Dagur - 21.11.1964, Blaðsíða 2

Dagur - 21.11.1964, Blaðsíða 2
r SMÁTT OG STÓRT j (Framháld af blaðsíðu 8). siðferðisbrota — birta dagblöð landsins og ýms önnur *blöð áhrifamiklar fréttamyndir í þágu vínsölunnar. GATNAGERÐ OG MAL- BIKUN ARTÆKI Blaðið íslendingur, sem stund ur er dálítið seinheppið, lýsir liinn 13. þ. m. góðum áfanga í gatnagerð á Akureyri og ákvörðun um kaup á nýjum malbikunartækjum, og vitnar um leið í yfirlýsingu Sjálfstæð- isflokksins frá síðustu bæjar- stjórnarkosningum, eins og sú yfirlýsing skipti miklu máli. Ágreiningur um nauðsyn gatna gerðar á Akureyri er ekki fyrir hendi, hvorki mcðal stjórnmála flokka eða hir.na almennu borg ara. Hitt mætti íslendingur taka til atliugunar, að flokkur hans missti fulltrúa í bæjar- stjórn við síðustu bæjarstjórn- arkosningar og þar með meiri- hlutann í bæjarstjórninni. Ef þar er að finna ástæður fyrir betra útliti í bæjarmálunum, mcga bæjarbúar alnrennt vel við una, hvort sem liinir gætn- ari Sjálfstæðismenn kæra sig um að láta minna sig á þær stað reyndir. HAMRAFELL Eins og kunnugt er af frétt- um, hafa stjórnarvöld Iandsins samið um kaup á 350 þúsund tonnunr af olíu frá Rússlandi. Samkvæmt þeim samningi eiga Rússar að flytja olíu til íslands. Samvmnumenn keyptu olíu- skipið Hamrafell til Iandsins 1956 og hefur það skip annast þessa flutninga á olíu að aust- an, um það bil að helmingi, enda til þess keypt að annast þessa flutninga. Þessir flutn- ingar liafa gengið mjög vel. En nú skeði það, að Rússar vildu sjálfir annast flutningana og fengu þá, samkvæmt hinum nýgerðu samningum. íslending- ar kaupa nær allar olíur af Rússurn og magn þessara vöru- tegundar er unr það bil helm- ingur allra vara, sem fluttar eru til Iandsins. Nú hafa stjórnarvöld lands- ins kippt rekstursgrundvelli undan þessu stærsta skipi ís- lendinga, og er það alvarleg að- gerð og mjög vafasöm, a. m. k. samkvænrt þeirri kenningu, að íslendingar þurfi sem sjálfstæð eyþjóð að eiga traustan skipa- flota. Sýnast nú aðeins þrír kostir fyrir liendi í sambandi við hið mikla íslenzka flutningaskip, þ. e. að leigja það úr landi, selja það eða leggja því um ófyrir- sjáanlegan tíma. — En verði Hamrafell af hendi Játið eru ís- lendingar algerlega öðrum þjóðum háðir um alla flutninga á olíu til landsins. □ - LANÐVARNIR (Framhald af blaðsíðu 1). Noregur mun þéttbýlla land en ísland og samgönguþörfin því meiri. í Noregi búa 11,42 menn á hverjum km2, hér á landi 1,78. Til samgangna á landi og sjó ætla Norðmenn að verja á næsta ári: Til ríkisjárnbraut- anna 1268 millj. ísl. kr., til vegamála 5369 millj. kr., til strandferða 298 millj., til áætl- unarbíla 123 millj. og til „ferja“ 78 millj., eða samtals um 7118 millj. eins og fyrr er sagt. En auk þess til flugmála 309 millj. (sivil luftfart). Það skal tekið fram, að kostnaður við hafnir og vita er ekki meðtalinn í norsku útgjöldunum og þá ekki heldur á íslandi hér að framan. Það, sem hér hefur verið sagt styður þá skoðun, að rétt- mætt sé að fjárframlög til sam- gangna á sjó og landi, hækki hér verulega frá því sem nú er, og þá sér í lagi til vegamála. Enn tekur ríkissjóður drjúgan hlut af tekjum af umferðinni, þar sem eru innflutningsgjöld bifreiða og varahluta. Við ís- lendingar erum lausir við út- gjöld vegna hervarna. Þess ætti landið og landsbyggðin að mega njósa og þeir, sem samgöngu- tækin eiga eða þurfa á þjón- ustu þeira að halda. □ - Aðalfundur F.U.F. (Framhald af blaðsíðu 8). Steingrímsson og Jóhann Æ. Jakobsson, meðstjórnendur, Ól- afur Axelsson og Gunnlaugur Guðmundsson til vara. Ennfremur kosnir endurskoð- endur og meðlimir í Fulltrúa- ráð Framsóknarfél. Þá var einn ig kosið í fjáröflunarnefnd og skemmti- og fræðslunefnd. Á eftir var sameiginleg kaffi- drykkja. (Fréttatilkynning) ! sending af strásykri LÆKKAÐ VERÐ! Kílóið kostar kr. 7.80. 50 kg. sekkur kr. 369.00. ÁGÓÐASKYLD VAKA. KJÖRBÚÐIR K.E.A. Yfirburðasigur Fram og F. H. í handknattleik DANMERKURMEISTARARN- IR í handknattleik, Ajax frá Kaupmannahöfn, sem eru hér á landi í boði Vals, léku sinn fyrsta leik sl. sunnudag við ís- landsmeistarana Fram, og fór leikurinn fram á Keflavíkur- flugvelli. Lið Ajax er talið mjög sterkt og eru t. d. fjórir landsliðsmenn í því. En strax í upphafi leiksins var ljóst, að Fram var sterkari aðilinn og var sigri þeirra aldrfei verulega ógnað og höfðu í leikslok yfir- burði í mörkum, eða 27 gegn 16. Komu þessi úrslit yfirleitt á óvart, og sýndu dönsku leik- mennirnir mun lélegri leik en búizt var við. Auk þess voru þeir fremur grófir, og var sum- um þeirra vísað af leikvelli um tíma. Ajax lék svo á þriðjudags- kvöldið við gestgjafana, Val, og skildu liðin jöfn, 27 mörk gegn 27. — Hafnfirðingar léku við Dönsku meistarana í fyrra- kvöld og urðu Danir að þola SKÓLAKEPPNI SAMVINNUSKÓLINN að Bif- röst var hér á ferð í bænum í síðustu viku og háðu nemendur hans keppni í íþróttum við Menntaskólanema hér. — Fór keppnin vel fram og athyglis- verður árangur náðist í frjáls- um íþróttum. Úrslit í frjálsum íþróttum, innanhúss, urðu þessi: Langstökk án atrennu. m Reynir Unnsteinsson MA 3,04 Haukur Engibertsson MA 2,95 Kjartan Guðjónsson MA 2,85 Þrístökk án atrennu. m Haukur Engibertsson MA 9,22 Reynir Unnsteinsson MA 9,10 Kjartan Guðjónsson MA 8,98 Hástökk með atrennu. m Kjartan Guðjónsson MA 1,93 Jóhannes Gunnarsson MA 1,73 Guðmundur Tómasson S 1,73 Samvinnuskólinn vann knatt- spyrnukeppni með 2 mörkum gegn 1, en Menntaskólinn körfu knattleikskeppnina með 50 stig um gegn 45. □ Frá Bridgefélagi Ak. ÞRIÐJA umferð sveitakeppni fyrsta flokks fór fram sl. þriðju dag úrslit urðu þessi: Sveit Óðins Árnasonar vann sveit Magna Friðjónss, með 6-0. Sveit Jóns H. Jónssonar vann sveit Hafliða Guðmunds. 6-0. Sveit Sturlu Þórðarsonar vann sveit Karls Jörundss. 6-0. Sveit Bjarna Jónssonar vann sveit Ólafs Þorbergss. 5-1. Leik sveita Aðalsteins Tómas sonar og Stefáns Gunnlaugsson ar var frestað. stóran ósfgur eftir sæmilega byrjun í leiknum. F. H. skoraði 35 mörk í leiknum á móti 24. Síðasti leikur Danmerkurmeist- aranna er á laugardag við úrval Handknattleikssambandsins. íslenzkir handknattleiksmenn hafa jafnan staðið sig vel á móti erlendum keppinautum, svo sem í sumar, þegar ísland varð Norðurlandameistarar í kvennaflokki. □ Þórólkr Beck skiptir m íélag Leikur nú með frægasta félagi Skotlands EINS OG kunnugt er, hefur knattspyrnusnillingurinn ís- lenzki, Þórólfur Beck, leikið með skozka atvinnufélaginu St. Mirren sl. þrjú ár. Félagið hef- ur yfirleitt ekki verið sigursælt á þessum árum, t. d. alltaf ver- ið í fallbaráttunni í deildar- keppninni. Þrátt fyrir það hef- ur Þórólfur oftast fengið góða dóma í leikjum sínum. Nú hefur það skeð, að annað skozkt atvinnufélag, Glasgow Rangers, hefur keypt Þórólf af St. Mirren fyrir geypiverð, eða fyrir 20.000 pund, sem nemur um 2.5 millj. íslenzkra króna, ög af þeirri upphæð fær Þórólf- ur nokkurn hluta. Er þetta ein- hver hæsta sala á leikmanni milli skozkra félaga og sýnir bezt hvaða álits Þórólfur nýtur í Skotlandi sem knattspyrnu- maður. Glasgow Rangers er tal ið frægasta óg eitt bezta knatt- spyrnufélag Skotlands, og hef- ur oftar en nokkuð annað fé- lag sigrað í deildar- og bikar- keppninni .skozku. Leikmönn- um félagsins er greitt hærra kaup en leikmönnum annarra félaga. Ekki er enn ráðið hvort SKÁKMÓT U.M.S E. Úrslit í 3. umferð. Sveit Umf. Skriðuhr. A gerði jafnt við sveit Umf. Saurbæj- arhr. og Dalb. 2:2. - Sveit Umf. Skriðuhrepps B vann sveit Umf. Æskan með 4:0, Sveit Umf. Möðruvallasókn- ar vann sveit Umf. Svarfdæla 3:1. Úrslit í fjórðu umferð. Sveit Umf. Möðruvallasókn- ar vann sveit Umf. Skriðuhr. B 3:1. Sveit Umf. Saurbæjarhr. og Dalbúinn vann sveit Umf. Æsk an 2i/2:iy2. Sveit Umf. Skriðuhrepps A vann sveit Umf. Öxndæla 3V2:i/2. Staðan er þannig. Sveit Umf. Skriðuhr. B 11% v. Sveit Umf. Skriðuhr. A 8y2 v. Sveit Umf. Möðruv.s. 8 v. Sveit Umf. Saurbæjar og Dal- búinn 8 v. Sveit Umf. Svarfdæla 5% v. Sveit Umf. Æskan 5 v. Sveit Umf. Öxndæla 1% v. Fimmta umferð átti að fara fram í Sólgarði í gær. □ Þórólfur kemst strax í aðallið Glasgow Rangers. Hjá þessu sama félagi hóf Al- bert Guðmundsson sinn glæsi- lega knattspyrnuferil erlendis. f HELGARMATINN: ALIKÁLFAKJÖT í gullash, buff, steik. Nýreykt HANGIKJÖT ilmandi og gott. LAMBAHAMBORGAR- HRYGGUR með beini og beinlaus. SVlNAHAMBORÖAR- HRYGGUR NÝSVIÐIN DILKASVIÐ LAMBALIFUR og HJÖRTU Mikið úrval. Allt fullt af mat. KJÖTBÚÐ K.E.A. SÚKKULAÐI- DUFT í pökkum. Mjög ódýrt. KJÖTBÚÐ K.E.A. SKODA Til sölu er 5 manna Skoda, smíðáár 1955. Uppl. í síma 2638 milli kl. 7 og 8 e. h. Sex manna FÓLKSBIFREIÐ til sölu, árgerð 1959. Lítið ekinn. Uppl. í síma 2068.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.