Dagur - 16.09.1964, Side 8
8
Verða ódýr plasthús
flutt iim?
HEILDSALI í Reykjavík, Ágúst
Jónsson að nafni, hefur fengið
einkaleyfi á innflutningi húsa
úr trefjaplasti frá Danmörku.
Telur hann innflutning geta haf
ist upp úr næstu áramótupa.
Margra ára reynzla þessara
húsa í Danmörku gefur til
kynna, að um merkilega húsa-
gerð geti verið að ræða. 100 fer
hietra hús kostar 43 þús. dansk
ar krónur í innkaupi. Ef tollar
verða 50% kostar hús af fyrr-
nefndrj stærð um 400 þús. ísl.
krónur, sem er lágt verð.
Talið er, að ekki taki nema
einn dag að reisa slík hús á
staðnum, eftir að undirstöður
eru tilbúnar.
Stálgrind er í hinum nýju hús
um en útveggir úr trefjaplasti.
Það efni er ekki talið eldfimt.
Veggir eru einangraðir með
frauðplasti. Allar leiðslur eru
innbyggðar.
Æ. S. K. á Húsavík
FIMMTI aðalfundur Æ. S. K.
verður haldinn á Húsavík um
næstu helgi. Hefst hann kl. 4
e.h. á laugardaginn, með venju
legum aðalfundarstörfum.
Þá verður tekið fyrir annað
mál fundarins: Starfræksla sum
arbúðanna við Vestmannsvatn í
framtíð. Framsögumenn, Her-
mann Sigtryggsson æskulýðs-
og íþróttafulltrúi og séra Sig-
urður Guðmundsson, prófastur.
Á laugardagskvöldið verður
kirkjukvöld fyrir almenning í
Húsavíkurkirkju. Á sunnudags-
morguninn verður rætt um
bókaútgáfu á vegum sambands
ins og framsögumenn eru prest-
arnir, séra Jón Kr. ísfeld og
séra Jón Bjarman kl. 2 verður
guðsþjónusta í Húsavíkurkirkju
séra Stefán Snævarr prestur á
Völlum í Svarfaðardal predikar
og þá verður almenn altaris-
ganga. Síðar munu fulltrúar og
gestir sitja boð sóknarnefndar
Húsavíkurkirkj u.
Fulltrúar úr hópi æskufólks
úr prestaköllum hins forna
Hólastiftis og prestar, sækja
aðalfund þennan á Húsavík um
næstu helgi.
Gler í gluggum er þrefalt og
fest í plastkarma, sem ekki þarf
að mála eða kítta.
Velja má um liti á húsum
þessum og svo má að sjálfsögðu
klæða þau innan með hverju
sem er.
I Bandaríkjunum hefur þessi
húsagerð verið reynd og í ráði
er að byggja stórhýsi úr þessu
byggingarefni þar.
Frostastöðum, 21. ágúst. Aðal-
fundur Skógræktarfélags Skag-
firðinga var haldinn að Hólum
í Hjaltadal 16. ágúst, sl. Formað
ur féla'gsins, sr. Gunnar Gísla-
son í Glaumbæ, setti fundinn og
stjórnaði honum. Framkvæmda-
stjóri uppeldisstöðvarinnar í
Varmah'líð, Sigurður Jónsson,
skógarvörður, las upp reikninga
félagsins og skýrði frá starfsem-
inni Sl. ár.
Gróðursettar voru á vegum
félagsins 53800 skógarplöntur og
580 garðplöntur. Af skógarplönt
unum fóru 26800 stk. í girðingu
Skógræktarfélagsins að Hólum
en hinar í heimilisreiti víðsveg-
ar um héraðið.
Fram kom á fundinum að
horfið hefur verið frá því að
leggja niður uppeldisstöðina í
Varmahlíð, en það mun hafa
verið í ráði hjá yfirmönnum
skógræktarmála. Voru Skagfirð
ingar mjög óánægðir með það
áform og þykir stórum betur
farið^að af því hefur verið látið.
í sumar var nokkru minna fá
varið til plöntukaupa en undan-
farin ár. Á hinn bóginn var
meiri áherzla á það lögð, að full
gera girðinguna á Hólum og
hluta að þeim þúsundum
plantna, sem þegar eru komnar
í jörð í Skagafirði. Var sérstak-
ur maður ráðinn til þeirra
starfa. Þó voru gróðursettar um
40 þús. skógarplöntur g um 1
þús. garðplöntur. Einhverju
magni mun ennþá verða plantað
út í sumar, enda bendir reynsl-
an til, að síðsumarplöntun sé
Það hefði óneitanlega verið
meiri gleðitíðindi, að verulegur
áfangi hefði náðst í íslenzkum
byggingariðnaði, en þar miðar
fátt í rétta átt.
Hinsvegar ber að fagna hverri
þeirri tilraun ,sem gerð er til að
brjóta niður hinn óhóflegu hús-
næðiskostnað, sem nú er hér á
landi.
hér sízt óhagkvæmari en vor-
plöntun.
Ur stjórn félagsins átti að
þessu sinni að ganga Sigurður
Jónasson í Laugarbrekku en
var endurkjörinn. Aðrir í stjórn
inni eru: sr. Gunnar Gíslason í
Glaumbæ, formaður, Jóhann
Salberg Guðmundsson, sýslu-
maður, Haukur Hafstað bóndi í
Vík og sr. Bjartmar Kristjáns-
son á Mælifelli. Endurskoðend-
ur voru endurkjörnir þeir Ey-
þór Stefánsson og Kári Steins-
son, báðir búsettir á Sauðár-
króki. Fulltrúar á aðalfund
Skógræktarfélags íslands voru
kosnir þeir Sigurður Jónasson
og sr. Gunnar Gíslason.
—mhg—
Stafnsrétt
Blönduósi 14. september.
HÉR hófst sauðfjárslátrun 10.
þ.m. og virðist féð sæmilega
vænt. Lógað er 1200 fjár á dag
en sláturféð er áætlað 38 þús.
nú í haust. Stafnsrétt er 24 þ.m.
í gær og í dag eru menn að
leggja af stað í göngurnar vest-
an Blöndu. Réttað verður í
Vatnsdalsrétt og Auðkúlurétt á
laugardaginn, Hrossarétt á þess
um stöðum verður 1. okt.
Hér var á laugardaginn sum-
arhátíð Framsóknarmanna og
sóttu hana um 500 manns. Ræðu
menn voru: Eysteinn Jónsson,
Olafur Jóhannesson og Stein-
grímur Hermannsson.
Hér lauk í gær þingi Sam-
bands ungr aFramsóknarmanna.
SMÁTT OG STÓRT
FYRSTA HÚSIÐ MEÐ
TREFJAPLASTÞAKI
Fyrir nokkrum dögum var
fyrsta húsþak hér á landi
sprautað með trefjaplasti, sem
kemur í stað pappa og þakjáms.
Tilraunahús þetta er á Blöndu-
ósi, við Árbraut og eigandi þess
er Pétur Þorláksson, bifvéla-
virki og er hús hans í bygg-
ingu.
Trefjaplast lif. á Blönduósi,
sem framleitt hefur mikið af
bátum og margskonar ílátum,
gerði tilraun þessa. Framkv.-
stjóri Trefjaplasts er Zophaní-
as Zophaníasson en verkstjóri,
Jörundur Kristjánsson.
Húsþak það, sem hér um
ræðir, var á sama veg undirbú-
ið og venjulega er gert undir
sprautað á óplægð, óhefluð
steypuborð, með þar til gerðri
vél ásamt trefjunum
Finun ára reynzla er af slík-
um þökum í Svíþjóð.
Ef trefjaplastið þolir duttl-
unga timbursins, er hér um
merkilega nýjung að ræða, því
það er mun ódýrara en pappinn
og jámið. Plasthúðin er ca. 3
mm á þykkt.
VILHJÁLMUR ÞÓR BANKA-
STJ. ALÞJÓÐABANKANS
Vilhjálmur Þór hefur verið kjör
inn bankastjóri Alþjóðabankans
til tveggja ára á ársfundi Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins í Tokyo
og alþjóðabankans, er hófst þar
7. þ.m.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ SÝNIR
ÞRJÚ LEIKRIT
Undirbúningur næsta leikárs er
nú hafinn. Þjóðleilchúsið sýnir
fyrst Kraftaverkið, eftir Willi-
am Gibson, þá Forsetaefnið eft-
ir Guðmund Steinsson, og í
þriðja sæti er bandarískur sjón
leikur. Um aðra leiklistarstarf-
semi liefur enn verið fremur
hljótt, en eflaust eru þó leiksýn
ingar víða um land í undirbún-
ingi.
KINDAKJÖT IIÆKKAR í
VERÐI ERLENDIS
Strax í næsta mánuði hefst út-
flutningur á íslenzku dilkakjöti
og eru Bretar kaupendur allt að
2000 smálestum. Kjötið er fryst
Auk þess verður flutt á sama
markað töluvert magn af ær-
kjöti. Verðið er liagstæðara en
áður. Aðrir, sem íslenzkt kinda
kjöt kaupa eru, Færeyingar,
Danir, Norðmenn, Finnar, V-
Þjóðverjar, Bandaríkjamenn og
Frakkar. Kjöt það, sem Norð-
menn kaupa af okkur er saltað
og áætlað að 500 smálestir af
þeirri vöru fari til Noregs.
Vaxandi eftirspurn er á ull og
gærum.
SEXM ANN ANEFNDIN Á
RÖKSTÓLUM
Sexmannanefndin hefur haldið
marga fundi og ber mikið á
milli, svo sém vænta mátti.
Bændur, krefjast að vonum mik
illa leiðréttinga á verðlagi
búvaranna, þar sem þeir nú
eru mun tekjulægri en viðmið-
unarstéttirnar.
Alþýðublaðið hefur þegar
krafizt þess að verði búvara
verði haldið niðri. Sjálfstæðis-
menn láta sér það vel líka.
MIKIL NÆTURFROST
Allt kartöflukras féll gjörsam-
lega í frostumnum í síðustu
viku, en áður höfðu næturfrost
skemmt garða á ýmsum stöðum.
Uppskeran er misjöfn að vöxt-
um og óvíða mikil. Nú stendur
uppskerutíminn yfir og fá marg
ir bændur, og flestir þeir, sem
kartöflur rækta að nokkru ráði,
hér í nágrenninu, vinnuflokka
frá Akureyri til hjálpar við
kartöfluupptökuna.
ÞRIGGJA MÁNAÐA
STÖÐVUN
Ungtemplarar liafa nýlega sam
þykkt ályktun þess efnis, að
lokað verði útsölum áfengis
hér á landi um þriggja mánaða
skeið til reynzlu. Er tillaga
þessi skynsamleg. Stöðvun vín-
sölu í 3 mánuði, yrði áreiðan-
lega mikilvægt rannsóknarefni
eftir á.
SAMEIGINLEG FRÉTTATIL-
KYNNING
Það hefur vakið bæði undrun
og eftirtekt að Pravda og Þjóð-
viljinn birtu samdægus tilkynn
ingu um viðræður í Moskvu
milli fulltrúa konunúnistaflokks
Sovétríkjanna og Sameiningar-
fl. alþýðu Sósíalistaflokksins á
íslandi. En hingað til hafa hinir
íslenzku afneitað húsbændum
sínum í Moskvu.
DAGUR LEIFS EIRÍKS-
SONAR
Framvegis verður 9. október ár
hvert opinber liátíðisdagur í
Bandaríkjunum til minningar
um fund Leifs Eiríkssonar á
Ameríku fyrir nær 1000 árum.
Var tilskipun um þetta efni
nýlega undirrituð af Bandaríkja
forseta.
NJÁLSBRENNA KVIK-
MYNDUÐ
Danir hafa í sumar kvikmynd-
að Njálsbrennu og tekið tvær
aðrar sögulegar myndir hér á
landi. Myndir þessar verða sýnd
ar í danska skólasjónvarpinu.
Sumarmót
F ramsóknarmanna
við Eyjarfjörð voru haldin í
Freyvangi og Árskógi nýlega.
Eystinn Jónsson form. Fram-
sóknarflokksins flutti ræður á
báðum stöðum, ennfremur Hjört
ur E. Þórarinsson á Tjörn og
Ingvar Gíslason, alþingismaður.
Auk ræðumanna komu þarna
fram hinir vinsælu söngmenn
Smárakvartettsins og Jón Gunn
laugsson leikari. Fjölmenni*var
á báðum samkomustöðunum og
urðu margir frá að hverfa, a. m.
k. í Freyvangi, og þóttu sumar-
mót þessi takast með ágætum
vel. □