. Eftir að
fundur hafði verið settur, flutti
forstjóri Flugfélagsins, Örn Ó.
Johnson skýrslu um starfsemi
félagsins á liðnu ári.
í skýrslu forstjórans kom
fram að flugið, bæði innan lands
og milli landa, hafi árið 1963
verið rekið með svipuðu sniði
og árið á undan. Nýr þáttur var
tekinn upp, þar sem var flug til
og frá Færeyjum, sem átti að
hefjast í maí-mánuði, en vegna
flugvallarframkvæmda í Fær-
eyjum hófst það ekki fyrr en í
júlí.
Á áætlunarflugleiðum milli
landa voru fluttir 28.937 arð-
bærir farþegar (25.750 árið á
undan) og í leiguflugi 6.150.
Auk þessara farþega voru flutt-
ir 600 farþegar í Færeyjafluginu
þann tíma sem það var starf-
rækt í fyrrasumar. Arðbærir
vöruflutningar milli landa námu
332,5 lestum (286,5) og pcst-
flutningar 90,6 lestum (72).
í innanlandsflugi voru fluttir
62.056 arðbærir farþegar
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Síldðn er á vesturleið
segir Jakob Jakobsson fiskifræðingur
DAGUR átti í gær stutt við-
tal við Jakob Jakobsson,
fiskifræðing á Ægi. Hann
var þá staddur út af Axar-
firði í austan strekkingi, en
á síldarmiðunum, djúpt út af
Melrakkasléttu, var gott veð-
ur. Hann sagði efnislega svo
frá:
Hér hefur ekki orðið vart
síldar og ekki neins staðar á
vestursvæðinu, enn sem kom
ið er. En 90—100 sjómílur
út af Melrakkasléttu eru
síldarbátarnir að veiða og
veiddu sæmilega í nótt. Síld-
arsvæðið er ekki verulega
stórt, en síldin er í góðum
torfum og fá skip oft full-
fermi í einu kasti. Síldin er
mjög stór, falleg og í henni
er mikil áta. Síldin er á vest-
urleið og er það ánægjulegt.
Þótt hún haldi sig djúpt
mætti e. t. v. vona, að hún
gengi á Kolbeinseyjarsvæð-
ið. Á vestursvæðinu er sjór
fremur hlýr og vantar þar
ekkert nema síldina, sagði
fiskifræðingurinn að lokum.