Dagur - 11.07.1964, Blaðsíða 2
2
Ungmennaf. Efling sigraði
Urslit á héraðsmóti HSÞ að Laugum 4. og 5. júlí
Jón Þ. Ólafsson keppii- í hástökki. Hann hefur aS undanförnu dvalizt í Bandaríkjunum við þjálfun
og er sagður í góðri æfingu. Jón, sem er íslandsmethafi í hástökki, keppir hér á Akureyri um helgina.
STÓRMÓIIFRJÁLSUM ÍÞRÓTTUM UM HELGINA
EINS og sagt var frá í síðasta
c
blaði, verður haldið mikið frjáls
íþróttamót á íþróttavellinum á
Akureyri nú um helgina.
Auk íþróttamanna frá Akur-
eyri og nágrannabyggðum taka
þátt í mótinu ágætir íþrótta-
menn frá sænska íþróttafélaginu
YMER. Einnig margir beztu
frjálsíþróttamenn Reykjavíkur
þ. á m. Jón Þ. Ólafsson, Val-
björn Þorláksson, Kristleifur
Guðbjörnsson, Kjartan Guðjóns
son o. fl. Ættu sem flestir að
fjölmenna á völlinn og sjá spenn
andi keppni.
Á laugardag hefst keppnin kl.
2 e. h. og verður keppt í eftir-
töldum greinum: 100, 400, 1500
m hlaupum, langstökki, stangar-
stökki, kúluvarpi, spjótkasti og
einnig verða tvær kvennagrein-
ar, 100 m hlaup og kringlukast.
Á sunnudag hefst keppnin á
sama tíma. — Keppnisgreinar
verða þá: 200, 800 og 3000 m
hlaup, hástökk, þrístökk,
kringlukast, einnig 200 m hlaup
og langstökk kv'enna.
Frá ársþingi Ungmennasambands Skagfirðinga
Frostastöðum, 26. júní. Ung-
mennasamband Skagafjarðar
hélt 45. ársþing sitt að Hofsósi
3. maí s.l. Formaður sambands
ins, Guðjón Ingimundarson,
setti þingið en þingforsetar voru
kjörnir þeir Haukur Björnsson
og Stefán Pedersen en ritarar
Gísli Felixson og Árni M. Jóns-
son.
Forseti flutti þinginu ýtarlega
skýrslu um starfsemi sambands
ins á liðnu ári og má segja, að
íþróttamál hafi verið aðal við-
fangsefni þess. Sambandið stóð
fyrir 5 íþróttamótum innan hér-
aðsins og tók auk þess þátt í
sex mótum annars staðar. Þá
gekkst sambandið fyrir skák-
keppni innan félaganna, átti,
eins og jafnan áður, góðan hlut
að þjóðhátíðarhaldi 17. júní o. fl,
Á þinginu voru m. a. sam-
þykktar eftirfarandi tillögur:
„Ársþing UMSS, haldið að
Hofsósi, 3. maí 1964, telur ríka
ástæðu til að vekja athygli á
því, lrversu mjög skortir á að
fyrir hendi séu möguleikar til
þess að fullnægja lögskipaðri
unglingafræðslu í héraðinu og
má þó búast við, að þeir örðug-
leikar fari vaxandi í framtíð-
inni, verði ekkert aðhafst til úr
bóta. Beinir fundurinn því mjög
eindregið til Sýslunefndar
Skagafjarðarsýslu, að hún beiti
sér fyrir því, að hér verði bót
á ráðin hið allra bráðasta, þann-
ig að skagfirzkir unglingar eigi
þess kost að njóta heima í hér-
aði þeirrar fræðslu, er yfirvöld
kennslumála í landinu fyrir-
skipa að þeim sé veitt.“ — í grg.
með till. var bent á, að í Skaga-
firði, utan Sauðárkróks, væru
í hverjum aldursflokki barna og
unglinga ,fæddum á tímabilinu
frá 1950—1956 satmals 53—63
börn, eða alls í þessum aldurs-
flokkum 397 börn og unglingar.
Þessir unglingar eiga raunveru-
lega í engan skóla að venda.
Þá samþ. þingið „að fela
stjórn sambandsins að kanna
möguleika UMSS í þátttöku í
byggingu félagsheimilis í Varma
hlíð ,m. a. með tilliti til þess
hver réttur sambandsins yrði í
stjórn heimilisins, svo og afnot-
um með lítilsháttar framlagi,
vegna fjárhagslegrar vangetu
sambandsins.11
Þingið samþ. að lýsa „yfir á-
nægju sinni með blaðið Tinda-
stól og beinir þeirri áskorun til
formanna ungmennaféiaganna
innan sambandsins, að þeir beiti
sér fyrir söfnun áskrifenda að
blaðinu."
Samþ. var og áskorun „til
allra ungmennaféíaga innan
sambandsins, að þau safni sam-
an gömlum fundargerðabókum,
félagsblöðum og öðrum gögnum
er félögin varða og komi þeim
á héraðsskjalasafnið ti!
geymslu.“
Sveinn Friðvinsson lagði fram
svohljóðandi till., sem samþ.
var samhlj.: „Ársþing UMSS. .
. . lýsir sig andvígt hinni er-
lendu sjónvarpsstöð, sem rekin
er hér á landi. Þingið er hins-
vegar fylgjandi því, að hér
komi upp íslenzk sjónvarpsstöð
fyrir allt landið og væntir þess,
að vel verði unnið að undirbún-
ingi og framgangi þess.“
Þá voru og ræddar samþ. og
margar till. um íþróttamál.
Guðjón Ingimundarson hefur
nú gegnt formennsku í stjórn
UMSS í 20 ár. Af því tilefni á-
varpaði Stefán Pedersen hann,
færði honurn maklegar þakkir
fyrir eindæma árvekni og ötul-
leik í störfum fyrir sambandið
og afhenti honum að gjöf áletr-
að pennasett frá umf. Tindastóli.
Stefán Guðmundsson þakkaði
Guðjóni og ánægjulegt samstarf
á liðnum árum og óskaði honum
heilla með framtíðina.
í sambandinu eru nú 13 félög
með 640 meðlimum. Stjórn sam-
bandsins skipa: Guðjón Ingi-
mundarson, Árni M. Jónsson,
Stefán Guðmundsson, Sigurður
Jónsson og Gísli Felixson. Vara
menn: Haukur Björnsson, Helgi
Rafn Traustason og Stefán Ped-
ersen. —mhg—
ÍBA-KS á morgun
Á MORGUN, sunnud., verður
háður á Siglufirði síðari knatt-
spyrnuleikur ÍBA og KS í H.
deild. Steingr. Björnsson leikur
ekki með vegna meiðsla. □
100Tn hlaup karla:
Sigurður Friðriksson E. 11.4 sek
400 m hlaup:
Bergsveinn Jónsson B. 57.5 sek
1500 m hlaup:
Ármann Olgeirss., B. 4.44.9 mín
3000 m hlaup:
Davíð Herbertss., B. 11.06.9 mín
4x100 m boðhlaup:
Sveit Umf. Eflingar 48.9 sek
Langstökk:
Sigurður Friðrikss. E. 6.75 m
(Héraðsmet).
Þrístökk:
Sigurður Friðrikss. E. 14.01 m
Hástökk:
Ófeigur Baldursson Ga. 1.65 m
Stangarstökk:
Sig. Friðriksson E. 3.28 m
Kúluvarp:
Guðm. Hallgrímsson G. 14.84 m
(Héraðsmet).
Kringlukast:
Guðm. Hallgrímsson G. 39.47 m
Spjótkast:
Guðm. Hallgrímsson G. 42.30 m
100 m hlaup kvenna:
Lilja Sigurðard. E. 13.2 sek
(Héraðsmet).
4x100 m boðhlaup kvenna:
Sveit Umf. Eflingar 57.8 sek
(Héraðsmet).
Langstökk kvenna:
Sigrún Sæmundsd. Ma. 4.53 m
Hástökk:
Sigrún Sæmundsd. Ma. 1.36 m
Kúluvarp:
Helga Hallgrímsd. G. 9.08 m
Kringlukast:
Kristjana Jónsd. V. 27.64 m
Skammstafanir félaga:
Umf. Bjarmi, Fnjóskadal B
— Efling, Reykjadal E
— Geisli, Aðaldal G
— Gaman og alvara Kaldak. GA
— Mývetningur, Mývatnssv. M
íf Magni, Höfðahverfi Ma
íf. Völsungur, Húsavík V
Stig félaga:
1. Umf. Efling 571/s
2. Umf. Bjarmi 36
3. Umf. Geisli 29 M*
4. Umf. Gaman og alvara 19
5. íf. Magni 17
6. Umf. Mývetningur 15
7. íf. Völsungur 13
8. Umf. Eining, Bárðardal 4
ARROÐINN VANN
Frjálsíþróttamót að Laugalandi í Eyjafirði
KVENNAMÓT UMSE í frjáls-
um íþróttum fór fram á íþrótta-
vellinum á Laugalandi í Eyja-
firði laugardaginn 27. júní. Veð-
ur var fremur slæmt til keppni,
norðan strekkingur og kuldi. —
100 m hlaup.
1. Katrín Ragnarsdóttir
umf. Árroðinn 15.0 sek
2. Halla Sigui’ðardóttir
umf. Árroðinn 15.4 sek
4x100 111 boðhlaup. 1. Sveit umf. Reynir 64.5 sek
2. Sv. umf. Möðruv.s. 8.15 sek
Kúluvarp. 1. Halla Sigurðardóttir
umf. Árroðinn 8.21 m
2. Emelía Baldursdóttir
umf. Árroðinn 8.15 m
Kringlukast. 1. Bergljót Jónsdóttir
umf. Ársól 23.03 m
2. Halla Sigurðardóttir
umf. Árroðinn 22.68 m
Langstökk.
1. Jónína Hjaltadóttir
umf. Þorst. Sv. 4.05 m
2. Lilja Friðriksdóttir umf. Þorst. Sv. 4.04 m
Hástökk.
1. Lilja Friðriksdóttir umf. Þorst. Sv. 1.16 m
2. Þorgerður Guðmundsd.
umf. Möðruv.s. 1.16 m
Stig félaga:
1. Umf. Árroðinn 27 stig
2. Umf. Þorst. Sv. 14 stig
3. Umf. Möðruv.s. 9 stig
4. Umf. Reynir 8 stig
5. Umf. Ársól 7 stig
Stighæstu einstaklingar:
1. Halla Siguí’ðard. 13% st
2. Lilja Friðriksd. 8 st
3. Þorgerður Guðm.d. 6% st
ÆTLAÐI AÐ AKA
Á KONUR
AÐFARARNÓTT s.l. föstudags
gengu tvær konur eftir gang-
stéttinni, norðan Strandgötu.
í þeim svifum bar þar að bif-
reið, sem tvívegis ók upp á gang
stéttina að konunum og í
seinna skiptið króaðist önnur
konan af upp við húsvegg. Ekki
hlutust meiðsli af þessu ógæti-
lega tiltæki ökumanns og má
það kallast sérstakt lán.
Sjónarvottar (ekki konurnar)
kærðu atburðinn til lögreglunn-
ar, en stuttu síðar gaf ökumað-
urinn sig fram. Var hann í mjög
æstu skapi, en ekki ölvaður.
Málið er í rannsókn. □
FYRSTI SKUT-
TOGARINN
FYRIR fáum dögum kom fyrstí
skuttogari íslendinga hingað til
lands. Eigandi er hlutafélagið
Siglfirðingur á Siglufirði. Skip
þetta, sem er 270 tonn, heitir
Siglfirðingur SI 150, kom til
heimahafnar s.l. mánudag og fór
á veiðar á miðvikudaginn. Skip
ið fór út með síldarnót, en síðar
er von á þýzku flottrolli, sem
ætlunin er að reyna í sumar.
Skipstjóri er Páll Gestsson og
stýrimaður Axel Schiöth og
fyrsti vélstjóri Agnar Þ. Har-
aldsson, allir ungir dugnaðar-
menn frá Siglufirði. □