Dagur - 16.09.1964, Qupperneq 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1166 og 1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAYÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar hJ.
Beygur
stjórnar-
flokkanna
BEYGUR núverandi stjómarflokka
af vaxandi gengi Framsóknarflokks-
ins er orðinn dýrmæt almennings-
eign. Á þessa leið komst Eysteinn
Jónasson að orði nýlega, og er eftir-
tektarvert. — Beygur íhaldsaflanna
kemur meðal annars fram í linnu-
lausum skömmum stjórnarblaðanna
um Framsóknarflokkinn, svo sem
landsfólkið hlustar daglega á með
morgunkaffinu í þætti útvarpsins
„úr fory stugreinum dagblaðanna“ og
les daglega um í Morgunblaðinu og
Vísi. Þessi blöð telja Framsóknar-
flokkinn ýmist óalandi og óferjandi,
eða þau telja flokkinn í raun og veru
alls engan stjórnmálaflokk, heldur
ofurlítið samsafn ómerkilegra
manna, sem ekki sé mark á takandi.
Á þessu þrástagast blöðin dag eftir
dag og ef hér væri aðeins um að ræða
mánudagserfiðleika leiðarahöfund-
anna svona endrum og eins, væri ekk
ert um að tala. En hér virðist Fram-
sóknarflokkurinn vera liinn erfiði
mánudagur fyrir stjórnarblöðin
flesta virka daga. Beygur þeirra við
þennan stjómarandstæðing og al-
menningsálitið í landinu er orðinn
varanlegur og djúpstæður, og þegar
horft er til baka er beygurinn síður
en svo ástæðulaus. Allir minnast þess
hvernig stjórnarflokkarnir ætluðu
að lögbinda allt kaupgjald í landinu
fyrir áramótin síðasta vetur en gugn-
uðu á því, m. a. vegna harðsnúinnar
andstöðu Framsóknarflokksins. Þá
má minna á lækkun okurvaxtanna
í vissum lánaflokkum, sem Fram-
sóknarflokkurinn barðist fyrir og
stjómin varð að taka til greina. Og
skemmst er að minnast skattamál-
anna, sem stjórnarflokkarnir hafa
heykst á að verja, eftir hrokafull um-
mæli og yfirlýsingar, sem m. a. voru
svar við áskorun Framsóknarflokks-
ins um tafarlausan undirbúning að
úrbótum, sem almenningur gæti við
unað.
Þessi fáu dæmi sýna vissulega, að
beygur sá, sem þjáir stjórnarflokk-
ana vegna vaxandi gengi Framsókn-
arflokksins ,er almenningi í þessu
landi nokkurs virði. Þegar svo loforð
stjórnarflokkanna um bættu lífskjör
in, afnárn skatta, lækkun skulda er-
lendis og stöðvun dýrtíðarinnar eru
einnig höfð í huga, ætti hrædd og
ráðvana ríkisstjórn að hugsa til hvíld
ar. □
Kjördæmisþing Framsóknarmanni í
KJÖRDÆMISÞING Framsókn-
armanna í Norðurlandskjör-
dæmi eystra var haldið að Laug
um í Reykjadal dagana 29. og
30. ágúst sl. og var þing þetta
hið sjötta í röðinni.
Kjördæmisþingið var ágæt-
lega sótt og voru fulltrúar með
atkvæðisrétti 66 talsins úr öll-
um sýslum, kaupstöðum og
kauptúnum kjördæmisins.
Formaður sambandsstjórnar,
Haraldur M. Sigurðsson kenn-
ari á Akureyri setti þingið. For-
setar voru kjörnir þeir Bern-
harð Stefánsson fyrrv. alþingis-
maður á Akureyri, Hólmsteinn
Helgason útgerðarmaður á
Raufarhöfn og Sigurður Jó-
hannesson verzlunarmaður á
Akureyri, en ritarar Björn Guð-
mundsson í Lóni í Kelduhverfi
og Indriði Ketilsson á Ytra-
Fjalli í Aðaldal.
Sambandsstjórnin lagði fyrir
þingið ýmsar tillögur um lands-
mál og héraðsmál. Þingmenn
Framsóknarflokksins í kjör-
dæminu, þeir Karl Kristjáns-
son, Gísli Guðmundsson og
Ingvar Gíslason fluttu erindi
um störf Alþingis og landsmál.
og héraðsmál.
Nefndir störfuðu að kveldi
hins fyrri fundardags og fram
á nótt.
Síðari fundardaginn, sunnu-
daginn 30. ágúst hófust fundar-
höld árdegis og voru nefnd-
arálitin þá tekin til meðferðar.
Var mikil og góð þátttaka í um-
ræðum þennan dag og stóð þing
ið fram á sunnudagskvöld.
Fyrsti forseti kjördæmisþings
ins, Bernhard Stefánsson, sleit
þinginu með ávarpi en Karl
Kristjánsson alþingismaður
þakkaði forsetum þingsins og
öðrum starfsmönnum, lýsti
ánægju sinni yfir störfum þings
ins og hvatti menn til að fylgja
óhikað og af festu góðum mál-
um er til heilla gætu orðið fyrir
land og þjóð.
FULLTRÚAR á sjötta kjör-
dæmisþingi félagasambands
Framsóknarmanna í Norður-
landskjördæmi eystra 29. og 30.
ágúst 1964.
Framsóknarfélag Ólafsfjarðar
Björn Stefánsson.
Framsóknarfélag Eyjafjarðar-
sýslu.
Aðalseinn Oskarsson Dalvík.
Einar Sigfússon Staðartungu.
Eiríkur Elíasson Eyvindarstöð-
um.
Garðar Sigurgeirsson Staðar-
hóli.
Helgi Símonarson Þverá.
Jóhannes Jóhannesson Vind-
heimum.
Jónas Halldórsson Rifkelsstöð-
um.
Snæbjþrn Sigurðsson Grund.
Framsóknarfélag Akureyrar.
Arnþór Þorsteinsson.
Bernharð Stefánsson.
Björn Guðmundsson.
Erlingur Davíðsson.
Guðni Ingimundarson Hvoli.
Hólmsteinn Helgason Raufar-
höfn.
Ragnar Helgason Kópaskeri.
Stefán Kr. Vigfússon Arnar-
stöðum.
Framsóknarfélag N.-Þingeyinga,
austan heiðar.
Eggert Olafsson Laxárdal.
Óli Halldói-sson Gunnarsstöðum.
Sigurður Jónsson Efralóni.
Framsóknarfélag Húsavíkur.
Aðalsteinn Karlsson.
Áskell Einarsson.
Þormóður Jónsson
Ingimundur Jónsson Húsavík.
Jón Jónsson Dalvik.
Ketill Guðjónsson Finnastöðum.
Þórhallur Björnsson Kópaskeri.
Og alþingismennirnir,
Karl Kristjánsson,
Gísli Guðmundsson,
Ingvar Gíslason og
Hjörtur E. Þórarinsson.
f stjórn kjördæmissambands-
ins til næsta árs voru kjörnir á
þinginu: Haraldur M. Sigurðs-
son Akureyri, formaður, Hjört-
ur E. Þórarinsson á Tjörn, rit-
ari, Sigurður Jóhannesson Ak-
Hrefna Guðmundsdóttir.
Ólafur Magnússon.
Páll Sigurðsson.
Pétur Gunnlaugsson.
Sigmundur Guðmundsson.
Sigurður Óli Brynjólfsson.
Stefán Reykjalín.
Víglundur Pétursson.
Framsóknarfélag S.-Þingeyjar-
sýslu.
Benedikt Baldvinsson Dálks-
stöðum.
Jón Friðriksson Hömrum.
Jón Sigurðsson Felli.
Ketill Indriðason Fjalli.
Óskar Sigtryggsson Reykjar-
hóli.
Pétur Jónsson Reynihlíð.
Teitur Björnsson Brún.
Úlfur Indriðason Héðinshöfða.
Valtýr Kristjánsson Nesi.
Þórólfur Jónsson Stórutungu.
Þrándur Indriðason Aðalbóli.
Framsóknarfélag N.-Þingeyinga,
vestan heiðar.
Einar Benediktsson Garði.
Frá Fél. ungra Framsóknar-
manna í S.-Þing. austan Ljósa-
vatnsskarðs.
Guðmundur Sigurðsson Fagra-
nesi
Jón Illugason Bjargi.
Höskuldur Þráinsson Skútu-
stöðum.
Indriði Ketilsson Fjalli.
Frá Fél. ungra Framsóknar-
manna á Húsavík.
Bjarni Aðalgeirsson.
Einar Njálsson.
Guðmundur Kr. Bjarnason.
Frá Fél ungra Framsóknar-
manna í N.-Þing., vestan heiðar.
Björn Guðmundsson Lóni.
Frá Fél ungra Framsóknar-
manna í N.-Þing., austan heiðar.
Gunnlaugur Sigvaldason Þórs-
höfn.
Stjómarmenn F. F. N. E.
^Baldvin Baldursson Rangá.
Baldur Halldórsson Akureyri.
Haraldur Sigurðsson Akureyri.
ureyri, gjaldkeri, Baldvin Bald-
ursson Rangá, varaformaður,
Jónas Halldórsson Rifkelsstöð-
um, Aðalsteinn, Karlsson Húsa-
vík og Óli Halldórsson Gunnars-
stöðum.
Varamenn í stjórn voru kjörn
ir og í þessari röð: Jóhann
Helgason Leirhöfn, Kristján H.
Sveinsson Akureyri, Aðalsteinn
Óskarsson Dalvík og Sigurður
Jónsson Felli.
Samkvæmt lögum sambands-
ins er stjórnarmaður ekki kjör-
inn lengur en tvö ár í senn, en
getur svo orðið kjörinn á ný að
ári liðnu. Þetta ákvæði á að
stuðla að því, að menn skiptist
á að taka að sér trúnaðarstörf í
þágu sambandsins.
í miðstjórn Farmsóknarflokks
ins voru kosnir: Jakob Frí-
mannsson Akureyri, Þórhallur
Björnsson Kópaskeri, Valtýr
Kristjánsson Nesi, Ketill Guð-
jónsson Finnastöðum og Hjört-
ur E. Þórarinsson Tjörn. Frá
yngri mönnum: Björn Teitsson
Brún og Sigurður Jóhannesson
Akureyri.
Varamenn í miðstjórn: Arn-
þór Þorsteinsson Akureyri, vara
maður Jakobs. Jóhann • Helga-
son Leirhöfn, varam. Þórhalls.
Áskell Einarsson Húsavík vara-
maður Valtýrs. Einar Sigfússon
Staðartungu, varamaður Ketils.
Björn Guðmundsson Akureyri,
varamaður Hjartar. Gísli R.
Pétursson Þórshöfn, varamaður
Björns. Ágúst Sigurðsson
Möðruvöllum, varamaður Sig-
urðar.
í milliþingamenn til að end-
urskoða lög sambandsins voru
kosnir: Einar Sigfússon Staðar-
tungu, Áskell Einarsson Húsa-
vík og Sigurður Óli Brynjólfs-
son Krossanesi. Endurskoðend-
ur sambandsins voru kosnir:
Jón Samúelsson Akureyri og
Jóhann Helgason Leirhöfn.
Varamaður Ólfur Magnússon
Akureyri.
í fjármálaráð voru kjörnir:
Arnþór Þorsteinsson Akureyri,
Valtýr Kristjánsson Nesi og
Stefán Valgeirsson Auðbrekku.
Stjórnmálayfirlýsing
(Framhald af blaðsíðu 1).
fram samræmdri stefnu — beitt
valdi sínu til einstakra óþurftar
verka á ýmsum sviðum og er
líkleg til þess aðstöðu sinnar
vegna. Kjördæmisþingið leggur
því á það ríka áherzlu, að Fram
sóknarmenn, innan Alþingis og
utan, beiti sér framvegis af al-
efli til að koma í veg fyrir að
ríkisstjómin fórni meiru en orð
ið er af framfaratækifærum al-
þjóðar í þágu sérhagsmunaliópa
og sói afrakstri góðæra í hend-
ur braskara eða í fjárbruðl,
sem þjóðinni í heild er til einsk
ir gagns. Kjördæmisþingið tel-
ur brýna nauðsyn bera til þess,
að flokkurinn veiti nú sem fyrr
ríkisstjórninni svo sterkt að-
hald, sem minnililutaflokki er
unnt, til að hindra, að hún og
stuðningsflokkar hennar fari í
samskiptum við aðrar þjóðir ó-
gætilega með málefni, er varða
sjálfstæði og þjóðlega menningu
íslendinga.
Með skírskotun til þess stjórn
málaástands, sem nú ríkir, tel-
ur kjördæmisþingið núverandi
ríkisstjórn málefnalega skylt að
segja af sér og efna til kosninga,
svo þjóðinni gefist tækifæri til
að móta nýja stjómarstefnu. □
Hópmyndimar voru
teknar á tröppum Lauga
skóla, af fulltrúum kjör
dæmisþingsins.
(Ljósm.: E. D.).
:%œa!ÍxMlÆmm^ fl #
Sjölugur sæmdarmaður
ÁRMANN DALMANNSSON á
Akureyri varð sjötugur á laug-
ardaginn, 12. september . Hann
er Mýramaður að ætt, fæddur
í Fíflholtum, sonur Dalmanns
Ármannssonar bónda þar og
Steinunnar Stefánsdóttur konu
hans. Ármann lauk námi við
Hvanneyrarskóla 1918 og stund
aði nám við Gymnastik-höjskol
en, Ollerup veturinn 1924—’25.
Eftir þetta lá leiðin til Norð-
urlands. Á Hvanneyrarskóla
höfðu þeir kynnzt, Ólafur Jóns-
son og Ármann Dalmannsson.
Þegar Ólafur hafði lokið bú-
fræðinámi erlendis, tók hann
við forstöðu Ræktunarfélags
Norðurlands og réði þá Ármann
til sín. Þeir voru síðan sam-
verkamenn í Gróðrarstöðinni á
Akureyri um aldarfjórðungs-
skeið og gerðu þann garð fræg-
an. Árið 1947 hóf Ármann starf
hjá Skógræktarfélagi Eyfirð-
inga og hefur veitt forstöðu
skógræktarstöð félagsins í
Kjarnalandi við Akureyri allt
til þessa. Þessi nýja skógrækt-
arstöð er mjög myndarleg og
lærdómsríkt þar að koma'.
Ármann Dalmannsson hefur
notið mikils trausts í félags-
málum. Hann var formaður
íþróttabandalags Akureyrar 20
fyrstu ár þess, formaður íþrótta
hússnefndar á Akureyri frá upp
hafi og formaður íþróttavallar-
ráðs, einnig frá byrjun og þar
til skipulagsbreyting íþrótta-
mála var gerð á síðasta ári.
Deildarstjóri Akureyrardeild-
ar KEA hefur hann verið síðan
1952 og í tvo áratugi var hann
formaður Jarðræktarfélags Ak-
ureyringa.
Þá hefur Ármann verið for-
maður Búnaðarsambands Eyja-
fjarðar síðan 1954, og kartöflu-
matsmaður síðan kartöflumat
hófst og til síðasta árs.
Hér hefur verið drepið á
nokkur helztu störf og félags-
mál, sem Ármann hefur unnið.
í heimasveit sinni var hann
starfandi ungmennafélagi og for
maður síns félags áður en hann
fór að heiman. í hjáverkum hef
ur hann stundað íþrótta- og fim
leikakennslu, einkum á fyrri ár
um, bæði hér í bænum og einn-
ig hjá ungmennafélögum í Eyja
fjarðar- og Þingeyjarsýslum.
Meðan hann enn var ungur að
árum stundaði hann sjóinn um
skeið, var formaður á fiskibáti,
síðan togarasjómaður.
Ætla mætti, að aðalstörf Ár-
manns Dalmannssonar, fyrst
hjá Ræktunarfélaginu og síðan
skógræktarstarfið, væri einum
manni nægilegt verkefni. En
þegar litið er á félagsmálastörf
hans, sem flest hafa verið og
eru mjög tímafrek, virðist þar
einnig ærið verk einum manni.
En sannleikurinn er sá, að Ár-
manni er gefið óvenjumikið
starfsþrek. Hann er ekki aðeins
tveggja manna maki við ýms
erfið og vandasöm ræktunar-
störf, en er einnig maður svefn-
léttur og þarf ekki að sofa nema
þrjá tíma í sólarhring, að því
er kunnugir telja. Vinnudagur-
inn er líka oftast mjög langur
og skiptist milli félagsmála- og
ræktunarstarfa. Flest eru félags
málastörfin ólaunuð og þætti
einhverjum svo langur vinnu-
dagur gefa lítið í aðra hönd.
Ármann Dalmannsson býr í
litlu 118 ára gömlu timburhúsi,
Aðalstræti 62, ásamt ágætri eig
inkonu sinni, Sigrúnu Kristjáns
dóttur, ættaðri úr Fnjóskadal,
og tveim sonum sínum, sem
enn eru í föðurgarði, en dóttir
og sonur hafa stofnað sín eigin
heimili.
Pésf'
Ármann Dalmannsson er
bjartur yfirlitum, sviphreinn
og karlmannlegur. Hann hefur
sigg í lófum og glampa i aug-
um, hafnar víni og tóbaki, og
verður vart misdægurt. Hug-
sjónir hafa leitt hann á brautir
hinna margþættu félagsmála,
bæði á sviði búnaðarmála, til-
raunastarfs og skógræktar, sam
vinnumála og síðast en ekki sízt
íþróttamálanna. En öll hans fé-
lagsstörf hafa mótazt af hlýrri
virðingu fyrir samborgurunum,
hófsemi festu og drengskap.
Þótt Ármann Dalmannsson
hafi löngum verið hlaðinn störf-
um gefur hann sér stundum
tíma til að festa bundið mál á
blað. Ljóðabók hans „Ljóð af
lausum blöðum“, vitnar um
vitran mann og einlægan, sem
ann föðurlandi sínu af heitu
hjarta, virðir þá arfleifð feðr-
anna, sem gefur íslendingum
rétt til að bera höfuðið hátt,
þrátt fyrir þjóðarsmæð og fá-
tækt og telur það gæfu hvers
manns að mega vinna að góð-
um málum fyrir land sitt og
þjóð. En það hefur Ármann gert
og orðið gæfumaður.
Mjög var gestkvæmt á heim-
ili Ármanns Dalmannssonar á
afmælisdaginn og bárust honum
margar góðar gjafir. Og litla
húsið hans, sem rúmaði þó svo
marga afmælisgesti, varð fullt
af ilmandi blómum.
Dagur sendir hinum sjötuga
sæmdarmanni beztu heillaósk-
ir, og um leið vil ég votta hon-
um þakkir mínar fyrir trausta
vináttu. E. D.
Ung hjón með eitt barn
óska eftir að fá íbúð
til leigu sem fyrst.
Uppl. í síma 2865.
HERRERGI
Vantar herbergi fyrir
skólapilt,
Irelzt á syðri brekkunni.
Uppl. á Munkaþverá
HERBERGI
til leigu
Uppl. í sírna 1581 milli
kl. 7 og 8 á kvöldin.
Hjón með 1 barn óska
eftir lítilli
ÍBÚÐ
sem fyrst
Uppl. í síma 2244 eftir
kl. 8 á kvöldin.
Tveggja herbergja
ÍBÚÐ ÓSKAST
til leigu um næstu
mánaðarmót
Uppl. í síma 1511.
HERBERGI
til leigu
Uppl. í síma 2933.
Leigutilboð óskast í
FIMM HERBERGJA
ÍBÚÐARHÆÐ
á góðum stað í bænum.
Uppl. í síma 2368.
TIL SÖLU:
Vel með farinn
Volkswagen árg. ’59
(A-1690).
Bifreiðinni fylgir útvarp,
áklæði og benzínmiðstöð.
Til sýnis milli kl. 6 og 7
e.h. þessa viku.
Bernharð Haraldsson
Geislagötu 27
Sími 2798.
BÍLASALA HÖSKULDAR
Volkswagen 1500 station
árgerð 1964
Taunus 12 m. árgerð
1964.
Taunus 17 m station árg.
’61—’63
Opel Reckord árg. 1962
lítið ekin.
Drabant árgerð 1964.
Landrower árgerð 1962—
1963
Austin Gipsy árgerð 1962
-1963.
Willys jeppar 1955 og
eldri.
Og mikið af eldri bílum.
BÍLASALA HÖSKULDAR
Túngötu 2, sími 1909
KVENFÓLK OG
UNGLINGA
vantar við kartöflu-
upptökú.
Gísli Guðmann - Skarði
Sírni 1291.
TIL SÖLU:
Silver Cross barnavagn
vel með farinn.
Selst ódýrt.
Uppl. í Hafnarstræti 35
að norðan.
TIL SÖLU:
Mjög góð saumavél
í skáp.
Uppl. í síma 2426.
TIL SÖLU:
Lítið notuð kartöfluupp-
tökuvél (Underhaug).
að Ytra-Hóli II.
Kaupvangssveit
Sími 02
SKELLINAÐRA
til sölu.
Uppl. í síma 2117.
SKÝLISKERRA
til sölu.
Uppl. í Norðurgötu 44
HEY TIL SÖLU
Vil selja 100 hesta af töðu
Júlíus Daníelsson
Syðra-G arðshorni
Svarfaðardal Sími um
Dalvík.
* TIL SÖLU:
þriggja tonna trillubátur.
Varastykki í vél geta fylgt.
Uppl. í síma 2341
ftir kl. 7 s.d.
GÓÐAR KÝR
til sölu. Hagstætt verð.
Uppl. Guðmundur Eiðs-
son — Þúfnavöllum.
TIL SÖLU:
Tvær vel með farnar
æðardúnssængur
stærð 90x110 - 89x125 cm
Uppl. í síma 1779
eftir kl. 7 e.h.
TIL SÖLU:
barnavagn Tækifærisverð
Uppl. eftir kl. 6 næstu
kvöld að Hamarsstíg 4
vesturdyr
(Einbaugur)
tapaðist í miðbænum í
byrjun ágúst.
Finnandi vinsamlegast
geri aðvart á afgreiðslu
blaðsins. — Fundarlaun.
PÍANÓKENNSLA
Jóna Axfjörð - Sími 2541.
NÝ FJÁRMÖRK
Mín eru: I Alheilt h.
Biti fr. Tvíbitað a. v. II
Alheilt h. Biti a. Tvíbitað
fr. v.
Steinn Snorrason
Syðri-Bægisá.