Dagur - 14.11.1964, Page 1
t..■■ '...."rr...............
Dagur
kemur út tvisvar í vikn
og kostar 20 krónur á
mánuði
........-.-....~JJ
Fjárleit úr lofti allt
vestur að Blöndu
HINN 11. þ.m. í!aug Tryggvi
Ilelgason flugmaður á Akureyri
yfir afréttarlönd Skagfirðinga
og Eyfirðinga og allt vestur að
Blöndu ti! að leita breði kinda
og hrossa. í þessari ferð fundust
3 hross og 20 kindur.
Með í þessai-i för voru Björn
oddviti Egilsson á Sveinsstöðum
í Lýtingsstaðahreppi og Eiríkur
Elíasson á Eyvindarstöðum í
Eyjafirði.
Að tilhlutan hreppsnefndar
Lýtingsstaðahrepps var sam-
þykkt að leita samkomulags við
Eyfirðinga og Húnvetninga, að
Ritstjóraskipti hjá
Alþýðumanninum
BRAGI Sigurjónsson hefur
nú látið af ritstjóm Alþýðu-
mannsins á Akureyri, en við
henni tekið Steindór Stein-
dórsson. Kom fyrsta tölubl.
undir stjórn hins nýja rit-
stjóra út á fimmtudaginn. —
Við þessi þáttaskil er bæði
rétt og skylt að bjóða nýjan
ritstjóra velkominn á vett-
vang blaða og blaðamennsku
í Akureyrarkaupstað og
þakka fráfarandi ritstjóra
samskiftin á liðnum árum.
Ritstj.
leyta á stóru svæði. Varð fullt
samkomulag þar um.
Lagt var af stað frá Akureyr-
arflugvelli kl. 10 árdegis í
björtu og góðu veðri. Fyrst var
skyggnst um í Sölvadal og
Eyjafjarðardal, síðan Nýjabæj-
arafrétt vestur að Jökulsá og
suður að Bergvatnskvísl Þjórs-
ár, en sú kvísl hefur upptök
skammt frá Laugarfelli. Leitað
var vestur með Höfsjökli með
Illviðrishnjúkum og Ásbjarnar-
vötnum, kring um Eyfirðinga-
hóla og allt vestur að Sátu á
Eyvindarstaðarheiði, síðan flog-
ið vestur að Blöndu og norður
yfir Guðlaugstungur og Ásgeirs
tungur og allt norður að Galt-
ará.
Norðan við Galtarárkofa var
fé á stangli og fremst í Fossa-
dalsdröngum voru um 20 kind-
ur. Síðan var leitað fram Buga
og aftur vestur hjá Haugum og
suður Ásgeirstungur, austur fyr
ir sunnan Bláfell, yfir Jökul-
tungu neðanverða og síðan var
leitað í Hofsafrétt, fyrst Hraun
þúfudrög og síðan austurhluta
Hofsárréttar, og í Orravatna-
rústum sáust þrjú hross, sem
ekki höfðu heimst.
Flogið var 3 klukkutíma og
20 mínútur og þóttust menn þá
hafa leitað af sér allan grun.
Vestur undir Blöndu var auð
jörð og ágætt skyggni en annars
staðar föl.
Skjólbelfin í Öngulssfaðahreppi
í SAMBANDI við fréttir í út
varpinu nú nýverið um fram-
komði frumvarp á Alþingi um
styrki til skipulegra skjólbleta í
sveitum landsins, var í grein-
argerð réttilega minnst á mikil
vægi skjólbelta fyrir alla rækt
un, en þó einkum garð- og korn
rækt. Sagt var frá tilraunum
Skógræktar ríkisins á nokkrum
stöðum, svo og á Hallormsstað
og Sámstöðum. Hinsvegar var
ekki minnst á ágætlega heppn
uð, 15—20 ára skjólbelti í Eyja
firði og nokkurra ára gamlar á-
ætlanir, sem 10—20 bændur í
Ongulsstaðahreppi í Eyjafirði
hafa látið gera um skipulega
skjólbeltarækt á mörgum bæj
um. Og máli þessu til stuðnings
hefur sá hreppur ákveðið að
styrkja fjárhagslega vel gerð
skjólbelti með 8 kr. framlagi á
(Framhald á blaðsiðu 7).
Ny uiu i jJaiSinyiini í b njóskacial.
^JUjO^liijilU. ii.)
Friðrikssjóður til styrktar tónlistarlífinu
Húsavík, 9. 11., 1964. — í gær
var á kirkjudegi í Húsavík vígt
nýtt og glæsilegt pípuorgel.
Gamla orgelið, sem þjónað
hefur Húsavíkurkirkju í meir
en hálfa öld, var kvatt með því
að organistinn, Reynir Jónas-
son, lék á það forspil, sóknar-
presturinn, séra Björn H. Jóns-
son, flutti bæn og kirkjukórinn
söng, „Kirkja vors guðs er gam-
alt hús“.
Þá var nýja orgelið vígt. Séra
Björn H. Jónsson flutti vígslu-
ræðuna, séra Sigurður Guð-
mundsson, prófastur að Grenj-
aðarstað, flutti bæn og Reynir
Jónasson, flutti forspil á nýja
orgelið. Ingvar Þórarinsson, for
maður sóknarnefndar, flutti er-
indi um orgelmál kirkjunnar og
sönglíf við hana. Bæjarstjórinn
á Húsavík, Áskell Einarsson,
skýrði frá því, að Húsavíkur-
bær, mundi í tilefni orgelvígsl-
unnar, gefa orgelsjóði kirkjunn
ar 50.000.00 krónur. Áður hefur
Húsavíkurbær lagt fram 75 þús.
krónur til orgelkaupanna. Finn
ur Kristjánsson, kaupfélagsstj.
greindi frá sjóðsstofnun til
styrktar tónlistarlífi á Húsavík.
Sjóðurinn, sem nú er 110.000.00
krónur, er gefinn af safnaðar-
fólki Húsavíkurkirkju til heið-
urs hjónunum, frú Gertrud Frið
riksson og séra Friðrik A. Frið-
rikssyni, fyrrverandi prófasti á
Húsavík. Frú Gertrud er búin
að vera organisti við Húsavíkur
kirkju í 25 ár en lét af því starfi
N
fyrir ári. Séra Friðrik var sókn-
arprestur á Húsavík í nærri
þrjátíu ár. Bæði hafa hjónin
stutt af alúð, tónlistarlíf á Húsa
vík í nærfelt þriðjung aldar.
Fyrirhugað er að veita úr sjóðn
um framlög til styrktar efnilegu
söng- og tónlistarfólki á Húsa-
vík og til söngmenntunar í Húsa
víkursöfnuði almennt.
Kirkjudeginum lauk með því
að kirkjukórinn söng, „Ákall“
eftir séra Friðrik A. Friðriksson
síðan sálm og að lokum lék
Reynir Jónasson, „eftirspil“, á
nýja orgelið. Þ.J.
Kaupstððaráðsteína á Seyðisíirði
Egilsstöðum 13, nóv. — Nýlega
var, að tilhlutan Framsóknar-
manna á Austurlandi og fyrir
þá haldin kaupstaðaráðstefna á
Seyðisfirði, er stóð í tvo daga.
Til hennar var boðið fulltrúum
bæjar- og sveitastjórnar og var
hún mjög vel sótt. Ræðumenn
voru m.a. Hannes Pálsson og
ræddi um húsnæðismál. Jón
Kjartansson, er ræddi fjárhags-
mál kaupstaða og þorpa. Áskell
Einarsson, sem talaði um at-
vinnu- og jafnvægismál og Páll
Þorsteinsson alþingismaði.ur,
sem ræddi þingmálin. Umræður
urðu miklar og fróðlegar.
Fé hefur ekki komið í hús,
gæsir eru horfnar og eru komn
ar til Bretlands, hreindýraveið-
um er löngu lokið og rjúpnaveið
ar naumast byrjaðar. Bygginga
vinna er í fullum gangi. Flestir
eru að koma heim úr síldarpláss
unum, og brátt fer allt að taka
á sig rósemaarblæ skammdegis
ins. Allir fjallvegir eru færir.
Ármann heiðraður
SÍÐASTI bændaklúbbsfundur á
Akureyri var helgaður Ár-
manni Dalmannssyni sjötugum.
En Ármann hefur, sem kunnugt
er, mjög helgað sig landbúnað-
armálum. Margar ræður voru
fluttar við þetta tækifæri, en að
alræðuna flutti Jón bóndi
Hjálmarsson í Villingadal en
Jón Bjarnason bóndi í Garðs-
vík flutti afmælisbarninu frum
ort ljóð.
Nú í vikunni komu nemendur og kennarar Samivmnuskólans á Bifröst í Borgarfirði í heimsókn liingað norður, samtals um 80 manns.
(Ljósmynd: E. D.)