Dagur - 19.12.1964, Blaðsíða 1

Dagur - 19.12.1964, Blaðsíða 1
Dagur Símar: 11166 (ritstjóri) 11167 (afgreiðsla) Dagur XLVII. árg. — Aknreyri, laugardag.na 19. desember 19G4 — 93- fbl. Síðasti róður fyrir jól í Oiafsfirði Á Akureyri fyrir jólin (Ljósm.: E. D.) Spennan er hættulegri en ofbeldið fyrir börn sem horfa daglega á sjónvarp Ólafsfirði 18. desember. Flestir bátar reru hér aðfaranótt mið- vikudags, en afli var mjög léleg ur, eða mest 3 tonn á bát. — Stærri bátarnir létu þetta vera sinn síðasta róður fyrir áramót og eru nú tveir þeirra farnir til Akureyrar og munu liggja þar um jólin. Minni bátarnir halda lengur út ef veður leyfir. Mb. Sæþór fór í s. 1. viku austur fyrir land á síldveiðar, en lítið getað hafzt að vegna brælu. Talsverðum snjó kyngdi nið- Síldin geymd í haugum Reyðarfirði 18. desember. Fimm bátar komu hingað í gær með nær sjö þúsund mál síldar í bræðslu- Þróarrými síldarverk- smiðjunnar er þrotið og varð að koma síldinni fyrir undir beru lofti við verksmiðjuna. — Obrædd munu vera milli 12 og 15 þúsund mál. Menn frá Akur- eyri og Reykjavík hafa unnið við bræðsluna, en fara héðan fyrir jól. Ágætt veður er hér, hægviðri og 8 stiga hiti. Færð á vegum er óðum að lagast. Rjúpnaveiði hefur glæðst nokkuð að undanförnu. M. S. STJÓRN Sambands íslenzkra samvinnufélaga hefur ákveðið að stofna birgðastöð í Reykja- vík og til að auðvelda vörudreif inguna til kaupfélaganna víðs- vegar um land. Kaupfélagsstjór ar fagna hugmyndinni. Birgðastöð S. í. S. verður við Geirsgötu og verður stofnun hennar hraðað. Auk þess að vörudreifing er auðveldari frá birgðarstöð, eiga innkaup að geta orðið mun hagkvæmari- Þá er hin félagslega samstaða í þessu máli mikilvæg og aðstaða til hagkvæmari aðdrátta og stöðlunar í vöruvali, sem aftur gefur tækifæri til öflugrar aug- lýsingastarfsemi. Öll innkaup vara, bæði innlendra og er- lendra, yrði betur skipulögð en ur hríðardagana, og var Lág- heiði ófær öllum farartækjum nema beltisdráttarvélum og hestasleðum. En í dag er þýð- viðri og snjór hefur sigið mik- ið. Vegirnir fram í sveitina hafa verið ruddir. Vonir standa nú til, að úr rætist með læknisleysi það sem við höfum átt við að búa að undanförnu, vegna sjúkleika Halldórs Guðnasonar héraðs- læknis, en hann hefur legið á sjúkrahúsi í tæpa tvo mánuði. í forföllum hans hefur Valgarð Björnsson héraðslæknir á Hofs ósi gegnt læknisstörfum . hér 2 daga í viku, og hefur oft verið mjög harðsótt fyrir hann að komast á milli vegna ófærðar. Hann hefir látið sér mjög annt um að veita sem bezta þjón- ustu, þrátt fyrir erfiðar aðstæð- ur. Á mánudag kom hingað læknakandidat og verður hér fram yfir áramót, en óvíst hvað þá tekur við. Norræna skíðagangan hófst á mánudaginn með því að nem- endur miðskólans og barna- skólans gengu, með skólastjóra og kennara í broddi fylkingar. Luku 130 manns göngunni þann dag. B- S. nú er, e. t. v. færri vörutegund- ir á boðstólum, en aðeins beztu fáanlegar vörur. Jón Þór Jóhannsson hefur verið ráðin forstöðumaður hinn ar nýju stofnunar. Búist er við, að Birgðastöð S. í. S. taki til starfa snemma á næsta ári- □ Neskaupstað 18. desember- Hér er sunnan gola og sjö stiga hiti, og snjórinn rennur sundur. — Bílfært má heita um allt. Góð síldveiði var í fyrradag, og komu skipin inn í gær og mun heildaraflinn úti fyrir Austfjörðum hafa verið um 40 ÞAD MUN vera almennt álit manna, að sjónvarpsdagskrár- liðir sem sýna ofbeldi í ein- hverri mynd séu hættulegir börnum og geti orsakað afbrot æskufólks. Rannsókn, sem gerð hefur verið í Ástralíu, leiðir hinsvegar í ljós að hin raunveru .lega hætta er ekki fólgin í of- beldinu. Djúptækara og alvar- legra vandamál felst í spenn- unni og óróleikanum, sem slík- ir dagskrárliðir skapa, og við horfunum til þjóðfélagsins, sem þeir vekja með börnum. Spennan er nauðsynleg til að halda athyglinni, segir höfund urinn. En spenna sem ekki fær útrás eða fullnægði lausn leiðir einungis til þess, að menn venja sig á spennu. Alltof oft cru þessir sjónvarpsdagskrárlið ir þannig ,að þar er ekki nein sannfærandi lausn. Spennunni er haldið allt til hins síðasta og lausnin er allt of máttlaus og áhrifalítil í hlutfalli við þá spennu, sem sköpuð hefur ver- ið. Ofbeldi, sem lýsir sér í morðum með byssum eða öðrum vopn um vekur engan sérstakan ó- hugnað eða hræðslu hjá börn- þúsund mál hjá nær 50 skipum. Hingað bárust 13 þúsund mál. Nú er bræla á miðunum og ekki veiðiveður. Nokkur skip liggja hér inni, en sum eru hætt veiðum fyrir jól o gfainit insln veiðum fyrir jól og farin til sinna heimahafna. H. Ó. um. Stúíkur eru ekki viðkvæm ari en bræður þeirra gagnvart ofbeldisatriðum á sjónvarps- skerminum. Þjóðfélagið ráðalaust Martin gagnrýnir harðlega hina neikvæðu afstöðu sem sjón varps-kvikmyndir hafa til þjóð félagsins, sem að jafnaði er lát ið vera hlutlaust eða beinlínis ráðalaus aðili. „Áhrifin, sem þetta veldur, eru þau, að góð- hjartað fólk fái ekki aðra útrás fyrir gæzku sína en þá að sker- ast í leikinn gagnvart afbrota- NOKKUR KVÆÐI EFTIR ÞORSKABÍT. Út er komið kvæðakver með því nafni og hefur Vigfús Guðmundsson tek ið saman. En eftir þorskabít var ljóðabók prentuð í Winni- peg árið 1914 og hefur bók sú hvergi fengist í 30—40 ár. Þorskabítur er skáldanafn Þorbjörns Björnssonar, sem ætt aður var úr Reykholtsdal og flutti fullorðinn vestur um haf. Ljóðin í hinni nýju bók, eru yfir 20 talsins. Hljómur þeirra er sterkur og rammíslenzkur. NÓTTIN HELGA. Myndskreytt lítil bók með þessu nafni, er þýdd af Haraldi Hannessyni, en heitir á frummálinu „Die heilige Naeht“. Þýðandinn, sem er einskonar verndari Nonnasafns á Akur- eyri — í verki — hefur gefið nokkurt upplag bókarinnar til styrktar Nonnasafni og er það góð gjöf og þakkarverð. Þessi litla bók er mjög mynd skreytt og pappírinn góður. VÍKINGAFERÐ TIL SURTS- EYJAR. Ármann Kr. Einarsson mönnum. Til að það góða fái að njóta sín verður það illa að eiga frumkvæðið: Það á alltaf fyrsta leik.“ Þ6 er afstaðan til kvenna ennþá ískyggilegri. Til að mynda eru konur venjulega sýndar sem ógnun við karl- manninn í kúrekamyndum: þær eru ýmist í slagtogi með bófanum eða tengdar einhverj um öflum sem gætu komið í veg fyrir sigur hins góða. f leynilögreglukvikmyndum er á- standið þó ennþá verra: Þar eru konur nær eingöngu tæli- drósir eða þegar bezt lætur ó- viljug verkfæri í höndum (Framhald á blaðsíðu 7). skrifar bókina „Víkingaferð til Surtseyjar", en Bókaforlag Odds Björnssonar hf. gefur út, Halldór Pétursson gerði teikn- ingar. Og ævintýrin láta ekki á sér standa eða frásagnagleðin. Unglingum geðjast vel að bók þessari- STAFNSÆTTIRNAR. Sigurð- ur Jónson frá Brún kveður sér enn hljóðs og hefur skrifað bók (Framhald á blaðsíðu 7). Miklar skrcyíingar Húsavúk 18- desember. Nú er þýðviðri hér og snjór að mestu farinn, enda var hann aldrei mikill. Norræna skíðagangan er enn ekki hafin hér. Fyrst vantaði gögnin í sambandi við hana, en þegar þau komu loksins var snjórinn horfinn. Jólasvipur er kominn á bæ- inn. Skreytingar eru miklar, í búðum, á götum og við íbúðar- hús. Þ- J. Birgðasföð kaypfélagaom Mokveiði fyrir austan NOKKRAR NÝJAR BÆKUR Söiuskaftur - Útvarpsumræður Dálítill geigur í herbúðum ríkisstjórnarinnar UM miðja viku lagði ríkisstjórn in frarn frumvarp um hækkun söluskatts, úr 5,5% í 8% og nemur sú upphæð á fjórða hundrað milljónir króna. Þingflokkur .Framsóknar- manna krafðist í fyrradag út- varpsumræðna um þessa miklu og óvæntu skattahækkun. í gær tilkynnti forsætisráð- herra á þingfundi, að ríkisstjór- in myndi breyta frumvarpinu og lækka skattinn niður í 7,5% Miklar umræður hafa orðið um söluskattsfrumvarpið, bæði á þingi, í blöðum og meðal alls almennings. En útvarpsumræður munu fara fram á mánudaginn, og virðist einhver geigur hafa gert sig heimakominn í herbúðum stjórnarinnar síðustu daga.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.