Dagur - 08.08.1964, Blaðsíða 8
8
(Ljósmynd: E. D.)
Gömul mynd aí Snæfelli —
þá var ekki búiö að kasta nótabátunum.
Gamla Snæfell enn meðal afla-
hæstu síldveiðiskipa
Rætt við Trausta Gestsson skipstjóra
EFTIR HÁDEGI á fimmtudaginn ræddi Dagur litla stund við
Trausta Gestsson skipstjóra á Snæfelli frá Akureyri.
Hvar eruð þið staddir núna,
Trausti?
Við erum staddir um 200 sjó-
mílur austur frá Raufarhöfn og
erum á landleið.
Og með fullfermi eða hvað?
Fengum 1700 mála kast, og
meira þó, því að við náðum því
ekki alveg. Þetta er svona hátt
í fullfermi. Það er dálítill strekk
ingur. Við fengum þetta á 220
mílum.
Hvernig er síldin?
Þetta er held ég fjögurra ára
sild, eða stór millisíld, ekki sölt-
unarhæf. Það er hæpið að koma
söltunarhæfri síld til lands, þótt
góð væri, því að það er sólar-
hringssigling til lands.
Eru mörg skip á svipuðum
slóðum og þú veiddir þessa síld?
Nei, flest síldarskipin eru á
120—180 mílum. Þó er Sigurður
TRAUSTI GESTSSON.
Bjarnason enn lengra úti og
fékk þar feikna kast og sprengdi
nótina. Svo er loftur Bjarnason
á svipuðum slóðum og sprengdi
líka. Hafrún frá Bolungarvík
Stórutungu 6. ágúst. Tún
spruttu seint vegna kulda, en
mun verða í meðallagi og sums
staðar betur. Þurrkar liafa
verið stopulir og enn verið
skammt í kuldann. Allgóður
þurrkakafli kom þó seinnihluta
júlí, en skúrasamt var. Sums
staðar er búið að slá tún, en all
mikið er óhirt.
Jarðýta hefur farið um og
brotið land til ræktunar hjá
bændum. Einnig hafa einstakir
bændur unnið sjálfir ræktunar-
lönd.
Nokkuð er um byggingar og
feru það peningshús og hlöður.
Það sem gerist í vegamálum
:— auk öræfaleiða sem áður er
frá sagt — er, að byggður hefur
.verið upp þriggja kílómetra
vegakafli á leiðinni frá Víðikeri
að Svartárkoti og einnig lag-
fært að Stórutungu. Þetta er
sýsluvegur. Annað er ekki um
nýbyggingu vega að ræða. Eitt-
hvað mun verða sett möl í veg,
sem áður er búið að byggja. —
Enn er ástand í vegamálum
þannig, að langir kaflar eru svo
niðurgrafnir, að umferð teppist
við fyrstu snjóa.
Mjólkurflutningar eru fjóra
daga í viku. □
var líka með stórt kast. Enn
lengra úti eru Norðmenn og
hafa mokveitt.
Snæfell var aflahæsta skipið
í flotanum um tíma?
Já, þetta gengur svona til
skiptis. Mörg skip eru með góða
veiði. Einn er aflahæstur í dag
(Framhald á blaðsíðu 7).
Grímsey 6. ágúst. Fyrir nokkr-
um dögum sáum við hylla undir
hafísinn héðan úr eyjunni. Marg
ir jakarnir voru mjög stórir. —
Þetta var fremur kuldaleg sjón,
og sem betur fer líka óvenjuleg
á síðustu tímum. En hafísinn
minnti þarna á sig og minnti
okkur líka á, að landið okkar
er á sama stað og alltaf áður.
Annars er hér mikið sólskin
í sumar. Við höfum stundum
sól hér úti þótt dimmt sé inn
til landsins.
Engin sild hefur enn borizt
hingað og verðum við í því efni
að lifa á fornri frægð og svo
voninni.
Heyskapurinn gekk mjög vel
og voru sumir búnir að hirða
fyrri slátt um 20. júlí. Margir
hafa aðstöðu til votheysgterðar.
Spretta var mikil.
Ufsinn, sem mokveiddist í allt
fyrrasumar, er tregur nú, en
vonandi er ufsaveiðinni ekki
lokið. Tveir aðkomubátar halda
hér til og veiða á handfæri.
Oðru hverju hefur verið reit-
ingsafli. Og bátar frá Ólafsfirði
og víðar að leggja hér upp. í vor
Vonda bragðið að mjólkinni
NOKKRIR neytendur hafa
kvartað yfir annarlegu bragði
flöskumjólkur frá Mjólkursam-
lagi KEA á Akureyri.
Blaðið leitaði upplýsinga um
þetta hjá Jónasi Kristjánssyni
samlagsstjóra og gaf hann eftir-
farandi upplýsingar um málið:
Það er rétt, að stöku neytend-
ur hafa kvartað yfir vondu
bragði flöskumjólkur. Samlagið
lét þegar í stað rannsaka málið,
m, a. voru rannsóknarstofu Há-
skólans send' sýnishorn til um-
sagnar. Niðurstaða rannsókn-
anna leiddi í ljós að cbragð
mjólkurinnar kom samtímis
því, að í notkun var tekinn nýr
og mjög fullkominn kælir í
(Framhald á blaðsíðu 7).
SMÁTT OG STÓRT
LÍFEYRISS J ÓÐIRNIR
Hugmyndir Framsóknar-
manna um lífeyrissjóði fyrir
alla landsmenn hafa vakið
mikla athygli, allt frá því að
nokkrir þingmenn flokksins
fluttu það mál fyrst á Alþingi
1957, að athugun færi. fram á
því, livort ekki væri tiltækilegt
að bændur, sjómenn, verka-
menn o. fl., nytu svipaðrar að-
stöðu og aðrir, sem þegar höfðu
komið sér upp lífeyrissjóðum,
þ. e. komið á fót sérstökum líf-
eyrissjóðum fyrir þá.
Síðast í vetur fluttu Fram-
sóknarþingmenn með Ólaf Jó-
hannesson í broddi fylkingar
mál þetta á Alþingi á ný. Stjórn-
in þorði ekki að sýna málinu al-
gert tómlæti lengur og lét af-
greiða málið til ríkisstjórnar-
innar, sem á nú að láta „kanna
til hlítar“ þetta mál. Vonandi
gerir hún það en stingur því
ekki undir stól.
Ef það verður ákveðið með
lögum, að lífeyrissjóðafyrir-
komulagið taki til allra stétta
eða allra landsmanna, er gert
ráð fyrir að starfsemi almanna-
trygginga myndi halda áfram
en lífeyrissjóðir eða almennur
lífeyrissjóður veita viðbótar-
tryggingu á sama hátt og nú. En
sáu hafísinn
var mikil grásleppuveiði.
Unnið er í hjáverkum við
byggingu félagsheimilis og fisk-
verkunarstöðva.
Lítið er um hópferðir hingað
í sumar, en þó koma hér all-
margir eins og áður, margra er-
inda og til að sjá þessa norð-
lægu byggð.
Um verzlunarmannahelgina
var dansað hér af fjöri, eins og
víða um þá helgi, og allt fór vel
fram, eins og ætíð hér.
Enn er gott veður en fremur
svalt. Enginn veit hvað við tek-
ur eða framundan er. Síbreyti-
leiki náttúrunnar, sem við er-
um svo mjög háð, er mikill, og
morgundagurinn ber alltaf eitt-
hvað nýtt í skauti sínu. S. S.
með hugmyndinni, sem hér hef-
ur verið rædd (sjá einnig leið-
ara blaðsins í dag um þessi mál)
og hinni nýgerðu ályktun Al-
þingis, sem er jákvæð, er að því
stefnt, að allir landsmenn hafi
þá aðstöðu, sem þeir einir hafa
nú, sem njóta tryggingar í sér-
sjóðunum.
Sérstakt viðfangsefni er það
að sjálfsögðu hvemig haga skuli
iðgjaldagreiðslum þeirra, sem
ekki taka Jaun hjá öðrum, t. d.
bænda og útvegsmanna og hvort
hér verði að einhverju leyti um
frjálsa tryggingu að ræða eða
skyldutryggingu eingöngu eins
og nú tíðkast bæði hjá almanna
trygginguni og lífeyrissjóðnum.
Þórólfur leikur með
landsliðinu á mánudas
o
LANDSLIÐ ÍSLANDS hefir nú
verið valið til keppni í landsleik
í knattspyrnu við Bermuda n. k.
mánudagskvöld. — Er það að
mestu óbreytt því liði sem lék
við Skota á dögunum. Þórólfur
Beck leikur með liðinu og ætti
hann að styrkja það nokkuð. —
Einn nýliði er með að þessu
sinni, Karl Hermannsson frá
Keflavík. — Annars er liðið
skipað þessum mönnum:
Heimir Guðjónsson, Hreiðar
Ársælsson, Jón Stefánsson,
Sveinn Teitsson, Högni Gunn-
laugsson, Jón Leósson, Eyleifur
Hafsteinsson, Þórólfur Beck,
Ríkharður Jónsson, Ellert Schr-
am og Kai'l Hermannsson. Q
BRENNANDI BÚSLÓÐ
„STURTAГ AF BÍL
Lauslegar fregnir herma, að
maður einn, sem var að flytja
búferlum til Norðurlands, hafi
orðið fyrir óhöppum er hann
var á norðurleið. Sú óheppni or-
sakaðist af eldi, sem upp kom í
farangrinum á palh bílsins. Það
ráð var tekið í snatri, að skera
á bönd þau, er búslóðin var
bundin með, og sturta henni af
pallinum. Fregn þessi er óstað-
fest og liggja ekki fyrir upplýs-
ingar um brunatjón og aðrar
skemmdir. Q
Frá Grímsey.
(Ljósmynd: E. D.)